Tíminn - 03.02.1993, Side 9

Tíminn - 03.02.1993, Side 9
Miðvikudagur 3. febrúar 1992 Tíminn 9 Rauði þráðurinn Traces of Red * Handrít: Jlm Piddock. Framleiðendur: Mark Gordon og Davld V. Picker. Lelkstjóri: Andy Wolk. Aöalhlutverk: James Belushl, Lorralne Bracco, Tony Goldwyn, Willlam Russ og Faye Grant. Laugarásbíó. Bönnuð innan 16 ára. Það er erfítt að ímynda sér hvað aðstandendur þessarar myndar voru að hugsa á meðan verið var að framleiða hana. Þeir geta varla hafa gert sér í hugarlund þvílíkt leið- indaverk yrði útkoman. Hvergi er að sjá neinn vott af frumleika í allri myndinni, sem á víst að vera er- ótísk spennusaga. Ekki ætla ég að blanda mér í rökræður um erótík, en svo mikið er víst að ástarsen- urnar eru lítið öðruvísi en sen- urnar, sem eru í flestum myndum af þessu tagi og eru taldar nauðsyn- legar til að myndin nái vinsældum. Myndin segir af lögreglumannin- um Belushi, sem er myrtur í upp- hafi myndarinnar. Ekki fáum við að sjá hver er morðinginn, heldur er farið aftur í tímann og við fylgjumst með atburðum fram að morðinu. Belushi á vingott við fallega ekkju (Bracco), en eyðir engu að síður einni nótt með þjónustustúlku, sem finnst myrt nokkru síðar. Hann fær send bréf frá morðingjanum og reynir að komast til botns í málinu ásamt félaga sínum, sem Tony Goldvvyn leikur. Þarna komum við að athyglisverðum punkti, því fram að þessu var myndin í lagi, en nú geta allar persónur, stórar sem smáar, verið morðinginn. Ekkjan, bróðir Belushis, löggufélaginn, konan hans, fyrrverandi kennari Belushis, sonur hennar og meira að segja Belushi sjálfur. Öll geta þau verið morðinginn. Maður fer að gruna áhættuleikarana áður en yfir lýkur. Þegar svo endirinn færist nær er öllum sama hver morðing- inn er, enda er lausnin á þessari „fróðlegu" morðgátu með því asna- legra, sem sést hefur á hvíta tjald- inu. Leikararnir rembast við að gera útþynntar persónur sínar áhuga- verðar og er í raun aumkunarvert á að horfa. Um útkomu myndarinnar er varla við þá að sakast, þótt þeir sýni nú enga verulega tilburði. James Belushi er því miður alls ekki nógu hæfur til að leika dram- atískt hlutverk. Hann er nokkuð skondinn gaman- leikari og ætti að halda sig við slíkar myndir í framtíð- inni. Tony Goldwyn er einn af fáum jákvæðum punktum við myndina, en hann fer vel og áreynslulaust með sitt hlutverk. Það sama verður varla sagt um Lorraine Bracco, en persóna hennar er mjög óspenn- andi og í öllum leik hennar er eins og hún sé á sterkum lyfjum. Bracco, þessi annars ágæta leik- kona, sem lék mjög vel í Góðum gæjum eftir Martin Scorsese, er langt frá sínu besta hér. Rauði þráðurinn líður aðallega fyrir hrikalega slakt handrit og formúlukennda leikstjórn. Leikar- arnir hafa allir afrekað meira en hér og ástæðulaust er að kenna þeim um útkomuna, sem á að vera er- ótísk spennumynd. Gallinn er bara að lítið fer fyrir spennunni og er- ótíkin er álíka áhugaverð og í tón- listarmyndbandi frá Ríó tríóinu. Öm Markússon Þakka innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför Guðmundar Guðmundssonar frá Dalsmynni Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Guöjónsdóttlr J ~\ Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför Hjartar Hjartar fyrrv. framkvæmdastjóra Flyörugranda 8. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks deildar 32 a á Landspitalanum. Guðrún J. Hjartar Jóna Björg Hjartar Páll van Buren Sigriður Hjartar Stefán Guöbergsson Elln Hjartar Davíð Á. Gunnarsson Eglll Hjartar María Gunnarsdóttlr bamaböm og barnabamaböm. Kveöjuathöfn um móöur okkar Daðínu Jónasdóttur frá Auökúlu, Amarfiról verður I Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. febríiar kl. 10.30. Jarösett verður aö Hrafnseyri, Amarfiröi laugardaginn 6. febrúar. Böm hlnnar látnu Emily Lloyd er oröin 22ja ára og búin aö vera kvikmyndastjarna í sex. En hún segist ekki vita neitt né kunna neitt, hún vill læra um rithöfunda og málara, lönd og margvíslega menningu. Og henni finnst ekki seinna vænna aö setjast á skóiabekk. Kvikmyndastjarnan ætlar að setjast á skólabekk Emily Lloyd var ekki nema 16 ára ensk skólastelpa þegar hún skaust upp á stjörnuhimininn í mynd- inni „Wish You Were Here“ og eft- ir það lá leið hennar til Ameríku, fyrst til New York og síðan Holly- wood. Þar hefur hún leikið í nokkrum myndum sem ekki hafa vakið sérstaka athygli, en nýjasta myndin hennar, „A River Runs Through It“ með sjálfan Robert Redford í aðalhlutverki, hefur hlotið feiknagóða dóma og Emily þar með slegið endanlega í gegn. En þá vendir stelpan kvæði sínu í kross. Hún ætlar nú að leggja leiklistina á hilluna, í bili a.m.k., og setjast á skólabekk. Er hún alveg frá sér? spyrja sum- ir. „Því þá það?“ segir Emily þrjósk. „Jodie Foster gat gert það, af hverju ætti ég ekki að geta það líka?“ Hún segist finna vel hvað hún viti lítið og kunni lítið. Og nú sé rétti tíminn til að lagfæra það, hún vilji ekki bíða þangað til hún verði þrítug og langi kannski ekki til neins. Emily er leiklistin í blóð borin, bæði pabbi hennar og afi hafa haft hana að atvinnu. Foreldrar henn- ar skildu þegar hún var aðeins tveggja ára og pabbi hennar reyndi að hræða hana frá því að leggja leik fyrir sig. „Atvinnu- leysi,“ sagði hann. En þó að Emily þyki vænt um pabba sinn og virði Emily fannst yndislegt að vera heima hjá mömmu, ömmu og syst- ur um jólin og geta kallaö: „Mamma, hefuröu séö gallabuxurnar mínar?" og heyra mömmu sína svara: „Leitaöu að þeim sjálf!“ Þaö var sko heimilislegt! hann mikils, lét hún viðvaranir hans sem vind um eyrun þjóta. Og það er hún vís með að gera núna líka, þegar fólk hneykslast á því að hún skuli ekki hamra járn- ið meðan heitt er og tilboðin streyma til hennar eftir velheppn- uðu stórmyndina sem er verið að byrja að sýna. Velheppnuð veisla: Mikið af brotn um diskum! Michael Aspel var ánægöur meö óvæntu afmælisveisluna sem Lizzie Power, kona hans, hélt honum. Sjónvarpsstjarnan Michael Aspel átti sextugsafmæli á dögunum og ætlaði að minnast tímamótanna í kyrrlátum kvöldverði með ná- grönnum, eða það hélt hann. En konan hans var ekki sama sinnis og reyndar fór hún á bak við mann sinn, þegar hún undir- bjó afmælishaldið. Þegar afmælis- barnið mætti á veitingastaðinn þar sem hann ætlaði að eyða kvöldinu í ró og spekt, voru y.þ.b. 40 vinir hans mættir og allt skreytt í hólf og gólf. „Þetta var stórkostlegt partí, andrúmsloftið fínt og diskar brotnir í hrönnum," segir einn viðstaddra. Hafi sjónvarpsstjörnunni þótt nóg um, má benda á að undanfar- in fjögur ár hefur hann stýrt sjón- varpsþættinum „This Is Your Life“, þar sem einmitt er sífellt verið að koma einhverjum grun- lausum gestinum á óvart.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.