Tíminn - 22.05.1992, Side 2

Tíminn - 22.05.1992, Side 2
2 Tfminn Föstudagur 22. maí 1992 ✓ Traktorstengdar þvingunarhrærivélar. ✓ Mötun auðveld með traktor. Mikil afköst. ✓ Tvær stærðir: 2ja og 3ja poka. Frá Heilsu- gæslustöðinni Grafarvogi að Hverafold 1-3 Skráning þeirra íbúa Grafarvogs, sem ætla aö fá heilsu- gæsluþjónustu á stöðinni, hefst: föstudaginn 22. maí. Hægt er að panta tíma til skráningar milli klukkan 08-17 alla virka daga. Sími heilsugæslustöðvarinnar er 681060. Heilsugæslustöðin tekur til starfa 3. júní n.k. Stjórn heilsugæsluumdæmis Austurbæjar nyrðra. FÉLAGSNIÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39 -108 Reykjavlk - Sími 678500 • Fax 686270 Sýningar á handa- vinnu aldraðra í félags- og tómstundastarfi Reykjavíkurborgar Sýningar á munum, sem unnir hafa verið á námskeiöum i vetur, verða á eftirtöldum stööum: Dagana 23.-25. maí frá kl. 14:00-17:00 á: Aflagranda 40 Gerðubergi Furugerði 1 og Hvassaleiti sýna í Hvassaleiti 56-68 Lönguhllð 3 Vesturgötu 7 Dagana 23. og 24. mat kl. 13:30-17:00 i: Seljahliö v/Hjallasel Allir hjartanlega velkomnir. Öldrunarþjónustudeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39 ■ 108 Reykjavik ■ Sími 678500 • Fax 686270 Sýningar á handa- vinnu aldraðra í félags- og tómstundastarfi Reykjavíkurborgar Sýningar á munum, sem unnir hafa verið á námskeiðum í vetur, verða sem hér segir: Dagana 30. maf-1. júni frá kl. 14:00-17:00 í: Bólstaöarhlíö 43 Norðurbrún 1 Allir hjartanlega velkomnir. Öldrunarþjónustudelld Félagsmálastofnunar Reykjavikurborgar HÉR GEFUR Á AÐ LÍTA þá sem halda út á Ólympíuskákmótið í Manila en það er fjölmennast og al- merkasti skákviðburöur heims með 1000-12000 keppendur. Þetta eru skákmennirnir Jóhann Hjartar- son, Margeir Pétursson og Jón L. Árnason, varamennirnir Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þór- hallsson, Kristján Guðmundsson liösstjóri, Áskell Örn Kárason fararstjórí og Gunnar Eyjólfsson að- stoðarmaöur. Helga Ólafsson vantaði á myndina en hann er í skákliðinu. —GKG Tímamynd: Árni Bjarna. Dr.Pétur Blöndal telur margháttaðar breytingar leiða af upptöku fjármagnstekjuskatta: „Þvottavélar“ til að jafna vaxtatekjur á móti gjöldum? Minni spamaður og hærrí vextir eru meðal þess sem Pétur Blöndal stærð- fræðingur telur að mundi leiða af breytingum þeim sem áformaðar em á lögum um tekju- og eignaskatta. Sparískírteini ríkissjóðs muni væntanlega falla í verði frá þeim degi sem eigna- og vaxtaskattur af þeim verða sam- þykktir og tiltrú einstaklinga á þeim líka bíða mikinn hnekki. Þau hafi ver- ið auglýst sem skattfijáls og því raunverulega seld á fölskum forsendum. Þá sé það bæði órökrétt og mjög ósanngjamt að frumvarpið gerir ekki ráð fyrir að hægt sé að draga vaxta- gjöld frá vaxtatekjum. „Þetta þýðir að menn munu reyna að búa til ein- hvers konar „þvottavélar" til að hreinsa út vaxtagjöld á móti vaxta- tekjum. Það verða vafalaust stofnuð einhver fyrirtæki í þeim tilgangi," sagði Pétur. Slík „hreinsun" geti t.d. farið fram með þeim hætti að viðkomandi fyrir- tæki taki við verðbréfum bæði í „plús“ og „mínus" af ákveðnum ein- staklingi og láti hann hafa í staðinn nettó verðbréf, þ.e. sams konar bréf þar sem bara koma fram nettótekjur. Slík þjónusta verði vafaiítið eftirsótt af þeim sem bæði eiga eignir og skulda. Taka má dæmi af manni sem hefur hálfa milljón í vaxtatekjur og hálfa milljón í vaxtagjöld, sem ekki mun óalgengt. Það mundi spara þeim manni 200 þús.kr. í skatta ef hann fengi vaxtagjöldin jöfnuð á móti vaxtatekjunum. Það er t.d. mjög algengt í sambandi við fasteignaviðskipti að menn eigi bæði „plús“ og „mínusbréf'. Pétur segir það t.d. alveg furðulegt, ef mað- ur, sem hefur skipt um íbúð og á skuldabréf frá þeim sem hann seldi og á að borga af bréfi til þess sem hann keypti af, þurfi framvegis að borga skatt af öðru bréfinu en megi ekki draga gjöldin af hinu frá. Að mati Péturs þýðir þetta að búast megi við miklu fjöri í skuldabréfaviðskipt- um þegar líður að gildistöku laganna. Menn muni bæði reyna að hreinsa upp skuldir og skuldajafna. Það vekur líka athygli að frumvarp- ið gerir ráð fyrir sköttun raunvaxta - en bara þegar þeir eru í plús. Einstak- lingur, sem á tvo reikninga, annan með tapi og hinn með gróða, má þá ekki leggja þá saman og borga skatt samkvæmt því, heldur á bara að skatta plúsreikninginn. Þetta telur Pétur að muni leiða til þess að menn fari að sækjast eftir að hafa bara einn reikning. Stofnuð verði einhver fyrirtæki, væntanlega á vegum bankanna eða verðbréfafyrir- tækjanna, sem taki að sér að jafna út annars vegar skuldir og gjöld og hins vegar neikvæða raunvexti á móti já- kvæðum raunvöxtum. Verður sem sagt alltaf hægt að finna smugur til þess að hagræða hlutun- um? ,Já auðvitað eru alltaf til leiðir. Það mun taka menn 1-2 ár að læra á kerf- ið og síðan byrja þeir að nota sér smugurnar, þar sem kerfið er ekki rökrétt. Það er hreint ekki fráleitt að skattstofninn verði innan tíðar orð- inn svo lítill að skatttekjumar verði ekki 1,5 milljarður eins og áætlað er heldur kannski aðeins hálfur millj- arður“. Pétur telur t.d. vafalítið að hluti af fjármagninu muni fara til út- landa. En svo vel vilji til að frelsi til að ávaxta fé sitt erlendis komi einmitt til sögunnar á sama tíma og hin nýja skattlagning eignatekna er fyrirhug- uð. Einnig megi svo búast við rýmun skattstofnsis - einfaldlega vegna þess að menn hætti að spara. í frumvarpinu segir að miðað sé við að tekjur ríkissjóðs af tekju- og eignasköttum verði óbreyttar eftir þessar breytingar. „Þetta er lagt upp eins og einhver „guðsgjöf', að lækka eignaskattana svona mikið. En í rauninni fara þeir aðeins niður í það sem þeir voru áð- ur“, sagði Pétur. Fyrir fáum ámm hafi eignaskattur verið 1% í 25-30% verðbólgu sem samsvari um 0,8% nú. Á móti sé hins vegar tekin upp umtalsverð skattlagning á eignir. Vaxtatekjur verða með 40% skatti. Miðað við 7-8% raunvexti taki ríkið sem svarar 3% af eigninni á ári. Þannig að í stað 2,2% eignaskatts, af þeim eignum sem gefa arð, eins og nú er, sé gert ráð fyrir að hann fari í raun upp í 3,6% þegar tekju- og eignaskattur eru lagðir saman. - HEI Hugmyndir um eitt félag hjúkrunarfræðinga: Slærð stéttarinnar er styrkur hennar Farið getur svo að Hjúkrunarfélag íslands og Félag háskólamenntaðra hjúkmnarfræðinga gangi brátt í eina sæng. Fyrir tveimur ámm var könnun gerð meðal meðlima beggja félaga og kom þá í ljós að yfirgnæf- andi meirihluti var ánægður með hugmyndina. Sl. miðvikudagskvöld var haldinn fúndur á vegum félaganna þar sem skoðuð var uppbygging stéttar- og fagfélaga með hliðsjón af hugsan- legri stofnun nýs félags hjúkmnar- fræðinga. „Nefndir beggja félaga hafa verið að reyna að finna gmndvöll að sam- komulagi um sameiginlega stefnu í Ld. menntamálum, kjaramálum og útgáfumálum,“ segir Ásta Möller formaður FHH, „en kjaramálin hafa verið helsti ágreiningurinn". Hún segir fundinn hafa verið upp- lýsingafund þar sem uppbygging stéttarfélaga hafi verið rædd. Kynn- ing fór fram á starfssemi BHMR og reynslu Kennarasambands íslands þar eð ákveða þarf hvort hið nýja fé- lag eigi að vera innan eða utan heildarsamtaka. , Jlú er það í höndum stjómanna að vinna úr niðurstöðum þessa fundar og móta lög fyrir nýtt félag," segir Ásta. „Ekki hefur þó verið tekin formleg ákvörðun hvort af þessu verður en hins vegar finnst mér það líklegt". Hjúkmnarfélag íslands er 72 ára gamalt en FHH á 14. ári og vom þau stofnuð upp úr ágreiningi um launakjör háskólamenntaðra hjúkr- unarfræðinga. Að sögn Ástu hafa félögin unnið mjög mikið saman að faglegum málefnum, en það hefur háð stétt- inni í kjarasamningum að vera í tveimur félögum. „Það kemur ný stefna með nýju fé- lagi og við viljum reyna að gera stærð stéttarinnar að styrkleika okkar“, sagði Ásta að lokum. -GKG.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.