Tíminn - 22.05.1992, Qupperneq 3

Tíminn - 22.05.1992, Qupperneq 3
Föstudagur 22. maí 1992 Tíminn 3 Páll Pétursson, þingflokksformaður framsóknarmanna, segir um gagnrýni á þingstörfin að vandinn sé slök stjórnun þingsins: „Þarf ekki að breyta þingskaparlögunum“ Páll Pétursson, formaður þingflokfcs framsóknarmanna, segist ekki sjá ástæðu til að breyta nýju þingskapariögunum. Hann segir að í aðalatriðum sé reynslan af lögunum góð, og það sem þurfi að laga sé hægt að laga með samkomulagi milli flokka og með breytingum á stjórn þingsins. Páll sagði að þeir gallar, sem nefndir hafa verið á þingstörfunum í vetur, væru fyrst og fremst stjómunarlegs eðlis. Hann sagði ýmislegt til í því að umræður um þingsköp séu of langar, en þær komi fyrst og fremst til vegna fundarstjómar. Páll sagði að ef ráð- herrar varpi „sprengju" undir lok umræðna, en þeir hafa ætíð síðasta orðið í umræðum, þá væri eina úr- ræði stjómarandstöðunnar að koma með andsvör í þingskaparumræðum. Hann sagði jafhframt að oft drægjust þingskaparumræður úr hófi, vegna þess að forseti komi sér hjá því að kveða upp dóma í álitamálum, sem þingmenn bera upp í sambandi við stjóm þingsins. Páll sagði að umræður á Alþingi hafi verið málefnalegar og aldrei hafi orð- ið umræður sem kalla mættu málþóf, eins og bmnnið hafi við á liðnum þingum. Páll minnti á málþóf stjóm- arandstöðunnar í tíð fyrri ríkisstjóma um frumvörp um stjóm fiskveiða og frumvarp um stofriun umhverfis- ráðuneytis, en í því máli greip einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins til þess ráðs að lesa upp úr bókinni „Raddir vorsins þagna“. Páll sagði að enginn viðlíka atburður hefði orðið í vetur. „Umræður hafa orðið mjög miklar um nokkur afar vond frumvörp ríkis- stjómarinnar, en annars hefur sam- staða um mál verið mikil. Það er margt til mikilla bóta í þessum þing- sköpum, sem hefur leitt til mark- vissra stefnumarkandi umræðna," sagði Páll. Páll sagði að verstu lög þingsins væru lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna og lög um ráðstafánir í ríkisfjármálum (Bandormurinn). Af merkum málum nefndi Páll ýmis lög sem varða einkamál, eins og Ld. hegningarlög, hjúskaparlög, lög um vemd bama og unglinga, bamalög og lög um málefni fatlaðra. Páll sagði að gott samkomulag hefði verið um þessi mál. Páll sagði að það hefi verið mikið um illa undirbúin mál af háifu ríkis- stjómarinnar. Mörg mál hefðu verið Páll Pétursson, formaður þing- flokks framsóknarmanna. látin daga uppi í þinginu, en öðmm hefði verið breytt í veigamiklum at- riðum. Páll nefndi sem dæmi um þetta frumvarp viðskiptaráðherra um greiðslukortastarfsemi. Því var vísað til ríkisstjómarinnar, sem er mjög óvenjulegt um stjómarfrumvarp. ,Að mínu mati er það sorglegt hve ríkisstjómin hefur stjómað landinu illa. Hún hefur beitt sér fyrir stefnu- breytingu sem ekki var hægt að búast við, ef mark átti að taka á kosninga- ræðum þeirra sem að henni standa. Þeir hótuðu því ekki fyrir kosningar sem þeir hafa ffamkvæmt á liðnu ári. Þingið hefúr hins vegar verið mál- efnalegt og umræður yfirleitt skemmtilegar. Pólitísk átök hafa verið mikil á þinginu, en það er bara af því góða,“ sagði Páll að lokum. -EÓ : m- ■ Stjóra Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur hefur samþykkt ályktun þar sem hörmuð eru þau málalok, sem urðu í kjöl- far afgreiðslu Menntamála- ráðs á tillögu um Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Stjórain tel- ur að fulltrúi Alþýðuflokksins í ráðinu, Ragnheiður Davíðs- dóttir, hafl tekið efnislega rétta afstöðu til tiliögunnar, enda hafi efni hennar ekki samrýmst lögboðnu hlutverki Menntamáiaráðs. Reykjavíkur segir í ályktun sinni að æskilegra hefðl verið að ná sáttum i málinu, fremur en að knýja fram þau málaiok sem orðið hafa. Með þessu er stjómin að vísa til þeirrar nið- urstöðu að Ragnheiður Dav- íðsdóttir, varaþingmaður Al- þýðuflokksins, hefur sagt sig úr flokknum. -EÓ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, alþingismaður Kvennalista, um þingstörfin í vetur: Þurfum að meta reynslu af þingskaparlögunum í sumar Ingibjörg Sóirún Císladóttir, al- þingismaður Kvennalista, sagði eðlilegt að fulltrúar flokkanna farí yfir þingskaparlögin í sumar og reyni að meta hvað hafi gefist vel og hvað miður. Hún sagði að á ný- liðnu þingi hefðu mörg merk lög verið sett á svið einkamálalöggjaf- ar, en jafnframt hafi veríð sett lög, BHM mótmælir breytingum á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna: HEFUR ÁHRIF Á LÍFSKJÖR í LANDINU „Framkvæmdastjóm Bandalags há- skólamanna mótmælir harðlega þeim breytingum, sem nýlega voru gerðar á lögum um Lánasjóð ís- lenskra námsmanna, bæði að því er varðar endurgreiðslur og úthlutun- arfyrirkomulag," er upphaf ályktun- ar sem Bandalag háskólamanna hef- ur samþykkt. Bandalagið segir hætt við að að- gerðir, sem verði til þess að ungt fólk hverfur frá námi eða hættir við há- skólanám, hafí neikvæð áhrif á lífs- kjör þjóðarinnar með tíð og tíma. Auk þess ítrekar framkvæmda- stjóm bandalagsins fyrri yfirlýsingar um að sjóðurinn verði skipulagður þannig að markmið hans um jöfnun á aðstöðu til náms verði jafnan haft í öndvegi. —GKG. sem hafi miðaft að því að bijóta niður það sem áratugi hafi tekið að byggja upp. Ingibjörg Sólrún sagði að líta mætti svo á að þingskaparlögin hafi verið prufukeyrð í vetur, og því væri eðlilegt að formenn þing- flokka settust niður og skoðuðu reynsluna af lögunum. Hún sagðist ekki telja að nein sérstök eðlis- breyting hafi orðið á umræðum á Alþingi á nýliðnu þingi. Stjórnar- andstaða á þingi hafi ætíð reynt með umræðum eða svokölluðu málþófi að hafa áhrif á mál eða tefja afgreiðslu þeirra. Ingibjörg Sólrún sagði það ekki rétt, sem stjórnarliðar hafa haldið fram, að stjórnarandstaðan geti fengið utandagskrárumræðu hve- nær sem er og geti rætt mál eins lengi og hún vill. Þingmenn hafa aðeins rétt til að krefjast hálftíma umræðna um mál utan dagskrár. Ingibjörg Sólrún sagðist vera þeirr- ar skoðunar að sá tími væri oft of skammur, því ráðherrum gæfist t.d. ekki nægur tími til að gefa skýring- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maóur þingflokks Kvennalist- ans. ar á málum sem til umræðu væru. Eðlilegra væri að utandagskrárum- ræður mættu standa í tvo klukku- tíma. Ingibjörg Sólrún sagðist vera mjög ánægð með að tekist hafi að samþykkja á þessu þingi ný barna- lög, ný lög um vernd barna og ung- menna, lög um málefni fatlaðra og breytt hegningarlög. Hún sagði þetta allt vera lög, sem skiptu ein- staklingana í landinu miklu máli, og væru ótvírætt skref fram á við. „Mér finnst jafnframt að það hafi verið sett mörg vond lög á þessu Al- þingi. Lög sem miða að því að brjóta niður það, sem hefur tekið kannski áratugi að byggja upp. Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna eru mér auðvitað efst í huga núna. í heilbrigðismálum hefur einnig tek- ist mjög illa til. Ég minni á Landa- kotsspítala og Fæðingarheimilið. Ég held að sá niðurskurður, sem framkvæmdur hefur verið á sjúkra- húsunum, sé að eyðileggja allan starfsanda á þeim, og muni þegar upp er staðið ekki skila neinum sparnaði. Það er ekki hægt að spara, nema fá fólkið með sér í það,“ sagði Ingibjörg Sólrún að lok- um. -EÓ Svartir blettir í umferðinni: Lífshættulegar gildrur Tillaga um lokun ops í miðeyju Laugavegar milli Nóatúns og Laug- amesvegar var felld með 2 atkvæðum gegn 1 á fundi Umferðar- nefndar þann 29. aprfl si. í skýrslu frá gatnamálastjóra um svarta bletti og áhættustaði kemur fram að þarna hafa orðið 18 óhöpp og 2 meiri háttar slys á árunum 1986- ‘90. Opiö á Laugavegi skammt austan Nóatúns. Þar hafa mörg um- feröaróhöpp oröið. Þar er leyfö vinstrí beygja, en U-beygja er bönnuö. Tímamynd: Ámi Bjama Þar af urðu bæði stóru slysin og a.m.k. 3 óhappanna vegna opsins við Hekluhúsið. Árið 1991 bættist svo við eitt dauðaslys, sem rekja má til þess, og voru U-beygjur gegnum opið bannaðar skömmu síðar. Svartir blettir eru staðir sem þykja hafa óeðlilega háa slysatíðni og var byrjað að skrá þá um 1989. Þar eð umferðarnefnd er undirnefnd borg- arráðs, á það eftir að segja sitt loka- orð í málinu. Baldvin Baldvinsson, yfirverk- fræðingur umferðardeildar, segir að á svörtu blettunum hafi ein- göngu farið fram litlar fram- kvæmdir, sem kostað hafi frá nokkrum hundruðum þúsunda og upp í 1-2 milljónir. „Það verður að athuga gatnakerfið og lagfæra það,“ segir Baldvin, „en það eru miklu stærri og dýrari verkefni í gangi, sem lúta að áhættustöðum. Það er verið að setja umferðarljós á til dæmis gatnamót Nóatúns og Skipholts og Bíldshöfða og Höfðabakka. Á þess- um stöðum hafa orðið mörg óhöpp." Sem dæmi um fleiri svarta bletti má nefna gatnamót Suðurgötu og Vonarstrætis, þar sem 13 óhöpp og 2 stór slys urðu á árunum 1986-’89, gatnamót Vonarstrætis og Lækjar- götu þar sem 17 óhöpp og eitt stórt slys urðu á sömu árum. Lagt er til að götuljós verði sett upp þar. Gatnamót Breiðholtsbrautar og Stekkjarbakka eru mikil slysagildra, þar sem alls 59 óhöpp og 5 stór slys urðu á fyrrnefndum árum, og lagt hefúr verið til að sérstök beygjuljós verði sett þar upp. —GKG.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.