Tíminn - 25.08.1992, Qupperneq 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 25. ágúst 1992
Hrossaræktin
Steingeldir vatnspungar
eru stórvarhugaverðir
Rætt við Ragnar
Björgvinsson í Lang-
holti II í Hraungerðis-
hreppi en hundruð
manna hafa nú fulla
atvinnu af hesta-
mennskunni.
„Þúsundir útlendinga koma hér ár
hvert til þess að ríða út og kaupa
hesta. Það hefur orðið sprenging í
ferðamennskunni á hestbaki í sum-
ar. Flestir ríða út hjá hestaleigunum
en fjöldi útlendinga kemur einnig til
vina sinna til þess að ríða út með
þeim og velja sér hesta," sagði Ragn-
ar Björgvinsson í Langholti II í
Hraungerðishreppi þar sem hann er
hrossabóndi.
„Hjá mér voru um daginn fimm
Svíar, sem riðu hér út og völdu sér
hesta. Sérstakur ljómi er yfir íslandi
hjá þessu fólki, sem kynnst hefur ís-
lenskum hestum í útlandinu, og það
kemur hingað til landsins með hálf-
gerðum helgisvip. Á haustin lifnar
alltaf yfir markaðinum og hinn þægi
töltari er sígild söluvara á verðbilinu
100 til 200 þúsund. Slíka hesta stór-
vantar á markaðinn í dag, en topp-
arnir fara auðvitað miklu dýrara.
Annars hefur verð á reiðhestum
staðið í stað undanfarið og núna er
tíminn til að kaupa. Útlendingamir
leita mikið eftir góðum hryssum
núna.
Kostnaður við útflutn-
inginn mikill
Annars eru vissir erfiðleikar hjá
okkur hrossaræktendum í útflutn-
ingnum. Mikið pappírsfargan fylgir
þessu og það er ekki gefið hjá þeim
sem sjá um það. Útflutningshross
eru líka miklu nánar skoðuð núna
en áður, alvanaleg er t.d. röntgen-
skoðun til athugunar á spatti og því
um líku og allt kostar þetta mikla
peninga. Einstaka menn njóta fulls
trúnaðar hjá hestakaupmönnum er-
lendis og fara hundruð hrossa um
þeirra hendur á hverju ári.
Mér finnst Félag hrossabænda ekki
standa sig sem skyldi í svona þjón-
uststörfum og þarna er mikið verk-
efni fyrir það.
Þá finnst mér kostnaður við slátur-
hross í útflutningi allt of mikill.
Auðvitað verður ekki komist hjá ein-
hverri slátrun í svona ræktun. Út-
koman er samt ekki glæsileg hjá
bóndanum, sem er að fá 15 til 18
þúsund krónur á skrokk, sem leggur
sig á 40 til 50 þúsund í Japan. Út-
koman er sú auðvitað að stórlega
vantar sláturhross og engin hross
fást t.d. í Landeyjunum og eru þó
fleirri hundruð á hverjum bæ. Varla
eru það allt gæðingar og verðlauna-
hross.
HESTAR
Umsjón:
Guðlaugur
Tryggvi
Karlsson
Viö hesthúsiö. Ragnar heldur í Mónu frá Miðsitju Höfðagustsdóttur og Perlu frá Kúskerpi. Folald-
iö er von í stóöhestsefni undan Farsæli frá Ási og heitir því fallega nafni Alsæll.
I hesthúsinu í Langholti III sem tekur á milli 60 og 70 hesta.
Folatolla á fyl,
ekki hryssu
Annað vandamál okkar hrossarækt-
enda er orðið mjög tilfinnanlegt, en
það eru folatollarnir. Hæstu hest-
arnir eins og t.d. Orri frá Þúfu eru á
kr. 37.500 á hryssu en ég fór t.d. með
fimm hryssur undir annan öðling í
fyrra og fékk þær allar geldar. Það
má bara ekki leigja út steingelda
vatnspunga, sem ekkert geta, og
folatollurinn á auðvitað að miðast
við fyl en ekki hryssu.
Núna er t.d. leikur einn að taka
sæði fyrir hvert gangmál hjá grað-
hesti og athuga hvort hann sé yfir-
höfuð frjór. Ungir graðhestar hafa
líka reynst alveg ófrjóir og hvað þýð-
ir þá að vera að stafla inn merum til
þeirra bara til þess að fljúgast á.
Verðlagningin er líka alveg út í
hött. Hrafn frá Holtsmúla kostar t.d.
ekki nema 22 þúsund á hryssu, einn
frægasti stóðhestur landsins. Af
hverju eiga einhverjir folatyttir að
vera dýrari?
Hryssurnar eru heldur ekkert pott-
þéttar. Af hverju eiga t.d. hrossa-
ræktunarsamböndin ekki sónartæki
til fylprufunar. Okkar stóra hags-
munamál í hrossaræktinni er meira
eftirlit með kynbótahrossunum,
stóðhestunum sem gera eiga lukku
og hryssunum.
Hérna er ég með tæp hundrað
hross í uppeldi og tem og sel eins og
gengur. Sérstaklega er ég með góða
aðstöðu fyrir ungfola. Ég er t.d. með
albróður Topps frá Eyjólfsstöðum og
albróður Mána frá Ketilsstöðum og
veturgamlan fola undan Orra frá
Þúfu og hryssu frá Eyjólfsstöðum.
Þetta er skemmtilegt þegar vel
gengur, en mikil vinna. Ég heyja
auðvitað allt sjálfur, er með sextíu
hesta hús og mikinn útigang. Núna
hef ég náð afbragðs heyjum og auð-
vitað hlakkar maður til að gefa vin-
um sínum besta fóður sem völ er á í
vetur,“ sagði Ragnar Björgvinsson í
Langholti II að lokum.
Riöiö heim hlaðiö í Langholti II á Adamssyni frá Meöalfelli,
Þrándi frá Ormsstööum.
Sarajevo — Bardagamir í
Sarajevo verða harðari með
hverjum deginum. Árás var
gerð á Holiday Inn hótelið og
einnig varð að loka flugvellinum
um tíma. Serbar og múslimar
berjast nú af vaxandi hörku
þegar aðeins eru tveir dagar
þar til friðarviðræöumar heflast
í London.
Sameinuöu þjóöirnar —
Viðræður hjá SÞ snúast um
þann stuðning sem veita skuli
Bosníu-Hersegóvínu. Múslima-
ríkin vilja sækja fram af hörku
en ríki eins og Bretland og
Rússland, sem eiga fastaaðild í
öryggisráðinu, vilja sýna alla
gát.
Washington — Arabar og
(sraelar hittust í gær i fýrstu
umferð friðarviðræðnanna um
Miðausturlönd frá því að harð-
línustjórn Likud- bandalagsins
féll í júní síðastliðnum og stjórn
Verkamannaflokksins komst til
valda og lýsti sig reiðubúna til
láta land af hendi ef það kynni
að leiða til friðar.
Kiev — Þúsundir Úkraínu-
manna gleymdu efnahagsvand-
anum og stjórnmálaflækjunni í
gær og þyrptust út á götur til að
fagna því að ár er nú liöið frá
því Úkraína lýsti yfir sjálfstæði
sínu.
Moskva — Eduard Sche-
wardnadze, leiðtogi Georgíu,
hefur lýst því yfir að spennan
sem ríkir I fyrrum Sovétríkjun-
um geti orðið til þess að fresta
þurfi fýrirætluðum kosningum í
október.
Nairobi — Sameinuöu þjóð-
imar frestuðu flugi með hjálpar-
gögn til höfuðborgar Súdan,
Juba, eftir að skæmliðar vörp-
uðu tveimur sprengjum að flug-
vélum með hjálpargögn.
Miami — Fellibylurinn
Andrew, einn sá kröftugasti
sem gengið hefur yfir Bandarík-
in I áratugi, skildi eftir sig slóð
eyðileggingar í suðurhluta Flór-
ída áður en hann hélt út yfir
Mexíkóflóa þar sem hann safn-
ar í sig aukinni orku.
Kabul — Erlendir sendifulltrú-
ar hafa flúið höfuðborg Afghan-
istan eftir miklar sprengjuárásir
sem urðu eftir að uppreisnarfor-
inginn Gulbuddin lýsti sig reiðu-
búinn til að afvopnast ef gengið
yrði að kröfum hans.
Brasilía — Nefnd, sem skip-
uð hefur verið til að kanna spill-
ingu innan og I tengslum við
stjórn landsins, segir útilokað
að forseti landsins, Fernando
Collor de Mello, hafi ekki vitað
hvað um var að vera.
Jerúsalem — Nýja stjómin í
Israel hefur fellt niður sakir á
hendur ellefu Palestínumönn-
um til að létta á spennunni við
upphaf friðarviðræðnanna í
Washington.