Tíminn - 16.04.1992, Blaðsíða 21

Tíminn - 16.04.1992, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 16. apríl 1992 Tíminn 21 ÁRNAÐ HEILLA 80 ára: Guðný Guðlaugsdóttir ítrekað hafa íslensk eldfjöll valdið titringi í veröldinni. Kvenfólkið okk- ar hefur einnig vakið titring, bók- menntimar barmafullar af þessum elskum, heimsfegurðardrottningar hvar sem þær láta sjá sig og svo hafa þær náttúrlega algerlega stungið okkur körlunum í vasann hér uppá Fróni. Forseti landsins er kona, sem og forseti þingsins og forseti hæsta- réttar. Segja má að ást eldfjallanna á veröldinni sé svo mikil, að þau smám saman séu að færa landið um allan heiminn til austurs og vesturs. Þetta er einmitt í stfl við kvenfólkið, sem fyrir löngu síðan er búið að heilla alla veröldina uppúr skónum, og ekki við öðm að búast en að eld- fjöllin taki þær sér til fyrirmyndar. Yndislegt er að standa í skjóli þess- ara elskna; það hafa allir reynt, því öll emm við fædd af konum. Ástúð- in, umhyggjan og glaðværðin geisl- ar af þeim í stfl við fegurðina, sem eins og ég sagði áðan er löngu búin að leggja veröldina og landið að fót- um sér. Ein þessara kvenna er átt- BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLTÍ KRINGUM LANDIÐ. MUNIU ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar frá Tryggvaskála ræð í dag, móðir skólabróður míns og félaga og sýslungi föður míns. Fædd og uppalin þar sem Hekla ber hæst við himin, og göfug eins og kvenhetja stigin beint útúr Njálu. Minningarnar koma uppí hugann. Heill bekkur þyrpist útí skólaportið í Bamaskóla Austurbæjar og allt svæðið logar í stórfiskaleik. Allt í einu er hrópað: „Ég er hættur." Barnaskarinn dettur í dúnalogn. Að- alstórfiskurinn hættur, hvað er nú að? „Ef Sigurgeir er ekki með, þá er ég hættur.“ Allir líta til mín og ég helli mér í leikinn. „Blessaður segðu henni mömmu að þú hafir verið með. Þá fæ ég að fara á skíði um helgina," hvíslar másandi stórfisk- urinn að mér, þegar leiknum er lok- ið. Önnur minning. Dyrabjallan hringir og allur krakkaskarinn er rokinn útí bakarí. Sá fyrsti fær stærsta snúðinn og ég haltra á eftir. „Hvað, fékkst þú engan snúð?" segir stórfiskurinn, sem ryður sér braut gegnum krakkaskarann með besta snúðinn, enda fljótastur að hlaupa. „Heyrðu, taktu bara minn, en elskan mín segðu henni mömmu frá því, hún er nefnilega alltaf að tala um þig. Þá fæ ég að fara fyrr í sveitina í vor í sauðburðinn." Þetta vakandi auga, sem ég naut svo ríkulega, dvelur nú á Sólvangi í Hafnarfirði og ég sendi þessar línur frá Landspítalanum. Svona eru ör- lögin, það stendur enginn lengur en hann er studdur. Allt mitt Iíf hef ég helgað þjóðlegum fræðum og þó einkum ættfræði. Ég vona að eng- inn lái mér það, að ég sérstaklega hef lagt mig eftir ættum þessa vel- gjörðarfólks míns, enda upprunnið af svipuðum slóðum og foreldrar mínir. Á þessum merkisdegi í lífi hennar Guðnýjar minnar sendi ég þær heit- ustu heillakveðjur, sem mér er unnt, og vona að hún eigi eftir að taka mörg dansspor eins og frægt var í TYyggvaskála. Sigurgeir Þorgrímsson Josve hnífaherfi Mest seldu herfin á íslandi. Sex öxla, lyftutengd meb S metra vinnslubreidd, Einföld og ódýr í rekstri, auövelt a& skipta um hnífa. Josve hnífaherfi henta vel til að vinna plógstrengi fyrir endurvinnslu á túnum og til vinnslu á grænfóðursökrum. í notkun jafnar Josve sáðbeðið og skilar því hreinu. Flest búnaðarfélög nota josve. SILVA rafgirðingar Silva rafgirðingar eru fljótari og auðveldari í uppsetningu en hefðbundnar girðingar, auk þess er efnið sem notað er í Silva rafgirðingarnar vandaðara en gengur og gerist. T.d má nefna að vírinn uppfyllir ýtrustu kröfur sem gerðar eru um togþol og efnisblöndun. Strekkingar eru úr áli, rafmagnstengi eru öflug úr sérstakri sínkblöndu. Spennugjafar uppfylla kröfur rafmagnsprófunar Rafmagnseftirlits ríkisins. Staurarnir eru úr svokölluðum azobe-við sem hafa verið prófaðir hjá ásamt fleirri tegundum af Teknologiske Institute í Danmörku. Niðurstöður sýna að azobe viðurinn er sá besti sem völ er á í rafgirðingar. Eigum einnig fyrirliggjandi sex strengja girðinganet 100 metra rúlla aðeins 4.560,- m/vsk. ELHO áburðadreifarar 700 Lítra Nákvæmir, áreiðanlegir og auðveldir í notkun. Hleðsluhæð 95 cm dreifibúnaður úr ryðfríu stáli. Kapalstýring inn í ekilshús til stýringar á áburðamagni. Kögglasigti, áburðatregt á löm, auðvelt að þrífa og hirða. VICON áburðadreifarar Þekktir fyrir gæði og frábæra endingu. Hleðsluhæð 90-100 cm. Stærðir 500 - 750 lítra. Dreifibúnaður úr ryðfríu stáli og plasti. Stillanleg dreifibreidd 6-14 metra. Vicon vönduðustu og nákvæmustu áburðardreyfarar sem völ er á. G/obusi -heimur gœða LAGMULA 5 - REYKJAVIK - SIMI 681555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.