Tíminn - 11.02.1992, Síða 2

Tíminn - 11.02.1992, Síða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 11. febrúar 1992 ASÍ vísar kjaradeilu sinni viö vinnuveitendur til rfkissáttasemjara: Samningar komnir í strand Samningaviðræður ASÍ og vinnuveitenda sigldu í strand í gær og hefur þeim nú verið vísað til ríkissáttasemjara. Forysta ASÍ hvetur jafnframt að- ildarfélög sín til að afla sér verkfallsheimilda hafl þau ekki þegar gert það. Á fundi samningsaðila í gær voru kynnt drög að nýrri þjóðhagsspá, en í henni er dregið nokkuð úr svartsýninni sem var í fyrri spá. ASÍ ítrekaði fyrri kröfur sem fela í sér þegar aflað sér verkfallsheimilda að launabætur á ýmsum sviðum. Vinnu- veitendur ítrekuðu jafnframt fyrri af- stöðu um að þeir myndu ekki fallast á neinar kröfur sem fela í sér aukinn kostnað fyrir atvinnulífið. Allt situr því fast Boltinn er núna hjá ríkissátta- semjara. Á fund samningsaðila í gær mætti Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Hann birti ekki nýja þjóðhagsspá á fundinum eins og búist hafði verið við. Það mun hann ekki gera fyrr en annaðhvort hafa tek- ist nýir kjarasamningar eða að sýnt þykir að þeir dragist mjög. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem Þórð- ur bar á borð fýrir samningsaðila er útlit fyrir að samdrátturinn verði ekki eins mikill og horfur voru á. í stað þess að vera 6% er nú talað um 4%. Horfur eru á að viðskiptahallinn verði talsvert minni, m.a. vegna lægra olíu- verðs. Hins vegar bendir ýmislegt til að hátt fiskverð á erlendum mörkuð- um lækki. Ásmundur Stefansson, forseti ASÍ, sagðist líta svo á að eftir fundinn í dag hafi harkan í kjaradeilunni aukist. .Atvinnurekendur hafa linnulaust endurtekið það svar að þeir séu ekki tilbúnir í neitt sem kosti peninga. Endurskoðuð þjóðhagsspá, sem sýnir betri niðurstöðu, virðist engu breyta um þetta. Það er því ekki um annað að ræða en að vísa málinu til sáttasemj- ara og skora á þau félög sem ekki hafa gera það sem fyrst," sagði Ásmundur. Kjarasamningar hafa verið lausir síð- an í september á síðasta ári. Allan þann tíma hefur verkalýðshreyfingin leitað eftir samningum, en án árang- urs. Ásmundur var spurður hvað ASÍ gæti beðið lengi eftir að eitthvað gerð- isL „Ég held að menn eigi ekki að setja sér einhverja eindaga í málum eins og þessum. Það verður að ráðast af stöð- unni frá degi til dags hvemig tekið verður á málum. Menn fara ekki í verkfall að gamni sínu. Menn fara ekki í verkfall nema þeir sjái fram á að það sé eina leiðin til að ná fram lausn. Það er augljóst af stöðunni eins og hún er í dag að það þarf að auka þrýsting á at- vinnurekendur ef það á að gera sér vonir um að þeirverði reiðubúniryfir- leitt til að gera nokkra samninga," sagði Ásmundur. Ásmundur sagði jaftiframt að ef til átaka kæmi muni menn endurskoða allar kröfur frá grunni. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagði slæmt að málið skuli nú vera komið til sátta- semjara. Því fylgi tafir. Óvissutíminn, sem fylgir lausum kjarasamningum, verði Iengri. Aukin hætta sé á að til átaka komi. Þórarinn benti á að óviss- an magni kreppuna vegna þess að fyr- irtæki og einstaklingar haldi að sér höndunum þegar menn vita ekki hvað er framundan. Þórarinn sagðist hins vegar ekki líta svo á að aukin harka sé hlaupin í kjaradeiluna. Þórarinn sagði að það breytti engu um afstöðu vinnuveitenda þó að sam- drátturinn í efnahagslífinu reynist ei- lítið minni en áður var spáð. Þórarinn sagði athyglisvert að þrátt fyrir að rík- isstjómin hafi verið að grípa til að- gerða sem hafa hækkað verð á opin- Deiluaðilar ræða stöðuna við sáttasemjara í Karphúsinu í gær. F.v. Guðiaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari, Jóngeir H. Hilmarsson, hagfræðingur Vinnumálasambandsins, og Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Dagsbrúnar. berri þjónustu, mælist verðbólgan að- komast í gegnum þessa erfíðleika sé að eins 1%. Hann sagði þetta styrkja von- ir um að hægt verði að halda verðlags- hækkunum á árinu innan við 2,5%. Þórarinn sagði að eina leiðin til að sitja á öllum hækkunum, jafnt á kaupi sem öðru. Jafnframt þurfi að lækka vexti. Með þessu verði hægt að koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi. -EÓ Heilbrigðisráðuneytið vill að sameining Borgarspítala og Landakots gangi hraðar fyrir sig: Sjúkrahús Reykjavíkur stofnað með uppsögnum 2000 starfsmanna Um helgina samþykktu stjómir Borgarspítala og Landakotsspítala að ganga til samninga um stofnun nýs sjúkrahúss, Sjúkrahúss Reykjavíkur. Reiknað er með að í dag eða á morgun hefjist formlegar Orðsending tíl lífeyrisþega Þann 1. febrúar sl. gengu í gildi breytingar á lögum um almannatryggingar sem varða grunnlífeyri elli- og örorkulífeyrisþega. Stærstur hluti h'feyrisþega, eða um 90% þeirra, verður ekki fyrir neinni skerðingu. Lífeyrisgreiðslur þeirra haldast óbreyttar. Skerðing grunnlífeyris á sér einungis stað ef atvinnutekjur eru umfram 66 þúsund krónur á mánuði. Þá skerðist grunnlífeyririnn um 250 krónur fyrir hverjar 1000 krónur í atvinnutekjum umfram 66 þúsund krónur á mánuði. Greiðslur úr lífeyrissjóðum og almannatryggingum hafa ekld áhrif til Iækkunar. Slíkar greiðslur skerða ekld grunnlífeyrinn. Við mat á atvinnutekjum er miðað við síðasta skattframtal, þ.e. framtaldar tekjur ársins 1990. Hafí atvinnutekjur elli- og örorkulífeyrisþega lækkað frá atvinnutekjunum árið 1990 getur lífeyrisþegi átt rétt á hækkun grunnlífeyris hafí grunnlífeyrir verið skertur þann 1. febrúar sl. Upplýsingar þar um má fá hjá Tryggingastofnun ríkisins og umboðsskrifstofum hennar. Þeir, sem þurfa á frekari upplýsingum að halda um þessar breytingar, vinsamlega snúi sér til ráðuneytisins í síma 91-609700 eða til Tryggingastofnunar ríkisins í síma 91-604400. Reykjavík, 4. febrúar 1992 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið viðræður með aðild heilbrigðis- ráðuneytisins. Þorkell Helgason, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, segir of snemmt að segja til hvaða breyting verði á rekstri spítalanna á þessu ári, en hann gerir ráð fyrir að starfsfólk nýja spítalans verði færra en fjöldi starfsmanna beggja spítal- anna er í dag. Þorkell segist telja að í fæstum tilfellum verði þessi fækk- un framkvæmd með beinum upp- sögnum. Fækkun verði hins vegar strax á þessu ári. Þorkell sagði of snemmt að segja til um hvaða breyting verði á rekstri spítalanna á þessu ári. Það myndi skýrast á næstu dögum. Þorkell við- urkenndi að menn hefðu ekki ná- kvæmlega sömu skoðanir um hvað sameining spítalanna ætti að ganga hratt fyrir sig. „Sumir vilja teygja þetta upp í þrjú ár eða lengur. Eg held að ríkisstjórnin vilji að þetta gangi hraðar fyrir sig þannig að þetta skili sem fyrst einhverjum ár- angri,“ sagði Þorkell. Fyrir áramót vann nefnd undir for- ystu Páls Sigurðssonar ráðuneytis- stjóra að tillögum um sameiningu spítalanna. Sú nefnd gerði ráð fyrir að sameiningin tæki 5-6 ár og hún færi ekki að skila sparnaði fyrr en eftir 2-3 ár. Til að byrja með átti sameiningin að kosta ríkissjóð um- talsverða fjármuni. Þorkell var spurður hvort sameining nú yrði byggð á tillögum nefndarinnar. .Auðvitað munum við byggja á vinnu nefndarinnar, en það þarf kannski að herða meira mittisólina en þarna var gert ráð fyrir. Nefndin vann sitt starf meira á faglegum grundvelli um hvernig hún vildi að svona sjúkrahús liti út ef nefndar- menn hefðu nóg fé til þess að fara út í þær breytingar sem þeir helst kysu. Þar eru m.a. breytingar sem eru lengi búnar að vera á óskalista Borg- arspítalans," sagði Þorkell. Þorkell sagðist gera ráð fyrir að strax á þessu ári verði starfsfólki fækkað sem vinnur á sjúkrahúsun- um báðum. Hann sagðist gera ráð fyrir aö í fæstum tilfelium myndi þessi fækkun gerast með beinum uppsögnum. í því sambandi benti hann á að miklar breytingar verði á starfsmannahaldi á hverju ári. „Það má vera að það sé hægt að komast hjá verulegum uppsögnum, en ég þykist vita að einhverjar uppsagnir verða,“ sagði Þorkell. Þetta rímar ekki alveg við það sem Ámi Sigfússon, borgarfulltrúi og stjórnarformaður Borgarspítalans, sagði um helgina í samtali við fjöl- miðla. Árni sagði að ekki yrði um uppsagnir að ræða á þessu ári. Fækkun starfsmanna gerðist á þann hátt að dregið yrði úr nýráðningum. Jafnframt mátti skilja á Árna að sameining sjúkrahúsanna tæki lengri tíma en Þorkell og félagar hans í heilbrigðisráðuneytinu tala um. í heilbrigðisráðuneytinu hefur þeg- ar verið gerð tillaga um hvernig þeim fjármunum sem ráðuneytið hefur til endurúthlutunar af flata niðurskurðinum sem ákveðinn var í fjárlögum verður skipt. Þó hefur ekki enn verið gerð tillaga um hvernig fjármunum verður skipt milli stóru sjúkrahúsanna þriggja í Reykjavík. Hins vegar er búið að gera tillögu um hvaða upphæð á að fara til þeirra sameiginlega. Fulltrú- ar ráðuneytisins munu hitta for- mann fjárlaganefndar Alþingis og fulltrúa fjármálaráðuneytisins í dag þar sem tillögurnar verða kynntar. Ekki eru liðnir nema fáeinir dagar síðan starfsmönnum Borgarspítala var tilkynnt að ekki kæmi til upp- sagna á spítalanum þrátt fyrir niður- skurð á fjárveitingum til hans. Um helgina bárust hins vegar fréttir af því að líklega yrði öllum 1400 starfs- mönnum spítalans sagt upp störfum í kjölfar sameiningar spítalans við Landakot. Horfur eru á að um næstu mánaðamót muni þessir starfsmenn bætast í hóp 600 starfsmanna Landakots sem þegar hefur verið sagt upp. Sigrún Knútsdóttir, formaður starfsmannaráðs Borgarspítala, sagði að óneitanlega væru starfs- menn spítalans í nokkurri óvissu um framtíð sína. Sigrún sagðist ekki hafa fengið það staðfest að til stæði að segja starfsfólkinu upp störfum. Hún sagði að stjómendur spítalans hefðu sagt í fjölmiðlum að ef til upp- sagna kæmi væri einungis um tæknilegt atriði að ræða. Ekki stæði til að láta neina uppsögn taka gildi. Sigrún sagðist vona að þessi yfirlýs- ing stæðist. - Óformlegar viðræður hafa farið fram milli forystumanna starfsfólks á Borgarspítala og Landakots og fyr- irhuga starfsmannafélögin að hafa með sér nánara samráð ef starfsfólki Borgarspítala verður sagt upp störf- um. -EÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.