Tíminn - 03.01.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 3. janúar 1992
Háskólaráð fjallaði í gær um tillögur um sparnað í
Háskólanum vegna minnkandi fjárveitingar til skólans:
Stigvaxandi og harðnandi
sparnaðaraðgerðir á árinu
Frá fundi Háskóiaráðs, sem haldinn var í gær. Timamynd Ami Bjama
Háskólaráð samþykkti á fundi sín-
um í gær að taka inn nýnema á vor-
misseri skólans, þó að þeir nemar
komi ekki til með að geta stundað
fullt nám. Þá voru lagðar friun til-
lögur fjármálanefndar ráðsins,
sem eiga að stuðla að spamaði.
Sveinbjöm Bjömsson háskólarekt-
or segist ekki vera bjartsýnn á að
þær dugi, en ekki verði teknar
ákvarðanir um róttækar breytingar,
svo sem hætta innritun nýnema,
fyrr en í vor. Það veröa því stigvax-
andi og harðnandi sparnaðarað-
gerðir í Háskóla íslands á árinu,
sem ekki er hægt að sjá fyrir afleið-
ingaraf.
Eins og áður sagði, voru lagðar
fram tillögur fjármálanefndar Há-
skólaráðs á fundi ráðsins, og eru
þær í tíu liðum. Þær eiga að stuðla
að spamaði og hagræðingu í rekstri
skólans til að mæta þeim niður-
skurði á fjárveitingu ríkisvaldsins
til skólans, sem er á annað hundrað
milljónir króna. Stefnt er að því að
samþykkja þær tillögur á næsta
fundi ráðsins, sem verður að hálf-
um mánuði liðnum. Að sögn há-
skólarektors snúast tillögur nefnd-
arinnar um almennar reglur til
spamaðar og hagræðingar, sem
menn innan skólans eiga að hafa
sem vinnureglur. Þá verða einstak-
ar deildir og kennslueiningar beðn-
ar um að finna sjálfar með hvaða
hætti þær geta náð niður kostnaði
hjá sér. „Við emm hins vegar ekki
bjartsýnir á að við getum með
þessu móti náð að skera niður eins
og til er ætlast. Þannig að þrátt fyr-
ir þessar aðgerðir, býst ég ekki við
að við sjáum fram úr árinu, en það
er þó verið að gera það sem hægt
er,“ sagði Sveinbjöm í samtali við
Tímann.
Á fundi ráðsins var samþykkt að
teknir skuli inn nýnemar á vorönn
skólans, en búist er við um 200
nemum nú. Það er þó sá fyrirvari á
þeirri samþykkt, að vegna takmark-
ana á fjárveitingum geta þeir nemar
aðeins sótt námskeið þar sem fjölg-
un vegna þeirra veldur litlum auka-
kostnaði, og því verða ekki búnir til
aukahópar fyrir þá nýnema eða að
efna til sérstakrar kennslu vegna
þeirra.
„Við ætlum að reyna að gera þá
hluti, sem við höfúm verið að gera
hingað til, ódýrari heldur en áður.
Til dæmis með því að færa kennslu
yfir á ódýrari kennara, kenna ein-
ungis annað hvert ár og fleira. Ef
það dugar ekki, þá þarf að taka
ákvarðanir um að hætta einhverju.
Við óttumst hinsvegar að þessar að-
gerðir dugi of skammt og að þess
vegna verði þrautalendingin, ef ekki
rætist úr, að taka verði ákvörðun
um hvort það eigi að taka inn ný-
nema á haustmisseri. En það er al-
veg ljóst að fram á vorið verður
óvissa ríkjandi," sagði Sveinbjöm
Bjömsson.
Þá var kynnt á fúndinum að ætlun-
in er að koma upp samráðsnefnd
menntamála- og fjármálaráðuneytis
og Háskólans, til þess að ráðuneytin
geti fylgst með því hvað verið sé að
gera. Sveinbjöm sagði að það, sem
sneri að skólanum, væri að ráðu-
neytin skildu hvað væri að gerast í
skólanum og valdhafar fengju tiltrú
á að ráðamenn skólans væm að
reyna að spara og hagræða. -PS
Serbneskir hryðjuverka-
menn hóta Jóni Baldvini
lífláti. Útlendingaeftirlitið:
Tjá sig ekki
um öryggis-
ráðstafanir
Serbnesku hryðjuverkasamtökin
Svarta höndin hafa haft í hótunum
við Jón Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra íslands, og sagt hann
vera í lífshættu. Formleg tilkynning
um þetta barst ræðismanni íslands í
Þýskalandi skömmu fyrir áramót
Þessi sömu samtök hafa hótað að
ráða utanríkisráðherra Þýskalands af
dögum, og hefur öryggisgæsla um
hann verið hert Ástæðan fyrir því að
samtökin telja sig eiga sökótt við Jón
Baldvin er að ísland varð fyrst vest-
rænna þjóða til að viðurkenna sjálf-
stæði Króatíu og Slóveníu.
Ámi Sigurjónsson hjá Útlendinga-
eftirlitinu vildi ekkert um málið
segja, þegar hann var spurður hvort
gripið hefði verið til einhverra örygg-
isráðstafana vegna hugsanlegrar
hingaðkomu serbneskra hryðju-
verkamanna. Þá er ekki ljóst hvort
hótun Svörtu handarinnar er bundin
við persónu utanríkisráðherrans
eina, eða hvort hugsanlegt sé að
hryðjuverkasamtökin muni jafnvel
bera niður einhvers staðar annars
staðar í íslensku þjóðlífi, enda hafi
viðurkenningin á sjálfstæði Slóveníu
og Króatíu verið gerð í nafni íslensku
þjóðarinnar.
Nú um áramótin tók Jón Baldvin við
formennsku í EFTA og er hann af
þeim sökum mikið erlendis. Dóms-
málaráðuneytið hefur gefið upp að
sérstakar ráðstafanir hafi verið gerðar
til að tryggja öryggi ráðherrans á
ferðum hans, en eðli málsins sam-
kvæmt er ekíd gefið upp hvaða ráð-
stafanir það eru.
Þess má geta að hryðjuverkasamtök-
in Svarta höndin stóðu að morðinu á
Frans Ferdinand, ríkisarfa Austurrík-
is, í Sarajevo í Júgóslavíu, en morðið
hratt af stað fyrri heimsstyijöldinni.
-EÓ
Iþróttamaöur
ársins
Ragnheiður Runólfsdóttir sundkona
var í gær kjörin íþróttamaður ársins af
Samtökum íþróttafréttamanna. Kjör
hennar var mjög afgerandi, en hún
hlaut 310 stig af 380 mögulegum. Ár-
ið 1991 átti Ragnheiður sitt besta
sundár og vakti mikla athygli á smá-
þjóðaleikunum í Andorra þar sem
hún var kosin mesti afreksmaður leik-
anna. Þá setti hún alls sjö íslandsmet
á árinu, auk þess sem hún tók þátt í
sex alþjóðlegum mótum og komst í
úrslit á þeim öllum. Ragnheiður er
fyrsta konan í 28 ár sem kosin er
íþróttamaður ársins. Sigurður Ein-
arsson spjótkastari var í öðru sæti í
þessu kjöri, og Eyjólfur Sverrisson
Ragnheiöur Runólfsdóttir.
Akureyri:
Eldur í sjónvarpi
Slökkviliðið á Akureyri var kallað út
vegna elds í íbúð í fjölbýlishúsi
klukkan 17.39 á nýársdag, en þar var
enginn heima. Það var nágranni
sem tilkynnti um eldinn, sem var
laus í stofu, en greiðlega gekk að
slökkva eldinn. Tveir reykkafarar
fóru inn í íbúðina og réðu niðurlög-
um hans. Töluverðar skemmdir
urðu á íbúðinni, að mestu vegna
reyks og sóts. Tálið er að eldurinn
hafi komið upp í sjónvarpstæki. -PS
Steinunn Sigurðardóttir og Björn Th. Björnsson fá styrk úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins:
Fullur styrkur til tveggja
Rithöfundarair Steinunn Sigurðar-
dóttir og Bjöm Th. Bjömsson hlutu
styrk úr Rithöfundasjóði Ríkisút-
varpsins, en styrkjum úr sjóðnum er
úthlutað á gamlaársdegi hvers árs.
Styrkurinn til hvors þeirra nemur
350 þús. krónum.
Sjóðurinn var stofnaður árið 1956 að
frumkvæði Gylfa Þ. Gíslasonar, þáver-
andi menntamálaráðherra, og er til-
gangur hans að veita rithöfundum
styrki til ritstarfa eða undirbúnings
fyrir þau, einkum utaníara, eins og
segir í stofnskrá sjóðsins.
Rithöfundasamband íslands mæltist
til þess við stjóm sjóðsins árið 1988 að
öll styrkupphæð sjóðsins yrði látin
renna til eins rithöfundar hverju sinni,
og var það gert þar til nú, að tveir höf-
undar eru styrktir. Dr. Jónas Kristjáns-
son, formaður sjóðsstjómar, sagði við
afhendingu styrksins á gamlaársdag
að tekjur sjóðsins hefðu aukist vem-
lega að raungildi síðustu árin og því
hefði verið mögulegt að veita tveim
höfundum fullan styrk. Ástæða þessa
væri tvíþætt: annars vegar hefur dag-
skrá útvarpsins lengst, útvarpsrásum
Steinunn Sigurðardóttir og Björn Th. Bjömsson hlutu styrk úr Rit-
höfundasjóði Ríkisútvarpsins á gamlaársdag. Tímamynd: ge
fjölgað og tekjur sjóðsins, sem byggj-
ast á höfundarlaunum vegna notkunar
RÚV á verkum rithöfunda, því aukist
„Og í annan stað má þakka það að
vegna viturlegra umbóta á efnahagslífi
þjóðarinnar er nú unnt með forsjálni
að ávaxta sparifé, svo að ýmsir ágætir
sjóðir fitna nú í stað þess að megrast"
sagði Jónas Kristjánsson.
—sá
13 Islendincgar fá fálkaoróuna
I _ .• V f I / / / J K illlM . w . i . . i i
Forseti íslands sæmdi á nýársdag, að tillögu orðunefndar, eftirtalda
13 íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu:
Daníel Guðmundsson, fyrrverandi
oddvita og bónda í Hrunamanna-
hreppi, riddarakrossi fyrir störf að
sveitarstjómarmálum.
Guðmund Benediktsson, fyrrv. ráðu-
neytisstjóra í Reykjavík, stjömu stór-
riddara fyrir störf í opinbera þágu.
Hans Jörgensson, fyrrv. skólastjóra í
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í
þágu aldraðra.
Höskuld Jónsson, forstjóra í Reykja-
vík, riddarakrossi fyrir störf að ferða-
málum.
Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur, Ámesi í
Aðaldal, riddarakrossi fyrir störf að fé-
lagsmálum.
Jón Olgeirsson, ræðismann í Grims-
by, stórriddarakrossi fyrir störf í þágu
íslands erlendis.
Lovísu Ibsen sjúkraliða, Súgandafirði,
riddarakrossi fýrir störf að heilbrigðis-
málum.
Magnús Gunnarsson, framkvæmda-
stjóra í Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að markaðsmálum sjávarútvegar-
ins.
Markús Öm Antonsson, borgarstjóra
Reykjavíkur, riddarakrossi fyrir störf í
opinbera þágu.
Othar Ellingsen, forstjóra í Reykjavík,
stórriddarakrossi fyrir störf að félags-
og verslunarmálum.
Ragnar Amalds, fyrrv. ráðherra í
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í op-
inbera þágu.
Sigríði Hagalín, leikara í Reykjavík,
riddarakrossi fyrir leiklisL
Sigurð Hjaltason, fyrrv. framkvæmda-
stjóra á Höfri í Homafirði, riddara-
krossi fyrir störf að sveitarstjómarmál-
um. —sá