Tíminn - 13.03.1992, Page 12

Tíminn - 13.03.1992, Page 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 HEIÐI WE! BILAPARTASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrífs HEIÐI ■ BÍLAPARTÁSALA Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbœ Símar 668138 & 867387 riel /%r HÖGG- > DEYFAR Verslið hjá fagmönnum varahlut IU Hamarsböfða l - s. ÞJONUSTA MÁLARAR geta bætt við sig málningarvinnu úti sem inni Vönduð og góð vinnubrögð Sími 670269 ÞÉTTING OG KLÆÐNING TVÖFALDUR1. vinningur Timiiin FÖSTUDAGUR 13. MARS 1992 BSRB krefst þess að ríkisstjómin svari hvort hún áformi að skerða réttindi opinberra starfsmanna:BSRB krefst þess að ríkisstjórnin svari hvort hún áformi að skerða réttindi opinberra starfsmanna: BSRB vill fá að sjá spil rík- isvaldsins Samninganefndarfundi BSRB og rfldsvaldsins var frestað í gær. Ástæðan er sú að BSRB krefst þess að fá að vita, áður en eiginleg- ar samningaviðræður hefjast, hvort rfldsvaldið hafí uppi áform um að skerða réttindi opinberra starfsmanna. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að ef slík áform séu uppi hjá stjórnvöldum sé ekki grundvöllur til frekari viðræðna um nýjan kjarasamning. í gær áttu BSRB og samninganefnd ríkisins stuttan fund þar sem BSRB krafðist þess að fá að vita hvort ríkis- valdið væri með einhver áform um skerðingu réttinda opinberra starfs- manna. Samninganefndin treysti sér ekki til að svara þessari spurn- ingu fyrr en hún hefði ráðfært sig við fjármálaráðherra. Þess vegna var ákveðið að fresta boðuðum samn- ingafundi sem átti að halda síðdegis í gær. Reiknað er með að samninga- fundur verði haldinn í dag og þá liggi afstaða ríkisvaldsins fyrir. íhaust lagði samninganefnd ríkis- ins fram hugmyndir sem m.a. fólu í sér skerðingu á réttindum opin- berra starfsmanna. Fjármálaráð- herra hefur einnig viðrað hugmynd- ir um minni lífeyrisréttindi opin- berra starfsmanna, afnám biðlauna o.fl. í gær ræddu forystumenn ASÍ, BSRB og KÍ saman um sameigin- lega kröfugerð sambandanna. Framhald samningaviðræðnanna er hins vegar meira og minna í bið- stöðu meðan beðið er eftir svari rík- isvaldsins. EÓ Viðgerð á Ásdísi, Fokker-50 flugvél Flugleiða sem varð að nauðlenda á dögunum á Keflavíkurflugvelli, er lokið: Tjónið á Ásdísi metið á 11 Viðgerð er nú lotdð á Ásdísi, nýrri Fokker-50 flugvél Flugleiða, en eins og kunnugt er varð að nauð- lenda vélinni á Keflavíkurflugvelli þar sem nefhjól vélarinnar fór ekki niður. Beinn viðgerðarkostnaður er um 11,5 milljónir króna og fellur hann að undanskildum nokkrum hundruðum þúsunda á Fokker verksmiðjumar. Fer vélin í áætlun- arflug innanlands um helgina. Að sögn Einars Sigurðssonar, Þingmenn kalla eftir stefnu ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum, en nefnd vinnur að mótun slíkrar stefnu: Von er á tillögu um vanda útvegsins eftir 2 mánuði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði á Alþingi í gær að nefnd, sem vinnur að endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar, muni skila áliti í haust ef þess væri nokkur kostur. Nefndin muni skila tillögum um bætt rekstrarumhverfi sjávarútvegsins eftir tvo til þrjá mánuði. Þetta kom fram í svari ráðherrans við fyrirspum frá Þuríði Beraódusdóttur, varaþingmanni Fram- sóknarflokksins á Suðurlandi. Nefnd sú sem Þuríður spurði um er undir forystu Magnúsar Gunn- arssonar framkvæmdastjóra og Þrastar Ólafssonar, aðstoðarmanns utanríkisráðherra. Nefndin var skipuð síðastliðið haust. Þuríður spurði ráðherra hvenær nefndin myndi skila tillögum um endur- skoðun fiskveiðistefnunnar og til- lögum um bætt rekstrarumhverfi sjávarútvegsins. Þuríður sagði að formenn nefnd- arinnar hefðu gefið mismunandi yfirlýsingar um hvenær nefndin hygðist ljúka störíúm. Magnús Gunnarsson hefði sagt í viðtali við Tímann að nefndin myndi Ijúka störfum og skila áliti í árslok 1992. Þröstur Ólafsson hefði hins vegar sagt að nefndin myndi skila af sér tillögum í haust, hugsanlega bráðabirgðatillögum í september. Þuríður sagði að mikill ágreining- ur væri milli ríkisstjómarflokk- anna um sjávarútvegsstefnuna. Flokkarnir hefðu kosið að hvíla þennan ágreining í nefnd. Á meðan búi sjávarútvegurinn við óvissu. „Þegar veiðiheimildir minnka svo mikið sem nú hefur orðið verður að gera þá kröfu til stjómvalda að þau svari skýrt til um það hver eigi að vera fiskveiðistefna næstu ára. Verður svifasein og sundurleit nefnd til þess að blindur leiði blind- an og undirstöðuatvinnuvegur ís- lendinga stöðvist um mitt þetta ár?“ spurði Þuríður. „Lögin um stjómun fiskveiða gera ráð fyrir því að endurskoðun lag- anna verði lokið fyrir árslok. Það hefur komið fram af hálfu nefndar- innar að hún mun leggja áherslu á að reyna að skila áliti eða a.m.k. áfangaskýrslu fyrr ef þess verður kostur, en samkvæmt lögunum hefur hún til þess frest til ársloka. Nefndinni var ekki einungis ætlað Þuríður Bernódusdóttir, vara- þingmaður Framsóknarflokks- ins á Suðurlandi. að fjalla um endurskoðun á lögum um fiskveiðistjóm. Frá upphafi var ráð fyrir því gert að hún skyldi móta heildstæða stefnu í sjávarútvegs- málum og þar á meðal gera tillögur um aðgerðir til að bæta rekstrar- umhverfi sjávarútvegsins. Það var því eðlilegt að skýra hennar hlut- verk með þeim hætti þegar í ljós kom hver rekstrarvandi væri á ferð- inni í sjávarútveginum. Það hefur komið fram af hálfu annars forystu- manns nefndarinnar að á næstu tveimur til þremur mánuðum sé að vænta tillagna af hálfu nefndarinn- ar í því efni. Ég tek skýrt fram að þar er ekki um að ræða almennar tillögur um aðgerðir í efnahagsmál- um heldur ráðstafanir í efnahags- málum til að auðvelda þær óhjá- kvæmilegu skipulagsbreytingar sem nú eiga sér stað og munu eiga sér stað í sjávarútvegi og í þeim til- gangi að bæta rekstrarumhverfi hans og tryggja rekstrarstöðu þess- arar mikilvægu atvinnugreinar að öðru leyti,“ sagði Þorsteinn. Margir þingmenn tóku til máls og gagnrýndu hvemig ríkisstjómin stendur að endurskoðun sjávarút- vegsstefnunnar. Greinilegt sé að ekkert samkomulag sé í nefndinni frekar en í ríkisstjóminni sjálfri. Þá hafi ekkert samráð verið haft við sjávarútvegsnefnd Alþingis eða hagsmunaaðila þátt fyrir að skýr ákvæði séu í lögum um slíkt sam- ráð. Sjávarútvegsnefnd Alþingis hefur nú skrifað nefndinni bréf og óskað eftir samráði um málið. EÓ millj. blaðafulltrúa Flugleiða, er tjónið á Ásdísi, samkvæmt bráðabirgðatöl- um, metið á um 200 þúsund dollar- ar, eða um 11,5 milljónir íslenskra króna og er þá aðeins verið að ræða um beinan viðgerðarkostnað. Hann sagði ennfremur að megnið af þeim kostnaði, lenti á Fokker verksmiðj- unum, en aðeins lítill hluti viðgerð- arkostnaðarins kæmi í hlut Flug- leiða og væri þá verið að tala um einhver hundruð þúsunda króna. Inn í þetta dæmi eru ekki reiknuð þau útgjöld sem Flugleiðir urðu fyr- ir við að missa vélina úr rekstri, t.d. þurfti að leigja vél til að sinna hluta flugsins sem Ásdísi var ætlað að gera. Einar sagði að þar á móti kæmi það að Flugleiðir hefðu haft aukavél á reiðum höndum sem hefði ekki þurft að skila strax, en sú vél er greiðsla upp í nýju Fokker vélarnar. Annar tilfallandi kostnað- ur mun því lenda á herðum Flug- leiða, enda mjög lítill. „í allri úrvinnslu málsins nutum við skjótrar og góðrar hjálpar frá Fokker-verksmiðjunum og engin vandamál komu upp, en það kom okkur nú ekki á óvart, því ein af ástæðunum fyrir því að Fokker varð fyrir valinu var sú góða reynsla sem við höfum haft af samskiptum við Fokker-verksmiðjurnar," sagði Ein- ar Sigurðsson blaðafulltrúi í sam- tali við Tímann. Eins og áður sagði verður vélinni flogið í dag til reynslu og kemur síðan inn í innan- landsáætlun um helgina eftir um hálfs mánaðar fjarveru. PS Vinnuslys í Nóa-Síríusi: Slasaður á hendi Starfsmaður í sælgætisgerðinni Nóa og Síríusi var fluttur á slysadeild slasaður á hendi eftir að hafa Ient með fingur í vél í vinnslusal fyrir- tækisins. Atburðurinn gerðist um klukkan 15 í gær, en maðurinn mun ekki vera alvarlega slasaður. -PS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.