Tíminn - 28.03.1992, Qupperneq 11

Tíminn - 28.03.1992, Qupperneq 11
Laugardagur 28. mars 1992 Tíminn 11 Norðurárdalshreppur á í erfiðleikum með að borga 3,5% af verði nemendaíbúða við Samvinnuháskólann á Bifröst: Mun taka til sín allt fram- kvæmdafé hreppsins Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra segir að stúdenta- garðar og aðrar nemendaíbúðir séu skilgreindar sem félagslegar íbúðir og því beri sveitarfélögum að leggja fram 3,5% óafturkræft framlag af verði hverrar íbúðar eins og kveðið er á um í bandorm- slögunum svokölluðu. Þetta þýðir að allt framkvæmdafé Norðurár- dalshrepps í Borgarfirði næstu ár mun fara í að fjármagna byggingu nemendaíbúða við Samvinnuhá- skólann á Bifröst. Þessar upplýsingar komu fram í svari við fyrirspurn frá Valgerði Sverrisdóttur alþingismanni (Frfl.) á Alþingi í vikunni. Valgerður sagði að framkvæmd ákvæðis bandorms- laganna um 3,5% framlag sveitarfé- laga til byggingar félagslegra íbúða hefði verið á reiki og sveitarstjórn- armönnum hefði gengið illa að fá upplýsingar um málið. Jóhanna sagði að aðeins íbúðir sem hafin verði bygging á eftir gild- istöku laganna féllu undir hið nýja lagaákvæði. Gjaldið verði ekki inn- heimt af íbúðum sem voru í bygg- ingu við gildistöku laganna. Jó- hanna sagði að Húsnæðisstofnun ríkisins myndi draga framlag sveit- arfélaganna frá heildarbygginga- kostnaði áður en lán Byggingasjóðs Foreldrar óttast að torsótt verði að ná aftur því sem nú tapast við niðurskurð í grunnskólum: Valgerður Sverrisdóttir alþing- ismaður hefur vakið athygli á óljósum ákvæðum bandorms- laga um framlag sveitarfélaga til byggingar félagslegra íbúða. verkamanna er ákveðið. Þetta er gert við upphaf framkvæmda. Valgerður sagði að þetta ákvæði laganna gæti í sumum tilfellum komið illa við einstök sveitarfélög. Hún nefndi sem dæmi Norðurár- dalshrepp í Borgarfirði, en í hreppnum er áformað að byggja á næstu árum 32 nemendaíbúðir við Samvinnuháskólann á Bifröst. Áætlaður heildarkostnaður við byggingarnar er um 200 milljónir króna. Framlag sveitarfélagsins mun verða um 7 milljónir. Fram- kvæmdafé hreppsins er árlega um ein milljón króna. Pétur Geirsson, oddviti Norðurár- dalshrepps, sagði að uppbyggingin á Bifröst myndi vissulega reyna mikið á fjárhag Norðurárdalshrepps, en menn væru staðráðnir í að yfirstíga alla erfiðleika. Pétur sagði að 3,5% framlagið myndi taka til sín allt framkvæmdafé hreppsins næstu ár- in. Hann sagði þetta óheppilegt því að hreppurinn stæði nú í hitaveitu- framkvæmdum og til þeirra fram- kvæmda hefði allt framkvæmdafé hreppsins á þessu ári átt að fara. Með einhverju móti yrði reynt að útvega eina milljón svo að hægt verði að hefja byggingu á átta nem- endaíbúðum á þessu ári. Framkvæmdir við íbúðirnar hefj- ast eftir mánaðamótin. Miðað er við að fjórar af íbúðunum átta verði til- búnar fyrir 1. september í haust. -EÓ Innkaupastofnun Reykjavikurborgar, f.h. Vatnsveitu Reykjavlkur, óskar eftir tilboðum í heitgalvaniseraða bolta og rær (Hexagon bolts with Hex- agon nut — hot dip galvanized, DIN 601/555). Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavlk, frá og með þriöjudeginum 31. mars 1992. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 5. maí 1992, kl. 11,00 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk- fræðings, óskar eftir tilboðum í niðurhengd loft I Iþróttamiðstöðina I Graf- arvogi. Um er að ræða Kerfisloft 700 m2. Hluta verksins á að vera lokið 1. ágúst 1992. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 29. apríl 1992, kl. 15,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk- fræðings, óskar eftir tilboðum I málun innanhúss á um 6.000 m2 I Iþrótta- miðstöðina I Grafarvogi. Hluta verksins á að vera lokið 15. ágúst 1992. Nöfn 1200 foreldra í vest- mótmælaskiali Melaskóli í Reykjavík. urbæá Alls 1.193 foreldrar barna í grunn- skólum vesturbæjar Reykjavíkur hafa undirritað mótmæli gegn fyr- irhugaðri stækkun bekkjardeilda í grunnskólum og fækkun kennslu- stunda. Fulltrúar foreldra hafa gengið á fund menntamálaráðherra og afhent honum yfirlýsingu með texta undirskriftasöfnunarinnar og nánari skýringum ásamt nafnalist- unum. Undirskriftunum var safn- að að frumkvæði foreldrafélaga Melaskóla, Vesturbæjarskóla og Grandaskóla og foreldra í Haga- skóla. Meirihluti foreldra sem til náðist skrifuðu undir og var hlut- fallið í Melaskóla til að mynda 76%. Yfirskrift mótmælaskjalsins var sem hér segir: „Foreldrar í skólum vesturbæjar Reykjavíkur mótmæla harðlega fýr- irhuguðum niðurskurði ríkisstjórn- arinnar í grunnskólum, sem hefur í för með sér fjölgun í bekkjardeild- um og fækkun kennslustunda. Giid- ir einu hvort hér er um tímabundna aðgerð að ræða eður ei. Fordæmisgildi slíks niðurskurðar getur haft ófýrirsjáanlegar afleiðing- ar í för með sér, sem verða ekki í krónum taldar. Velferð okkar í framtíðinni bygg- ist á haldgóðri menntun barnanna." í bréfinu til menntamálaráðherra, Ólafs G. Einarssonar, segir síðan: „Við treystum þvf að hæstvirtur menntamálaráðherra taki tillit til afstöðu okkar og fjölmargra for- eldra annarra sem hafa látið í sér heyra um þetta mál og Iáti niður- skurð í ríkisfjármálum ekki bitna á skólaæsku þessa lands.“ Enda segj- ast foreldrarnir ekki treysta því að þessi niðurskurður sé aðeins tíma- bundinn „en óttumst að torsótt verði að ná aftur því sem nú er að tapast". Aðalfundur Fransk-íslenska verslunarráðsins hefur verið haldinn: Vióskipti landanna að aukast Nýlega var haldinn aðalfundur Fransk-íslenska verslunarráðsins og var hann haldinn í Reykjavík. Markmið með stofnun þess er að hvetja til aukinnar samvinnu og viðskipta íslenskra og franskra fyr- irtækja á ýmsum sviðum og var verslunarráðið stofnað í ágúst 1991, þegar Mitterand Frakklandsforseti var hér á landi. Viðskiptin milli landanna hafa aukist til muna á síðustu árum og er t.d. Frakkland orðið eitt mikilvæg- asta viðskiptaland í Evrópu fyrir fiskafurðir okkar. Mikill áhugi mun vera fyrir því að hingað til lands komi næsta haust viðskiptanefnd frá Frakklandi og að sömuleiðis fari héðan nefnd til Frakklands. Þá hefur orðið vart mikils áhuga franskra ungmenna á því að koma til íslands og kynnast landi og þjóð. Nýkjörinn formaður verslunarráðsins er Jacques Gourlet og varaformaður er Brynjólfur Helgason. Verslunarráð- ið starfar í tveimur deildum og skiptast þær á að hafa formennsku. -PS Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 22. apríl 1992, kl. 14,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk- fræðings, óskar eftir tilboðum I dúkalögn i Iþróttamiðstöðina í Grafarvogi. Um er að ræöa u.þ.b. 700 m2 af gólfdúk. Hluta verksins á að vera lokið 15. ágúst 1992. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama staö fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 14,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríklrkjuvegl 3 - Sími 25800 Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk- fræðings, óskar eftir tilboðum I lóöaframkvæmdir viö Ölduselsskóla, Ölduseli 17. Helstu magntölur ern: Flutningur á jarðvegi innan lóðar......... 800 m3 Grúsarfylling..............................280 m3 Regnvatnslagnir............................191 m Malbik.....................................347 m2 Grasþakning................................904 m2 Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 21. april 1992, kl. 14,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.