Tíminn - 10.04.1992, Síða 4

Tíminn - 10.04.1992, Síða 4
4 Tíminn Föstudagur 10. apríl 1992 Tímínn MÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavík Sfmi: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verö I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Stjómkerfi sem lokast um sjálft sig Stjómsýsla sveitarfélaganna í landinu er nálægari þjóð- félagsþegnunum heldur en stjórnsýsla ríkisvaldsins. Sveitarstjórnarstigið er sundurleitt og samanstendur af um 200 sveitarfélögum þar sem eitt þeirra, Reykjavík, telur hvorki meira né minna en um 100 þúsund manns, en öll hin um 150 þúsund. Stjórnsýsla Reykjavíkurborg- ar og tekjumöguleikar eru strax af þessum sökum ekki sambærileg við nokkurt annað sveitarfélag í landinu. í Reykjavík hefur verið meirihlutastjóm sjálfstæðis- manna svo lengi sem elstu menn muna, utan 4 ár sem svokallaður vinstri meirihluti stjórnaði borginni. Meiri- hluti borgarstjórnar í Reykjavík hefur haft mikinn framkvæmda- og áróðursmátt í gegnum tíðina. Það er auðvitað óskadraumur sjálfstæðismanna að færa þetta stjómskipulag yfir á landsstjórnina, enda hefur flokkur- inn löngum haft forsætisráðherraefni sín í æfingabúð- um sem borgarstjóra í Reykjavík. Lítið hefur frést um það að stjórnskipulag borgar- innar væri í athugun eða endurskoðun. Þetta skipulag hefur verið túlkað sem staðfesta og öryggi, sem fylgdi stjóm eins flokks á borgarmálefnum. Fólk hefur upp til hópa látið þessar skýringar nægja, og Sjálfstæðisflokk- urinn hefur uppskorið í kosningum til borgarstjórnar í samræmi við þessa ímynd. Þessi goðsögn beið hnekki við framkvæmdirnar í Perlunni. Þar kom í ljós að stjórnkerfíð réð ekki við það verkefni. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins, hefur lagt fram ítarlegar tillögur um endur- skipulagningu stjórnskipulags í borginni og hefur þeim verið vísað til borgarráðs. Mun því reyna á það hvort Sjálfstæðisflokkurinn er tilbúinn til þess að vinna að þessu verkefni, sem er brýnt. Þar er m.a. lagt til að verk- svið einstakra ráða og nefnda verði betur skilgreint og samræmt og hvert hlutverk þeirra skuli vera í fram- kvæmdastjóm borgarinnar. Reglur um ráðningu for- stöðumanna og annarra starfsmanna skuli samræmdar og starfslýsingar gerðar fyrir forstöðumenn. Reglur og samþykktir borgarinnar verði endurskoðaðar. Einnig að stjórnsýslu- og fjármáladeild borgarinnar verði efld, og stjómsýslueftirlit verði gert virkara. Þessar tillögur Sigrúnar eru löngu tímabærar og verður fróðlegt að fylgjast með því hvaða afgreiðslu þær fá í borgarráði. Eins flokks stjómkerfí Reykjavíkurborgar lokast vfða utan um sjálft sig. Nýleg dæmi sýna að verslunarlóðum er úthlutað án auglýsinga, og verktökum eru afhent stórverkefni án útboðs og án þess að fyrir liggi haldbær- ar skýringar á því hvers vegna þeir ganga fyrir. Nýlega felldi meirihluti borgarstjómar tillögu Sigrúnar Magn- úsdóttur um að auglýst væri dýrmæt 4 hektara verslun- arlóð í Kjama í Borgarholti II, sem verður með tilkomu brúar yfír Kleppsvík mjög miðsvæðis í borginni og við akstursleið út úr henni. Hér ber allt að sama bmnni. Hið sterka valdakerfi eins flokks í borginni er varhugavert og þarf auðvitað pólitískt aðhald, en einnig þarf stjórnskipulagið endur- skipulagningar við, þannig að það verði skilvirkara og almenningi í borginni séu ljósari þær boðleiðir, sem unnið er eftir í daglegri stjóm hennar. Leyndarmál á allra vitorði Steinsteypuveðin duga ekki Iengur, stóð stórum stöfum í Tímanum í gær. Þama er vakin athygli á máli sem er á margra vitorði en sjaldan eða aldrei hef- ur verið rætt fyrir opnum tjöld- um. Það sem þetta felur í sér er að lánastofhanir sitja uppi með húseignir af öllum stærðum og gerðum sem teknar hafa verið upp i skuldir en ekki tekst að selja aftur. Það var Geir A. Gunnarsson, formaður stjómar Iðnlánasjóðs, sem vakti máls á vandamálinu á ársfundi sjóðsins. Hann sagði að sjóðurinn sæti uppi með arð- lausar fasteignir og verður að leggja nær 600 milljónir króna í afskriftarsjóð útlána til að mæta tapinu. Stjómarformaðurinn fullyrti að allar lánastofn- anir ættu við sömu vanda- mál að stríða og að tími væri kominn til að hætta að lána mönnum fé út á óskhyggju og steinsteypu. Steinsteyputrúin er svo mögn- uð að hver sá sem ræður yfir nógu mörgum fermertrum eða rúmmetmm af húsum hefur fengið nær hvaða upphæðir sem beðið er um út úr bönkum og sjóðum. En sú stefna gildir ekki lengur, segir Geir, því kom- ið er í ljós að fasteignir em ekki lengur sú trygging sem haldið var. Veðlánarar Afskriftarreikningar lánastofn- ana em dulið tap. Þegar ótæpi- lega er lánað út á fasteignir fremur en rekstur og trúverð- ugleika Iántakenda hlýtur ein- hvem tíma að koma að því að dæmið hættir að ganga upp. Bankar og lánastofnanir sem sitja uppi með óseljanlegar fast- eignir fela mistökin á bak við af- skriftir og bókfærðar eignir, hvemig svo sem því er fyrir komið. Lengi hefur það gefist vel fyrir lántakendur að koma sér upp fasteign, steypa gmnn og refta yfir einhver hundmð fermetra og þá er hægt að fara að slá. Þeir sem um útlánin sjá þurfa sjaldnast annað en veð í lög- gildri fasteign til að opna sjóði sína og spyrja þá aldrei um hvort viðkomandi verður nokkm sinni fær um að endur- greiða lán sín. Svona útlánastarfsemi er svo pottþétt að bönkum er jafnvel fremur líkt við veð- lánastarfsemi en eiginlega bankastarfsemi. Ahætta Einhver áhætta hlýtur alltaf að fylgja rekstri banka og lána- stofnana yfirleitt. Veð í fasteign- um og fyrirtækjum á að fyrir- byggja þá áhættu og hefur þótt ömggt framundir þetta. Það sem hér er á ferðinni er ekki vandamál lánastofnana einna. Ef verðgildi fasteigna er að falla og að þær seljast ekki vegna þess að enginn hefur þörf fyrir þær hlýtur það að stafa af offramboði á þeim. Eða hitt að enginn hefur bolmagn til að kaupa, sem kemur nokkum veginn á sama stað niður. Ofmat á veðhæfni fasteigna og offramboð á þeim er langt frá því að vera séríslenskt fyrirbæri. Vestur í Ameríku er búið að byggja fjórðungi meira af at- vinnu- og skrifstofuhúsnæði en nokkur þörf er fyrir. í nokkmm Evrópulöndum er yfirbyggingin orðin margföld á við þörfma og er útkoman alls staðar sú sama. Byggingafélög og verktakar fara yfir um í stómm stíl og bank- amir, sem fjármagna ofboðið, fylgja á eftir. Nóg er nóg Þetta mynstur er svo alþekkt í framkvæmda- og fjármálaheimi iðnríkjanna fyrir vestan okkur og austan að það er næsta furðulegt að framkvæmda- og fjármálamenn hér á landi skuli ekki vera á varðbergi gagnvart svo augljósum staðreyndum. Enn þann dag í dag em fyrir- tæki og jafnvel bæjarfélög að skipuleggja ný hverfi með æm- um kostnaði. Hundmð íbúða að ógleymdum miklum miðstöðv- um fyrir athafnasama verslun og þjónustu em ekki aðeins á teikniborðinu heldur em hafn- ar framkvæmdir við að koma báknunum upp. Haft er fyrir satt að hundmð tilbúinna íbúða eða í byggingu séu óseld. Enginn hefur tölu á þeim notuðu íveruhúsum sem em á söluskrá. Atvinnuhúsnæði er að rísa ótrúlega víða þrátt fyr- ir að einhver ósköp af því er til leigu eða sölu á ýmsum bygg- inga- og tilverustigum. Bankar og lánastofnanir sitja uppi með ótilgreinda rúmmetra af húsum og telja til eigna. Jafnvel byggingavöruverslanir em famar að taka hús upp í skuldir og sitja uppi með þau. Hagsmunir Þetta ástand reyna allir að fela hver sem betur getur. Steypu- salar og byggingafýrir- tæki reka venjulegan áróður fyrir því að mikill skortur sé á húsum og lánasjóðir með félags- málaráðuneytið í broddi fylk- ingar veita meiri lánafýrir- greiðslu til nýbygginga en ann- arra fasteigna. Sveitarfélög skipuleggja byggð og enn meiri byggð og fasteignasalar láta í veðri vaka að alltaf vanti eignir á söluskrár þeirra. Undantekning er formaður Fé- lags fasteignasala sem lýst hefúr yfir, við litla hrifningu, að fram- boð á nýbyggingum sé miklu meira en eftirspumin. Ekki sakaði þótt menn temdu sér ofurlítið meira raunsæi í þessum efnum sem öðrum. Ef til vill er það til of mikils mælst að einstaklingar og jafnvel ein- staka fyrirtæki hafi einhverja heildarsýn yfir hvað er mátulegt og hvað ofboð. En það væri í átt- ina ef bankar og aðrar lána- stofnanir gerðu sér grein fýrir hvaða verðmæti eru veðhæf eða yfirleitt lánshæf. Framboð og eftirspum ræður fasteignamarkaði þótt sjóðir, byggingamenn og fasteignasal- ar hvorki skilji það né viður- kenni. Kannski læra einhverjir sína lexíu á gönuhlaupinu eftir steinsteypunni þegar hún er ekki lengur veðhæf. Alla vega er svo komið að einn strútur hefur dregið höfuðið upp úr sandin- um og formaður stjómar Iðn- lánasjóðs hefur opinberað leydnardóm sem allt of lengi hefur legið í þagnargildi. OO

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.