Tíminn - 24.03.1992, Síða 1
Þriðjudagur
24. mars 1992
59. tbl. 76. árg.
VERÐ I LAUSASÖLU
KR. 110.-
Sölusamtök íslenskra hrossabænda vinna að markaðssetningu í Svíþjóð sem gæti orðið mesta bylting í hestasölu frá upphafi:
Ersala
hesta
á þúsundum
í sjónmáli?
Svo gæti farið að á næstu tíu árum ynnist markaður fyrir útflutn-
ing á þúsundum hrossa til Samabyggða í Svíþjóð. Undanfama daga
hafa aðilar á vegum Suður-Sama verið að skoða íslenska hestinn
hér á landi í boði Sölusamtaka íslenskra hrossabænda. Þeir eru nú
farnir af Iandi brott, en von er á 20 til 30 manna hópi frá þeim aft-
ur hingað í maí.
„Ég vil leggja ríka áherslu á að menn
fari ekki að búa sér til neina loftkast-
ala,“ sagði Einar Bollason, stjómar-
formaður Sölusamtaka íslenskra
hrossabænda, í samtali við Tímann í
gærkvöldi. „En þetta er ofboðslegur
markaður. Ef þetta dæmi gengur upp
og Samamir ákveða að stíga skrefið
til fulls, þá er þetta örugglega mesta
bylting sem hefur átt sér stað í hesta-
sölu hérlendis. Það verður ekkert í ár
eða næsta ár, en þegar til lengri tíma
er litið, ef þetta gengur upp, þá er
þetta alveg ofboðslegt dærni." Þessi
markaðssetning á ísienska hestinum
er á vegum Sölusamtakanna, öðm
nafni Edda-hestar, en það fyrirtæki
rekur m.a. sölubúgarð fyrir íslenska
hesta í Þýskalandi og er að opna ann-
an í Bretlandi. Sænsku hreindýra-
bændumir, sem sýna íslenska hestin-
um þennan áhuga, sneru sér til Haf-
liða Gíslasonar, umboðsmanns S.Í.H.
í Svíþjóð, í haust og síðan hefur verið
unnið að málinu. Samamir ætla að
nota íslenska hestinn til að smala
hreindýmm og láta hann koma í stað-
inn fyrir vélhjól og sleða sem valda
þeim heilsutjóni og spjöllum á um-
hverfinu. Líkt og indíánar Norður-
Ameríku, hafa Samamir ekki góða
reynslu af átroðningi vestræns þjóð-
skipulags og má í því sambandi nefna
Tsjemobil kjarnorkuslysið, er hafði
mjög slæm áhrif á afkomu þeirra án
þess að miklar bætur kæmu fyrir.
Sölusamtök íslenskra hrossabænda
leggja því allt kapp á að vinna traust
þeirra og vilja fara hægt í sakimar til
að byrja með.
Miskabætur til séra Þóris Stephensen hafa
verið greiddar út með tvístrikaðri ávísun, en:
Hver fær aurirtn
frá Halli Magg?
Hallur Magnússon, fyrrverandi
blaðamaður á Tímanum og nú kenn-
ari á Vopnafirði, hefur greitt séra
Þóri Stephensen, staðarhaldara í
Viðey, 150 króna ávísun í miskabæt-
ur, samkvæmt dómi sem gekk í
Hæstrétti fyrir skömmu. f bréfi, sem
Hallur sendi með greiðslunni fer
hann fram á að Þórir láti féð renna
til Hjálparstofnunar Kirkjunnar.
Dómurinn yfir Halli Magnússyni er
til kominn vegna greinar, sem hann
ritaði um spjöll á kirkjugarðinum í
Viðey og birtist í Tímanum sumarið
1988. Hallur var dæmdur eftir lög-
um nr. 108 frá 1940 en þeim er ætlað
að vemda æm opinberra starfs-
manna.
Ávísunin er stfluð á Þóri Stephen-
sen og er tvístrikuð. í bréfinu til séra
Þóris, segir Hallur Magnússon: „í
ljósi þess að þú hefur sjálfur sagt að
krafan um miskabætur væri tákn-
ræn, en ekki sett fram í auðgunar-
skyni, þá vil ég vinsamlegast fara
fram á að þú látir upphæð þessa
renna til Hjálparstofnunar Kirkj-
unnar svo peningamir nýtist þeim
sem sárast þrufa á þeim að halda."
Samkvæmt heimildum Tímans hef-
ur ávísun Halls þegar verið leyst út,
en hvort Hjálparstofnun Kirkjunnar
fékk miskabæturnar er ekki vitað því
ekki náðist í séra Þóri Stephensen í
gær. -ÁG.
„Ef okkur tekst það er bjöminn unn-
inn,“ segir Einar Bollason. „Það var
markmiðið með þessari heimsókn.
Við ferðuðumst með þá um Suður-
Iand, heimsóttum bændur og Stóð-
hestastöðina í Gunnarsholti og
fræddum þá um hrossaræktun hér og
notkun íslenskra hesta. Þeir prófuðu
ótalmarga hesta og völdu síðan úr
fjóra hesta, sem þeir munu kynna
meðal Sama í Svíþjóð."
í framhaldi af heimsókninni núna
em væntanlegir hingað í maí 20 til 30
hreindýrabændur. Markmiðið með
þeirri heimsókn verður að kynna
þeim umhirðu og ræktun íslenska
hestsins í hvívetna. Hreindýrabænd-
unum verður skipt niður á hrossa-
ræktarbæi, en gert er ráð fyrir að
heimsóknin standi í vikutíma. Sam-
amir munu væntanlega kaupa fleiri
hross til reynslu í þessari heimsókn,
en viðskiptunum verður síðan fylgt
eftir með því að senda menn frá S.Í.H.
til að kenna meðferð og hirðu ís-
landshestanna.
„Þetta verður til að byrja með alls
ekki í stómm stfl," segir Einar Bolla-
son, „heldur fyrst og fremst notað til
þess að byggja upp smám saman
stærri hóp. En ef þetta gengur vel
verður þetta eins og lítill snjóbolti,
sem kemur til með að hlaða utan á
sig.“
Laust eftir síðustu áramót greindi
Tíminn frá fyrirhuguðum útflutingi á
íslenskum hestum til Norður-Sama í
Svíþjóð. Þeir hrossabændur sem
standa að því markaðsstarfi em ekki á
vegum Edda-hesta og náist samning-
ar þar kemur það til viðbótar við út-
flutnig S.Í.H. -ÁG.
Norðlenskir hestadagar fóru fram /Reiðhöiiinni f víð/-
dal við Reykjavík við mikia aðsókn. Sýndur var fjöldi norðlenskra
gæðinga og boðið var upp á fjölda skemmtiatriða sem tengdist
hestum og hestamennsku. í hindrunarstökki báru sigur úr býtum
hesturinn Sýslumannsgráni og knapinn Þórdís Bjarnadóttir.
Tímamynd GTK
Búist var í gær við innleggi ríkisstjórnar í kjarasamningaviðræðurnar sem ekki kom:
Getur Davíð ekki
tekiö af skarið?
Ríkisstjóminni tókst ekki í gær að gefa fulltrúum launþega svör
við kröfum þeirra sem varða m.a. kostnað við heilbrigðisþjón-
ustu en búist var við einhvers konar gagntilboði eða yfirlýsingu
frá ríkisstjóminni sem yrði þá til skoðunar í dag.
Kjaramálin vom rædd á Alþingi í
gær að fmmkvæði Steingríms
Hermannssonar, formanns Fram-
sóknarflokksins. Steingrímur
spurði forsætisráðherra til hvaða
aðgerða ríkisstjórnin hygðist grípa
til að greiða fyrir samningum.
Svör Davíðs Oddssonar vom rýr.
Hann sagði að samningarnir væm
á viðkvæmu stigi og því erfitt fyrir
ríkisstjórnina að gefa yfirlýsingar
nú. Hann sagði afar mikilvægt að
ríkisstjórnin gerði ekkert sem
spillti fyrir markmiðum í ríkisfjár-
málum og stöðugleika í efnahags-
lífinu, þar á meðal gmndvelli fyrir
lægri vöxtum.
Stjórnarandstaðan bauð fram
krafta sína ef það mætti verða til
að auðvelda gerð kjarasamninga.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
sögðu að ríkisstjórnin kæmi í veg
fyrir að samningar næðust með
stefnu sinni í velferðarmálum.
Hún yrði að breyta um stefnu og
breyta lögum sem sett vom í vetur.
Þingmenn minntu á orð sem
Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi
forsætisráðherra, notaði stundum
„vilji er allt sem þarf“.
Steingrímur Hermannsson hvatti
forsætisráðherra til að setjast nið-
ur með samningsaðilum og finna
lausn. Það væri hægt. Hann sagði
að kröfur verkalýðshreyfingarinn-
ar væm ekki það miklar eða
ósanngjarnar að ekki væri hægt
fyrir ríkisstjórnina að finna flöt til
að fallast á þær. Steingrímur fagn-
aði þvt að ríkisstjórnin sæi sér nú
fært að lækka vexti með handafli.
—EÓ/sá