Tíminn - 16.05.1992, Blaðsíða 5

Tíminn - 16.05.1992, Blaðsíða 5
Laugardagur 16. maí 1992 Tíminn 5 Staða landbúnaðarins Páll Pétursson skrifar Staða landbúnaðarins nú á vordögum er með þeim hætti að fullkomlega er tímabært að efna til umræðu um málefni hans. Mér er nær að halda að á síðari áratugum hafi bændafólk þessa lands ekki búið við meiri óvissu um framtíð sína eða haft meiri ástæðu til að kvíða komandi misseram. Sögulegt yfirlit Rétt er að rifja upp í fáum orðum þróun landbúnaðarmála síðustu áratugi og reyna að gera sér grein fyrir hvar rætur vandans liggja. Eftir stríð hófst mikið framfaraskeið í sveit- um landsins. Nýjar vélar til ræktunar og bú- starfa voru keyptar og á fáum árum gjör- breyttust atvinnuhættir í sveitum. Efnahag- ur þjóðarinnar batnaði, líka bænda, og í hönd fóru miklir uppgangstímar. Ingólfur Jónsson frá Hellu var landbúnaðarráðherra 1959-1971. Hann mótaði þá stefnu að til þess að tryggja þjóðinni ætíð nóg af búvöru verð- bætti ríkið ef meira yrði framleitt en sem innanlandsneyslu næmi. Þessar verðbætur máttu koma á allt að 10% af heildarfram- leiðslunni sem þá væri flutt út. Vinnsla og sala landbúnaðarafurða var á vegum fyrirtækja er í megindráttum lutu stjóm bænda. Framleiðsla óx og fjárfesting var mikil, bæði á bújörðum og ekki síður í vinnslustöðvum. Um 1980 var ljóst að framleiðslan var orðin talsvert meiri en þurfti til að fullnægja eftir- spum innanlands. Misræmi hafði skapast vegna mun meiri verðbólgu á íslandi en í við- skiptalöndum, þannig að sífellt varð erfiðara að fá forsvaranlegt verð fyrir útfluttar búvör- ur. Orsakir Bændur höfðu frá fyrri tíð verið gróin stétt í þjóðfélaginu. Þeim fannst þeir bera ábyrgð á samfélaginu og almenningur var yfirleitt í góðum tengslum við landbúnaðinn og hon- um vinveittur. Pólitískir lukkuriddarar, eink- um úr röðum Alþýðuflokksins, höfðu um margra ára skeið haft hom í síðu landbúnað- arins. Þei'm óx ásmegin og vegna þess að mikið fé fór til útflutningsbóta, tókst þeim að snúa almenningsálitinu á sína sveif. Pólitísk- ar forsendur brustu fyrir háum útflutnings- bótum. Árið 1985 voru sett búvörulög og á gmnd- velli þeirra hafin ströng framleiðslustjómun. Ekki dreg ég í eía að fyrir þeim, er lögin settu, vakti gott eitt. Þeir vildu takmarka bú- vöruframleiðsluna við innanlandsneyslu og byggja upp nýjar búgreinar til viðhalds byggðar í sveitum í samráði við samtök bænda. Þrátt fyrir það að flokkur minn bæri ábyrgð á þessari lagasetningu, treysti ég mér ekki til að styðja lögin. Mér þótti lagasetning- in gölluð og ég óttaðist afleiðingar hennar. Afstaða mín olli sárindum í flokknum og einnig hjá sumum þeim, sem bændur höfðu kjörið eða ráðið sér til forráða. Mér var þetta heldur ekki þrautalaust, en fannst ég þó ekki geta annað. Afleiðingar Síðan þessi lög vom sett hefur mjög sigið á ógæfuhlið. Loðdýraræktin brást, fiskeldið brást, ullariðnaður hmndi og afleiðingar af því að setja sauðfjárframleiðsluna undir stranga stjóm á sama tíma og önnur kjöt- framleiðsla var frjáls, hefur orsakað hmn í markaðshlut- deild dilkakjöts. Dilkakjöt er of dýrt og hug- kvæmni í að halda því að neytendum, t.d. í formi skyndi- rétta, hefur skort. Fyrir ári var gerður búvömsamningur milli ríkis og bænda um sauðfjárframleiðslu. Ríkið hefur þegar svikið þann samning. Ekki verður í ár staðið við samning um beinar greiðslur til bænda, sem áttu að koma í stað niður- greiðslna og lækka búvömverð til neytenda. Jafngildir þessi skerðing á árinu 1992 tveggja mánaða launum bændafólks í landinu. Þá er ekki staðið við samning um framlög ríkis til Framleiðnisjóðs. Síðan búvömsamningur var gerður, hefur verið boðuð skerðing í sauðfjárframleiðslu um fjórðung. Meðalbóndinn má ekki fram- leiða 1993 nema þrjá fjórðu af því sem hann framleiddi 1991. Nú er röðin komin að mjólkurframleiðend- um. í undirbúningi er búvörusamningur, sem gerir ráð fyrir 5% skerðingu framleiðsl- unnar og 6% lækkun á verði. Neysla mjólkur hefur dregist saman, á sama tíma og neysla gosdrykkja hefur stóraukist. Þó hefur mjólk- urverð staðið hér um bil í stað, á meðan gos- drykkir hafa hækkað um 21%. Nú er kók þre- falt dýrara en mjólk. Vandi afurðastöðva Þá er þáttur afurðastöðvanna. Fjárfesting í afurðastöðvum var miðuð við miklu meiri framleiðslu en við búum við í dag. Sam- kvæmt hugmyndum um mjólkurframleiðslu á að láta afurðastöðvamar taka á sig miklar byrðar. Gert er ráð fyrir að leggja sum mjólk- urbúin niður og úrelda þau á kostnað bænda. Þetta er ekki einfalt mál. Sum minni búin eru með ágætan rekstur, framleiða góða vöru með litlum tilkostnaði. Síðan em stærri mjólkurstöðvar með miklu meiri tilkostnað og vannýtta fjárfestingu. Samdráttur í vinnslu eða lokun afurða- stöðva hefúr í mörgum tilfellum mjög alvar- legar afleiðingar fyrir það þéttbýli þar sem þær em. Atvinnuleysi er orðið mjög alvarlegt á íslandi og lokun afurðastöðva bætir þar vemlega við. Þrátt fyrir samdrátt í landbúnaði, hefur yfir- byggingin ekki minnkað. Mikið stóð manna vinnur í kringum landbúnaðinn, bæði í stjómun, ráð- gjöf, þjónustu og viðskiptum hvers konar. Byrðarnar af öllu þessu liöi em of þungar fyrir bændur eina að bera. Störf tengd landbúnaði eru miklu fleiri en þau, sem unnin em á bújörð- um. Vandi landbúnaðar er vandi þjóðfélags- ins alls. Ógæfa að utan Þá er ógetið þeirra þrenginga sem að utan koma. í EES-samningi em vemlegar hættur fyrir íslenska framleiðslu. Fyrir handvömm eða viljandi er opnað fyrir vemlega sam- keppni frá innflutningi á mjólkurvörum. Ríkisstjómin er staðráðin í að fullgilda EES- samninginn. Þá em horfur á að GATT- sam- ingur verði með þeim hætti að innflutningur stóraukist á búvömm. Af þessu tvennu skap- ast stórauknir erfiðleikar og jafrível hmn innlendrar framleiðslu. Stefna Alþýðuflokksins virðist vera að ná árangri utan frá, og óvild hans í garð Iand- búnaðarins kemur hugsanlega til með að ná settu marki: að íslenskir neytendur eti að miklum hluta útlenda, niðurgreidda bú- vöm, hormónakjöt og sýrðar lyfjamjólkur- vömr. Sannleikurinn er sá að sú stefna, sem fylgt er í landbúnaðarpólitík á íslandi í dag, stang- ast algjörlega á við bæði EES og GATT. Þeir stjórnarhættir passa alls ekki við umheim- inn. Flestar þjóðir niðurgreiða stórlega og útflutningsbæta sína framleiðslu á meðan við gemm það ekki. Þá þegar af þeirri ástæðu verður að breyta stefnunni, annað verður óbærilegt. Hvað er til ráða? Torvelt er að benda á haldbær úrræði. Nú- verandi stjórnarstefna er í sjálfu sér land- búnaðinum óvinsamleg. Fyrirsjáanlegar þrengingar eru risavaxnar og enginn kostur góður. Þolendur þrenginganna eru margir. Bændafólk er sem lamað, menn bíða kom- andi tíma ráðalausir og þrúgaðir. Fyrirsjáan- lega blasir gjaldþrot við fjölda bænda innan 4-5 ára. Afurðastöðvar rekur einnig í þrot í stómm stíl. Forysta bænda gerir sér grein fyrír vandanum, en sér engin úrræði heldur, nema láta allt yfir sig og stéttina ganga. Bændur voru látnir taka á sig þyngri byrðar en allir aðrir við gerð þjóðarsáttar. Það var lítils metið og bændur hreinlega gleymdust við gerð síðustu kjarasamninga. Forysta neytenda er landbúnaðinum hrein- lega fjandsamleg og hefur uggvænleg áhrif á almenningsálitið. Hmn landbúnaðar, byggðaröskun og atvinnuleysi kemur þó fyr- irsjáanlega niður á neytendum og almenn- ingi öllum. Núverandi stefna gengur ekki upp. Mér flýgur æ oftar í hug hvort ekki væri illskárra að gefa sauðfjárframleiðsluna frjálsa. Mark- aðshlutdeild þeirra kjöttegunda, sem frjálsar hafa verið, hefur aukist stórlega og afkoma framleiðenda skánað, á meðan neysla kinda- kjöts hefur dregist saman. Þetta hefði í för með sér að margir træðust undir og byggða- röskun fylgdi í kjölfarið. Hagkaup yrði fljót- lega allsráðandi á kjötmarkaði og bændur og neytendur yrðu upp á þá herra komnir með afkomu sína. Þetta eru ófagrar horfur og mjög fjarri lífsskoðun minni, en hitt er þó kannski ennþá bölvaðra. Einu ljósu punktarnir eru hrossaræktin og ferðaþjónustan. Hvom tveggja er vanda- samt, en gæti, ef rétt er á haldið, dafnað vemlega. Vonleysi og uppgjöf er öllu öðm verra. Bændur mega ekki gefast upp fyrir óvin- veittri ríkisstjórn, fjandsamlegum neytenda- samtökum né láta andstætt almenningsálit, byggt á vanþekkingu, buga sig. Þeir mega ekki skammast sín fyrir að vera bændur. Líf þeirra hefur upp á margt að bjóða, þrátt fyr- ir allt, sem öðmm veitist ekki. Ég óska bændafólki og öllum þeim, sem skilning hafa á landbúnaðarmálum, gleði- legs og gjöfuls sumars. Menn og málefni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.