Tíminn - 21.05.1992, Blaðsíða 1
Fimmtudagur
21. maí 1992
96. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Læknaráð Landspítalans
óánægt:
Uppsagnir
íhugaöar
„Læknaráð Landspítalans hefur
miklar áhyggjur af stefnu stjóm-
enda spítalans undanfarin miss-
eri“, segir í fréttatilkynningu sem
aðalfundur læknaráðs Landspít-
alans samþykkti 15.maí sl.
Þar segir að sumir af hæfustu
starfsmönnum spítalans íhugi að
segja upp störfum vegna þeirra
einhliða aðgerða sem viðhafðar
hafa verið til að mæta niður-
skurði á íjármagni sjúkrahússins.
Það hefur valdið óánægju meðal
starfsfólks.
Læknaráðið beinir þeim tilmæl-
um til stjómar spítalans að meira
samráð verði haft við starfsfólk í
mikilvægum ákvarðanatökum.
-GKG.
Hjálmur bjargar dreng frá
meiðslum:
Ómeiddur eft-
ir mikiö högg
Læknir telur fullvíst að hjálmur
hafi bjargað lífi 6 ára drengs sem
Ienti í bílslysi í Keflavík í fyrra-
dag.
Drengurinn hjólaði fyrir bifreið-
ina og lenti höfuð hans það
harkalega á hliðarrúðu farþega-
megin að bæði sá á rúðu og hurð.
Drengurinn slapp nær ómeiddur.
Slysavarnafélagið vill ítreka að
böm noti hjálma við hjólreiðar
svo koma megi í veg fyrir alvar-
lega höfuðáverka. —GKG.
Fulltrúar í þingmannanefnd EFTA ræða við blaðamenn. í forystu fyrir hópnum er Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður. Tímamynd Ámi Bjarna
Framtíðarhlutverki þingmannanefndar EFTA-ríkja komið á hreint:
Stofnanir
eru aö
Ráðherrar EPTA-ríkjanna undirrituðu í gær samning um framtíðar-
hlutverk þingmannanefndar EFTA, en nefndin mun gegn veigamiklu
hlutverki við stjómun Evrópska efnahagssvæðisins. Af íslands hálfu
undirritaði Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, samninginn.
EES-samningurinn kveður á um
stoíhun sérstakrar EES-þingnefnd-
ar. í nefndinni munu sitja 66 full-
trúar, 33 frá EFTA-ríkjum og 33 frá
Evrópubandalaginu. ísland mun
eiga þrjá fulltrúa í nefndinni. Af
EFTA- ríkjanna hálfu munu þjóð-
þing ríkjanna tilnefna í nefndina, en
fulltrúar EB í nefndinni verða kosn-
Tæpir með mat
a
Senda þurfti þrjá flugbjörgunar-
sveitarmenn upp á Vatnajökul til að
aðstoða flnim matarlitla félaga
þeirra til byggða í fyrradag.
Mennimir flmm hðfðu farið í
gönguskíðum upp hjá Suæfelli
viku áður til samæflnga með vam-
arliðlnu, sem aetlaði að leggja til
þyriur. Þær átti að nota tíl að sækja
mennina og koma þeim til Reykja-
víkur á laugardaginn.
Uppi á jöldi skall á vont veður svo
þyriumar komust ekki til æflngar-
innar. Mennimir létu fyrirberast á
Grímsfjalli og biðu eflir að veðrinu
slotaði, sem ekki varð.
Frá Grímsfjalli er a.m.k. ijöguma
daga gangur til Sigöldu og létu
mennimir vita af því að þeir væru
orðnir of mataríitlir til að leggja í
þá ferð. Það varð þvíúrað vélsleða-
merm úr beltaflokld Flugbjörgun-
arsveitarínnar sóttu þá upp á jökuL
„VÍð vissum ekki hvort sleðamir
réðu við það að keyra með fimm
menn í viðbót niður úr“, segir Ara-
grímur Hermannsson sem þátt tók
í leiðangrinum. „Við ætluðum
svona aðallega að fara með mat til
þeirra. En færið var gott og sleð-
amir léku sér að því að keyra þá-“
—GKG.
ir beinni kosningu.
Gert er ráð fyrir að sameiginlega
EES-þingnefndin haldi tvo fundi á
ári, til skiptis í EB og EFTA- ríkjum.
Nefndin á með umræðum og fundum
að stuðla að auknum skilningi milli
EB og EFTA-ríkjanna á þeim sviðum
sem EES-samningurinn nær til.
Nefndin getur látið í ljós skoðanir sín-
ar í formi skýrslna og ályktana.
Samningurinn sem undirritaður var
í gær kveður á um starfshætti fulltrúa
EFTA í þingnefndinni og samskipti
við aðrar stofrianir sem komið verður
á til að stýra EES og túlka EES-samn-
inginn.
Igær var einnig haldinn sameigin-
legur fúndur ráðgjafanefndar EFTA
og Efnahags- og félagsmálanefndar
Evrópubandalagsins. Á fundinum var
rætt um ýmis mál sem tengjast stofh-
un EES og einnig um vandamál sem
lúta að tengslum ríkja í Austur- Evr-
ópu við EES annars vegar og EB hins
vegar.
A fundi ráðgjafanefndar EFTA, sem
eins og nafnið gefúr til kynna gefúr
ráðherrunum ráð, var rætt um vax-
andi atvinnuleysi í Evrópu, framtíð
GATT- viðræðnanna og fleira. -EÓ
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, undirritar samning
um framtíðarhlutverk þingmannanefndar EFTA.
Tímamynd Árni Bjarna
Fjöldi frumvarpa urðu að lögum á síðustu dögum Alþingis:
Þinghaldinu lauk í dagrenningu í gær
Alþingi Islendinga, því 115. í röðinni, var slitið í fyrrinótt. Fjöldi fram-
varpa varð að lögum. Ríkisstjómin náði fram flestum sínum mikilvæg-
ustu málum, en frumvörp hennar um að breyta Sfldarverksmiðjum rík-
isins og Sementsverksmiðju ríkisins í hlutafélag vora lögð til hliðar.
Framvörpin verða endurflutt í haust.
Umdeildasta frumvarp ríkisstjómar- sjávarútvegina Meiri samstaða varð
innar er vafalaust frumvarpið um
Lánasjóð íslenskra námsmanna. Það
varð að lögum í síðustu viku. Eftir að
það varð að lögum urðu mest átök um
frumvarpið um skattlagningu inn-
lánsstofnana, en það gerir ráð fyrir að
skattfríðindi lánasjóða atvinnuveg-
anna verði afriumin. Lögin leiða til
300 milljóna aukinna útgjalda fyrir
um frumvarpið um greiðslur úr Verð-
jöfnunarsjóði sjávarútvegsins, en það
varð einnig að lögum. Samþykkt var
ný heildarlöggjöf um málefni fatlaðra
eftir allmiklar umræður. Þá voru
frumvörp um Fiskistofú, gjald vegna
ólögmæts sjávarafla og um Lífeyris-
sjóð sjómanna samþykkt Samþykkt
vom ný höfúndarlög, svo og lög um
forfallaþjónustu í sveitum. Þá vom
samþykkt lög sem heimila að selja
kirkjujörðina Stóm Borg. Samþykkt
vom fmmvörp um skiptaverðmæti og
greiðslumiðlun, um atvinnuleysis-
tryggingar og um reglulegan sam-
komudag Alþingis, en það gerir ráð
fyrir að Alþingi komi saman 17. ágúst
í sumar.
Tveimur frumvörpum var vísað til
ríkisstjómarinnar, þ.e. frumvarpi um
greiðslukortastarfsemi og frumvarpi
um Þjóðhagsstofnun.
Samþykktar vom þingsályktanir um
afnám misréttis gagnvart samkyn-
hneigðu fólki, tillaga um könnun á
hagkvæmni jarðganga milli Fáskrúðs-
íjarðar og Reyðarfjarðar, tillaga um
breytingar á vegaáætlun 1991-1994,
tillaga um flugmálaáætlun 1992-
1995, tillaga um eflingu Akureyrar og
Eyjafjarðarsvæðisins sem miðstöðvar
fræðslu á sviði sjávarútvegs, tillaga
um endurgreiðslu virðisaukaskatts til
erlendra ferðamanna. Þá var þings-
ályktun frá ríkisstjóminni um stað-
festingu á fríverslunarsamningi EFTA
við Tyrkland samþykkt eftir miklar
umræður, en Ólafur Ragnar Grímsson
hélt lengi uppi andófi við tillöguna
vegna mannréttindabrota TVrkja gegn
Kúrdum. Breytingamar á vegaáætlun
vom umdeildar, en stjómarandstaðan
taldi óskynsamlegt að draga úr vega-
ffamkvæmdum nú þegar samdráttur
er á vinnumarkaði.
í gær var samþykkt frumvarp um
ábyrgðasjóð launa, en það fékk sér-
staka harðferð í gegn um þingið.
Frumvarpið var samið í samvinnu við
aðila vinnumarkaðarins og fjallar um
rétt launþega til greiðslu launa og líf-
eyris við gjaldþrot fyrirtækja. Þá vom
samþykkt frumvörp um vemd bama
og ungmenna, um fullorðinsfræðslu,
um Náttúrufræðistofnun fslands, um
Viðlagatryggingu íslands, um skipa-
verðmæti og greiðslumiðíun. -EÓ