Tíminn - 04.01.1992, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Laugardagur 4. janúar 1992
Æskilegt að eftirlaunaaldur verði mun sveigj-
anlegri, segir landlæknir:
Líkamleg
og andleg
örvun nauð-
synleg
Ólafur Ólafsson landlæknir skrifar grein í tímaritiö Heilbrigðismál
þar sem hann fjallar um málefni eldri borgara. í greininni kemur
fram að Alþingi samþykkti í vor að skipa nefnd til að kanna hvemig
taka má upp svonefndan sveigjanlegan eftirlaunaaldur. Þá er miðað
við að fólk geti valið um að fara á eftirlaun á aldrinum 65 ára til 75
ára. Ólafur telur þetta sjálfsagt réttindamál fyrir eldri borgara og
breyting í þessa átt getur verið hagkvæm fyrir þjóðfélagið.
Á íslandi vinnur fólk á eftirlauna-
aldri lengur en á hinum Norður-
löndunum. Árið 1981 voru í Dan-
mörku aðeins 56% karla og 27%
kvenna á aldrinum 60-64 ára við
vinnu. Á Reykjavíkursvæðinu stund-
uðu yfir 90% karla á aldrinum 60-69
ára og um 50% 70-79 ára líkamlega
vinnu á árunum 1985-1986.
Landlæknir rekur helstu orsakir
starfsloka áður en eftirlaunaaldri er
náð:
• Atvinnuleysi.
• Menntunarkröfur atvinnuveg-
anna hafa aukist.
• Hagræðing er orðin meiri,
meðal annars vegna tölvuvæðingar.
• Félagslegur þrýstingur:
,>!enn eiga að hætta þegar ellin
færist yfir og hleypa þeim ungu að.“
• Verkalýðspólitík stéttarfélag-
anna er oft neikvæð í garð „þeirra
görnlu".
• í stöku tilvikum getur verið
fjárhagslega hagkvæmt að hætta
vinnu.
Þá bendir Ólafur á að til að fólk
haldi líkamlegri og andlegri hæfni
sem lengst er líkamleg og andleg
örvun nauðsynleg, til þess að við-
halda góðri sjón, heyrn og hreyfi-
getu svo og félagslegri og sálrænni
aðlögunarhæfni. „Það hefur oft
komið í Ijós að fram að 70 ára aldri
er andleg hæfni flestra lítt eða ekki
skert og má jafna henni við getu þrí-
tugra og fertugra. Þó verður að taka
fram að snerpunni hrakar heldur."
Það er því mat Ólafs að: „Eftirlauna-
aldur á því að vera sveigjanlegur og
byggjast á læknisfræðilegu og fé-
lagsfræðilegu mati á starfsgetu og
hæfni hvers og eins. Vitaskuld á ekki
að skerða rétt manna til eftirlauna er
þeir hafa áunnið sér. En það eru
mannréttindi að halda óskertum
starfsréttindum svo lengi sem hæfni
og starfsorka leyfa.
Æskilegt væri að eftirlaunaaldur
verði mun sveigjanlegri en nú er,
þannig að fólk geti valið um hvenær
það hættir störfum á aldursbilinu
60-75,“ segir í niðurlagi greinar Ól-
afs.
-js
Læknar leita raunhæfra leiða til að lækka lyfjakostnað:
Læknum auðveldað
að ávísa á ódýru lyfin
Nefnd lækna og lyfjafræðinga, sem Læknafélag Reykjavíkur skip-
aði og ætlað var að fínna raunhæfar leiðir til að lækka lyfjakostn-
að, hefur skilað tillögum sínum. Þær eru um margt frábrugðnar
þeim ráðum, sem yfirvöld hafa þegar gripið til. Leiðimar verða
kynntar stjómvöldum nú á næstunni. Frá þessu er greint í
Læknablaðinu.
Nefndin hvetur til þess að læknum
verði gert auðveldara að ávísa á
ódýrasta lyfið með því t.d. að útbúa
nýja lyfseðla. Bent er á að læknar
gefi sér ekki tíma til að fletta upp og
finna ódýrasta lyfið. Auðvelda mætti
leitina með að skrifa lyfseðla í tölvu
með innbyggðum samanburði á
íþróttamaður Borgarfjarðar:
íris Grönfeldt
hlaut hnossiö
íris Grönfeldt frjálsíþróttakona varð
hlutskörpust í kjöri um íþrótta-
mann ársins í Borgarfirði, en úrslit
í þessari kosningu lágu fyrir á næst
síðasta degi ársins 1991.
íris hlaut 66 stig.
í öðru sæti varð frjálsíþróttamað-
urinn Bergþór Ólason með 51 stig,
og í því þriðja Haraldur Már Stefáns-
son kylfingur sem hlaut 45 stig. Alls
26 íþróttamenn hlutu stig í kjöri um
íþróttamann Borgarfjarðar 1991.
verði sambærilegra lyfja.
í öðru lagi leggur nefndin til að
fræðsla almennings um lyf, kosti
þeirra og galla, verði efld. Hún bend-
ir á að viðhorf almennings til lyfja
virðist giska öfgakennt, ýmist fullt af
oftrú eða vantrú. Þannig leiti sumir
Iyfja við hverjum eina kvilla sem þá
kunna að hrjá, meðan aðrir noti ekki
þau lyf sem þeim eru gefin.
í þriðja lagi þurfi svo að fræða
lækna og læknanema um þessi mál.
Nefndin ætlar að íslenskir læknar
hneigist til að gefa of stóra skammta
í of langan tíma. Mörg dæmi séu til
þess að þeir hefji langvinna meðferð
á því að gefa langtímaskammt af lyfi.
í Ijós geti þá komið að lyfið hefur
aukaverkanir sem sjúklingurinn
þolir ekki og því nauðsynlegt að
reyna annað lyf. Nær væri að hefja
meðferðina með smáskömmtum og
koma þannig í veg fyrir óþarfa sóun.
Að síöustu Ieggur nefndin til að
eftirlit með ávísunum einstakra
lækna verði hert. -aá.
Erlent
fréttayfirlit
TBILISI, Georgíu
Grlmuklæddir menn vopnaöir byss-
um skutu I gær á hóp fólks, sem
safnast haföi saman til aö láta I Ijós
stuöning viö Zviad Gamsakhurdia,
forseta Georglu, sem enn er I herkvl I
þinghúsi landsins I Tbilisi. Aö minnsta
kosti einn maður lét llfiö I skotárás-
inni. Þrlr byssumannanna náöust og
var einn þeirra barinn til bana aftur I
sendiferðabll.
BELGRAD
Hersveitum Króata og sveitum úr
sambandsher Júgóslavíu laust sam-
an I gær nokkrum klukkustundum fyr-
ir umsamið vopnahlé, sem er skilyröi
þess aö friðargæslusveitir S.Þ. fari
inn I Króatlu. Carrington lávarður,
sáttasemjari Evrópubandalagsins, fór
I gær frá London til Lissabon I Portú-
gal til viðræöna við Cyrus Vance,
sendimann S.Þ. I Júgóslavlu.
KAÍRÓ
Heimildir innan utanríkisráöuneytis
Egyptalands herma að Bandarlkin,
Bretland og Frakkland hafi lagt á hill-
una fyrirætlanir og tilraunir til þess aö
fá S.Þ. til aö setja viðskipta- og efna-
hagshömlur á Llbýu fyrir sprengjutil-
ræöi við bandarískar og breskar far-
þegaflugvélar sem kostað hafa 440
manns lífið. Frönsk stjórnvöld vlsa
þessu á bug og Bretar neita aö gefa
upp hvaða aðgeröir gegn Llbýu þeir
hafi I hyggju.
HANOI
Bandaríski þingmaðurinn Stephen
Solarz sagði i gær aö ekki væri frá-
leitt að Bandaríkin hættu efnahags-
legum refsiaögerðum gegn Vletnam,
ef stjómin I Hanoi yröi hjálpleg við að
grennslast fyrir um afdrif bandarlskra
hermanna I landinu og styddu aö-
geröir til aö koma á friöi I Kambódlu.
MOSKVA
Ráöherra nokkur I stjórn Boris Jelt-
slns Rússlandsforseta býst við þvl að
Rússland geti hafið viðskipti með er-
lendan gjaldeyri I lok mánaðarins.
Hann telur llklegt aö bandarlkjadalur-
inn muni kosta eitthvað um 200 mbl-
ur.
CHAD
Sveitir hersins I Chad hafa byrjað
hemað til að freista þess að endur-
heimta tvo bæi, sem féllu I hendur
stuðningsmanna hins fallna forseta,
Hissene Habre, á dögunum.
SINGAPORE
George Bush Bandarlkjaforseti von-
ast til aö Singapore muni taka þátt I
viöræðum um aukinn sjóherstyrk
Bandaríkjanna á Kyrrahafi. Viðræð-
urnar eiga að hefjast I dag og em
hugsaðar sem fyrsta skrefið I endur-
skipulagningu á herstyrk Bandaríkj-
anna á svæöinu.
DJAKARTA
Indónesíustjórn hefur varað Ástrallu-
stjórn við því að samskipti landanna
séu I hættu eftir fjöldamótmæli I Ástr-
allu gegn fjöldamorðum hers Ind-
ónesíu á Austur-Timor. Fjöldamorðin
vom framin I nóvembermánuði sl. og
mótmæli Ástralíumanna hafa vakið
reiði stjórnvalda I Indónesíu og hrellt
sendimenn þeirra í CanberTa.
MERKIÐ
VIÐ 13 LEIKI
4. janúar 1992
Viltu gera
uppkast að
þinni spá?
1. Boumemouth — Newcastle DE00
2. Bristol City — Wimbledon y
3. Coventrv Citv — Cambridae II11 ii x im
4. Huddersfield — Millwall □ 000
5. Hull City — Chelsea BmHiXI
6. Leicester City — Crystal Palace y 000
1■ Middlesbrouqh — Manch. City H 000
8- Norwich City — Barnsley H11 n xim
9. Preston — Sheff. Wed. □ 11 ii x im
10- Sheff. United — Luton Town y 11 ii x ii 21
11- Southampton — Q.P.R. q 11 ii x im
12. Sunderland — Port Vale EE I 1 II x || 2 I
13. Swindon Town — Watford E 000
: J Q ■ B c Z z 3 i- »1 z z 3 > s 2 .1 tr 73 O 2 n\ e Q- cr < IC d u. d | FU 95,7 2 1 J 1 V- 1 Q < U e o < 3 A. 3 >l SA »] JTA r I a| LS |
1 xij
11 2 X 2 2 X 2 2 X 2 1 3 6
2 1 2 2 2 2 1 2 X 2 1 3 1 6
3 1 1 1 1 1 1 X 1 1 1 9 1 0
4 2 2 2 2 X 1 X X 2 2 1 3 6
5 1 2 2 2 2 2 2 2 2 2 1 0 9
6 X 2 X 2 X X 2 2 2 1 1 4 5
7 1 2 2 2 2 X 2 2 2 2 1 1 8
8 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
9 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 0 10
10 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
11 X 1 1 1 X 1 1 X 1 1 7 3 0
12 1 1 X 1 X 1 1 1 1 1 8 2 0
13 1 1 X 1 1 1 1 1 1 1 9 1 0
STAÐAN í 1. DEILD
Leeds ........24 13 10 1 42-19 49
Man.Utd........22 14 6 2 43-18 48
Sheff.Wed ....23 11 7 5 37-24 40
Man.City.......24 11 7 6 33-28 40
Liverpool......23 9 11 3 27-19 38
Aston Villa....23 11 3 9 34-29 36
Arsenal .......22 9 6 7 40-29 33
Tottenham......22 10 3 9 34-29 33
Everton........24 9 6 9 35-31 33
C. Palace......22 9 6 7 34-40 33
Nott.Forest...23 9 4 10 37-34 31
Norwich........23 7 9 7 29-31 30
QPR ..........24 7 9 8 25-30 30
Chelsea........24 7 8 9 31-37 29
Coventry.......23 8 3 12 25-26 27
Oldham.........23 7 6 10 37-42 27
Wimbledon.....23 6 8 9 27-30 26
Notts.C........23 7 4 12 26-32 25
Luton..........23 5 7 11 17-41 22
Sheff.Utd ....24 5 6 13 29-42 21
WestHam........23 4 8 11 22-37 20
Southampton... 23 4 7 12 21-37 19
STAÐAN í 2. DEILD
Blackbum ....24 13 5 6 35-22 44
Ipswich ... 26 12 8 6 39-30 44
Southend ....26 12 7 7 39-30 43
Middlesbrough .25 12 6 7 33-25 42
Cambridge .... ....24 11 8 537-2741
Leicester ....25 12 5 8 32-29 41
Swindon ....24 10 9 5 44-29 39
Derby ....24 11 6 734-2639
Portsmouth .. ....24 11 6 7 31-24 39
Charlton ....24 10 6 8 28-26 36
Wolves ... 25 9 6 10 32-31 33
Millwall ....25 9 6 10 38-39 33
Bristol C ....25 8 9 8 30-34 33
Tranmere ....22 7 11 4 25-24 32
Sunderland.... ....26 9 5 12 35-37 32
Watford ....25 9 4 12 29-29 31
Port Vale ....27 7 10 10 27-34 31
Bamsley ....27 8 6 13 29-37 30
Plymouth .... ....24 8 4 12 25-36 28
Newcastle .... ....27 6 10 11 36-48 28
Bristol R ....26 6 9 11 33-43 27
Grimsby ....24 7 6 11 28-39 27
Brighton ....27 6 7 14 33-44 25
Oxford .. 24 6 3 15 32-41 21