Tíminn - 12.02.1993, Side 8

Tíminn - 12.02.1993, Side 8
8 Tfminn Föstudagur 12. febrúar 1993 Falleg bók um norðlenska gæðinga, fólkið og býlin sem að þeim standa: Hestar í norðri Hver var Gunnar? Enginn þekkir hann, en Gunnar á Hlíðarenda þekkja allir. Hver var Jónas? Hann þekkir auðvitað enginn, en Jónas frá Hriflu þekkja allir. Sama gildir um hestana. Hver er Hrafn? Þekk- ir hann nokkur? Hrafn frá Holts- múla þekkja allir. Hver var Ófeig- ur? Hvaða Ófeigur? Ófeig frá Fiugumýri þekkja allir. Hestar eru mikið kenndir við bæ- ina, þaðan sem þeir eru upprunnir. Þess vegna er sérstaklega ánægju- legt að út er komin bók, þar sem fjallað er um þekktustu hrossabýl- in í Skagafirði og í Húnaþingi. Sér- staklega er ánægjulegt að bókin fæst einnig á ensku og þýsku, en margir útlendingar, sem eiga ís- lenska hesta, þekkja þá af bæjar- nafninu og gefst nú tækifæri tii þess að kynnast örlítið heimkynn- um gæðingsins síns og hvar hann ólst upp. Frágangur bókarinnar er allur til fyrirmyndar, hún er 255 blaðsíður og prýdd fjölda mynda á góðan pappír. Ristjórar voru Gísli Pálsson og Ingimar Ingimarsson, en Prent- vinnsla POB á Akureyri prentaði. Aftast í bókinni er mjög þörf hesta- nafnaskrá og mannanafnaskrá en fremst er kort yfir svæðið og er fylgt áttinni frá Hrútafirði í efnis- öfluninni. Bókaútgáfan á Hofi gaf út. HESTAR I NORÐRI HROSSABÚ OG RÆKTENDUR í SKAGAFIRÐi OG HÚNAÞINGI Frægir menn koma við sögu norðlensku ræktunarbýlanna. Hér fer Páll á Höllustöðum mikinn á Gleði sinni. Umsjón: Guðlaugur Tryggvi Karlsson ■ Reiðhöllin er stórt og glæsilegt hús og örstutt í aðra aðstöðu, þar sem hún gnæfir yfir Hvammsvellinum REIÐHALLARMALIÐ ER ENNÞÁ ÓLEYST Reiðhallarmálið er óleyst enn, þrátt fyrir að ýmsir góðir menn séu farnir að sýna því áhuga og áhugi á farsælli lausn sé fyrir hendi á æðstu stöðum. Að sögn Leifs Jóhannessonar leysti Stofnlánadeild landbúnaðarins, Búnaðarbanki íslands og Fram- leiðnisjóður landbúnaðarins bygginguna til sín á sínum tíma. Brunabótamat hússins er kr. 240 milljónir, en húsið væri falt fyrir kr. 100 milljónir. Áhersla hefur verið lögð á að Borg- arsjóður keypti húsið fyrir íþrótta- deild Fáks, eins og hann skaffar öðrum íþróttafélögum aðstöðu. Samkvæmt reglunum þurfa íþróttafélögin að koma með 20 % mótframlag, en Fákur hefur ekki séð sér það fært. Einnig er málið ekki frágengið af hálfu borgarinn- ar. Verð hafa líka heyrst niður í kr. 70 - 80 milljónir og að sögn sr. Halldórs Gunnarssonar í Holti, þá hafa Hrossabændur hug á að að- stoð Fák ef til kæmi. Borgin myndi þá samþykkja skuldabréf til tíu ára fyrir sínum hlut eða greiða hann út, en hlutur Fáks kæmi til greiðslu eftir tíu ár og vaxtalaust. Þrátt fyrir að nú mætist stálin stinn í fjármálum reiðhallarinnar og engin starfsemi sé í húsinu, hafa góðir menn í stjóm þess ljáð máls á því að leigja það undir vissa starfsemi hestamanna. Þannig er talað um sýningar hestaíþrótta- sambandsins í húsinu 21. mars nk. og norðanmenn verða með sýn- ingar um páskana. Þá eru sunn- lenskir dagar á prjónunum og hestadagar hjá Fáki. í byrjun maí er jafnvel rætt um sýningar á stóð- hestum. Að sögn kunnugra er leikur enn að reka reiðhöllina skammlaust, ef hugsa má Iengur en til nokkurra daga í senn. Byggja þarf sextíu hesta hesthús við höllina ásamt hlöðu, en nú er komið gólf á efri hæð, sem gerir hana miklu skemmtilegri til veitinga- og sam- komuhalds. Reiðkennslan yrði yfir- gnæfandi fyrri hluta vetrar, en þá hæfust sýningar, og jafnvel einnig á sumrin, af ýmsum toga. Skólamir og æskulýðsstarfsemi borgarinnar yrðu og þama inni og síðan má hugsa sér hvers konar uppákomur aðrar, bæði á menningar- og skemmtanasviðinu. Ýmsir öflugir einstaklingar í hestamennskunni hafa séð þennan möguleika og hafa verið orðaðir við kaup á höllinni. Fyrstan má þar frægan telja Sigur- bjöm Bárðarson, sem þá myndi selja í C - tröðinni og flytja sig í breiðari byggðir Víðidalsins. Margir hestamenn vilja draga Vegagerð ríkisins fyrir dómstóla fyrir, m.a. að hafa hleypt bílum á þúsund ára gamla reiðvegi: Vegafrumvarp á villigötum? Gífurlegur urgur er nú í hestamönn- um um land allt vegna frumvarps til vegalaga, sem Bggur fyrir hinu háa Alþingi. Þar er reiðleiðunum, sem þjóðin hefúr ferðast á um landið í þúsund ár, og gert landið byggilegt, skikkað í flokk með vegum að eyði- býlum og sumarbústöðum. Síðan segir orðrétt í frumvarpinu: .Jæir aðilar sem sækja um og veitt er fé til framkvæmda samkvæmt þessari grein, skulu annast veghald viðkom- andi vegar.“ Af sjö milljarða kr. fiár- veitingu til vegagerðar er aumum sex milljónum varið til reiðveganna. Það er svona sæmileg ýta í hálfan mánuð, ef það hverfúr þá ekki alveg við það að koma henni á staðinn. Ekki þarf að fjölyrða um það að með tilkomu bflsins til landsins og vega- lagningu fyrir hann voru þúsundir kflómetra af reiðvegum eyðilagðir. Þetta hefur gerst gersamlega bóta- laust og haía hestamenn mátt trítla upp á vegaruðningum og moldar- haugum með gæðinga sína, sem stundum enda í samanleiddum skurðum og er þá ekki annað eftir en að stinga sér til sunds í drullupyttinn. Með tilkomu hraðbrautaáætlunar, hefur þetta enn versnað. Þannig er vegur úr Norðurárdal í Skagfirði yfir Öxnadalsheiðina ekki með einn ein- asta möguleika fyrir hestamenn. Gömlu vegimir þvergirtir og þegar fjársafniö kemur td. ofen af Öxna- dalsheiði á haustin, er í engin hom að venda með blessaðar skepnumar nema á hraðbrautina og malbikið, þar sem fyrir eru bflar á hundrað km hraða. Bændur í Fremra - Koti, Silfrastöðum, Uppsölum og Úlfsstöð- um, em því í bráðri lífehættu við störf sía Hestamenn sem leyfa sér að ríða á Selfoss verða að fara sjö sinnum yf- ir hraðbrautina og hringveginn til að komast ferða sinna og þeir sem þekkja til í Kömbum og í Ölfúsinu gera sér fúlla grein fyrir því, að þeir eru íbráðri lífshættu. Þúsundir útlendinga koma nú ár hvert til landsins til þess að ríða út og borga hér offjár fyrir, - allt í gjaldeyri. Það er undarleg gestrisni að steypa öllu þessu fólki fyrir ofsaakstur bfla á hraðbrautum, og í rauninni anda menn léttar á hveiju hausti að ekki skuliverðastórslys. „ Nu gaar det for vidt „segja margir hestamenn og vilja að samtök þeirra dragi Vegagerðina fyrir dóm vegna stórfefldrar eignaupptöku reiðvega án nokkurs tillits til þeirra sem veg- ina hafa notað frá því að land byggð- isL Ríkið myndi umsvifalaust bæta kartöflugarð að fúllu, ef þar þyrfti að leggja veg en þjóðbrautir hesta- manna með ólgandi mannlíf í þús- und ár, mega liggja óbættar hjá garði. Sérstökum gestum þjóðarinnar, sem hér borga milljarða fyrir útreiðar í landinu fræga í norðri, er svo att út í rússneska rúllettu við hraðakstur bfla á malbikinu. Öllum er Ijóst, að umferð ríðandi manna og akandi, fer ekki saman. Þúsunda kílómetra reiöleiðir voru eyðilagðar meö bíl- vegum. Margir hestamenn vilja leita til dómstólanna með þessi mál, þar sem frumvarp til vegalaga sniðgengur þá gersamlega.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.