Tíminn - 08.12.1992, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.12.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 8. desember 1992 Innflutningurfjárfestingar-, rekstrarvara og olíu minnkað um marga milljarða milli ára en: Nær ekkert hefur dregið úr innflutningi neysluvara Fyrstu tíu mánuði ársins fluttum við út vörur fyrir 72,7 milljarða króna sem var um 4,4 mil]jörðum (5,6%) minna en sömu mánuði í fyrra. Vöru- innflutningur sömu mánuði var rúmlega 71,1 milljarðar króna fob. Þar varð samdrátturinn ennþá meiri, eða um 9,3 milljarðar króna (11,6%). Athygli vekur, þegar litið er á hina ýmsu liði innflutningsins (tímabilið janúar—september), að samdráttur- inn virðist nær allur vera hjá atvinnu- vegunum, þ.e. í innflutningi á íjár- festingar— og rekstrarvörum ásamt olíuvörum. Innflutningur neyslu- vamings (m.a. matvæla, fatnaðar, heimilistækja, lyfja og tóbaks) er enn- þá nánast jafn mikill og hann var í fyrra — en þá hafði hann einmitt auk- ist langt umfram allar spár frá 1990. Það virðist því aðeins í innflutnings- tölum einkabíla sem auðvelt er að sjá samdrátt í innkaupum einstaklinga og heimila, að minnsta kosti fyrstu þrjá fjórðunga þessa árs. Sundurliðun innflutningstalna nær til septemberloka í ár. í ljósi umræðna um erfiðleíka atvinnuveganna, at- vinnuleysis og kjararýrnunar, getur verið forvitnilegt að athuga þá skipt- ingu og bera hana saman við inn- flutning sömu mánaða næstu tvö ár á undan. Þessi samdráttur er ennþá þægilegri í ljósi þess að gengisskrán- ing breyttist ekki þessi þrjú ár. Töl- umar sýna cif-verðmæti í milljörðum krónæ Innflutningur í milljörðum króna 1990 1991 1992 Neysluvömr 18,1 21.1 20,7 Einkabílar 2,5 4,0 3,0 Neysla/bílar 20,6 25,1 23,7 Sú 22% aukning sem þama varð á innflutningi neysluvara og einkabíla milli 1990 og 1991 virðist aðeins að litlu leyti hafa gengið til baka og þá nánast eingöngu í bílainnflutningn- um sem áður segir. Myndin verður allt önnur þegar litið er á annan innflutn- ing: Hrá/rekstrarv. 19,6 21,5 19,7 Fjárfest.vörur 12,2 15,1 13,6 Flutningatæki 12,1 10,9 7,3 Olíuvömr 5,6 5,9 5,0 49,5 53,4 45,6 Hluthafafundur Hluthafafundur í Eignarhaldsfélagi Verslunarbankans h.f. verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík, fimmtudaginn 10. desember n.k. og hefst hann kl. 16:00. Á fundinum verður samrunasamningui' félags- ins við íslandsbanka h.f. kynntur og borinn upp til samþykktar, en á aðalfundi 1. apiíl s.l. var stjóm félagsins heimilað að undirbúa samruna þess við íslandsbanka h.f. Dagskrá 7. Tillaga stjórnar félagsins um samruna við Islandsbanka h.f. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum þehra í Islands- banka h.f., Bankastræti 5 (4. hæð), Reykjavík, dagana 7., 8. og 9. desember n.k., svo og á fundardegi. Samrunasamningur við íslandsbanka h.f. ásamt fylgiskjölum og tillögum þeim, sem fyiir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað. Reykjavík, 30. nóvember 1992 Stjórn Eignarhaldsfélags Verslunarbankans h.f. í öllum þessum vöruflokkum hefur innflutningur stórlega minnkað í ár og er nú samanlagt mun minni en sömu mánuði árið 1990. Fob-verðmæti heildarinnflutnings og útflutnings tímabilið janúar— september hvert þessara þriggja ára er eftirfarandi í milljörðum talið: 1990 1991 1992 Útflutningur 70,1 69,4 65,7 Innflutningur 63,9 71,5 63,0 Vörusk.jöfn. +6,2 - 2,1 + 2,8 Innflutningur hefur því verið nærri milljarði minni íyrstu níu mánuði þessa árs en fyrir tveim árum og hálf- um níunda milljarði minni en í fyrra. Útflutningstekjumar hafa farið stór- um minnkandi ár ffá ári. - HEI Trúnaðarmenn sjúkraliða ákveða sig í dag hvort þeir undirrita nýjan kjarasamning. Kristín A. Guðmundsdóttir: Óbilgirni fjármála- ráðherra veldur efa Á trúnaðarmannafundi sjúkraliða í dag verður tekin afstaða til kjarasamn- ings og þess hvort framhald verði á aðgerðum. Fjármálaráðherra hefur stefnt félaginu fyrir félagsdóm vegna aðgerða þess. „Við erum nú sérstak- lega að horfa á þessa óbilgimi fjármálaráðherra," segir Kristín Á. Guð- mundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags íslands. Hún segir trúnaðarmenn sjúkraliða hafa nýtt helgina til að meta samning- inn og þeir muni taka afstöðu til hans á fundi kl. 15 í dag. Kristín segir að kjaramálanefndin hafi verið sátt við samninginn og væntanlega skrifað undir hefði ekki annað komið til. Hún vildi ekki greina frá efni samningsins fyrr en trúnaðarmenn væru búnir að fjalla um hann. Um hug félagsmanna nú segir Krist- ín: „Það er undarlegt að fjármálaráð- herra ætli sér í prófmál á stétt sem all- ir vita að er rétt að slíta bamsskónum og á þar af leiðandi ekki mikið fé til að standa í málaferlum. Þannig að mér finnst hann nú kannski ráðast á garð- inn þar sem hann er Iægstur. Úr því að hann þarf á prófmáli að halda þá hefði hann getað verið búinn að fara í slíkt prófmál fyrir löngu síðan,“ segir Krist- ín. Hún telur að það að stéttin hafi verið án nokkurs kjarasamnings geri málið annars eðlis en hjá öðrum stéttum sem hafi haft kjarasamning og, eftir túlkun fjármálaráðherra, gripið til ólöglegra aðgerða. Um það hvort ekki verði erfitt að ná upp samstöðu og ein- hug meðal félagsmanna segir Kristín: „Ég er alveg sannfærð um það að finn- ist sjúkraliðum á sér brotið þá standi þeir jafn fastir saman og áður.“ Kristín segir að búið sé að dómtaka stefnu fjármálaráðherra fyrir félags- dómi og á von á að málflutningur hefj- ist á fimmtudag. Hún segir að á fund- inum í dag verði tekin afstaða til þess hvort skrifað verði undir samninginn áður en úrskurður félagsdóms liggur fyrir eða ekki. Hún telur að úrskurður geti dregist í tíu til fimmtán daga án þess að vilja fullyrða neitt. „Ég veit að þegar mikið hefur legið við hefur dómurinn úrskurðað innan tveggja daga,“ bætir hún við. -HÞ Eigendur Álíminga sf., hjónin Sólveig Eyjólfsdóttir og Kristján Tryggvason. Timamynd:Ámi Bjama Alímingar sf. 35 ára: Frumkvöðull endurvinnslu Nýverið fluttu Álímingar sf. í nýtt og stærra húsnæði að Síðumúla 23, Sel- múlamegin. Fyrirtækið er 35 ára á þessu ári og hefur nú sem áður öryggið að leiðarljósi og býður uppá fljóta og góða þjónustu. Nýverið fluttu Álímingar sf. í nýtt og stærra húsnæði að Síðumúla 23, Sel- múlamegin. Fyrirtækið er 35 ára á þessu ári og hefur nú sem áður ör- yggið að leiðarljósi og býður uppá fljóta og góða þjónustu. Álímingar sf. voru stofnaðar árið 1957 af Kjartani Lorange en árið 1990 keyptu hjónin Sólveig Eyjólfs- dóttir og Kristján Tryggvason fyrir- tækið og hafa bætt verulega við vöru- úrvalið. Frá upphafi hafa Álímingar sf. sér- hæft sig í að líma á bremsuborða og kúplingsdiska, rennt diska og skálar auk þess að selja nýja bremsuklossa, bremsuborða og álímt á allar tegund- ir farartækja. Það má því segja að Álímingar sf. hafi verið frumkvöðull að endurvinnslu hérlendis. Þar fyrir utan selur fyrirtækið Bimbo barna- bflstóla, bflaáklæði og öryggishlífar svo nokkuð sé nefnt af fjölbreyttu vöruúrvali sem þar er á boðstólum frá viðurkenndum framleiðendum og verðlaunuðum hönnuðum. Hið nýja húsnæði fyrirtæksins er í senn stærra, bjartara og á allan máta mun hentugra og þægilegra fyrir við- skiptavini þess til að koma með skál- ar, diska og bremsuborða í vinnslu. Verkstæðismóttaka á stærri stykkj- um er Síðumúlamegin en þá er ekið niður hjá Securitas. -grh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.