Tíminn - 10.11.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 10.11.1992, Blaðsíða 12
 AUGLYSINGASIMAR Áskriftarsími Tímans er 686300 KERRUVAGNAR OG KERRUR Bamaiþróttagallar á frábæm verði. Umboðssala á notuðum bamavömm. Sendum i póstkröfu um land allt! BARNABÆR, Ármúla 34 Slmar: 685626 og 689711. VERIÐ VELKOMIN! Bílasala Kópavogs Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi ISÍMI 642190 Vantar nýlega bíla. Mjög mikil eftirspurn. VERIÐ VELKOMIN & 686300 Iíniinn ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓV. 1992 Útlit er fyrir gífurlegar annir á Alþingi fyrir jólin, EES er enn í nefnd og tjárlagafrumvarpið er í salti: Ekki liggur fyrir hvenær frumvarp til staðfestingar á EES-samn- ingnum verður afgreitt úr utanríkismálanefnd. Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði erfitt að afgreiða málið fyrr en sjávarútvegssamningurínn liggur fyrir og eins þurfi öll frumvörp sem tengjast málinu að vera komin fram, en vantar nokk- uð á að svo sé. Búist er við mjög mánuði. Fundur var í utanríkismálanefnd Alþingis um helgina og í gærmorg- un. Ekki er ljóst hvenær samning- urinn veröur afgreiddur, en reiknaö er með að á næsta fundi, sem verður eftir viku, fáist skýr svör um hvort og hvenær sjávarútvegssamningur íslands við EB liggur fyrir. Ekkert frumvarp sem tengist EES- samningnum hefur verið afgreitt á aiklum önnum á Alþingi í næsta þingi. Flest frumvörpin eru enn til meðferðar í þingnefndum, en örfá eru komin til annarrar umræðu. Þá hafa nokkur mikilvæg frumvörp enn ekki verið lögð fram, en verið er að leggja lokahönd á þau flest í ráðu- neytunum. Þar má nefna frumvörp um landakaup útlendinga hér á landi og jarðhitaréttindi. Fyrstu umræðu um fjárlagafrum- varpið er lokið og er það nú til með- ferðar í fjárlaganefnd. Margir grund- vallarþættir frumvarpsins eru óljós- ir. Þannig liggur ekkert fyrir um hvort virðisaukaskattinum verður breytt eða hvernig. Fjármálaráð- herra hefur lýst því yfir að málið sé í biðstöðu meðan beðið er eftir tillög- um frá atvinnumálanefnd ríkis- stjórnarinnar og aðila vinnumark- aðarins, en nefndin hefur verið að velta upp hugmyndum um miklar skattkerfisbreytingar. Það eina sem liggur fýrir um breytingar á virðis- aukaskattinum er að ágreiningur er um málið í þingflokki sjálfstæðis- manna. í allt haust hafa þingstörf gengið Bæjarstjóra Ólafsfjarðar sagt upp Meiríhluti bæjarstjómar Ólafsfjarðar hefur tekið þá ákvörðun að segja bæj- arstjóranum á Ólafsfirði, Bjama Crímssyni, upp störfum. Sigurður Bjömsson, formaður bæjarráðs, hefur jafnframt ákveðið að segja sig úr bæjarstjóm til að greiða fyrir því að sættir takist innan bæjarstjómar, að því er hann segir. Asakanir hafa veríð boraar á Sigurð um misnotkun á fjár- munum bæjaríns, en bærínn veitti fyrirtæki sem Sigurður stýrði, Fisk- marí, lánaábyrgðir. Siguröur hefur nú faríð fram á það við ríkissaksóknara að þessar ásakanir verði rannsakaðar. Harðvítug átök hafa verið lengi Bjarna Grímssonar. Mestir sam- innan meirihluta Sjálfstæðisflokks starfserfiðleikar hafa verið milli í bæjarstjórn Ólafsfjarðar um störf Bjarna og Sigurðar Björnssonar, formanns bæjarráðs. Ágreiningur- inn er að hluta til persónulegur. Inn í deilurnar blandast banka- ábyrgðir sem bærinn veitti Fisk- mari, en bærinn varð fýrir umtals- verðu fjárhagstjóni þegar Fiskmar varð gjaldþrota. Þá er ágreiningur um starf bæjarstjórans, ákvarðanir og starfshætti. Fyrir helgi tók bæjarstjórn Ólafs- fjarðar svo þá ákvörðun að segja HHHEHiI Bjarna upp störfum og er honum gert að hætta störfum fýrirvara- laust. Honum verða þó greidd laun í 6 mánuði. í framhaldi af ásökunum sem bornar hafa verið á Sigurð Björns- son hefur hann óskað eftir að rík- issaksóknari rannsaki tengsl hans við Fiskmar. Ríkissaksóknari hefur ekki svarað þessari beiðni. -EÓ rólega fýrir sig. Þingmenn hafa fengið nægan tíma til að mæla fýrir þingsályktunartillögum. Mjög litið hefur verið um kvöldfundi og engir fundir hafa verið á föstudögum. Hins vegar hefur verið unnið af krafti í þingnefndum. Ekki gerist margt í þinginu þessa viku, en nú stendur yfir Norður- landaráðsþing í Danmörku. Fjöldi þingmanna og ráðherra frá íslandi situr þingið. -EÓ Vinning laugard (í)( (3J 7. nóv. 1992 ^3^20) 21(37)" (30) VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5al5 0 2.647.671 i 2. 4aÍ5Í W 2 229.966 3. 4af5 94 8.440 ' 4. 3af5 3.361 550 Heildarvinningsupphaeð þessa viku: kr. 5.749.513 m /Sm 1 UPPLYSINGAR: SÍMSVARI91-681511 LUKKULÍNA991002 ...ERLENDAR FRÉTTIR... BRÚSSEL EB deilir Evrópubandalagið hefur nú klofnað i af- stöðu sinni til hótunar Bandarikja- manna um viðskiptastríö. Deilt er um hvort samiö skuli til að koma i veg fyrir alvarlegur deilur við Washington um fræ til olíuframleiðslu eða hvort láta skuli sverfa til stáls eins og Frakkar vilja. GENF Dunkel vill semja Formaður GATT-viðræðnanna, Arthur Dunkel, er reiðubúinn til aö semj'a við Bandarlkjamenn til að komaf I veg fyrir að viðræðurnar renni út i sandinn. LONDON Jeltsín í opinberri heimsókn Forseti Rússlands, Boris Jeltsín, er nú i opinberri heimsókn i Bretlandi og vona þarlend yfirvöld að heimsóknin verði til þess aö Rússar taki endanlega ákvörð- un um að stefna I átt til lýöræðis. SARAJEVO Króatar sækja fram Króatar reyna nú hvað þeir geta til að stækka það landsvæöi sem þeir hafa yfir að ráöa I suðausturhluta Bosníu og segjast hafa rekið hersveitir Serba fleiri kilómetra á bak aftur á sumum bar- dagasvæðum. BERLÍN Hægrimenn færast í aukana I gær var afmæli hinnar illræmdu „Krist- alnætur" nasista og hægri menn létu heldur betur til sin taka af þvi tilefni með árásum og ofbeldi gagnvart út- lendingum. Þetta varð til þess að einn af leiðtogum gyðinga í Þýskalandi sá ástæðu til að benda á aö lýðræðið i Þýskalandi kunni að vera i hættu. LUANDA SÞ vilja semja við Savimbi Málamiðlari SÞ, Marrack Golding, reyn- ir enn hvað hann getur að ná fundi Jon- as Savimbi, leiötoga UNITA, til aö reyna að fá hann i friðarviðræður og koma i veg fyrir að enn brjótist þar út bardagar. TÓKÝÓ Japanir gagnrýndir harðlega Japanir hafa veriö gagnrýndir mjög harölega sökum þeirrar ætlunar sinnar að flytja 1,7 tonn af plútónium sjóleið- ina frá Frakklandi. Japanir hafa svarað þvi til að skipiö muni aldrei koma nær landi á leiðinni en 200 sjómílur. MARSEILLE Sprengingar í olíuhreins- unarstöö Miklar sprengingar urðu i oliuhreinsun- arstöð nálægt Marseille i Frakklandi. Að sögn eigenda stöðvarinnar urðu sprengingamar fjórum mönnum að bana og einn særöist alvariega. PARlS Hneykslið í Frakklandi varðandi það að eyðnismitað blóð var gefiö sjúklingum i stórum stil, stækkar með hverjum deginum. Af þvi tilefni mun Francois Mitterrand koma fram í sjónvarpi og er búist við að hann gagn- rýni harölega þá tilhneigingu manna að notfæra sér hneyksliö i pólitiskum til- gangi. NAIROBI Róstusamur kosninga- undirbúningur Veikleikar ráðamanna, ásakanir um svik og alda ofbeldis hefur einkennt upphaf kosningabaráttu i Nairobi sem er hin fyrsta i aldarfjóröung. DENNI DÆMALAUSI „Hvað er inni í álþynnunni á þriðju hillu að neðan ofan á litla diskinum. sem er annar frá vinstri?“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.