Tíminn - 16.05.1992, Síða 1

Tíminn - 16.05.1992, Síða 1
Laugardagur 16. maí 1992 93. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Lánasjóðsfrumvarpið afgreitt: Framför hinna menntuðu þjóða? Námsmenn fjölmenntu á þingpalla Alþingis í gær þegar atkvæða- greiðsia fór fram um lánasjóðs- frumvarpið. Þingforseti, Salóme Þorkelsdóttir, var ekki fyrr búin að tilkynna að lánasjóðsfrumvarpið yrði næst tekið fyrir þegar gall úr hópi námsmanna: „Herra forseti." Lásu námsmenn því næst saman í kór tilvitnun í „Um skólamál á íslandi 1842“ eftir Jón Sigurðsson: „Með tilliti til þjóðar- innar verður sá tilgangur skólans: Að búa svo undir hverja stétt, að hver þeirra í sinni röð styðji að fram- för aíls landsins, allrar þjóðarinnar, svo að vér gætum smám saman komizt þannig á fót, að vér gætum fylgt með framförum hinna mennt- uðu þjóða á sérhverri öld, eftir því sem kostur er á, og sigrað sem flesta tálma, sem þar verður á vegi vorum, en Alþingi verður Ijósastur vottur, hvort þetta heppnast eða ekki. Til þess að ná þessum tilgangi ætt- um vér allir að stuðla með kostgæfni og alúð og ekki skirrast við þeim kostnaðarauka, sem kljúfandi væri, því að engum peningum er varið heppilegar en þeim, sem keypt er fyrir andleg og líkamleg framför, sem mest að verða má. Vér eigum að hefja hugann hátt.“ Að lestri loknum bað Salóme náms- menn um að hafa hljótt á þingpöll- um og varð hún að ítreka það nokkr- um sinnum meðan atkvæðagreiðsla fór fram þar eð námsmönnum hætti til að láta ýmist ánægju sína eða von- brigði í ljós. Tvær síðustu setningamar í tilvitn- un Jóns höfðu verið skrifaðar á stétt- ina fyrir framan styttuna af honum á Austurvelli en lögregla handtók námsmeyjamar sem þar voru að verki. Námsmenn segja að vegið hafi ver- ið að hugsjón Jóns Sigurðssonar og í fréttatilkynningu frá Stúdentaráði segir að hann hafi séð „fyrir sér frjálst ísland, stolta og menntaða þjóð í eigin landi. Hann vissi að menntun kostar peninga en hann vissi einnig að engin fjárfesting er betri fyrir þjóðarhag“. Námsmenn segja mannauðnum kastað fyrir stundargróða með hinum nýju Iög- um. Þegar ljóst var að Alþingi hafði fellt breytingartillöguna lögðu náms- menn blómsveig og rósir við styttu Jóns. Pétur Þ. Oskarsson, formaður Stúdentaráðs, hélt eilitla tölu í gjall- arhorn þar sem úrslit atkvæða- greiðslunnarvom hörmuð. —GKG. Kjötvinnslu SS á Hvolsvelli skortir kindakjöt og áformar að auka vinnslu á svína- og nautakjöti: SS hvetur bændur til að auka svína- og nautaeldi Forstjóri Sláturfélags Suðurlands hefur sent bændum, sem eru í viðskíptum við félagið, bréf þar sem segir að félagið neyðist til þess að auka notkun á svína- og nautakjöti í kjötafurðir sem unnar eru í hinni nýju kjötvinnslu félagsins á Hvolsvelli. Astæðan er sú að SS skorti kindakjöt til vinnslu og ekki hafa tekist samningar sem tryggja til framtíðar kjötvinnslunni á Hvolsvelli nægt kindakjöt til vinnslu. í bréfi Steinþórs Skúlasonar, for- stjóra SS, til sunnlenskra bænda segir: ,Á nýliðnum aðalfundi fé- lagsins var rætt ítarlega um þá staðreynd að félagið skortir kinda- kjöt til sölu. Fram kom að félagið verður að bæta sér skort á kinda- kjöti með aukinni áherslu á sölu svína- og nautakjöts sem mun leiða til enn frekari minnkunar á sölu kindakjöts á landsvísu. Þessi stað- reynd er eðlileg afleiðing af skipu- lagi sauðfjárræktarinnar í landinu. Félagið stefnir að því að auka svínaslátrun sína um a.m.k. 30% til að vega upp á móti fyrirséðri minnkun á kindaslátrun. Formleg könnun um áhuga á framleiðslu- aukningu á meðal núverandi svína- innleggjenda er í gangi, en aðrir fé- lagsmenn sem áhuga hafa á að leggja inn svín hjá félaginu eru beðnir að hafa samband kjötvinnsl- una.“ Á síðasta sumri keypti SS talsvert magn af kindakjöti af Goða hf. Stjórnendur SS hafa átt viðræður við forráðamenn Goða hf. um fram- tíðarviðskipti með kindakjöt, en þær viðræður hafa ekki leitt til nið- urstöðu enn sem komið er. Slátur- félagið telur því rétt að skoða ýms- ar aðrar leiðir til að tryggja kjö- tvinnslunni á Hvolsvelli nægt hrá- efni. Á þessu ári hefur SS dregið úr notkun á kindakjöti í unnar kjöt- vörur, en aukið notkun á svína- og nautakjöti í því augnamiði að láta kindakjötið duga fram að sláturtíð í haust. Páll Lýðsson, stjórnarformaður SS, sagði að fyrirsjáanlegur sam- dráttur í kindakjötsframleiðslu verði það mikill að afurðastöðvarn- ar muni líða fyrir það. Hann sagði að kjötvinnsla SS á Hvolsvelli yrði að fá nægt hráefni. Vinnslan yrði að fá eins mikið hráefni og hún gæti selt. Staðan væri einfaldlega þann- ig í dag að SS gæti selt meira af kindakjoti en fyrirtækið fengi til vinnslu. Páll sagði að skipulagið á bak við afurðastöðvarnar væri ekki eins og það gæti best verið. Hann sagði að þetta sé mál sem Samtök sláturleyf- ishafa verði að taka á með einhverj- um hætti. Hann sagði ennfremur að sú staða sem nú er upp komin sé sönnun fyrir þeirri samkeppni sem ríki á kjötmarkaðinum og bændur eru neyddir út í, samkeppni sem skaði bændur sjálfa. - EÓ Leiöbeint um garða f blaðinu í dag leiðbeina þau Einar Þorgeirsson skrúðgarða- meistari og Heiðrún Guð- mundsdóttir garðyrkjufræðing- ur um umhirðu garðsins og gefa góð ráð um val sumarblóma, fjölærra plantna, trjáa og runna. Þau leggja áherslu á að áður en garðeigendur leggi út í kostnað- arsamar breytingar skipuleggi þeir garðinn vel. Timamynd Pjetur Sjá blaðsíður 6 og 7 1 EN GIN BÍI LASÝNING 1 UIV HE :lg I N A tTTi ,"3var 1 1 x Helgason hf. vegna þjónustufunda Sævarhöföa 2 s(mi 91-674000

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.