Tíminn - 12.02.1993, Side 9

Tíminn - 12.02.1993, Side 9
Föstudagur 12. febrúar 1993 Tíminn 9 DAGBÓK 70 ára afmæli Gestur Guðmundsson, Hamraborg 22, er sjötugur í dag, 12. febrúar. Hann er nú á írlandi. Heimilisfang hans þar en 37 Kybbe Holmpafreok Skerris, c/o Dublin, Ireland. Húnvetningafélagið Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð, Skeifúnni 17. Verðlaun, veitingar. Allir velkomnir. Félag eldri borgara í Reykjavík Gönguhrólfar fara frá Risinu kl. 10 á laugardagsmorgni. Lögfræðingur félags- ins er til viðtals á þriðjudag. Panta þarf viðtal í sfma 28812. Frá Hana nú í Kópavogi Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Fannborg 4 kl. 10. Nýlagað molakaffi. Sýning á Kjarvalsstöðum: „Hvað náttúran gefur" Laugardaginn 13. febrúar opnar að Kjarvalsstöðum farandsýningin „Hvað náttúran gefur". Sýningin að Kjarvalsstöðum er síðasti viðkomustaður hennar, en hún hefur verið á ferðinni um öll Norðurlöndin frá því í ágúst 1991. Á sýningunni gefur að lfta verk eftir 10 norræna listamenn, tvo frá hverju Norðurlandanna. Af íslands hálfú eru það myndlistarmennimir Jó- hann Eyfells og Gunnar öm sem eiga verk á sýningunni. Hún er unnin í sam- vinnu 5 listasafna og Norrænu bænda- samtakanna. í sýningarskrá segir m.a.: „Samkvæmt hinni margræðu yfírskrift sýningarinnar „Hvað náttúran gefúr" hafa hinir fimm meðlimir sýningamefndarinnar — einn frá hverju landi - - valið tvo listamenn, sem sýna náttúruna og afurðir hennar á svo umhugsunarverðan og aðlaðandi hátt, að við gemm okkur ljóst ómetan- legt gildi þeirra — fyrir okkur og fram- tíðina." Frá Danmörku koma myndlistarmenn- imir Annette Holdesen og John Olsen. Frá Finnlandi Kain Tápper og Jukka MSkelS. Frá Noregi BSrd Breivik og Kjell Nupen og frá Svíþjóð Laris Strunke og Hans Wigert Sýningin að Kjarvalsstöðum er opin daglega frá kl. 10 til kl. 18 og stendur til 7. mars. Röskva 5 ára í dag, föstudaginn 12. febrúar, eru liðin fimm ár síðan vinstrimenn, umbótasinn- ar og annað félagshyggjufólk meðal há- skólastúdenta sameinaðist og stofnaði Röskvu, samtök félagshyggjufólks í Há- skóla fslands. Félagið er fyrsta aflið þar sem vinstra- og miðjufólk sameinar krafta sína. Til að minnast afmælisins verður margt gert og Röskvufélagar munu gera sér glaðan dag. Núna í kvöld munu nýir og gamlir félagar hittast á Hótel Borg og rifja upp súr töp, sæta sigra og annað sem tengist sögu félagsins. Að borðhaldi loknu verður háskólastúdentum boðið til sérstaks afmælisdansleiks. Nánari upplýsingarveitæ Þómnn Sveinbjamardóttir, fyrsti for- maður Röskvu 1988-1989, vs. 13725, hs. 616033. Steinunn V. Óskarsdóttir, fyrsti Stúd- entaráðsformaður Röskvu 1991-1992, vs. 27430, hs. 32823. BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNItí ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar ÍMBERA VANTaT) Steinasel - Þrándarsel Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9 tii 17 Hann ættleiddi Elizabeth Taylor! Sennilega hafa fáir verið meira milli tannanna hjá al- menningi, og það jafnt til frægðar og ófrægðar, og Eliza- beth Taylor. Það er víst að konan sú hefur víða látið til sín taka og reyndar víðar en frést hefur af. Ungur Mexíkani, Sergio Tol- edano, sem einmitt er að vinna sér frægð sem ljós- myndari, á Elizabeth Taylor og Richard Burton mikið að þakka. Hann kynntist þeim fyrst 10 ára gamall í heimabæ sínum, Puerto Vallarta í Mexí- kó, nýbúinn að missa pabba sinn og mömmu í bflslysi og bjó hjá efnuðum frænda sín- um. Elizabeth tók hann óðar undir sinn vemdarvæng, þeg- ar henni var sagt hvað dreng- urinn væri niðurbrotinn og Iangaði til að eignast aðra mömmu. Hann hafði enga hugmynd um að hún væri ein skærasta stjarna kvikmynd- anna. Einn góðan veðurdag sá hann himinháa auglýsingu um mynd hennar „Reflections in a Golden Eye“ og segist þá hafa ákveðið að hún yrði nýja mamman hans, hann ætlaði að ættleiða hana! Skömmu seinna bað Eliza- beth frænda Sergios um leyfi til að taka strákinn með í Englandsferð og þar hófst æv- intýrið fyrir alvöru. Richard tók stráksa með til klæðskera á Savile Row svo að hann ætti föt við hæfi Dorchester- hót- elsins þar sem þau bjuggu, og tæki sig vel út fyrir ljósmynd- urunum sem voru á hverju strái. Richard Burton var þol- inmóður að kenna pilti rétta framkomu og góða siði. Sergio stundaði nám með börnum Elizabeth og í ljós kom að hann var góðum gáf- um gæddur. Hún sendi hann á góða heimavistarskóla í Sviss og síðar listaháskóla í Frakklandi og Ameríku. Skólafrí og sumarleyfi átti Sergio með fjölskyldunni. Þetta var lífsmynstrið þar til þau frægu hjón skildu. Þá fluttist Sergio aftur til frænda síns. En fríunum hélt hann áfram að eyða hjá Elizabeth og fjölskyldunni. Nú er litli, munaðarlausi, mexíkanski strákurinn, sem Elizabeth tók upp á arma sína fyrir rúmlega tuttugu árum, orðinn fulltíða maður og á þröskuldi frægðarinnar sem ljósmyndari. Hann heldur góðu og nánu sambandi við Elizabeth Táylor og saknar Ri- chards Burton. Hann er þeim eilíflega þakklátur fyrir tæki- færin sem þau gáfu honum í lífinu. Elizabeth sá m.a.s. um að strákurinn yrði fermdur. Sergio heldur enn nánu sam- bandi viö hana og fjölskyldu hennar. Sergio Toledano hafði misst foreldra sína þegar hann kynntist El- izabeth og Richard Burton. Þau kynni breyttu lífi hans. tSZetvt

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.