Tíminn - 24.12.1992, Qupperneq 8

Tíminn - 24.12.1992, Qupperneq 8
8 Tíminn Fimmtudagur 24. desember 1992 LIKLEGA hafa þeir skemmt sér vel, félagamir Ámi Johnsen og Sigmund Jó- hannsson, þegar þeir unnu i sameiningu aó nýju bókinni sinni „Enn hlær þing- heimur“. Alþingismenn ern sem fyrr höfuðviöfangsefni þeirra. Spaugileg atvik og uppákomur, sem tengjast þingheimi, eru vettvangur bókarínnar. Ámi segir gamansögumar og Sigmund kryddar þær meö óborganlegum skopmyndum sinum. Bókin „Þá hló þingheimur", sem Ámi og Sigmund sendu frá sér 1990, varö metsölubók. Fjóröa íbúöin fyrir krabbameinssjúklinga Forseti fslands var meöal viöstaddra þegar nýja íbúöin var tekin í notkun. Tekin hefur veríð í notkun fjórða flbúðin, sem komið hefur veríð upp í Reykjavík fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra. Krabba- meinsfélag íslands og Rauði kross íslands keyptu þessa íbúð, sem er að Rauðarárstíg 33, en Ríkisspítalar sjá um rekstur hennar. Margir hafa lagt sitt af mörkum til þess að gera nýju íbúðina sem vistlegasta. Krabba- meinsfélögin víðs vegar um land hafa gefíð ýmsan búnað, bókaforlög gefíð tugi bóka og sömuleiðis hefur fengist góður afsláttur af húsmunum. Sami háttur var hafður á um kaup á tveim íbúðum við Lokastíg 16 sem teknar voru í notkun á miðju síðasta ári. Fyrir sex árum keyptu sömu aðil- ar, ásamt Kvenfélaginu Hringnum, íbúð við Leifsgötu fyrir fjölskyldur barna sem eru í meðferð vegna krabbameins. í frétt frá Krabbameinsfélaginu og RKÍ segir að mjög góð reynsla hafi verið af þessum íbúðum. Vegna mik- illar eftirspumar hafi verið nauðsyn- legt að kaupa fjórðu íbúðina. íbúöim- ar séu til afnota fyrir krabbameins- sjúklinga af landsbyggðinni og að- standendur þeirra meðan á sjúkdómsmeðferð stendur á sjúkra- húsunum í Reykjavík. Dvalargestir greiða væga leigu. Um níu hundmð íslendingar grein- ast með krabbamein á ári hverju. Margir þeirra sem búa úti á landi þurfa að fara í lyfja- og geislameðferð til Reykjavíkur. Ný bók Halldórs Bókaforlagið Vaka-Helgafell hefur gefið út bók um ævi Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. Bókin heitir „Lífsmyndir skálds. Æviferill Halldórs Laxness í myndum og máli“. Ólafur Ragnarsson og Valgerður Benediktsdóttir tóku saman efni bókarinnar og rit- uðu texta hennar, en í honum er greint frá ferli skáldsins og bmgðið upp svipleiftmm af hugsunum Halldórs og umhverfi á langri ævi. Forseti íslands, Höfundar bókarinnar, Ólafur Ragnarsson og Valgeröur Benediktsdóttir, skoöa hana ásamt Nóbelsskáldinu Halldóri Laxness. um ævi Laxness Vigdís Finnbogadóttir, ritar formála bókarinnar um Halldór Laxness, áhrif hans á íslenska menningu og þjóðlíf og sigra hans á heimsvísu. Bókina prýða um 500 Ijósmyndir, sem safnað hef- ur verið saman úr öllum heimshomum. Uppistaðan er þó komin úr einkasafni Halldórs, fjölskyldu hans og vina. Margar myndanna koma nú í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir. Þá var tekinn fjöldi mynda sérstaklega vegna bókarinnar. Bókin „Lífsmyndir skálds" er í stóm broti og telur á þriðja hundrað síð- ur. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.