Tíminn - 22.05.1992, Qupperneq 1
Föstudagur
22; maí 1992
97. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Allir vextir og hluti af höfuðstól ónafnskráðra reikninga skulu renna í ríkissjóð:
„Hér er um að ræða nokkurs konar „amnestyákvæði", þar sem
kveðið er á um að þótt maður hafí vanrækt framtalsskyldu sína fyr-
ir gildistöku laganna og fram komi tekjur eða eignir sem ekki hafa
verið taldar fram, þá leiði það eigi til sektargreiðslu samkvæmt 2.
mgr. 107 gr. laganna“. Svo segir í athugasemd við bráðabirgða-
ákvæði í frumvarpi um breytingar á skattalögum.
fyrir þessa miklu mildi. Því í til-
Þar sem m.a. er gert ráð fyrir
strangri upplýsingaskyldu fjár-
málastofnana til skattyfirvalda er
reiknað með að drjúgur hluti
þeirra 70 milljarða eigna sem
landsmenn hafa „gleyrnt" að telja
fram muni skjóta upp á yfirborð
nýju skattframtalanna.
Margir mega sjálfsagt hrósa happi
vitnaðri 107. grein skattalaganna
segir m.a.: „Skýri skattaðili af
ásetningi eða stórkostlegu hirðu-
leysi rangt eða villandi frá ein-
hverju því sem máli skiptir um
tekjuskatt hans eða eignaskatt skal
hann greiða sekt allt að tífaldri
þeirri skattfjárhæð sem undan var
dregin".
Einnig stendur til að taka mildum
höndum á þeim sem hafa svikið sér
út hærri vaxtabætur en þeir áttu
rétt á, t.d. með því að draga ekki
vaxtatekjur frá vaxtagjöldum elleg-
ar með því að „gleyma" hluta eigna
sinna. í frumvarpinu er tekið fram
að þótt áður óframtaldar tekjur og
eignir komi í ljós eigi það hvorki að
leiða til breytinga (endurgreiðslu)
á áður útreiknuðum og greiddum
vaxtabótum né heldur hækkana á
eignaskatti fyrri ára. í athugasemd-
um segir að ákvæði af þessu tagi
séu vel þekkt í íslenskri skattalög-
gjöf þegar um hefur verið að ræða
þau tilvik að felld hafa verið niður
undanþáguákvæði frá skattlagn-
ingu.
A hinn bóginn ætlar „skattmann"
ekki að sýna þeim neina linkind
sem hyggjast halda áfram að eiga
ónafnskráðar innistæður og inn-
lánsreikninga. í frumvarpinu er
ákvæði um að allir reikningar og
innistæður verði skráðar á nafn.
Lagt er bann við því að innláns-
stofnun greiði út vexti eða höfuð-
stól ónafnskráðra innistæðna
nema að eigandi þeirra gefi full-
nægjandi upplýsingar. Geri hann
það ekki skal bankinn greiða ríkis-
sjóði vexti og verðbætur af inni-
stæðunni á tekjuárinu og þar til
viðbótar ákveðinn hundraðshluta
af höfuðstól hennar, eða sem svarar
eignaskattsprósentu lögaðila. í at-
hugasemd frumvarpsins segir að
þarna hafi danskar reglur verið
teknar til fyrirmyndar, nema að þar
sé þó gengið mun lengra; í Dan-
mörku hafi slíkir reikningar og
innistæður verið gerðar upptækar.
- HEI
• Sjá einnig blaðsíðu 2.
Farmanna- og fiskimannasambandið skorar á
áhafnir humarbáta að fara ekki á sjó:
Kjaradeila um
humartroll
Farmanna- og fiskimannasamband
íslands hefur skorað á áhafnir humar-
báta sem nota tvö humartrol! að fara
ekki til veiða fyrr en samið hefur verið
við sjómenn um þessa breyttu veiði-
aðferð. Engin viðbrögð hafa komið frá
útvegsmönnum í þessari deilu, en
Nýjum námslánalögum mótmælt:
Bitnar á nemum
utan af landi
Aðalfundur Félags opinberra starfs-
manna á Austurlandi mótmælir harð-
lega þeirri aðför landsstjórnarmanna
að námsmönnum, að auka takmark-
anir námslána.
Félagsfundurinn telur að misrétti til
náms muni aukast og bitna helst á
nemum á landsbyggðinni. Auk þess
sé aðförin gróf árás á jafnrétti í land-
inu.
—GKG.
flestir humarbátanna voru komnir á
sjó áður en áskorunin var send.
í samningum Farmannasambands-
ins er kveðið á um að gera skuli sér-
stakan samning ef breytingar verða á
veiðiaðferð. Sambandið knýr núna á
um að slíkur samningur verði gerður
um þá báta sem eru famir að nota tvö-
falt troll við humarveiðar. Venjulega
eru 6 menn í áhöfn humarbáta, en
með nýja veiðarfærið þarf 8 menn.
Þetta rýrir hlut sjómanna í hlutaskipt-
um.
Engin viðbrögð hafa enn komið ffá
útvegsmönnum við kröfu Farmanna-
sambandsins, en Benedikt Valsson,
framkvæmdastjóri þess, sagði að Far-
mannasambandið myndi fylgja kröfu
sinni fast eftir.
Fimm bátar nota tvöfalt humartroll.
Á einum bát hefur verið gert óform-
Iegt samkomulag um að hækka
skiptaprósentuna fyrir hvem auka-
mann sem bætist við áhöfn. -EÓ
SKYGGNA MYNDVERK HF. hlaut fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs 1992 í gær fyrir landkynningar-
myndina „island í dag“. Á myndinni sést Kristján Pétur Guðnason taka við bikarnum fyrir hönd fyrir-
tækisins.
Sjávarútvegsráðstefna framsóknarmanna á morgun í Borgartúni 6:
Hremmir Kolkrabbinn allan fiskikvótann?
Gr fískveiðikvótinn á leið í gin Kolkrabbans? Hvaða leið á að fara
í málefnum útgerðar og fískvinnslu? Þarfnast núverandi físk-
veiðistefna endurskoðunar f ljósi rýrnandi afkomu þjóðarbúsins?
Hefur hún skilað þjóðarbúi og almenningi því sem til var ætlast?
Eru aðrar leiðir betri?
Um þessar spurningar og önnur
mál tengd sjávarútvegi og fisk-
vinnslu verður fjallað á sjávarút-
vegsráðstefnu sem SUF, FUF-
Reykjavík og Framsóknarflokk-
urinn gangast fyrir á morgun,
laugardag í Borgartúni 6.
„Það er kominn tími til að fara
rækilega ofan í sjávarútvegsmál-
in,“ segir Siv Friðleifsdóttir, for-
maður SUF. „Sjávarútvegsmál
eru í brennidepli og mikil um-
ræða um þau fer nú fram í þjóð-
félaginu. Leitast var við að velja
sem fjölbreyttastan hóp fram-
sögumanna til að varpa sem skýr-
ustu Ijósi á þessi mikilvægu mál
og leita svara við þeim spurning-
um sem uppi eru í umræðunni,"
segir Siv, enda séu mjög skiptar
skoðanir um núverandi sjávarút-
vegsstefnu, líka innan raða fram-
sóknarfólks. „Ráðstefnan er inn-
legg okkar, til þess að komist
verði að sem bestri niðurstöðu og
sjávarútvegsstefna framtíðar
mörkuð samkvæmt henni.“
Sjávarútvegsráðstefna SUF,
FUF- Reykjavík og Framsóknar-
flokksins hefst á morgun, laugar-
dag, kl. 13 í Borgartúni 6 í
Reykjavík og áætlað að henni
ljúki kl 17. Framsögumenn verða
Einar Oddur Kristjánsson for-
maður VSÍ, G. Valdimar Valdi-
marsson fulltrúi SUF, Þröstur Ól-
afsson aðstoðarmaður utanríkis-
ráðherra, Árni Gíslason skipstjóri
og formaður undirbúningshóps
að félagi um breytta fiskveiði-
stefnu og Halldór Ásgrímsson al-
þingismaður og fyrrv. sjávarút-
vegsráðherra. Ráðstefnustjóri
verður Gunnar Bragi Guðmunds-
son formaður FUF-Reykjavík.
Ráðstefnan er öllum opin.
—sá