Tíminn - 16.04.1992, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 16. apríl 1992
Tíminn 7
Vegna þess hve vatniö I lóninu
er salt, taka baögestir fijótt lit I
sólinni. Ester Bjargmundardóttir
og Valdís Gunnarsdóttir úr
Garöabæ voru meöal gesta !
lóninu, þegar Tímamenn áttu
leið þar um.
undir því. Svæðið, sem í dag er not-
að af Baðhúsinu, er ekki nema þriðj-
ungur lónsins.
Eins og búast má við, er nýting
staðarins best á sumrin, þegar sólar
nýtur betur, en staðurinn hefur líka
sitt aðdráttarafl á veturna. „Þegar
vetrarstillur eru og myrkur og
stjörnubjartur himinn, er mjög
mikil rómantík í loftinu héma,“ seg-
ir Hermann.
Gististaðurinn við Bláa lónið hóf
starfsemi sína árið 1983 og verður
því níu ára á þessu ári. Það voru
hjónin Þórður Stefánsson og Eygló
Friðriksdóttir, sem hrintu þessari
hugmynd í framkvæmd, og þau hafa
rekið staðinn frá upphafi. Þrátt fýrir
sveiflur í rekstrinum í gegnum tíð-
ina, gengur staðurinn vel. í dag er
boðið upp á 22 tveggja manna her-
bergi á hótelinu sjálfu og að auki
sumarbústað með tveimur svefn-
herbergjum, þannig að segja má að
staðurinn geti tekið við tæplega
fimmtíu næturgestum.
Að sögn Eyglóar er nýtingin á
gistirýminu nokkuð góð. „Desem-
ber, janúar og febrúar geta verið
nokkuð gloppóttir," segir hún.
„Sumrin eru náttúrlega best að jafn-
aði, en haustin geta verið mjög góð
líka og þá sérstaklega gagnvart flug-
áhöfnum. Sömuleiðis er mikið um
að verktakar, sem eru að vinna fyrir
bandaríska herinn í Keflavík, haldi
til hérna hjá okkur. Þetta eru mest-
megnis Ameríkanar, sem þurfa ekki
að gista innan vallar vegna þess að
þeir eru ekki sjálfir í hemum. Það er
misjafnt hvað þeir staldra lengi, það
getur verið frá einni og allt upp í
átta vikur. Þetta em mikið sömu
mennimir, sem koma aftur og aft-
ur.“
Gististaðurinn Bláa lónið er rek-
inn á heimilislegum nótum. Þar er
kaffibollinn t.d. ekki seldur. Ef ein-
hvern langar í kaffi, fer hann inní
eldhús og sækir sér það. Og sé kaffið
ekki til, heliir hann bara uppá. Á
sama hátt er ísskápurinn opinn öll-
um. Þetta er mjög meðvituð stefna
hjá eigendunum, en staðurinn er
fyrst og fremst hugsaður fyrir fólk
sem vill slappa af fjarri ys og þys
hversdagslífsins.
Þetta hótel er sérstakt að því leyti,
að þar er ekki boðið upp á vínveit-
ingar, þó meðferð víns sé þar ekki
bönnuð. Veitingasalan er aðskilin
frá gistirýminu sjálfu, en þar er
bæði hægt að fá mat og létt eða
sterk vín.
Að sögn staðarhaldara skiptast
gestimir nokkum veginn til helm-
inga í íslendinga og útlendinga. f
báðum tilfellum er mikið um að
sama fólkið komi aftur og aftur. Frá
því í febrúar hefur hótelið boðið upp
á pakkagistingar fyrir íslendinga. í
því er innifalið tveggja manna her-
bergi með aðgangi að heitum potti,
gufubaði og að sjálfsögðu Bláa lón-
inu sjálfu, fyrir 4.500 krónur. Að
auki er hægt að fá nudd, en fyrir það
þarf að borga sérstaklega.
Nú er liðið um eitt ár frá því að beinn innflutningur á FIATAGRI
dráttavélum hófst og við óskum 65 nýjum FIATAGRI eigendum
til hamingju með nýju vélina.
Glæsilegt útlit
Veltistýri meS
hæSastillingu
Aurhlífar yfir framhjól, staSalbúnaSur
MiSlægt innbyggt drifskaft til framöxulsins án hjöruliSa,
tryggir góSa hæS undir vélina og fáa slitfleti.
Á þessu ári er FIATAGRI orðin ein mest selda
dráttarvélin hér á landi og þarf engann að undra því
FIATAGRI hefur verið mest selda dráttarvélin í Evrópu
síðastliðinn 13 ár og er mest selda fjórhjóladrifsvélin í
heiminum í dag.
Lykillinn að góðri fjárfestingu er að skipta við traustan
framleiðanda og ábyggilegan seljanda. FIAT er eitt af
tíu stærstu iðnfyrirtækjum í Evrópu. GLOBUS er í dag
stærsta og elsta búvélainnflutningsfyrirtæki landsins og
hefur á að skipa öflugara þjónustukerfi um allt land en
nokkurt annað fyrirtæki á þessu sviði. GLOBUS er því
góður kostur í viðskiptum.
Mjög breytt ökumannshús og
farþegasæti auka notagildi og þægindi
HáþróaSur hreyfill frá stærstu
díselvélaframleiðenda heims
NÝ SENDING Á LEIÐINNI
Globusp
heimur gœða
IÁGMÚLA S - REYKJAVÍK - SÍMI 91 - 681SS5