Tíminn - 04.01.1992, Síða 13
Laugardagur 4. janúar 1991
Tíminn 13
Eddie Van Halen skellir I sig einum Heineken áöur en hann fer á
sviöið. Valerie kona hans horfir á, greinilega ekkert yfir sig ánægö.
EDDIE VAN HALEN
gítarsnillingur í basli meö sjálfan sig:
Eddi í erfiðleikum
með að hanga þurr
Eftir að Valerie Bertínelli hafði,
með sjö mánaða son sinn í fang-
inu, séð mann sinn, gítarsnilling-
inn Eddie Van Halen, skrallfullan
og umkringdan mismikið klædd-
um stelpum inni á hótelherbergi,
var henni nóg boðið og hrópaði á
hann að hún vildi ekki heyra hann
né sjá meir.
Eddie Van Halen var á hljómleika-
ferð með hljómsveit sinni Van Ha-
len þegar þetta gerðist, en konu
hans hafði grunað að ekki væri allt
með felldu og birtist óvænt inni á
hótelherbergi þeirra félaganna.
Eddie Van Halen, sem er 34 ára
gamall, hefur verið drykkfelldur
um langt skeið og hjónaband hans
og Valerie hefur verið all storma-
samt.
Hann hafði nýlega farið í áfeng-
ismeðferð, en konu hans grunaði
hins vegar að hann hefði dottið í
það á hljómleikaferðinni og fékk
grun sinn staðfestan þegar hún
birtist óvænt.
Alice Cooper um 1975.
ALICE COOPER rokksöngvari
viö sama heygaröshorniö:
Allt er fertugum fært
eða
hvað?
Héldu menn að Alice Cooper rokkari væri búinn
að finna rétta tóninn? Svo virðist ekki vera og
enn virðist hann hafa hugarflug til að breyta útlití
sínu, eins og sjá má.
Alice Cooper var nokkuð þekktur rokkari á árun-
um upp úr 1970 og tónleikar hans voru miklar
dauðasýningar þar sem kjúklingar voru traðkaðir
til dauða. Tónleikum hans lauk venjulega með því
að hann stakk hausnum í eftirlfkingu af fallöxi
sem síðan „hjó af honum hausinn". Eitt þekktasta
lag hans frá þessu tímabili var School’s Out.
Alice Cooper gerði sér far um að líta út eins og
blendingur af blóðsugu og klæðskiptingi. Nú hefur
hann tekið skrefið til fulls í kynskiptingsáttina.
Alice Cooper
áriö 1992.
Ansi sæt(ur)?
MADONNA þjáö af einmanaleika og skorti á blíöu:
Leitar skyndikynna
í drossíuaftursæti
Madonna ekur um göturnar í leit aö kornungum, vöðvastæltum strákum.
Sá orðrómur gengur meðal ríka og fræga fólksins f Ameríku að Madonna sé svo einmana um þessar mundir og skorti svo
ást að hún leiti uppi sólbrennda, vöðvastælta stráka á götuhomum tíl skyndikynna. Þetta kemur fram í vikuritinu Globe
þar sem fjallað er á frjálslegan hátt um ýmislegt í háttum og fari frægðarfólks úr skemmtiiðnaðinum í Ameríku.
Samkvæmt fregnum mun Madonna hafa verið gjörn á það að láta einkabílstjóra sinn aka sér í viðhafnarvagni sínum
um þau hverfi New Yorkborgar, sem byggð eru einkum fólki af latneskum uppruna. Hún eigi það síðan til að kalla
upp í bílinn einn eða fleiri stráka og eigi síðan með þeim unaðsstund í aftursætinu. Þessum ferðum hafi þó fækk-
að um New York, þar sem veruleg hætta sé á að einhver þekki hana. Því sé nú orðið líklegra að hún stundi
þessa iðju í evrópskum stórborgum þar sem færri eru líklegir til að bera kennsl á hana.
Madonna dvelur langdvölum í París og sækir ákaft í karlpeninginn, að sögn þeirra sem þykjast til
þekkja. „Hún sækist fast eftir kornungum piltum með mjög vöðvastæltan skrokk. Þegar hún
hefur komið auga á einn huggulegan, skipar hún bílstjóranum að stöðvaog síðan býður hún
manninum upp í bílinn og skipar síðan bílstjóranum að aka eitthvað um meðan hún
skemmtir sér í aftursætinu," segir gömul vinkona Madonnu, frú Jean Claude Pallerin.
Söngkonan fræga hefur
ánægju af aftursætis-
gamanmálum,
segja kunnugir.