Tíminn - 21.05.1992, Síða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 21. maí 1992
Hentar hlutafélagsformið í rekstri orkufyrirtækja? Lárus Blöndal lögmaður:
Réttindi og skyldur
e i nkaor kufy r i r t ækja
Aðalfundur Sambands íslenskra rafveitna var haldinn á Akureyri í
sl. viku. Meðal erinda, sem flutt voru á fundinum, var „Einkaréttun
skyldur — réttindi". Flutningsmaður var Lárus Blöndal hdl., og
sagði hann að erindið væri byggt á þeim hugmyndum að breyta RA-
RIK (Rafmagnsveitum ríkisins) í hlutafélag.
í máli Lárusar kom fram að þær
hugmyndir, sem hann setti fram,
væru miðaðar við réttindi og skyld-
ur orkuíyrirtækja í framtíðinni, með
tilliti til þess að þau yrðu einka-
vædd, enda væri það almennt mat
að hlutafélagsformið hentaði vel í
rekstri orkufyrirtækja.
Eins og fyrirkomulag þessara
mála er nú, koma réttindi og skyld-
ur þessara fyrirtækja fram í lögum,
sem hafa almennt gildi fyrir öll
orkufyrirtæki, og sérreglum fyrir
hvert fyrirtæki um sig. Svipaðar
reglur gilda um öll fyrirtækin, en
útfærslur reglnanna eru reyndar oft
mismunandi eftir fyrirtækjum. Lár-
us taldi það einsýnt að í nánustu
framtíð yrði sett ein allsherjar
reglugerð, og reglugerðir, sem sett-
ar hafa verið fyrir einstök fyrirtæki,
verði felldar úr gildi. Af því skapast
augljóst hagræði að hafa með þeim
hætti samskonar reglur fyrir öll fyr-
irtæki í orkudreifingu á einum stað.
Jafnframt verði ákveðnum aðila fal-
ið að leysa úr hugsanlegum ágrein-
ingi orkusölufyrirtækja og orku-
kaupenda. Þá er þegar í undirbún-
ingi að fela sérstökum aðila eða
stofnun að annast eftirlit með verð-
lagningu á orku og taka yfir það
hlutverk iðnaðarráðherra að stað-
festa gjaldskrár orkufyrirtækja.
Það gerist æ algengara í ná-
grannalöndunum að orkufyrirtæki
séu rekin sem hlutafélög og noti
uppgjörsaðferðir hlutafélaga. Hér-
lendis hefur verið talsverð umræða
um breytingu í þessa veru, og t.d.
verið samið frumvarp til laga um að
hlutafélag yfirtaki rekstur Raf-
magnsveitna ríkisins. Líklegt er að
sú breyting verði í nánustu framtíð,
enda er það mat manna að hlutafé-
lagsformið henti vel í rekstri orku-
fyrirtækja. Við slíkar breytingar á
rekstrarforminu gerist það jafn-
framt að yfirstjórn fyrirtækjanna
flyst úr höndum kjörinna fulltrúa
fólksins til stjórna viðkomandi
hlutafélaga. Því er enn ríkari ástæða
til að setja ffarn á afdráttarlausan
hátt þær skyldur, sem orkufyrirtæk-
in hafa gagnvart viðskiptavinum
sínum, og tryggja hagsmuni orku-
kaupenda betur en nú er gert.
Helstu breytingarnar, sem vænta
má í sambandi við réttindi og skyld-
ur raforkufyrirtækja, felast aðallega
í eftirtöldum atriðum:
1. Ein reglugerð gildi fyrir öll
orkudreifingarfyrirtæki landsins.
2. Óháður aðili hafi eftirlit með
beitingu þeirra sérstöku heimilda,
sem lög og reglugerð veita orkufyr-
irtækjum í samskiptum þeirra við
orkukaupendur, og leysi úr ágrein-
ingi sem upp kann að koma vegna
beitingar þessara heimilda.
3. Oháður aðili hafi eftirlit með
verðlagningu á orku og staðfesti
gjaldskrár orkufyrirtækja.
4. TVyggt verði að viðhald og end-
urnýjun orkumannvirkja sé full-
nægjandi.
5. Allir á orkuveitusvæði viðkom-
andi fyrirtækis geti keypt raforku.
6. Settir verði ákveðnir staðlar,
sem tryggi afhendingargæði á seldri
orku.
7. Varaafl skuli vera til staðar skv.
ákveðnum reglum.
8. Tryggt sé að ávallt séu til nægi-
legar birgðir af viðgerðarefni vegna
óvæntra áfalla eða tjóna.
9. Með vátryggingu eigna orkufyr-
irtækja sé tryggt að það geti brugð-
ist við tjónum, sem verða á eignum
þess.
10. Iðnaðarráðherra hafi eftirlit
með starfsemi orkufyrirtækja.
Lárus sagði að lokum að þessar
hugmyndir væru ekki tæmandi upp-
talning á þeim breytingum, sem
yrðu á næstu árum, miklu fremur
vísbending um það hvernig þessi
mál þróuðust.
hiá-akureyri.
m n ■JHHi
n DIET PEPS [ rt.-í..ii
Hér má sjá nýja útlitið til vinstri.
Pepsi með nýtt vörumerki:
f 8. SINN
Á ÖLDINNI
Pepsi-Cola hefur breytt um vöru-
merki og hefur hönnun þess nýja
tekið fjögur ár.
Breytingin felst í því að nafnið
Pepsi hverfur nú út úr hringnum
og letrinu hefur verið hallað fram
á við.
Þetta er í 8. skipti á öldinni,
sem útlit Pepsi breytist, en upp-
haflega merkið varð til 1898.
í tilefni af breytingunni bjóða
framleiðendur Pepsi á íslandi,
Gosan hf., upp á Pepsi og Diet
Pepsi í 2ja lítra umbúðum á lækk-
uðu verði.
—GKG.
Fundur þróunarmálaráðherra um umhverfismál:
Þörf á auknum
lýðréttindum
Mál tengd ástandi í þróunariöndun-
um, þróunaraðstoð og samvinnu
Norðurianda í þróunarmálum voru
á dagskrá fundar þróunarmálaráð-
herra Norðurlanda, sem haldinn var
í Helsinki 4. apríl sl.
Umhverfisvandamál, vaxandi fá-
tækt og jafnframt aukin lýðréttindi,
Kvikmyndasjóður Evrópu
veitir „Karlakómum
Heklu“ lán:
Tólf leikn-
um mynd-
um lánað
Mynd Guðnýjar Halldórsdóttur,
„Karlakórinn Hekla“, hefur hlotið
lán að upphæð 12,7 milljónir ís-
Ienskra króna frá Kvikmyndasjóði
Evrópu, Eurimages, í Lissabon.
Myndin er gerð í samvinnu við Svía
og Þjóðverja.
Sjóðurinn veitti 12 lán til leikinna
kvikmynda, 3 til skapandi heimild-
armynda og 3 dreifingarstyrki.
Meðal þeirra mynda, sem veitt var
lán, var mynd Finnans Mika Kau-
rismáki, sem á ensku ber heitið
„The Last Border". Mynd bróður
hans Aki Kaurismáki, „La vie de
Bohéme", hlaut dreifingarstyrk.
FuIItrúi íslands í stjórn Kvik-
myndasjóðs Evrópu er Þorsteinn
Jónsson. —GKG.
bæði í þróunarlöndunum og Mið-
og Austur-Evrópu voru meginum-
ræðuefnin.
Viðfangsefni Ríó-ráðstefnunnar
voru sérstaklega rædd, svo og
ástandið í suðurhluta Afríku. Ráð-
herrarnir voru sammála um að þörf
væri á aukinni aðstoð. Þróuðu lönd-
in þurfi að skuldbinda sig til 0,7%
þróunaraðstoðar, til að árangur ná-
ist í Ríó um aðgerðir gegn eyðingu
frumskóga og í mengunarvörnum.
Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður
Jóns Baldvins Hannibalssonar utan-
ríkisráðherra, sat fundinn fyrir hönd
ráðherra.
—GKG.
Talið frá vinstri: Ragna S. Óskarsdóttir verkefnisstjóri SR, Anna Lilja Jónsdóttir sem útskrifaðist af
fjármála- og rekstrarbraut með hæstu einkunn í öllum skólanum, Árni Sigfússon framkvæmdastjóri
Stjórnunarfélags fslands, og Kristín Hreinsdóttir verkefnisstjóri SR.
Bráðum kennt á þremur stöðum
kennsla fram í húsnæði Stjórnunarfélagsins að Ána-
naustum 15. Næsta námsár hefst 7. september og skól-
inn verður að þessu sinni starfræktur í Reykjavík, á Ak-
ureyri og ísafirði. Inntökuskilyrðin eru 18 ára aldurstak-
mark og grunnskólapróf. —GKG.
103 nemendur voru útskrifaðir úr Skrifstofu- og rit-
araskólanum þann 8. maí sl.
Þar af eru 24 með sérhæft skrifstofupróf og 72 með
almennt skrifstofupróf. Hvort námsár er 26 vikur.
Skólinn er í eigu Stjórnunarfélags íslands og fer
w Ungir framsóknarmenn funda:
Ojafnaðarstefnu ríkis-
stjórnarinnar mótmælt
Á sameiginlegum stjómmála-
fundi framkvæmdastjómar Sam-
bands ungra framsóknarmanna
og Félags ungra framsóknar-
manna við Djúp, sem haldinn var
á ísafírði fyrir skömmu, var sam-
þykkt eftirfarandi ályktun:
„Fundurinn mótmælir þeirri
ójafnaðarstefnu sem núverandi
ríkisstjóm framfylgir. Rfkis-
stjómin hefur á einu ári brotið
niður og afnumið ijölmörg atriði
jafnréttis og félagshyggju, sem
komið hefur verið á hér á iandi á
síðustu áratugum, sum hver eftir
mikla baráttu og fómir.
Það fólk, sem harðast hefur
orðið útí vegna þessara grundvaU-
arbreytinga á þjóðfélagi vom sem
ríkisstjóm hægri flokkanna er að
koma í kring, er fyrst og fremst
bamafólk, menntafólk, svo og
sjúkir og aldraðir. Á sama túna er
ekki hreyft við afkomu hópa í
þjóðfélaginu, sem mest eiga og
hæstar hafa tekjuraar, nema þá
helst tíl að auka hagsæld þeirra.
Til þessara óhæfuverka hefur
ríkisstjómin ekkert umboð. Því
ætti hún að segja af sér strax og
leggja verk sín undir dóm þjóðar-
innar."
Nýtt félagsheimili aldraðra:
Bergholt í
Reykholti
Bergholt, nýtt félagsheimili að
Reykholti í Biskupstungum, var
vfgt sl. sunnudagskvöld.
Félagsheimilið er ætlað öldruðum í
sveitinni og er á jarðhæð heimilis fyrir
aldraða, sem einnig ber nafnið Bergholt
Að sögn Katrínar Þórarinsdóttur, hús-
varðar í félagsheimilinu, er þar að finna
eldhús og tvö stór herbergi, sem geta
nýst til dæmis til föndurs og spila. í
framtíðinni er ætlunin að koma þar
einnig upp mötuneyti fyrir aldraða.
Við vígsluna á sunnudagskvöldið var
öldruðum í sveitinni boðið til kaffisam-
sætis í boði kvenfélagsins, ásamt smið-
um sem tóku þátt í að gera húsið sem
best úr garði. —GKG.