Tíminn - 16.05.1992, Qupperneq 21

Tíminn - 16.05.1992, Qupperneq 21
Laugardagur 16. maí 1992 Tíminn 21 óJ óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki, sem verða til sýnis þriðjudag- inn 19. maí 1992 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu vora að Borg- artúni 7, Reykjavík, og víðar. 2 stk. Toyota Land Cruiser STW 4x4 diesel 1983-87 1 stk. Mitsubishi Pajero Long 4x4 bensín 1988 1 stk. Mitsubishi PajeroTurbo 4x4 diesel 1987 1 stk. Ford Econoline XLT 14 farþ. 4x4 bensín 1985 1 stk. Toyota Hi Lux Xtra cab 4x4 bensin 1987 1 stk. Nissan Double cab 4x4 diesel 1985 3 stk. Toyota Tercel 4x4 bensín 1986-87 2 stk. Mitsubishi L-300 4x4 bensín 1983-86 1 stk. Daihatsu Feroza (skemmdur) 4x4 bensín 1990 1 stk. Saab 900 I (skemmdur) 1989 1 stk. Mazda T-3500 sendibifreið diesel 1987 3 stk. Ford Econoline sendibifreið bensín 1982-87 1 stk. Ford Transit sendibifreið bensín 1983 1 stk. Mazda E-2000 sendibifreiö bensín 1986 1 stk. Nissan 2000 pick-up bensín 1986 1 stk. Volvo 240 fólksbifreiö bensín 1989 1 stk. Toyota Corolla fólksbifreið bensin 1988 1 stk. Mazda 929 fólksbifreið bensín 1984 3 stk. Daihatsu Charade fólksbifreið bensín 1986-90 2 stk. Nissan Micra fólksbifreið bensín 1988 2 stk. Lada Samara fólksbifreið bensín 1987 1 stk. Mercedes Benz 0307 51 farþ. diesel 1978 1 stk. Mercedes Benz 1622 vörubifreið diesel 1983 Til sýnis hjá Pósti og síma, birgðastöð Jörfa: 1 stk. Mitsubishi L-300 (skemmdur) Til sýnis hjá Vegagerö ríkisins, Akureyri: 4x4 bensín 1991 1 stk. BMW 320 fólksbifreið (skemmdur) bensín 1982 1 stk. Volvo 1025 vörubifreið m/búkka diesel 1981 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Grafarvogi: 1 stk. Scania Lbs 141 vörubifreið diesel 1978 1 stk. Hyster vélaflutningavagn (31 tonn) 1971 1 stk. Caterpiilar V-100 lyftari, lyftigeta 5,81 diesel 1978 1 stk. snjóvængur fyrir veghefil 1971 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Borgartúni 5: 1 stk. Toyota Hi Lux DC (skemmdur) 1 stk. færiband 4x4 bensín 1988 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Búðardal: 1 stk. K.A.S. sturtuvagn, burðarþol 5 tonn Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, isafiröi: 1986 1 stk. Massey Ferguson dráttarvél 699 4x4 diesel 1984 Tilboðin verða opnuð að skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna boöum sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK PÓSTUR OG SÍMI Ný símaskrá komin út Símaskráin 1992 erkomin út og geta símnotendurfengiö hana á póst-og simstöðvum um allt land gegn framvisun sérstakra afhendingarseöla, sem þeir fá senda í pósti. Símaskráin tekurgildi 23. mai nk., en þann dag veröur m.a. um 200 númerum I Garðabæ breytt og veröa þau eftirieiöis sex stafa. Hægt er að fá símaskrána innbundna meö höröum spjöldum og kostar þaö 175 kr. Símaskráin er meö svipuöu sniöi og i fyrra, en þó hefur letri i símanúm- erunum sjálfum verið breytt og er þaö nú læsilegra en áður. Uþþlag sima- skrárinnar i ár er um 162.000 eintök. Siöufjöldinn hefur aukist um 32 síð- ur og nú er skráin 1008 siöur. Forsíðuna prýöir mynd af Dyrhólaey. Meö aðalskránni enj gefnar út sérstakar svæöaskrár á landsbyggöinni og verða þær til sölu á póst- og símstöövum fyrir 160 kr. Sérstök götu- og númeraskrá fyrir höfuðborgarsvæðiö er einnig komin út og er hún seld á 1.500 krónur. Ritstjóri símaskrárinnar er Ágúst Geirsson. Reykjavík, 15. maí 1992 Selfoss Svæðisstjóm málefna fatlaðra á Suðurlandi leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir vistheimili barna á Sel- fossi. Um er að ræða einbýlishús, par- eða raðhús á einni hæð, 200-300 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og -efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, afhendingar- tíma og söluverð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytis- ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 25. maí 1992. Fjármálaráðuneytið, 15. maí 1992 Adua Pavarotti hefur verið manni sínum stoð og stytta í tæp 40 ár Adua Pavarotti er manni sínum, Luciano, ómissandi, enda stendur hjónaband þeirra traustum fótum. Hún segist reyndar alltaf hafa unn- ið utan heimilis, en að því kom að það varð fullt starf að stjóma mál- um stórsöngvarans, auk þess að reka heimili þeirra hjóna og ala upp dætumar þrjár. Það segist hún hafa gert með glöðu geði, þó ekki værí til annars en að geta veríð meira með manni sínum. Luciano er á sífelldum ferðalög- um og núna er hann fullbókaður út árið 1995, enda er nærveru hans víða óskað. Þau eiga hús víða, t.d. í New York og Monte Carlo, en þar segir Adua að þau hafi ekki stigið fæti inn fyrir dyr árum saman; til þess hafi hreinlega enginn tími gef- isL Hvort hún sé ekki afbrýðisöm vegna allrar aðdáunarinnar og hrifningarinnar, sem maður henn- ar nýtur, svarar hún með hægð að það sé bara eins og vera ber. Og hún segir frá því að eitt sinn, þegar Luciano hafí sungið í Mexíkó, hafi kona rokið á hann og kysst hann og faðmað. Luciano benti henni á að konan hans væri viðstödd og þá syaraði konan: Mér er alveg sama. Ég er ekki afbrýðisöm! Og það er Adua greinilega ekki heldur. Adua og Luciano Pavarotti hafa veriö giftí 31 ár. Tilhugalífiö stóö i 8 ár, svo aö þau þekkja hvort annaö út og inn. Luciano Pavarotti: „Tenórar eru ekki venju- legirmenn, þeireru fangar raddarinnar" Luciano Pavarotti í sjaldgæfu fríi viö Adr- íahafiö. Tenórsöngvarinn heimsfrægi Luciano Pavarotti er vinnusjúkur. Á hveijum degi sinnir hann dýr- mætustu eign sinni, röddinni, af alúð. Þó heldur hann ekki nema innan við 100 tónleika á ári, en hann æfir sig á hverjum degi. „Röddin er eins og vín,“ segir hann. „Ef hún er virkilega góð, er líklegt að hún mýkist og batni með tímanum. En það er ekki sjálfgefið, það er alltaf til í dæminu að hún súrni. Svo að það verður að vinna að því að bæta hana. Röddin mín er hljóðfæri sem guð gaf mér, hún er eins viðkvæm og besta Stradivarius- fiðla. Hún endur- speglar öll skapbrigði og tilfinn- ingar líkama og sálar," segir hann, og hann hugsar svo sannarlega vel um þetta dýrmæti sitt. Hann fer aldrei út fyrir hússins dyr án hjart- fólgna Hermes- trefilsins síns, hann drekkur alls kyns samsull á hverjum degi til að mýkja háu tón- í spegli Timans ana sína o.s.frv. Blaðamenn og Ijósmyndarar fá ekki að koma nær honum en sem nemur um tveim metrum, ef ske kynni að þeir smit- uðu hann af kvefi eða hósta. Og blóm fá ekki að sjást á hótelher- bergjum sem hann gistir, þar sem frjókorn angra viðkvæman háls- inn. En engar þessar varúðarráðstaf- anir vernda hann gegn því vanda- máli, sem hann verður nú að tak- ast á við. Hann er orðinn svo þungur, vegur tæp 130 kíló, sem gerir honum erfitt að ganga upp stiga og brekkur, auk þess sem álagið á liðamótin veldur honum sársauka. Hann veit fátt skemmti- legra en að borða góðan, heima- gerðan, ítalskan mat hjá konunni sinni og er sjálfur liðtækur í eld- húsinu. Samt lætur hann ekki hugfallast við tilhugsunina um að léttast um a.m.k. 30 kíló og þegar hann er spurður nákvæmlega hvað hann sé þungur, svarar hann með bros á vör: „12 kílóum léttari en áður.“ Söngferillinn spannar nú 30 ár, og ef vel tekst til með megrunina má búast við nokkrum góðum ár- um í viðbót.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.