Tíminn - 16.05.1992, Side 2

Tíminn - 16.05.1992, Side 2
2 Tíminn Laugardagur 16. maí 1992 Tilraunir stjómarandstöðunnar til að fá 6. grein Lánasjóðsfrumvarpsins breytt mistókust: Lánasjóðsfrumvaipið var samþykkt með 30 gegn 24 Frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna var samþykkt á Al- þingi í gær með 30 atkvæðum stjómariiða gegn 24 atkvæðum stjómarandstæðinga. Níu þingmenn vom fjarstaddir. Stjóraarand- stæðingar lýstu því yfír við atkvæðagreiðsluna að þeir myndu beita sér fyrir því að lögunum verði breytt í haust, en tillaga þeirra um að það verði sett inn í lögin að þau skuli endurskoðuð í haust var felld. Vonir stjórnarandstæðinga um að þeir næðu að knýja fram breytingu á 6. grein frumvarpsins við lokaaf- greiðsluna urðu ekki að veruleika, en greinin kveður á um eftir- ágreiðslu námslána. Stjórnarand- stæðingar gerðu tvær tilraunir í gær til að knýja á um breytingu á greininni. Annars vegar að náms- mönnum verði greiddir 2/3 hlutar af námsláni í haust, en það getur LÍN gert því að í sjóðnum eru 800 milljónir. Þetta var fellt með 28 at- kvæðum gegn 25. Ingi Björn Al- bertsson (Sjfl.) greiddi tiílögunni atkvæði og Össur Skarphéðinsson (Alfl.) sat hjá. Lokatilraun stjórnar- andstæðinga var síðan að setja í síðustu grein frumvarpsins ákvæði um að endurskoða verði frumvarp- ið fyrir árslok. Þetta var fellt með 30 atkvæðum gegn 24. Fjölmargir þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu við atkvæða- greiðsluna. Inntakið í öllum ræð- unum var að með lögunum væri verið að afnema jafnrétti til náms og leggja byröar á herðar náms- manna og aðstandenda þeirra sem þeir geta varla risið undir. „Hér er fyrst og fremst um hrein- an fautaskap í garð námsmanna að ræða og lýsir í raun ótrúlegu skiln- ingsleysi þessara flokka sem mynda ríkisstjórnina á hlut námsmanna," sagði Finnur Ingólfsson (Frfl.). „Það er verið að færa aðstoð við námsmenn áratugi aftur í tímann." „Sá tími er að renna upp að konur eigi aftur að fara að vinna fyrir mönnum sínum í námi. Ungar mæður eiga ekki að vera í námi. Upp er að renna menntakerfi hinna efnuðu. Með samþykkt þessa frum- varps er verið að stíga fyrsta skrefið til að afnema Lánasjóð íslenskra námsmanna," sagði Guðrún Helga- dóttir (Alb.). „Með samþykkt þessa frumvarps ríkir ekki lengur jafnrétti til náms án tillits til efnahags," sagði Val- gerður Sverrisdóttir (Frfl.). „Ríkis- stjórnin er að þvinga í gegnum þingið lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna í fullri andstöðu við námsmenn og ég fullyrði í and- stöðu við meirihluta þjóðarinnar." Össur Skarphéðinsson (Alþfl.) sat hjá við afgreiðslu um 6. gr. frum- varpsins við aðra umræðu. „Ég vil að það komi fram að sú vinna sem hefur farið fram af hálfu þingsins á þessu frumvarpi hefúr leitt til fiöl- margra breytinga sem allar hafa verið til verulegra bóta frá hinni upphaflegu gerð frumvarpsins," sagði Össur. „Ég ítreka það hins vegar að leiði reynslan í ljós að 6. gr. hindri menn í að stunda nám sitt með eðlilegum hætti þá áskil ég mér allan rétt til að eiga þátt í breytingum á því ákvæði í framtíð- inni, enda sýnist mér nú að það sé að skapast vilji til þess innan stjórnarliðsins." „í vetur hafa margar ákvarðanir verið teknar sem í verki og orði vega að jafnrétti og jöfnuði í þessu landi. Hér hafa verið teknar ákvarð- anir um hundruö milljóna króna niðurskurð í heilbrigðiskerfinu sem kemur fyrst og fremst niður á barnafólki og öldruðum sem neyt- endum þjónustunnar og konum sem veitendum. Hér hefur verið brotið niður það sem byggt hefur verið upp á undangengnum áratug- um,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir (Kvl.). „Þessi stefna ójafnaðar er endanlega innsigluð í frumvarp- Hryggir námsmenn leggja blóm aö fótum Jóns Sigurðssonar eftir að Alþingi haföi samþykkt að svipta þá námsláni í haust. inu um Lánasjóð íslenskra náms- manna.“ Jóhannes Geir Sigurgeirsson (Frfl.) sagði að breytingin á lögum um LÍN kæmi verst við efnalitla námsmenn af landsbyggðinni. „í 40 ár hefur það verið kjarninn í baráttu jafnaðarmanna um Evrópu alla að grundvallarrétturinn um jafnrétti til náms, um jafnrétti til hjúkrunar og umönnunar væri lög- mál sem þjóðfélagið myndi halda í heiðri. Sá flokkur sem afnemur jafnrétti til náms úr lögum á ís- landi getur aldrei með sóma borið heitið Jafnaðarmannaflokkur ís- lands. Ég vil segja viö utanríkisráð- herra, Jón Baldvin Hannibalsson, og iðnaðarráðherra, Jón Sigurðs- son, að þegar feður okkar voru á ísafirði að hefja merkið um jafnað- arstefnuna á loft og sendu syni sína til náms þá veit ég að þeir hefðu ekki trúað því að þið ættuð eftir að standa að því hér á Alþingi fslend- inga að setja á þau lög sem hér er verið að gera. Þeir sem eru sprottn- ir upp úr jarðvegi jafnaðarstefn- unnar á ísafirði geta aldrei kallað sig með réttu jafnaðarmenn eftir að hafa sagt já við þessu frumvarpi," sagði Ólafur Ragnar Grímsson (Alb.). -EÓ BSRB og Dagsbrún ósátt við Lánasjóðsfrumvarpið: Lánasjóður hinna ríku „Það leggst lítið fyrir ráðherra, sem á sínum tíma fengu óverðtryggð námslán og borga nú smáaura í af- borganir, að hafa forgöngu um að velta fortíðarvandsa sjóðsins af full- um þunga yfír á það fólk sem stund- ar nám í dag,“ segir í fréttatilkynn- ingu sem stjóm BSRB hefur sent frá sér. Stjómin segir fjárhagslegar skuld- bindingar gera fólki með meðaltekj- ur erfítt fyrir meðan á endurgreiðslu námslána stendur, og því geta lent í vandræðum á húsnæðismaricaðin- um að loknu námi. Stjórn verkamannafélagsins Dags- brúnar hefur einnig sent frá sér fréttatilkynningu þar sem lýst er yfir áhyggjum yfir 6. grein frumvarps um Lánasjóðinn þar sem gert er ráð fyrir því að námsmenn fái ekki lán úr LÍN fyrr en tilskilinni skólasókn og náms- árangri er náð á hverju ári. Stjómin segir efnaminni námsmenn ekki hafa sömu möguleika og hinir efnameiri til að fjármagna nám sitt meðan beð- ið er eftir námsláni. Hún óttast að sama skapi að þung byrði verði lögð á aðstandendur námsmanna sem ganga í ábyrgð á skammtímalánum ef námsmanni mistekst í námi eða hann veikist. —GKG. Námsmenn uggandi um framtíðina: Ólög gegn þjóð- inni Almar Eiríksson. Kristinn Einarsson. Ingibjörg Jónsdóttir. Pétur Þ. Óskarsson. Þetta em mjög slæm lög og við emm mjög hrædd við þau áhrif sem þau koma til með að hafa,“ segir Pétur Þ. Óskarsson, formaður Stúdentaráðs, um hin nýju Lánasjóðslög sem samþykkt vom í gær. „ „Við erum líka óhress með alla meðferð málsins í allan vetur og ekki síst síðustu daga þar sem ríkisstjómin hefúr neitað að endurskoða málin. Þeir haía bara ákveðið að keyra í gegn með málið, hvað sem öllu öðru líður,“ segir Pétur. Hann efast ekki um að fólk hrökklist frá námi vegna hinna nýju laga eða hætti við að fora í nám. Hann segir jafn- framt lágtekjufólki vera gert sérstaklega erfitt fyrir með að þurfo að greiða hátt hlutfoll af sínum tekjum til Lánasjóðs- ins. „Þetta eru í raun ólög sett gegn vilja þjóðarinnar í andstöðu við það sem enn er ríkjandi viðhorf á íslandi að allir eigi að hafa aðgang að menntun," segir Pét- ur. Það eru aðallega þijú atriði sem Stúd- entaráð er ósátt við; vextimir, hátt end- urgreiðsluhlutfall og eftirágreiðslumar. „Það er annaðhvort verið að segja að námsmenn eigi að lifa á loftinu í haust eða taka bankalán með vöxtum. Það eru því ekki bara vextir á lánum eftir að námi lýkur heldur líka meðan á námi stendur. Þetta er því mjög slæmt ákvæði," segir Pétur. Hannn segir að brugðist verði við lög- unum þegar þau verði sett æ „Við ölum þá von í brjósti að þessu muni nú verða hnekkt fyrr eða síðar," segir Pétur. Framkvæmdastjóri Iðnnemasam- bandsins, Kristinn H. Einarsson, telur nýju lánasjóðslögin vera fyrsta skrefið í að færa sjóðinn í bankana: „Bankamir geta þá ekki gert aðrar kröfur til náms- manna en annarra viðskiptavina. Það hefur því áhrif á hverjir eigi möguleika á að stunda nám.“ Sú tillaga náði þó ekki fram að ganga að lánþegar yrðu að vera orðnir tvítugir sem er mjög gott fyrir iðnnema þar eð þeir hefja nám miklu fyrr. Kristinn hefúr mestar áhyggjur af end- urgreiðslunum: „Til þess að geta staðið undir þeim verður að hafa sæmilegar tekjur að námi loknu og þetta lána- sjóðsfrumvarp gerir ráð fyrir að menn fari í mjög arðbær störf. Þá hlýtur mað- ur að spyrja sig hvað verði um umönn- unarstéttimar, kennarana og heilbrigð- isstéttimar. Hættir fólk ekki bara að fara í þetta nám?“ Kristinn leggur áherslu á að lán iðn- nema séu lág miðað við marga aðra námsmenn og séu yfirleitt borguð fljótt, því komi breytingin ekki verst við þá: „En endurgreiðslumar munu sér- staklega koma við kjör þeirra sem em í lægstu launaflokkunum það sem eftdr er ævinnar. Ég veit ekki hvort ráða- menn gera sér grein fyrir því sem þeir em að gera." Almar Eiríksson, formaður Bandalags íslenskra sérskólanema, tekur undir að þeir sem verði í lægstu launaflokkun- um eigi eftir að verða illa úti, s.s. þroskaþjálfar, kennarar og fóstmr: „Þeirra byrjunarlaun duga ekki fyrir lágmarksgreiðslu á ári. Það veröur að breyta þessum lögum seinna." Ingibjörg Jónsdóttir, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra námsmanna erlendis, segir námsmenn verða fyrir miklum óþægindum vegna breyting- anna á sjóðnum: „Þær hafa mikil áhrif á þá sem ætluðu sér ekki að koma heim í sumar heldur vinna í skólunum úti. Nú þarf fólk að koma heim að fá bankalán eða senda umboðsmenn sína. Þama er- um við að tala bæði um framfærsluna og skólagjöldin sem geta verið mjög há og verða engir ferðastyrkir veittir." Ingibjörg segir að námsmenn erlendis verði sjálfir að skrá sig í SÍNE sem gerð- ist sjálfkrafa áður: „Félagsmönnum á eftir að fækka sem veikir fjárhagsstöð- una og nú faum við ekki lengur peninga til að reka félagið fyrr en eftir áramót." Skrifstofu SINE verður því líkast til lokað í haust en hún fær um 34 sím- hringingar á dag frá námsmönnum er- lendis sem eru að leita sér aðstoðar. —GKG.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.