Tíminn - 14.04.1992, Síða 3
Þriðjudagur 14. april 1992
Tíminn 3
Nýja greiðslumarkið kemur mörgum bændum í opna skjöldu:
Húnavaka 1992 verður haldin
dagana 20.-25. aprfl.
Efni hennar verður mjög fjöl-
breytt og má nefna sýningu leik-
hópsins Hvammstanga á gaman-
leiknum .Ættarmótið" eftir Böðvar
Guðmundsson. Leikstjóri er Emil
Gunnar Gunnarsson.
Einnig verður staðið fyrir Hús-
bændavöku þar sem hin lands-
kunna eftirherma Jóhannes Krist-
jánsson kemur fram, sem og
Skólalúðrasveit Blönduóss.
Norðurlandamótið íbridgeverður
sett í Grunnskóla Blönduóss og
stendur það í þrjá daga. Einnig á að
sýna kvikmynd Ásdísar Thorodd-
sen „Ingaló".
Húnavöku lýkur með lokadans-
leik þar sem sveiflukóngurinn
Geirmundur Valtýsson og félagar
sjá um að halda uppi fjörinu.
—GKG.
Prentun og bókband er unnið í
Prentsmiðjunni Odda, og gerði
Bjami Jónsson listmálari bókar-
skreytingar. Bókin er 285 bls.
—GKG.
Húsbænda-
vaka,
bridge og
Geirmundur
Margir bændur hafa haft sam-
band við Framleiðsluráð land-
búnaðarins og kvartað yfir því
að hafa fengið Iægra greiðslu-
mark en þeir höfðu haft meðan
fullvirðisréttur gilti. Greiðslu-
markið, sem tekið var upp með
nýjum Iögum sem samþykkt
voru frá Alþingi í lok febrúar,
er 96,4% af þeim fullvirðis-
rétti sem verið hefur í giidi. Sé
tekið tillit til þess kjöts sem
bændur neyta sjálfir, er lækk-
unin enn meiri.
þess, eins og hann verður að lok-
inni aðlögun að innanlandsmark-
aði 31. ágúst 1992.“ Flestir bændur
virðast hafa skilið þetta ákvæði
þannig að greiðslumarkið yrði
jafnt fullvirðisréttinum. Svo er
hins vegar ekki. Búvörusamning-
urinn gerði ráð fyrir að dregið
verði enn frekar úr framleiðslu
með frjálsum uppkaupum á full-
virðisrétti fram til loka ágústmán-
aðar í haust. Svo virðist hins vegar
sem mjög lítið af fullvirðisrétti
verði selt ríkinu það sem eftir lifir
af þessu verðlagsári.
Bændur hafa gert á þriðja hundr-
að samninga um sölu á fullvirðis-
rétti sín á milli frá því í október á
síðasta ári og fram í febrúar á þessu
ári. Mjög lítið hefur verið um að
bændur hafi selt ríkisvaldinu full-
virðisrétt.
Gísli Karlsson, framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs, sagði að þó
nokkrir bændur hefðu ekki haft
samband við Framleiðsluráð til að
láta vita hvert eigi að senda beinu
greiðslurnar. Hann sagði að
greiðslurnar verði ekki sendar af
stað fyrr en bændur eru búnir að
hafa samband. Næsta greiðsla fer
út 15. aprfl. -EÓ
Síðastliðið sumar keypti ríkis-
valdið fullvirðisrétt af sauðfjár-
bændum, sem nam alls um 1.730
tonnum eða liðlega 95 þúsund ær-
gildum. Þetta eru tæplega 15% af
öllum fullvirðisrétti í sauðfjár-
framleiðslu, eins og hann var
skráður 31. ágúst í fyrra. Flestir
bændur reiknuðu með að þeir
fengju að framleiða á yfirstandandi
verðlagsári í samræmi við þann
fullvirðisrétt, sem var í gildi síðast-
liðið haust, þegar sú framleiðsla,
sem nú er í gangi, var hafin.
í búvörusamningnum stendur:
„Greiðslumark hvers lögbýlis verð-
ur í upphafi, þ.e. fyrir slátrun
haustið 1992, jafnt fullvirðisrétti
80. prentun
Passíusálma
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
nýja prentun Passíusálma eftir séra
Hallgrím Pétursson. Þetta er 80.
prentun og hefur engin önnur bók
veríð prentuð svo oft á íslenska
tungu. Fyrsta prentun kom út á
Hólum árið 1666.
Greiðslumarkið er aðeins
96,4% af fullvirðisrétti
OPIÐ
Miðvikudaginn 15. apríl kl. 9-20
og laugardaginn 18. apríl kl. 9-16