Tíminn - 12.02.1993, Blaðsíða 5

Tíminn - 12.02.1993, Blaðsíða 5
Föstudagur 12. febrúar 1993 Tíminn 5 Bandaríkjamenn vœnta þess að Bill Clinton taJást að hleypa lifi í ejhahaginn: Veikleikar heimsveldis „Ameríka verður að endurheimta efnahagslegan styrk sinn til að uppfylla hlutverk sitt sem forystu- afl heimsins," var í kosningabar- áttunni trúaijátning Bills Clinton, sem nú hefur svarið embættiseið sinn sem 42. forseti Bandaríkj- anna. Skömmu áður en Clinton tók við embættinu kallaði hann saman til fundar f Little Rock í Arkansas fremstu efnahagssérfræðinga og stjómendur fyrirtækja til að kynna sér forskriftir að því hvemig mætti hleypa nýju lífi í efhahagsmálin. Yngsti ráðgjafi forsetans var Andrew L. Shapiro, aðeins 24 ára, sem hefur mánuðum saman hrist upp í Ameríkumönnum með hag- fræðirannsókn sem bregður Ijósi á styrkleika og veikleika Bandaríkj- anna miðað við alþjóðlegar saman- burðampplýsingar um hvaðeina, atriði sem spanna ótrúlegustu hluti og má þar nefna fjölda fóstur- eyðinga og magn dagblaðapappírs til að sýna víðáttumikið svið upp- lýsinganna. Bók Shapiros er ný- komin út í Þýskalandi og birti þýska blaðið Die Welt meðfylgjandi línurit úr henni. Shapiro vill koma löndum sínum í skilning um „hversu alvarlega hugmyndafræðin „Ég fyrst“ hafi veikt efnahaginn". Og Die Welt tín- ir til nokkra punkta til staðfesting- ar þessu áliti úr vel útlítandi en subbulegri nýrri veröld: * Tíu dauðsföll á hverjar 100.000 lifandi fæðingar skipa Bandaríkj- unum í efsta sæti í ungbamadauða meðal þróaðra iðnríkja. * íbúar Bandaríkjanna borða þrisvar sinnum meira af kartöflu- flögum og nasli en Þjóðverjar. * Fjöldi krabbameinstilfella meðal bandarískra karla er meiri en í nokkm öðm landi þar sem tölur liggja fyrir. * Bundinn er endi á 29 prósent allra þungana í Bandaríkjunum með fóstureyðingu. í Þýskalandi em það 12,1%. * í Bandaríkjunum verða 114 af 100.000 konum fyrir nauðgun, í Japan sjö. * 15 prósent allra bandarískra borgara álíta kunnáttu í erlendu tungumáli „algerlega nauðsyn- lega“. í Frakklandi em 51% þeirrar skoðunar. * Fimmta hvert barn í Bandaríkj- unum býr við örbirgð, í Þýskalandi er það 34. hvert barn. * í 70% bandarískra íbúða em fimm herbergi eða fleiri. í Þýska- landi em þær 36%. * Skólaárið í Bandaríkjunum er 180 daga langt, í Japan em dagam- ir 243. * Á hverja 100.000 Bandaríkja- manna em 310 lögmenn, í Þýska- landi em þeir 80. * Bandaríkjamenn nota 1272 lítra af bensíni á ári á mann, Japanir 254 lítra. Raunvísindamenn og tæknimenntaðlr af hveiju þósundl Ibúa 1980 tl Þróunarhjálp Topplaun Maðögreiðslur til stjómarfor- manna fyrirtaBkja I dollurum 1990 Utgiöld til einkaneyslu Astralfa Áabalia Ástralla Bolgia Danmörk Þýskaland Frakkland Brotland artttar Baigia Danmörk Oanmörk Danmörk [ Þýakaiand Frakkiand Þýakaland [.Pinákkiand Þýakalandi irstland Brollond Bretiand (riand Japan Japan Kanada Hotlandl Holland Holland Noragur Noregur Auaturrfkt Austurriki Austurrikl Auaturrfkli Sviþjóö Svíþjóð Svíþjóð Svtaa Tekjuafgangur og haíli heimflanna prósent af vergri þjóðarfram- lelðslu 1989 «1991 Morö fjöldí á 100.000 Ibúa 1988 «1 1990 Sjónvarpsáhorf klukkustundír og mlnútur á vlku 1990 engari ■ tólur. Astralfa Astralla Astralfa Belgla Danmörk Þýskaland Frakkland Oanmörk ? Danmörk Þýskaland Frakkland ‘ Bratland Iriand italia Japan É Kanada ikaland Þýskaland Frakkland Bretland / iríand ftalia « Japan 1 Kanada l Frakkland Bretland Bretland engar Japan"® Kanada Holland 1 Noregur 1 Austurrikl enaar; Kartada Holland Norogur Auaturrfld Sviþjóð : Holland w Noregur Austurrikl i Sviþjóð 11, Sviaa f Noregur Austurríki i Svlþjóö Bk Svlaa Svlþjóð Sviss Eiturefnaúrj jangur [ [ tonnum á ári á 1C 1989 a.000 Ibúa ÞRENGINGAR FÉLAGSLEGRA TRYGGINGA Á SPÁNI Atvinnuleysi á Spáni, 16,3% 1991, reynir á þolrif félagslegra trygginga, annars vegar atvinnuleysisbóta og vinnumiðlunar, Inem, hins vegar heilsugæslu og sjúkratrygginga, In- salud. Árin 1988, 1989 og 1990 fór Inem (jafnvirði) 4 milljarða $ fram úr fjárveitingum sínum (og líklega enn um 2 milljarða $ 1992), en þau þrjú ár fór Insalud um 6 milljarða $ fram úr sínum. Vegur halli þeirra enn þyngra í spænskum ríkisbúskap en ella sakir þess, að Spánn býst til að ganga til fyrirhugaðs myntbanda- lags EBE, óðar og það verður á stofn sett á árunum 1997-1999 að forsögn Maastricht- samningsins. í því skyni þarf Spánn að uppfylla nokkur sett skilyrði: Að minnka halla á ríkisbú- skap niður í 3,0% vergrar landsfram- leiðslu og að halda opinberum skuldum innan við 60% hennar; að færa svo niður langtíma vexti, að verði ekki meira en 2% hærri en hinir lægstu í EBE- landi; að minnka svo verðbólgu að verði aðeins 1,5% meiri en í þeim þremur EBE-lönd- um þar sem hún er minnst; og að setja peseta inn í þrengri sveiflu- mörk Gangverks evrópskra gengja. Sósíalistaflokkur Spánar, sem með ríkisstjóm fer, hefúr sett fram „að- lögunar-áætlurí' fyrir Spán, sem verkalýðsfélög hafa gagnrýnt. En þrátt fyrir atvinnuleysið og óhag- stæðan greiðslujöfnuð 1991, sem nam 2,9% af vergri Iandsfram- leiðslu, varð 2,4% hagvöxtur á Spáni 1991 og aftur nokkur 1992, að talið er. EINFÖLDUNIN Öld einföldunar er gengin ( garð f umheiminum. Fólk er smám saman að taka upp beint samband hvert við ann- að og segir skilið við ýmsa milliliði og meðalgöngumenn. Bæði innan iands og sérstak- lega á millí ianda. Milliiiðir gamla tfmans axla nú skinnin og taka hatt sinn og staf. Gömlu heiidsalamir eru varta svipur hjá sjón og smásalar kaupa vömmar sjálftr beint frá framleiöanda I öðm landi. Nýjasta dæmiö um viðskipti af þessu tagi er ósk fisksala 1 Suöur-Þýskalandi um að kaupa framvegis fisk beint frá islenskum vinnsluhúsum með flugi. Þannig losna þeir við meðalgönjgu Hansakaup- manna f Hamborg og Bremer- haven og koma fiskinum betri og ódýrarí á borö viðskiptavina sinna. Bráðum stfga þýskir væntanlega skrefið ti! fuils og kaupa fiskinn beirrt frá sjálfum útgerðarmanninum á Islandi. Með þvi mótí losnar um stóm apparötin á borð við Sölusam- band Islenskra fiskframleið- enda og sjálfa Sölumiöstöö hraðfrystihúsanna. Gamlir valdsherrar í fisksötu á íslandi munu þvi smám saman þokast út af viöskiptakortínu og safn- ast til feðra sinna. Enda em þeir ekki f takt við kröfur nýja tímans, frekar en Þjóðabanda- lagið sáluga, Efnahagssvæði Evrópu og selstöðuverslun Dana f Hafnarfirði. Afturhvarfið til einfaldleikans er ekki bara bundið við fisk- sölu á milli landa. Sfður en svo. Þess gætir vfða I þjóðllf- inu á Islandi og virðulegir heildsalar iandsins mega muna sinn flfil fegurri. Hver smásalan á fætur annarri kaupir nú sinar eigin vömr beint frá öðrum löndum og al- þýða manna pantar vaming I gegnum útíenda vörulista eða sækir hann allar götur tíl Edin- borgar fýrirjólin. Beint jarðsamband er þvl að komast á v(ða (þjóðfélaginu og við önnur lönd um sæ- streng. Hillir undir það á fleili betri bæjum, sem hingaö til hafa staðið afslðis og fjarri al- faraleið. Þó er eitt höfuðbólið islenskt, sem stöðugt stendur utan við einföldun af þessu tagi. Það em sjálf stjómmálin f landinu. Þar rfkir áfram gamla lénsskipulagið úr Grimmsæv- intýrum og ekki von á breyting- um. Pólitíkin er ennþá bundin f viðjar gömlu stjómmálaflokk- anna og ekki bara á (slandi, heldur um alian heim. (slenskir kjósendur hafa þvi áratugum saman orðið að leggja lykkju á leið sfna tíl að hitta stjómmála- menn landsins. Þeir hafa orðið að nálgast þá fýrlr meðal- göngu stjómmálaflokkanna. Þessi tilhögun hefur lagt stein i götu framþróunar hér á landi og er mái að linni. Hagur almennings og hags- munir stjórnmálaflokka fara sjaldan saman. Sárafáir menn ráða feröinni f hverjum flokki og þv( fara hagsmunir flokks og forystumanna hans oftar saman en ekki. Áhrif kjósand- ans ná yfirleitt aldrei lengra en að hagsmunum flokkseigand- ans. Þvi miður. Á næsta föstu- dag er best að fjalla um stærsta farartálmann I Is- lensku þjóðlifi: stjómmálaflokk- inn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.