Tíminn - 12.02.1993, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.02.1993, Blaðsíða 2
2 Tlminn Föstudagur 12. febrúar 1993 Göngudeildargjald fyrir krabbameinssjúklinga: Er Sighvatur ekki rétt upplýstur? Svo viröist sem Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráherra hafi ekki verið rétt upplýstur þegar hann hélt því fram á dögunum að á öllum sjúkrahúsum utan Landspítalans hefðu krabbameinssjúklingar þurft að greiða fyrir hverja einustu komu á göngudeild sama hversu oft þeir kæmu, að undanskilinni geislameðferð. Sigurður Bjömsson, sérfræðingur í lyflækningum á Landakoti, segir að krabbameinssjúklingar hafi aldrei þurft að greiða göngudeildargjald fyrir lyfjameðferð hvorki þar né á Borgarspítala en komist líklega ekki hjá því á næstunni vegna þeirra sér- tekna sem sjúkrahúsum sé ætlað að afla. , Jtenn geta auðvitað sagt að ekki sé ástæða til að greiða þetta. Sérstak- lega ekki fyrir þann sem kemur ofL Það breytir ekki því að sjúklingar sem hafa gengið til krabbameins- meðferðar á öllum öðrum spítölum en Landspítalanum, hafa verið Iátnir greiða þetta gjald,“ sagði Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráherra á dögunum og átti við að krabba- meinssjúklingar göngudeildar á Landspítala yrðu eins og aðrir að greiða 1.500 kr. gjald við hverja komu. Nú virðist koma á daginn að þetta sé ekki alls kostar rétt. Þannig segir Sig- urður Bjömsson að krabbameins- sjúklingar á Borgarspítala og Landa- kotspítala hafi aðeins þurft að greiða fyrir eftirlit en það hafi þá yfirleitt ekki verið nema í nokkur skipti á ári. Hann segir að nú komist spítalamir ekki hjá því að innheimta göngu- deildargjöld af krabbameinssjúkling- um hvort sem er fyrir eftirlit eða lyfjameðferð. Hann segir það vera vegna þess hversu knappar fjárveit- ingar til sjúkrahúsa em. Hann segir þó að enginn spítali hafi farið í að innheimta eins og mælt sé fyrir um í nýlegri reglugerð um lækniskostnað. „Það em allir að semja sérreglur fyrir sig. Þessi byrði yrði svo þung að jafnvel þó að upp- hæðin kæmist fljótlega upp í afslátt- arkortin og einhver sé með örorku- bætur þá em þetta samt þungar álög- ur á fólk,“ segir Sigurður. Þess má geta að samkvæmt nýjustu reglugerð heilbrigðisráðherra, fær sjúklingur afsláttarkort þegar hann hefur greitt 12.000 kr. í lækniskostn- að en þarf að greiða þriðjung gjalds- ins í hvert skipti eftir það. Það gera hátt í 700 kr. að meðaltali. Sigurður segir að spítölum sé gert að afla sér ákveðinna sértekna. Þann- ig þurfi Landakotspítalinn að ná hátt í 200 milljónir kr. inn í þessu skyni sem er um 20% af rekstrarkostnaði sjúkrahússins. Því sé í raun verið að fara í kring um hlutina þegar talað er um að innheimta gjald fyrir veitta þjónustu sem einungis innanhúsmál sjúkrahúsanna. Þau séu með þessu sett í erfiða aðstöðu þar sem það séu einungis tryggingamar eða sjúkling- amir sem greiða sértekjumar. Þess má geta að samkvæmt upplýs- ingum frá Landspítalanum, þarf að ná um 800 millj. kr. inn sem sértekj- um af rúmum 7 milljörðum kr. eða tæpum 10% af rekstrarkostnaði. Pét- ur Jónsson, formaður stjómunar- sviðs spítalans, segir að ætlunin sé að ná þeim tekjum inn af greiðslum fyr- ir rannsóknir. -HÞ Lagafrumvarp frá Páli Péturssyni fyrir Alþingi: Ráðherrar komist ekki upp með lygi PáJl Pétursson hefur lagt frara á rangar eða villandi upplýslngar. umræðum um EES-málln. Engin Alþingi frumvarp til laga um Frumvarpið er flutt af gefnu til- ákvæði eru í íslenskum lögum um ábyrgö ráðherra á orðum sínum. i efni en Páll bendir á að Jón Bald- ábyrgð ráðherra á orðum sínum. því felst að ráðherrar verði að vin Hannibalsson hafl ítrekað gef- Slífc ákvæði eru hins vegar i lög- sæta ábyrgð, gefl þeir Alþingi ið þinginu rangar upplýsingar f um flestra hinna Norðurlandanna. Aðilar vinnumarkaðarins skipa í fjóra vinnuhópa. VMSÍ: Krafan er um Þessi gatvaski hópur tekur þessa dagana þátt í einstakiings- keppni í norrænni skólaskák í Asker í Noregi. Keppni bessi er eitt af flórum árlegum Norðurlandamótum i skólaskák. íslensku keppendurnir eru á aldrinum 9 ára til 20 ára. Tímamynd Ami Bjama „Við eigum nú von á því að ekkert af þessu verði fært okkur af silfur- fati. En ég held að þegar menn skoða tillögur okkar og kröfugerð þá sjáist hvað hún er réttlát, enda snýst hún meira eða minna um tekjujöfnun," segir Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamanna- sambands íslands. Hann segir að menn hljóti að koma til viðræðna um nýjan kjarasamn- ing með því hugarfari að leysa málin eftir þeim leiðum sem þar eru lagð- ar til. „Það verður að koma fljótt í ljós hvort hægt verður að komast að samkomulagi, enda verður ekki gef- inn langur tími til þess.“ Þessa dagana eru aðilar vinnu- markaðarins að Ieggja sfðustu hönd á skipan í fjóra vinnuhópa sem munu fjalla um atvinnu-, vaxta,- heilbrigðis- og félagsmál. Formaður VMSÍ segir að verið sé að leggja drög að því að vinnan við samingsmálin fari af stað strax eftir helgi. -grh Eina dagblaðið utan höfuðborgarsvæðisins hefur átt vaxandi gengi að fagna hin síðari árin: Dagblaðið Dagur 75 ára í dag eru liðin 75 ár frá því er Dagur á Akureyri hóf göngu sína. Frá haustinu 1986 hefur Dagur verið dagblað, hið eina sem gef- ið er út utan höfuðborgarsvæðsins. Um leið og Tíminn óskar af- mælisbarninu allra heilla, en Dagur er aðeins árinu yngri en Tíminn, verður hér á eftir rakin saga þessa norðlenska systur- blaðs í stórum dráttum. Upphafið Fýrsta tölublað Dags kom út þenn- an dag 1918 og var brot blaðsins þá helmingi minna en nú. Fyrsta árið kom blaðið út hálfsmánaðarlega, fjórar síður hverju sinni og kostaði árgangurinn tvær krónur. Dagur var í upphafi minnsta blaðið sem gefið var út að staðaldri á Akureyri. En smám saman óx blaðinu ásmeg- in. Árið 1919 var broti þess breytt í þá stærð sem síðan hefúr haldist Jaftv framt fór blaðið að koma út því sem næst vikulega; oftast tvær síður að stærð en stundum fjórar. Árið 1941 var merkum áfanga náð. Það ár var útgáfútíðnin enn aukin og blaðið fór að koma út tvisvar í viku, fjórar síður í senn. Þar með varð Dagur stærsta blað sem gefið var út utan Reykjavík- ur og hefúr haldið þeim sessi síðan. Árið 1944 var blaðið enn stækkaö, að þessu sinni í 8 síður, en kom nú út einu sinni í viku. Næstu ár varð Dag- ur æ oftar 12 síður að stærð og auka- blöð voru gefin út á laugardögum, þegar ástæða þótti til. Dregur til tfðinda Árið 1978 fór að draga til tíðinda hjá blaðinu fyrir alvöru. Það ár var ráðist í húsnæðiskaup í fyrsta sinn í sögu blaðsins er fest voru kaup á efri hæð hússins að Tryggvabraut 12 á Akureyri. Fram að því hafði Dagur ávallt verið í leiguhúsnæði. Jafh- framt var útgáfan enn aukin þannig að blaðið kom út tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum, að jafnaði 8 síður í senn. Þremur árum síðar, árið 1981, náð- ist enn stærri áfangi. Þá var starf- semin flutt í eigið húsnæði að Strandgötu 31 en þar hafa höfuð- stöðvar blaðsins verið síðan. Það ár var einnig hafinn rekstur blaða- prentsmiðju með tilkomu dótturfýr- irtækisins Dagsprents hf. Haustið 1981 var gerð tilraun með að gefa út þriðja blað vikunnar, helgarblað, sem kom út á föstudögum, hálfs- mánaðarlega. Frá árinu 1982 kom Dagur síðan út þrisvar í viku hverri. Dagur verður dagblað Haustið 1985 var stóra sökkið tek- ið. Þann 26. september það ár, var Dagur gerður að dagblaði, því fyrsta og eina sem gefið er út utan höfuð- borgarsvæðisins. Síðan þá hefur Dagur komið út fimm sinnum í viku, 12-16 síður að stærð virka daga en 24-28 síður að jafnaði um helgar. 1987-1988 var ráðist í að auka at- hafnasvæði Dags og Dagsprents við Strandgötuna verulega. Byggt var yfir skrifstofúrhús á þremur hæð- um auk prentsalar og tengibygging- ar og hafa fyrirtækin nú yfir að ráða um 1500 fermetrum. í ársbyrjun 1990 keypti Dagsprent hf. Útgáfufélag Dags og yfirtók rekst- ur þess, allar eignir og skuldir. Þá hafði hlutafé í Dagsprenti verið auk- ið um 60 milljónir króna á rúmum þremur árum. Eigendaskiptin komu í kjölfar þriggja erfiðra rekstrarára, þar sem gífurlegur Ijármagnskostn- aður vegna mikilla fjárfestinga á ár- unum 1985- 88, reyndist þungur á metunum. Frá því í janúar 1990 er Dagsprent hf. því útgefendi Dags. Mjór er mikils vísir í uphafi störfuðu tveir menn að út- gáfu blaðsins, ritstjórinn, sem skrif- aði nær allt efni þess og afgreiðslu- maður, sem annaðist dreifingarþátt- inn, sölu auglýsinga og innheimtu- mál. Báðir sinntu blaðinu í hjáverkum samhliða aðalstarfi. Árið 1982 voru starfsmennimir orðnir 12 talsins. Nú eru tæplega 40 manns í fullri vinnu hjá íýrirtækinu og starfsfólk í hlutastarfi er á annað hundrað talsins. f þeim hópi eru umsjónarmenn festra þátta í blað- inu; fréttaritarar, umboðsmenn og blaðburðarfólk. Árið 1991 nam ársvelta fyrirtækis- ins rúmlega 151 milljón króna. Dag- ur er nú prentaður í rúmlega 6 þús- und eintökum og áskrifendur em um 5 þúsund. Einnig er vert að geta þess að bæði á Húsavík og Sauðár- króki hafa verið rekin útibú ftá blað- inu um rúmlega 6 ára skeið. Á báð- um stöðum em ritstjómarskrifstof- ur og blaðamaður/umboðsmaður í fullu starfi. A5 lokum Dagur hefúr ffá upphafi verið mál- svari samvinnu og félagshyggju, borið hag norðlenskra byggða fyrir brjósti og leitast við að leggja þeim málefnum lið sem til framfara hafa horft fyrir Norðurland og lands- byggðina alla. Síðustu ár hefur verið unnið markvisst að því að gera Dag að sem bestu fréttablaði sem þjónað geti öllum íbúum Norðurlands. Jafnframt er blaðið opið öllum þeim sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.