Tíminn - 17.11.1992, Side 8

Tíminn - 17.11.1992, Side 8
8 Tíminn Þriðjudagur 17. nóvember 1992 |||| 22. flokksþing framsóknarmanna 22. flokksþing framsóknarmanna verður haldið á Hótel Sögu, Reykjavlk, dagana 27.-29. nóvember 1992. Um rétt til setu á fiokksþingi segir I lögum flokksins eftirfar- andi: .7. grein. A flokksþingi framsóknarmanna eiga sœti kjömir fulltrúar flokksfélaga. Hvert flokks- félag hefur rétt til að senda einn fulltrúa á flokksþing fyrir hverja byrjaöa þrjá tugi fé- lagsmanna. Fulltrúar skulu þó aldrei vera færri en 1 fýrír hvert sveitarfélag á félags- svæðinu. Jafnmargir varamenn skulu kjömir. 8. grein. Á flokksþinginu eiga einnig sæti miðstjóm, framkvæmdastjóm, þingflokkur, formenn flokksfélaga og stjómir LFK, SUF og kjördæmissambanda." Dagskrá þingsins verður auglýst slöar. Framsóknarflokkurinn Miðstjórnarfundur SUF verður haldinn fimmtudaginn 26. nóvember n.k. kl. 19.00 I Hafnarstræti 20. Dagskrá verður auglýst slðar. Framkvæmdastjóm Árnesingar — Félagsvist Hin árlegu spilakvöld Framsóknarfélags Ámessýslu standa nú yfir I nýja félagsheim- ilinu Þingborg I Hraungeröishreppi. Spilað verður að Flúðum 20. nóv. kl. 21.00. Að- alverðlaun utanlandsferð. Góð kvöldverðlaun. Stjómln Félagsvist á Hvolsvelli Spilað verður á sunnudagskvöldum 15. nóvember, 29. nóvember, 13. desember og 10. janúar. Auk kvöldverðlauna verða ein heildarverölaun: Dagsferð fyrír 2 með Flugleiðum til Kulusuk. 3 hæstu kvöld gilda. Framsóknarfélag Rangárvallasýslu Landsstjórn LFK Fundur með aðal- og varamönnum verður á Hótel Sögu, 3. hæð (austurhluta), fimmtudaginn 26. nóvember kl. 20.30. Rætt um flokksþingið og vetrarstarfið. Framkvæmdastjóm LFK Aöalfundur Framsóknarfélags Akraness verður haldinn þriðjudaginn 17. nóvember kl. 21.00 i Fram- sóknarhúsinu. Venjuleg aðalfundarstörf. Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaöur mætir á fundinn. _______________________________StjÓmÍn Ingibjörg Utanríkismálanefnd SUF Fundur fimmtudaginn 19. nóv. kl. 17.00. Fundurinn er opinn öllum áhugamönnum um utanrikismál innan SUF. Formaður Stjórnmálanefnd Landssam- bands framsóknarkvenna heldur áriðandi fund þriðjudaginn 17. nóvember kl. 17.00 að Hafnarstræti 20, 3. hæð. Efni fundarins: Pólitískar áherslur á flokksþingi. Lokaumræða. Allar framsóknarkonur velkomnar. Aðalfundur Framsóknarfé- lags Skagafjarðar veröur haldinn í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki miðvikudaginn 18. nóvem- berkl. 21.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Alþingismennimir Páll Pétursson og Stefán Guömundsson mæta á fundinn og ræða stjómmálaviðhorfiö. Stjómln Páll Stefán LYFTARAR Úrval nýrra og notaöra rafmagns- og dísillyftara Viögeröir og varahlutaþjónusta. Sérpöntum varahluti Leigjum og flytjum lyftara BÍLALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNlbÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS LYFTMMIHF. Simi 91-812655 og 91-812770 Fax 688028 interRent Europcar Guðlaugur Valdimarsson Bergþórugötu 8 Fæddur 19. janúar 1924 Dáinn 11. ndvember 1992 í dag fer fram frá Fossvogskirkju út- för Guðlaugs Valdimarssonar. Guð- laugur fæddist á Akureyri og ólst þar upp til fimm ára aldurs, en þá missti hann föður sinn. Hann fluttist með móður sinni að Fremstafelli í Köldu- kinn. Foreldrar hans voru Ester Guð- laugsdóttir og Valdimar Svein- bjömsson. Guðlaugur átti sfn æsku- ár í Köldukinn og Bárðardal og stundaði síðan ýmis störf norður þar. Hann var útibússtjóri við Kaup- félag Svalbarðseyrar á Fosshóli við Goðafoss um sjö ára skeið. Það kall- aði hann Faktorstímabilið. Guðlaugur kvæntist 1953 Ingi- björgu Helgadóttur frá Stafni í Reykjadal. Þau eignuðust þrjú böm. Þau eru: Ester, gjaldkeri Sparisjóðs Þórshafnar, gift kona þar og á þrjú böm. Stefán, bifreiðastjóri hjá Sól- borgu á Akureyri, kvæntur og á þrjú böm. Yngst er Kolbrún, sem stundar nám í Boston. Guðlaugur var mikill gæfumaður í einkaiífi sínu. Hann unni heitt ágætri konu sinni og mannvænlegum bömum og yfir honum var ávallt festa og heiðríkja þess manns sem býr við gæfuríkt fjölskyldu- og heimilislíf. Þau hjón fluttu til Reykjavíkur 1959. Fyrstu sex árin vann Guðlaug- ur í blikksmiðju, en síðan fór hann til starfa hjá Olíufélaginu h.f. og þar starfaði hann óslitið til dauðadags, eða í 25 ár, lengst af sem bifreiða- stjóri á stómm olíuflutningabíl en síðustu 3 ár sem lagermaður. Guðlaugur var um árabil trúnaðar- maður Dagsbrúnarmanna hjá Olíu- félaginu og síðustu 12 árin, eða frá 1980, í stjóm Dagsbrúnar. Guðlaugur var maður kyrr og hlé- drægur og sóttist Iítt eftir athygli. Hann var maður djúprar hugsunar og hollráður. Hann var einlægur samvinnumaður í besta skilningi þess orðs. Hann var unnandi jafn- réttis og réttlætis og þurfti ekki að lesa sér til um kjör alþýðufólks á ís- landi — þau þekkti hann. Guðlaugur var mikill reglumaður og stundvís. Eftir að hann fór að kenna vanheilsu síðustu árin, kom fyrir að hann gat ekki mætt á fundum Dagsbrúnar og þá fundum við samstjórnarmenn hans best, hve djúpt skarð var fyrir skildi ef Guðlaug vantaði, því hann var maður vitur og hollráður í hóg- værð sinni. Lokið er vegferð góðs og göfugs manns. Við samstarfsmenn hans í stjóm og trúnaðarráði Dagsbrúnar söknum vinar í stað, vinar og félaga sem miðlaði okkur ríkulega af mannkostum sfnum, drenglyndi og réttsýni. Innilegustu samúð vottum við konu hans og bömum og fjölskyldu allri. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar Hann Gulli vinur okkar er dáinn. Ekki grunaði okkur þann 1. nóvem- ber s.l., er við heimsóttum þau hjón, hann og Ingibjörgu, og sátum í góðu yfirlæti við kaffiborðið og spjölluð- um saman eins og okkar var vandi, að þetta væri jafnframt kveðjustund- in. Við vissum jú að Gulli var að fara í aðgerð, en það hafði líka skeð áður, svo af hverju skyldi ekki allt ganga vel í þetta skiptið líka. Guðlaugur Valdimarsson var fædd- ur 19. janúar 1924. Dáinn 11. nóv- ember 1992. Hann var sonur hjón- anna Esterar Guðlaugsdóttur frá Fremstafelli í Ljósavatnshreppi og Valdimars Sveinbjörnssonar smiðs. Kona Guðlaugs er Ingibjörg Helga- dóttir Sigurgeirssonar frá Stafni í Reykjadal og konu hans, Jófríðar Stefánsdóttur. Föður sinn missti Gulli aðeins 2ja ára gamall, en móð- ir hans giftist aftur 1929 og var seinni maður hennar Jóel Tómas- son, bóndi og kennari frá Stafni. Þau hjón bjuggu á Amdísarstöðum í Bárðardal og ólst Gulli upp hjá þeim. Tvær eldri systur átti hann: Sigríði, sem einnig var hjá þeim hjónum, og Önnu Maríu sem fór til móðursystur sinnar Klöru, sem bjó á Landamóti. Þau Ester og Jóel eignuðust soninn Sigurð og var ætíð kært með þeim bræðrum. Gulli fór í Laugaskóla, eins og sjálf- sagt þótti um Þingeyinga á þessum árum. Síðan vann hann við ýmis störf í Reykjadal og Bárðardal. Okkar íyrstu kynni urðu er ég kom í Lauga- skóla ásamt Ingibjörgu Helgadóttur frænku minni, sem varð svo kona hans, en þau giftu sig 20. júní 1953. Gulli haifði góða kímnigáfú, var skemmtilegur í samræðum, átti létt með að herma eftir og frásögn hans af mönnum og málefhum þannig að maður gat gleymt stund og stað, jafnvel haldið að maður væri kom- inn mörg ár aftur f tímann norður í land. Inga og Gulli hófu búskap á Foss- hóli 1953, en þar var Gulli útibús- stjóri við Kaupfélag Þingeyinga til ársins 1959 að þau flytja til Reykja- víkur þar sem hann vann ýmiss kon- ar störf fyrstu árin, en s.l. 25 ár hefur hann verið starfsmaður hjá ESSO. í stjóm Dagsbrúnar hefur hann verið til margra ára og allt til dauðadags. Þau Guðlaugur og Ingibjörg eign- uðust 3 böm: Ester, hennar maður er Sæmundur Jóhannesson, þau eiga 3 böm og 1 bamabam. Stefán, hans kona er Anna Ringsted; eiga þau eina dóttur, en Stefán á 2 böm frá fyrri sambúð. Kolbrún, gift Jóse Ramos, búsett í Boston. Auk þess ólu þau upp að miklu leyti systurson Ingu, Þröst Óskar; hans kona er Svala Stefánsdóttir, eiga þau 2 böm. Við Máni þökkum Guðlaugi sam- fylgdina — við þökkum ánægjulegar stundir á ferðalögum og á góðum stundum á heimilum beggja. Það er stórt skarð höggvið í vinahópinn við brottför Gulla, en þannig er það með lífið og dauðann, þetta tvennt helst í hendur og enginn ræður sínum næturstað. Elsku Inga mín, innilegar samúðar- kveðjur frá okkur Mána til þín, bama þinna og fjölskyldna þeirra. Vér sjáum hvar sumar rennur með sól yfir dauðans haf og lyftir í eilífan aldingarð því öllu, sem Drottinn gaf (Matth. Jochumss.) Blessuð sé minning Guðlaugs Valdimarssonar. Kristín Ingibjörg Ver eigi kappi í víndrykkju Mig langar að biðja Tímann fyrir fáein orð í tilefni af ummælum Einars Ingva Magnússonar í blaðinu 10. nóvember. Hann segir þar meðal annars: „Andlega heilbrigður maður misnot- ar ekki áfengi. Það gera engir aðrir en þeir sem eru eitthvað sinnisveikir fyr- ir.“ Þetta má til sanns vegar færa. Ölvað- ur maður er ekki andlega heilbrigður. Að áliti Ein- ars er ekki um misnotk- un að ræða fyrr en drukkið hefur verið nokkuð lengi. Fyrsta staupið er ekki misnotkun. En það dugar til þess að neytandinn er ekki andlega heilbrigð- ur. Ég taldi mig strax á unga aldri sjá það að drykkjufýsn manna væri misjöfn og eitthvað í líkamlegri gerð manna réði þar úrslitum. Andlegt ástand, lífsskoð- un og viljastyrkur skipti þar ekki mestu. Andlegt heilbrigði áður en áhrif áfengis koma til réði ekki úrslit- um. Sé þó fjarri mér að vanmeta vilja- þrek eða annað andlegt atgjörvi. Öll mín lífsreynsla, allt sem ég hef orðið vitni að á langri ævi styður þessa skoðun. Ölvaður maður er ekki and- lega heilbrigður. Því er það rétt hjá Einari Ingva að enginn andlega heil- brigður maður misnotar áfengi. Mér er kunnugt að vísindamenn hafa reynt að finna líkamlegar forsendur mismunandi drykkjuhneigðar. Leitt hefur verið í ljós að þar kunni að ráða úrslitum hvemig lifrin hreinsar vín- andann úr líkamanum og hvernig efnaskipti fara fram í því sambandi. Hins vegar er mér ekki Ijóst að niður- brot vínandans í lifrinni fari eftir and- legu atgjörvi. Eg nenni ekki að fjölyrða um orð Ein- ars um áfengi sem lyf og gleðigjafa. Þó skal á það minnt að huggun lyfsins er j a f n a n t e n g d ókærni og sljóvgun, enda fylgir neyslu þess skert dómgreind og slappari sjálfsstjóm. Þau aukaáhrif hafa mörgum í koll komið. Hið „fornkveðna", sem Einar vitnar til, að „hóflega dmkkið vín gleður mannsins hjarta" mun vera komið úr Síraksbók. Jón Thoroddsen gerði sér til gamans í Manni og konu að láta Grím meðhjálpara eigna Salómon þessa speki. En niðurstaða Síraks um áfengið og nautn þess er þessi: „Ver eigi kappi í víndrykkju, því að margan hefur vínið að velli lagt. Höf- uðverki, hneisu og smán veldur vín- drykkja með vonsku og hatri.“ Hinu er hiklaust mótmælt að allir þeir, sem hafa sopið „sér til vansa og sorgar", hafi verið sinnisveikar rolur áður en þeir fóru að neyta áfengis. En ölvaður maður er ekki andlega heil- brigður. Halldór Kristjánsson Frú Brundt- land kveður Það er full ástæða til að votta frú Gro Hariem Brundtland samúð. Heimilisböl er þyngra en tárum taki. Hún hefir hætt formennsku í flokki jafnaðar- manna, svo að hún geti betur sinnt fjölskyldunni. Ýmsír furða sig hins vegar á því, að hún skyldi ekki fremur segja upp embætti forsætisráð- herra. Það tekur margfalt meiri tíma en flokksformennskan. Hún er tiltölulega Utið meira en fiokksþing einu sinni á ári. Frú Brundtland virtist lcngi vel frábverf EB. En hún hefir smátt og smátt hallast að aðild. Norska þjóðin er hvergi nærri einhuga. Mikfi andstaða er enn í Noregi gegn EB, einkaniega í norðurhiuta landsins, sem á af- komu súia undir fiski, eins og við. Líkur benda til þess, að frú- in óttist fylgistap flokksins sök- um stefnu sinnar og hafi því kosið að hætta formennskunni. Það er ekld óþekkt fyrirbæri á íslandi, að kvenskömngar í pól- itíkinni skipti um skoðun. Við höfum okkar Ingibjörgu Sól- rúnu Gísiadóttur. Á.S. LESENDUR SKRIFA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.