Tíminn - 09.01.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 9. janúar 1992
Menningarsamstarf íslands og Finnlands: Úthlutun úr Menningarsjóði íslands og Finnlands:
3,5 millj. kr. til 33 menningaraðila
Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands hefur ákveðið árlega út-
hlutun styrkja úr sjóðnum. Umsóknarfrestur var til 30. sept. sl. og bár-
ust alls 97 umsóknir, þar af 73 frá Finnlandi og 24 frá íslandi. Úthlut-
að var alls 259.000 finnskum mörkum eða 3,5 millj. ísl. kr.
Stofnfé sjóðsins var 450.000 fínnsk mörk, sem fínnska þjóðþingið
veitti í tilefni af 1100 ára afmæli íslandsbyggðar árið 1974. Hann nem-
ur nú um 2 milljónum marka. Stjórn sjóðsins skipa Matti Gustafsson,
deildarstjóri í fínnska menntamálaráðuneytinu, formaður; Juha Peura
fíl. mag., Kristín Þórarinsdóttir Mantylá, Þórunn Bragadóttir. Vara-
menn eru Ann Sandelin og Þórdís Þorvaldsdóttir.
Eftirtaldir hlutu styrki sem hér segin
Anna Einarsdóttir verslunarstjóri
5000 marka ferðastyrk til að vinna að
samskiptum á sviði bókmennta milli
landanna í tilefni af 75 ára afmæli
sjálfstæðis Finnlands.
Ari Matthíasson leikari 5000 marka
ferðastyrk til að aðstoða við gerð
handrits að sjónvarpskvikmynd og
kynna sér finnskt leikhús.
Arkitektafélag íslands 5000 mörk til
að bjóða finnskum arkitekt til íslands
til fyrirlestrahalds.
Bókavarðafélag íslands 8000 mörk,
sem er ferðastyrkur fyrir fimm til
átta bókaverði til að kynna sér finnsk
bókasöfn.
Brynhildur Þorgeirsdóttir myndlist-
armaður 3000 marka styrk til að
greiða kostnað við vinnu á glerverk-
stæði í tengslum við dvöl á listamið-
stöðinni Sveaborg.
Guðríður St Sigurðardóttir píanó-
leikari 5000 marka ferðastyrk til tón-
leikahalds í Finnlandi.
Hannes Lárusson myndlistarmaður
5000 marka styrk til að greiða kostn-
að við myndlistarsýningu Nfnu Roos
í Reykjavík.
Lárus Már Björnsson þýðandi 5000
marka ferðastyrk til að vinna að þýð-
ingum á úrvali ljóða eftir finnsku
skáldin Lars Huldén, Sirkka Turkka
og Martin Enckell.
Listasafn fslands 30.000 marka styrk
til finnskrar listsýningar í safninu í
tilefni af 75 ára sjálfstæði Finnlands.
Njörður P. Njarðvík rithöfundur
5000 marka styrk til að gefa út úrval
af þýðingum ljóða eftir Edith Söder-
gran.
Norræna húsið í Reykjavík 5000
marka styrk til að gefa út ferða- og
upplýsingabækling á finnsku um ís-
land.
Sr. Sigurjón Guðjónsson 5000
marka styrk til að gefa út eigin þýð-
ingar úr finnskum bókmenntum.
Þrymur Sveinsson námsmaður
3000 marka styrk til náms við Viit-
takivi lýðháskólann.
Vinnuhópur Kari J. Kettula og Kari
Vaijárvi 8000 marka ferðastyrk til að
kynna sér íslensk tímarit um menn-
ingarmál.
Vinnuhópur J. Halonen, J. Tommila,
T. Reimaluoto og H. Ahonius 6000
marka styrk til að taka þátt í kvik-
myndahátíð í Reykjavík í haust með
kvikmyndinni Back to the USSR.
Sigurbjörg Ámadóttir og Jouko
Parviainen 6000 marka ferðastyrk til
íslands til að safna efni í ferðahand-
bók um landið.
Listasafnið í Bjömeborg 10000
marka styrk vegna tveggja listsýn-
inga á íslandi.
Timo Emamo bókaútgefandi 5000
marka ferðastyrk til að heimsækja
Rithöfundasambandið og Norræna
húsið í Reykjavík og unga íslenska
rithöfúnda.
Samband bókasafnara í Finnlandi
5000 mörk til að bjóða íslenskum
fyrirlesara á bókavarðamót í Finn-
landi í vor.
Glerlistasafn Finnlands 25.000
marka styrk til að sýna finnska nú-
tímaglerlist í Norræna húsinu í
Reykjavík í lok ársins.
Frú Ritva Hyvári 5000 mörk til ís-
landsfarar.
Eva Jansson stud. fil. 4000 marka
styrk til að þýða á finnsku íslenska
málfræði fyrir útlendinga eftir Jón
Hilmar Jónsson.
Eila Juuma Ijósmyndari 4000 mörk
til að sækja sumamámskeið í ís-
lensku.
Timo Keinánen 4000 mörk til að
sækja sumarnámskeið í íslensku.
Jukka Káyhkö fil. kand. 8000 mörk
til að fara í rannsóknaleiðangur til ís-
lands.
André Landefort lektor 4000 mörk
til að sækja sumamámskeið í ís-
lensku.
Anna Mákelá myndlistarmaður
5000 mörk til að taka þátt í sýningu
myndlistarhópsins SIDS í menning-
armiðstöðinni Hafnarborg næsta
sumar.
Þjóðháttafélagið í Helsinki 8000
mörk til kynnisferðar til íslands.
Rovaniemibær 25.000 mörk til að
halda íslenska menningarviku í Ro-
vaniemi næsta sumar.
Mervi Támmi blaðamaður 25.000
mörk til að sýna brúðuleikhús, m.a. í
Norræna húsinu.
Pekka Timonen blaðamaður 5000
mörk til að skrifa blaðagreinar um ís-
land.
Marjatta Tuhkenen lektor 4000
mörk til að sækja sumarnámskeið í
íslensku.
Vasa-leikhúsið 25.000 mörk til að
þýða og sýna leikritið Dagur vonar
eftir Birgi Sigurðsson á íslenskri
menningarviku í Vasa í okt. nk.
—sá
Islandsmótið innanhúss í knattspvrnu:
Boltinn rúllar á ný
íslandsmótið í knattspyrnu innan-
húss hefst næstkomandi föstudag
klukkan 18.00 í íþróttahúsi Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti, með leik
Neistans og Ungmennafélagsins
Hauka í C-riðli 4. deildar. Dagana
10.-12. janúarverður leikið í3. og4.
deild og verða allir leikir leiknir í
íþróttahúsi Fjölbrautaskólans og
lýkur keppni á sunnudag um klukk-
an 19.00. Helgina 17.-19. janúar
verður leikið í 1. og 2. deild karla og
1. deild kvenna og verður þá leikið í
Laugardalshöll. Dregið hefur verið í
riðla og eru þeir eftirfarandi:
1. deild karia
A-riðill
Fram, KA, Grindavík, Haukar
B-riðiIl
ÍBV, ÍA, Grótta, Valur
C-riðill
Fylkir, ÍBK, Selfoss, Víkingur
D-riðill
KR, Stjarnan, Þróttur, FH
1. deild kvenna
A-riðill
UBK, Stjarnan, Þróttur N, Sindri
B-riðill
KR, ÍBK, Ægir, Haukar
C-riðill
Akranes, Valur, KS
2. deild karla
A-riðill
UBK, Árvakur, Leiknir, Víkverji
B-riðill
Þór A, HSÞ-b, Einherji, Hvöt
C-riðiIl
ÍR, Víkingur Ól, Leiftur, Þróttur N
D-riðill
Víðir, Njarðvík, Reynir Á, Sindri
3. deild karla
A-riðill
KS, Kormákur, Magni, Fjölnir
B-riðill
Skallagrímur, TBR, Tindastóll,
Reynir S
C-riðill
Ármann, Dalvík, Hafnir, Höttur
D-riðill
Bolungarvík, Snæfell, Valur R, SM
4. deild
A-riðill
Leiftur, Neisti, Leiknir R, Huginn
Fell
B-riðill
Súlan, Ægir, Hvatberar, Eyfellingur
C-riðill
Neisti, Vísir, Ögri, UMF Haukar
D-riðill
Léttir, ÖSP, Afturelding, Þrymur
E-riðill
ÍME, Fálkinn, Geislinn, UBH
F-riðiIl
BÍ, Hrafnkell, Fram S, HK -PS
Um áramótin tók nýr ráðuneytis-
stjóri viö í forsætisráöuneytinu. Er
hinn nýi ráöuneytíssfjóri, Ólafur
Davíðsson, vel kynntur og fáir
draga (efa aö almennt séð sé hann
hinn hæfasti maður. ólafur er hins
vegar góður og gegn sjálfstæðis-
maður og skoðanabróöir núvenundi
forsætisráðherra, enda einn af
helstu spámðnnum síns flokks í
Evrópumálum og á ýmsum sviðum
efnahagsmála. Það kemur því ekki á
óvart að enginn hafl sótt um þessa
stöðu á móti Ólafi. Ráðning Ólafs
viröist hafa verið liður í áformum
Davíðs Oddssonar og þeirra sjálf-
stæðismanna að breyta stjómarráð-
inu og tryggja sér þar pólitísk ítök
langt út fyrir þann ramma sem
fiokknum er niarkaður af fallvöltu
kjörfylgi. TUkynnt hefúr verið að nú
muni ráðgjöf í efnahagsmálum
verða í ríkari mæfi foerð inn í for-
sætisráðuneytið og frá Þjóðhags-
stofnun. í sjálfu sér er ekkert at-
hugavert við það aö ráðgjafarþáttur-
inn í starfsemi Þjóðhagsstofnunar
skuli færður inn í forsætisráðu-
neytið.Þaðvekurhinsvegarathygli
hvemlg það er gert I stað tíma-
bundinna ráðninga á pólitískum að-
stoðarmönnum bm í ráðuneytíð,
dns og tiðkast hafa, er nú ráðinn
pótitískur ráðgjafi í stÖðu ráðuneyt-
isstjóra. Samhliða er tækifærið
notað til að
breyta starfs-
sviði og hlut-
verid embættis
ráðu neytis-
stjónu það víkk-
að út þannlg að
það taki til
þeirra verkefna,
sem áður
heyröu undir
Ólafur Davlðsson
ráöuneytisstjóri.
Davtð Oddsson
forsœtisráðherra.
sérstaka aö-
stoöarmenn og
efnahagsráð-
gjafa forsætis-
ráöherra.
Ekki
tímabundin ráðning
Ektó hefur hins vegar frést afþví
að ráðning ráðuneytísstjórans hafi
verið tímabundln eða að gert sé ráð
fyrir að nýir forsætísráðherrar
muni ráða sér sinn eigin ráðuneyt-
isstjóra þegar þdr koma í stjómar-
ráðið. Þvert á móti hefur fastri
stöðu verið breytt þannig að hún er
orðin mitóu flokkspólitískari en áð-
ur og í hana hefur verið ævfráðlð,
undir flokkspólitískum formerkj-
um.
Það, að forsæ tisráðuneytið hygglst
taka (auknum mæti vlð ráðgefandi
þjónustu Þjóðhags stofnunar, bend-
ir til að eitthvað af þeim ungu hag-
fræðingum og
viðsldptafræðing-
um, sem dyggi-
kga hafa þjónað í
ungliðasamtök-
um Sjálfstæðis-
fiokksins eða í
útibúi flokksins í
stúdentapólitík-
inni í Háskólan-
um, muni fá starf
í ráðuneytinu.
Niðurstaöan
verður því sú að
þeir forsætisráð-
herrar, sem á eft-
ir Davíð koma,
munu annað
hvort þurfa að sætta sig við að qjóta
efnahagslegrar ráðgjafar frá einum
af aðalhugmyndafræðingum Sjálf-
stæðisflokksins og þeim hópi stutt-
buxnapilta, sem þegar eru byjjaðír
að tínast inn í þær fostu stoður sem
fyrír hendi eru í (áðuneytinu, eða að
þeir þurfa að koma sér upp nýjum
ráðgjöfum til viðbótar þeim sem nú
hafa verið fastráðnir sem embættis-
menn í forsætísráðuneytinu.
Sérsveitir og galdra-
brennur
Forsætísráðherra hefur etód farið
dult með þá skoðun sína að hann
treystir engum til að gegna opin-
berum erindum eða stöðum, ef við-
komandi eru ekki í sama flotód og
hann. Dæmið um brottrekstur
tveggja framsóknarmanna úr Vest-
norden-nefndum og etód síst
hvemig þann brottrekstur bar að,
sýna hversu mitóa áhcrslu ráðherr-
ann leggur á stik atriöi. Því hlýtur
sú spuming að vakna bvemig til
mun takast í nýjasta atvinnubóta-
verkefnl ráðherrans, sem vill setja í
lög að sérstakir kommissarar á
hans vegum og annarra ráðherra
verði ráðnir til að taka völdin af for-
stöðumönnum ríkisstofnana um
lengri eða skemmri tíma. Þó hug-
myndin feti f sér—dnsogannaðí
starfsstfl þessarar ríkisstjóraar —
genæðistöhneigingar og mannfyr-
irlitningu, skiptir það stjómar-
flokkana etód máti. Einbvem veg-
fnn myndi það etód koma Garra á
óvart að þessar sérsvdtir ráðherr-
anna muni fijótlega þróast upp f
pólitískan rannsóknarrétt þar sem
athyglinni verður fyrst og síðast
beintað þeim ríkisstofnunum, sem
ekki eru reknar með þefrn hug-
myndaíræðilegu formerkjum sem
valdhöfum em þóknanlegar um
þessar mundir. Þá mun sfyttast í
galdrabrennur.
Garri
TOKYO
George Bush Bandaríkjaforseti
kastaði upp og féll um koll í
matarboði I Tokyo I gær. Lækn-
ar forsetans sögðu í gær að
hann væri veikur af flensu.
TOKYO
Áður en Bush veiktist I gær
tókst þeim Miyazawa, forsætis-
ráðherra Japans, að kynna
áætlun sem þeir nefna her-
bragð til heimshagvaxtar. Hag-
fræðingar láta í Ijós efasemdir
um aö áætlunin dugi langt til aö
ná hinu háleita markmiði.
ZAGREB
Evrópubandalagið hætti eftirliti
með vopnahléinu I Júgóslavíu
tímabundið í gær, I kjölfar þess
að orrustuþota frá sambands-
hernum skaut niður þyrlu friðar-
gæslumanna í fyrradag og allir
þeir sem í henni voru, fimm
manns, fórust.
LISSABON
Ráðstefna um frið í Júgóslavíu,
sem Evrópubandalagið stendur
fyrir, mun á ný koma saman í
Brússel I dag, þrátt fyrir árásina
I fyrradag á þyrlu friðargæslu-
manna bandalagsins. Þetta
kom fram hjá talsmönnum EB í
Portúgal í gær.
MOSKVA
Samveldi sjálfstæðra ríkja fyrr-
um Sovétríkjanna klofnaði I gær
í afstöðunni til þess hverjir eigi
að hafa með höndum yfirstjórn
hins öfluga Svartahafsflota.
Æðstu yfirmenn flotans neita að
lúta yfirstjórn Úkraínumanna.
TBILISI
Um það bil þúsund manns
hundsuðu viðvaranir nýrra vald-
hafa í Georgíu við því að sýna
stuðning við hinn burtflæmda
forseta, Zviad Gamsakhurdia.
Sjálfur lýsti hann því yfir I gær I
útlegö sinni aö hann væri enn
leiðtogi Georgíu.
BEIRUT
Sameinuðu þjóðirnar hafa talið
að gísladeilan í Llbanon sé
senn á enda. Hins vegar hafa
ýmis öfl, sem hlynnt eru klerka-
veldinu í íran, lýst því yfir að llk-
ur fari minnkandi á því að tveir
þýskir gislar losni úr prísund-
inni.
KÚBA
Stjórnvöld I Havana greina frá
þvi að sveit öryggislögreglu
hefði gómað þrjá vopnaða
hryðjuverkamenn, sem gengið
hefðu á land I vík einni á strönd
eyjunnar. Mennirnir hefðu kom-
ið með báti frá Bandaríkjunum.
AÞENA
Grískur dómstóll hefur fundið
palestínska skæruliðann Mo-
hammad Rashid sekan um að
hafa sprengt I loft upp banda-
rlska farþegaflugvél árið 1982.
Vélin var á leið til Hawaii.
BAGDAD
Hungur, skortur oa sjúkdómar
eru enn algengir I Trak, þótt ár
sé nú liðið frá Flóabardaga.
Ástandið er svo slæmt að sú
neyöarhjálp, sem S.Þ. hefur
sagt nauðsynlega, ertalin duga
rétt fyrir brýnustu þörf, að því er
starfsmaður S.Þ. í (rak telur.
BLOEMFONTEIN, S-Afríku
Afríska þjóðarráðið, sem Nel-
son Mandela er í forsvari fyrir, á
80 ára afmæli um þessar mund-
ir. Ráðið telur að mannréttinda-
áætlun stjórnvalda S-Afríku sé
skuggalegt ráðabrugg í því
skyni að viðhalda aðskilnaði
kynþátta I landinu.