Tíminn - 10.11.1992, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.11.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 10. nóvember 1992 Afskrifuð útlán eða útlánatöp banka og sparisjóða hafa fjórfaldast milli áranna 1987 og 1991. Hagdeild Seðlabanka íslands: Þrýstir upp vaxtabili eða þjónustugjöldum Útlánaafskriftir og töp viðskiptabanka og sparisjóða námu alls 4.335 millj- ónum króna á fímm ára tímabili, 1987-1991. Sé útlánahættan nokkum veginn rétt metinn voru um 5,7 milljarðar króna útlánatöp í vændum mið- að við árslok 1991, eða 3% af útlánastofninum. Hlutfall afskriftareiknings af útlánum sparisjóða nam 2,4% á móti 3,13% hjá viðskiptabönkum. Þess- ar upplýsingar koma fram í Hagtölum mánaðarins í október sem hagfræði- deild Seðlabanka íslands gefur ÚL Á umræddu tímabili hefur orðið 3,6-földun á framlögum í afskrifta- reikning og staða hans hefúr hækk- að 4,3-falt milli ársloka 1986 og 1991. Leiðrétt með lánskjaravísitölu varð 1,8-föId aukning á framlögum, eða 80% aukning, en rúm tvöföldun á reikningsstöðunni eða sem nemur aukningu uppá 107%. Afskrifuð út- lán eða útlánatöp hafa því aukist álíka mikið, eða fjórfaldast milli 1987 og 1991, á föstu verðlagi 2,2- földun. Að mati hagdeildarinnar hafa töpuð útlán banka og sparisjóða höggvið sífellt stærra skarð í rekstr- arafkomuna og að sama skapi hefur nettóhagnaður þeirra minnkað. En árlegar afskriftir banka og sparisjóða svara til þess að tapast hafi 8%-16% af eigin fé. Sem hlutfall af fjármuna- tekjum, sem fást af útlánum og öðr- um eignum, hafa afskriftirnar meira en tvöfaldast, eða úr 3,4% í 7,8%. Sama máli gegnir um hreinar fjár- munatekjur, þ.e. að frádregnum fjármagnsgjöldum svo að svarar ná- lægt því til vaxtamunar, úr 12,2% í 25,8%. Þannig tók hlutfall afskrifta að frádregnum rekstrargjöldum, tugprósenta stökk þrjú ár f röð eða úr 41,5% árið 1988 í 76,8% árið 1991. Hagdeildin telur að útlána- hættan geti þannig gleypt hreinu tekjurnar og stöðvað uppbyggingu eiginfjárins, nema hún verði tilefni til að þrýsta upp vaxtabili eða þjón- ustugjöldum, en til þess verða síður færi með vaxandi samkeppni utan að. Jafnframt undirstrikar þetta, að mati hagdeildarinnar, nauðsyn vandaðs undirbúnings útlána og mati á tryggingum. f riti hagdeildar Seðlabankans kemur fram að hér á árum áður fór lítið fyrir töpuðum útlánum í bankakerfinu sökum þess að verðbólgan sléttaði yfir áhættu og mistök og ennfremur tíðkaðist það ekki til skamms tíma að tíunda töp- in í reikningshaldi. En verðbólgu- töpin komu fyrst og fremst niður á innlánseigendum fremur en bönk- unum sjálfum. Hins vegar var bund- inn endi á þessar lausnir með til- komu verðtryggingar og raunvaxta, auk þess sem sviptingar í efhahags- málum, þrengingar í útflutningsat- vinnuvegunum og óvarkárni í ýms- um greinum hafa á liðnum árum aukið áhættuna í atvinnurekstri og lánastarfsemi. -grh Safnast hafa 7,5 milljónir króna í söfnun til styrktar Sophiu Hansen. Fulltrúar íslenskra fjölmiðla á leið til Tyrklands: Réttað í forræðis- málinu á fimmtudag Næstkomandi fímmtudag verður réttað í forræðismáli Sophiu Han- sen gegn fyrrum eiginmanni hennar, Halim Al, og viðstaddir réttar- haldið verða fulltrúar stærstu fjölmiðla íslands. Þá er viðbúið að á morgun, miðvikudag, verði sýnt níu mínútna myndband á báðum íslensku sjónvarpsstöðvunum sem tekið var ytra 16. maí sl., þar sem Dagbjört eldri systirin segir frá því harðræði sem systurnar höfðu þá verið beittar af fÖður sínum og hans fóUd. í gær héldu deiluaðilar hvor sinn blaðamannafundinn í Istanbul til að kynna sjónarmið sín í forræðismál- inu en næstkomandi fimmtudag, 12. nóvember, verður réttað í mál- inu fyrir undirrétti í Istanbul. Við- búið er að niðurstöðu dómsins verði áfrýjað til hæstaréttar Týrklands. Fundur Sophiu með tyrknesku pressunni var haldin til að svara því ranghermi sem fram kom á pressu- fundi föðursins fyrr um daginn. En á þeim fundi staðhæfði Dagbjört að hún vildi vera áfram hjá föður sín- um og sakaði móður sína um að hafa svikið þau með því að kasta mú- hameðstrúnni! Sigurður Pétur segir þetta alrangt enda hafi Sophía aldrei tekið neina múhameðstrú. Sigurður sagði að þessi framburður Dagbjartar sé ná- kvæmlega hinn sami og hún við- hafði á fundi með móður sinni um helgina. En svo virðist sem sl. sex mánuði hafi systurnar verið í mjög ströngum heilaþvotti til að knýja á um að þær gleymi móður sinni og til að fá þær til að snúast gegn henni. Síðastliðinn laugardag fékk Sophía að hitta dætur sínar tvær í fyrsta skipti í hálft ár, eða síðan í maí í sumar. Á fundinum, sem stóð yfir í um klukkutíma á hótelherbergi í Istanbul, virtust stúlkumar ekki vera með sjálfum sér og vildu hvorki sjá né tala við móður sína. Þær eru báðar komnar í skóla sem reknir eru af strangtrúuðum múslimum. Rúna, sú yngri, er í skóla sem kenn- ir eingöngu kóraninn en í skóla Dagbjartar er einnig lögð mest áhersla á kóraninn en þó fær hún tilsögn í reikningi, teikningu og tveimur öðrum fögum. Þá hefur tyrkneska dómsmálaráðu- neytið kært Halim Al, fyrrum eigin- mann Sophiu Hansen, til saksókn- ara og er í þeirri kæru krafist opin- berrar rannsóknar á þeim brotum sem hann hefur brotið á umgengn- isréttinum. Jafnframt er fyrirhuguð rannsókn á þeim hótunum sem Sophia og lögmaður hennar í TVrk- landi hafa orðið fyrir. í gær var verið að vinna að því að ganga frá níu mínútna myndbandi til birtingar á báðum íslensku sjón- varpsstöðvunum á morgun, mið- vikudag. Myndbandið var tekið upp í maí sl. þegar Sophia hitti dætur sín- ar og þar lýsir Dagbjört því harðræði sem systurnar höfðu þá orðið fyrir af hendi föðurs síns og hans fólki. Þá höfðu í gær safnast alls sjö og hálf milljón króna í fjársöfnun til styrktar Sophiu Hansen undir kjör- orðinu Bömin heim. Heildarkostn- aður við málið nemur alls um 15 miljónum króna en söfnuninni lýk- ur næstkomandi sunnudag, 15. nóv- ember. Svarað er daglega í síma 684455 frá klukkan tíu á morgana til miðnættis. -grh Ný félagsmiðstöð SÁÁ: Ulfaldinn og mýflugan SÁÁ samtökin tóku nýlega í notkun félagsheimili við Ármúla 17a og hef- ur það hlotið nafnið Úlfaldinn en þar rúmast með góðu móti um 250 manns. Kaffistofa er einnig í félags- heimilinu. Hún rúmar um 50-70 manns og hefur hlotið nafnið mý- flugan. Félagsstarf fer fram í félagsheimil- inu alla daga vikunnar. Meðal þess má nefna að á þriðjudögum eru bridgekvöld, á föstudögum er disk- ótek og opið hús á vegum ungs fólks í SÁÁ. Á laugardögum er opið hús fyrir alla, lítið taflmót, félagsvist og dansleikir og á sunnudögum eru dansæfmgar. Þá hafa verið haldnir tónleikar og fyrirhuguð eru nám- skeið af ýmsu tagi, svo sem bridge- námskeið, fluguhnýtinganámskeið, prjóna- og saumanámskeið. Frá hinni nýju fólagsmiðstöð SÁÁ í Ármúla 17a. Ráðstefna í Viðey um ný tækifæri í fiskútflutningi: EES-mark- aður fyrir ísl. sjáv- arafurðir Sjávarútvegsráðuneytið og Útfíutningsráð hálda ráð- stefnu í Viðey nk. föstudag. Á henni verður fjallað um ný tækifæri sem opnast fyrir út- flytjendur sjávarafurða með EES samningnum. Tilgangur ráðstefnunnar er að benda á þá möguleika sem opnast íslenskum útflytjend- um þegar EES samningurinn tekur gildi, þ.e.a.s. verði hann samþykktur. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verða Finn Christiansen frá MD-Food í Danmörku og fjallar hann um vöruþróun og útflutning Dana á landbúnaðarafurðum, en Danir hafa náð mjög góðum árangri í að flytja út unnar landbúnaðarafurðir til Evr- ópulanda. Þá fíalla David og Andrew Marshall frá Bretlandi um megineinkenni Evrópumark- aðar fyrir sjávarafurðir en sá síðamefndi er innkaupastjóri verslanakeðjunnar Marks & Spencer. Benedikt Höskulds- son, viðskiptafulltrúi Útflutn- ingsráðs í Berlín, fjallar um Þýskalandsmarkaðinn, en hann hefur nýlega lokið við skýrslu fyrir FAO um markað fyrir tilbúna sjávarrétti í Þýskalandi. Um Frakklandsmarkað fjallar Sighvatur Bjamason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum, en Sighvatur var áður fram- kvæmdastjóri dótturfyrirtækis SH í Frakklandi. Aðrir fyrirles- arar verða m.a. Amar Bjama- son, Guðbrandur Sigurðsson, Sigurður Haraldsson, Pétur Bjömsson og Logi Þormóðs- son. Ályktun háskólaráös um niðurskurðinn í fjárlaga- frumvarpinu 1993: Finnið aðr- ar leiðir en að rýra menntun Á fundi háskólaráðs á dögun- um var samþykkt ályktun þar sem þess er farið á leit við Al- þingi íslendinga að það fínni aðrar Ieiðir til að bæta stöðu ríkissjóðs en að rýra menntun og starfsþjálfun eða þrengja að rannsóknum til atvinnu- sköpunar og eflingar þjóð- menningar. Ástæðuna fyrir þessari áminningu segir háskólaráð vera þá að í fmmvarpi til fjár- laga fyrir árið 1993 sé gert ráð fyrir að Háskólinn verði áfram að búa við jafnþröngan fjárhag og á þessu ári. í vaxandi at- vinnuleysi verði hins vegar að gera kröfu um að fjárveitingar til menntunar og rannsókna verði auknar, annars sé hætta á að erfiðleikarnir aukist, ný- sköpun verði í lágmarki og samkeppnisstaða þjóðfélagsins verði hættulega veik. Til að sporna við þessu vill há- skólinn bæta gmnnmenntun og einnig efla framhaldsnám og rannsóknir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.