Tíminn - 16.05.1992, Qupperneq 4

Tíminn - 16.05.1992, Qupperneq 4
4 Tíminn Laugardagur 16. maí 1992 Tíininn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Síml: 686300. Auglýsingasfml: 680001. Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð i lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Frelsi til að skulda Mikill landsbrestur kvað við í fyrradag, þegar olíufé- lagið Skeljungur tilkynnti síðdegis að félagið myndi hefja greiðslukortaviðskipti með bensín næsta dag. Ljósvakinn brakaði af fréttaflutningi af ákvörðuninni og ekki leið á löngu þar til enn meiri tiðinda var að vænta. Hin stóru olíufélögin gerðu í hvelli samninga við kortafyrirtækin og annað þeirra tilkynnti bensín- sölu út á krít þegar um kvöldið. Skeljungur flýtti sér þá þegar að heija kortavið- skipti og auglýsti að þar væri þegar farið að selja bens- ín og lána andvirðið út á greiðslukort. Óðagot olíufé- laganna og undirtektir fjölmiðlanna eru með ólíkind- um. Engu er líkara en að olíusala í landinu félli eða stæði með því að engin bensínstöð drægi það í nokkr- ar klukkustundir að taka upp greiðslukortaviðskipti. Allt frá því að kortaviðskipti hófust og fram að hvellinum mikla í fyrradag hafa olíufélögin þvertekið fyrir að taka upp slíkan greiðslumáta. Það byggðist á því að þau þyrftu að veita greiðslufrest, greiða korta- fyrirtækjum þóknun og þar með að hækka bensín- verðið. Forstjórar Olíufélagsins og Olís segjast ganga nauðugir til þessa leiks, þar sem þetta nýja greiðslu- fyrirkomulag muni óhjákvæmilega hækka bensín- verð. En ekki sé hægt að veita lakari þjónustu en keppinautarnir og því verði þeir að leika með. Hér var að falla eitt síðasta vígi staðgreiðslu í við- skiptalífinu. Nú er hægt að fá næstum allt að láni. En lán kosta sitt. Þau kosta vexti og þóknun. Allt það, sem keypt er og fengið er að láni, er dýrara en það sem greitt er út í hönd. Það er eðlilegur viðskiptamáti, sem ekki er umdeilanlegur. Keyptu núna, borgaðu seinna. Skemmtu þér og ferðastu núna, borgaðu seinna. Orðaleppar af þessu tagi eru algengir í auglýsingum, enda er augljóst að lánsviðskipti auka umsetningu þeirra sem selja. En sá, sem kaupir, verður líka að láta meira af hendi rakna, þótt síðar verði. Enginn vill leggja stein í götu frjálsra viðskipta, enda eru þau ekki aðeins sjálfsögð heldur nauðsynleg. En frelsið er oft vandmeðfarið. Vaxtamál eru mjög til umræðu og hafa verið um skeið. Háir vextir eru taldir þjóðfélagsmein og taldir koma sérstaklega illa við þá, sem minna hafa handa á milli. Við liggja friðslit í atvinnulífinu af þessum sök- um. Á sama tíma og samfélagið telur sig í hættu vegna hárra vaxta, eru lánaviðskipti aukin á mörgum svið- um. Fólk er hvatt til að taka lán til þessa og lán til hins, og borga svo einhvem tíma seinna. Ef illa stend- ur í bólið og ekki er hægt að borga á gjalddaga, má alltaf semja um að borga enn seinna. Vara, þjónusta og framfærsla öll verður mun kostnaðarsamari vegna hins mikla frelsis á lánamark- aði og þess hve auðvelt er að njóta þess dýrmæta per- sónufrelsis að steypa sér í skuldir. Hinu ættu menn aldrei að gleyma, að skuldafrels- inu fylgir hækkun verðlags. Það er einfaldlega vegna þess að þá taka menn meiri og stærri lán, og hvort sem þeir em borgunarmenn fyrir þeim eða ekki kosta lánin sitt. Atli Magnússon: Þrætt við Pál postula Þegar ég var barn, heyrði ég ömmu mína stundum taka til máls um stöðu kvenþjóðarinnar. Þetta var fyrir daga rauðsokka og Kvennalista, því bernska manns er nú langt að baki og barnið í mér hefur mér ekki tek- ist að varðveita með öðrum hætti en þeim, að stundum trúi ég alls kyns vitleysu og lygasög- um — einkum úr pólitíkinni — eins og barn. En það gera flestir hvort sem er. En þegar amma talaði um kvenréttindamálefnin, þá var það ekki eitthvert tuldur ofan í prjónana, enda snerti hún ekki á prjónum. Hún kom helst að þessu efni, þegar illa stóð í bólið hjá henni og henni leiddust hús- verkin sem mest. Húsverk hat- aði hún nefnilega, eins og marg- ar konur, en heimtaði samt sem áður að allt væri hreint og þokkalegt og átti til að breiða fannhvítt handklæði við útidyra- þröskuldinn, svo aðrir á heimil- inu gætu séð það „svart á hvítu" hvernig þeir bæru inn helv... skítinn á löppunum. Þegar svona lá á henni, féllu mörg beisk orð um hlutskipti kvenna. Hún fór hörðum orðum um Pál postula, sem einhvers staðar lætur í það skína í bréfi að kon- an eigi að beygja sig fyrir karlin- um. Þá sagði amma að það væri semsé „guðs vilji“ að allir væðu inn á heimilin með skítinn handa konunum að þrífa. Svona var í henni hljóðið. Hún var líka mikið gefnari fyrir félagsstörf en hússtörf, og mundi hafa fundið sér eitthvert hlutverk á félags- málavettvangi væri hún ung núna. Hún bjó lengst af úti á landi, var formaður í kvenfélag- inu þar og lék í leikritum á þess vegum á þorrablótinu. Líka var hún í Kvenréttindafélagi íslands og vel man ég að hún keypti Hlín af Halldóru Bjarnadóttur og þær skrifuðust stundum á. Hún elskaði útilíf, átti fyrirtaks hesta á yngri árum og stjórnaði búverkum á fjölmennu heimili af röggsemi, enda gestanauð mikil. Á þessu heimili gengu þrjár prjónavélar, hesputré sner- ust í hverju horni og þar var vef- stóll. Þannig var hún meðmælt stóriðju í prjónaskap, þótt sjálf kærði hún sig ekki um prjóna. Hún hefði verið kölluð „stórráð" til forna. En þegar ég man best eftir henni, hafði hún orðið að- eins lítið heimili í höfuðborg- inni að annast og undi því hlut- skipti miðlungi vel. Áf og til rekst ég enn á gamalt, voteygt fólk sem segir með saknaðar- hljóm í röddinni og með mildu aðdáunarbrosi: „Hún var mikill skörungur, hún amma þín.“ Nógu eru þær margar Kynnin af ömmu urðu til þess að alltaf hefur mér þótt kynja- misréttið ósanngjarnt og heimskulegt. Hefði ég fæðst kvenmaður, mundi ég áreiðan- lega hafa tekið þátt í einhverjum af þeim samtökum sem berjast gegn þessari fásinnu. Systir mín, sem er alnafna ömmu, tók líka strax við sér þegar rauð- sokkurnar fóru á stjá, og svo vill til að hún sést á þekktri ljós- mynd að bera styttuna góðu nið- ur Laugaveg í nafni kvennabar- áttu. En ég hef talið mig - - með réttu eða röngu — „stikkfrí" frá að skipta mér af þessum málefn- um, því mér hefur fundist að kvenfólkið eigi að hafa bein í nefinu sjálft til að berjast fyrir sig. Nógu eru þær margar. En kannske hefur of mikið verið tal- að í stað þess að berja í borðið. Því karlarnir eru vissulega flest- ir þverir, klæmnir og þröngsýnir og skilja ekki nema hörkuna fjórtán. Þúsund „gufur“ En sennilega er vandinn hér eins og í fleiru, til dæmis í verkalýðsbaráttunni, að laða fram samstöðuna. Það er hæg- ara ort en gjört. Á móti hverjum tíu, sem eru ákveðnir, eru þús- und „gufur". Því tala hinir fáu hver ofan í annan og í kvenna- baráttunni hefur það leitt til þess að farið var að smíða „teor- íur“ um kvennamálefnin. í sjálfu sér er fólki vorkunn, því tæki- færin til þess að aðhafast annað áþreifanlegt eru of fá. En „teór- íurnar“ leiddu aftur til klofn- ings, svo kraftar hinna fáu dreifðust. Og svo er það með „te- oríur", að þeir sem eiga að fram- kvæma þær, þ.e. fjöldinn, skilur þær ekki nema takmarkað og fer fljótt að leiðast þær. Svona er það alltaf. Hið opinbera stofnar jafnréttisráð, en þangað þorir fólk ekki að kæra nema helst þeir ríku, sem eiga eitthvað und- ir sér — kannske tveir hortugir apótekarar, sem báðir vilja auðg- ast á sama feita bitanum. Átakanlegt samtal Ég heyrði átakanlegt samtal á útvarpsstöð, um miðnætti í vik- unni. Kona hringdi úr sauma- klúbbi og vildi biðja náungann, sem sá um símaþáttinn, að skila „ástarkveðju og kossi" til mann- anna þeirra stallsystranna, sem voru svo vænir að vera heima þessa kvöldstund og passa börn- in. Útvarpsmaðurinn var snögg- ur að skilja hvað klukkan sló og hlýddi konunni höstugur yfir allan gamla listann: ,Áttu karl- arnir ekki börnin líka? Voru þeir of góðir að sitja heima hjá þeim af og til? Hvernig stóð á þessari auðsveipni þeirra þarna í saumaklúbbnum?“ Þar er skemmst frá að segja að það varð fátt um svör hjá blessaðri kon- unni. Hún sló úr og í og hét því loks að ekki skyldi hún láta hafa sig í það að hringja í útvarpsþátt næst, og álasaði þeim hinum í klúbbnum sem höfðu att henni á foraðið... En hún fékk þó óska- lagið sitt spilað. Stríð og friður Margt varð manni hugsað eft- ir að hafa hlýtt á þetta. Er nokk- ur von um uppreisn kvenþjóðar- innar, meðan á hverju strái er kvenfólk sem svona lætur? Eða voru þessar konur bara raun- særri en hinar, kusu friðinn og blíðuna umfram annað og allt sem áreynsluminnst yfirleitt? Sjálfsagt sefur slíkt fólk stórum betur en þeir vígreifu, sem standa í stríðunum. En það verða varla miklar breytingar... En yfir í aðra sálma. Oft finnst mér símastjórar í svona útvarps- þáttum ekki vera nógu nær- gætnir við þá sem hringja. Það er ekki jafnræði með gallhörð- um og þaulæfðum „útvarp- skjöftum“ og sumum smæling- um, sem sitja skjálfandi á bein- unum hinum megin línunnar vegna þeirrar yfirþyrmandi „upplifunar" að vera að tala í út- varp. Þótt þeir hafi kannske sín góðu og gildu rök, þá tekst þeim ekki að stynja þeim upp, því hin- ir eru leiknari að tala og sífellt með eitthvað smellið á hrað- bergi sem slær „röddina á lín- unni“ út af laginu í hvelli. Stundum verður þetta ónotalegt á að hlýða. Kannske stendur þetta til bóta?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.