Tíminn - 12.02.1993, Síða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskríftarsími
Tímans er
686300
NÝTT OG ^9^
FERSKT m
DAGLEGA QO
OQ
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
/ HOGG-
> DEYFAR
erslið hiá fagmönnum
IU
varahluti
HamarshöfAa 1 - s. 67-67-44
ium
Illlll 1111
FÖSTUDAGUR 12. FEBRUAR 1993
Sjómannasambandið hefur kynnt LÍÚ kröfugerð sína. Samningafundir hefjast á næstunni:
Sjómenn hýmdregn-
ir af Félagsdómi
Sjómannasambandið hefur kynnt
LÍÚ kröfugerð sína sem er í fjórum
liðum og búist er við að boðað
verði til fyrsta eiginlega samninga-
fundarins á næstunni. Þá hefur
Félagsdómur dæmt í máli sjó-
manna gegn VSÍ og varð niður-
staðan sú að sjómenn fá 2500
krónur í orlofs- og desemberupp-
bót en ekki 20 þúsund krónur eins
og aðrir launamenn, samkvæmt
miðlunartillögu sáttasemjara frá
því í vor.
Fyrir skömmu kynnti Sjómanna-
sambandið kröfugerð sína fyrir
Landssambandi íslenskra útvegs-
manna og er kröfugerðin í fjórum
liðum. Þar ber einna hæst að sjó-
menn vilja ræða fiskverð við út-
vegsmenn sem er frjálst í orði
kveðnu en ýmis áhöld eru um það í
verki af hálfu útgerðarmanna og þá
einkum þeirra útgerða sem jafn-
framt reka fiskvinnslu og öfugt.
Einnig vilja sjómenn ræða um olíu-
verðsviðmiðunina en eins og kunn-
ugt er þá taka sjómenn þátt í olíu-
kostnaði útgerðar og greiða einnig í
svokallaðan stofnfjársjóð. Þá fara
sjómenn fram á sérsamninga um
veiðar á ýmsum fisktegundum sem
ekki hefur verið samið um og síðast
en ekki síst vilja sjómenn gera ýms-
ar orðalagsbreytingar m.a. til að
skerpa framsetningu kjarasamn-
ings sem jafnframt mundi stuðla að
fækkun deilumála sem upp koma
vegna mismundandi túlkunar á
ákvæðum hans.
Hólmgeir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannasambandsins, segir
að auðvitað séu sjómenn óhressir
með niðurstöðu Félagsdóms. En
þar sem hvorki er hægt að deila við
dóminn né áfrýja niðurstöðu hans,
mun málið verða tekið upp við út-
vegsmenn við samningaborðið.
Þá eiga sjómenn ýmislegt vantalað
við útvegsmenn varðandi fram-
kvæmd fiskverðs sem er frjálsL
„Við höfum dæmi um útgerð sem
jafnframt rekur fiskvinnslu, sem í
upphafi síðustu vertíðar tilkynnti
ákveðið fiskverð. Svo þegar upp var
staðið þá var gert upp á öðru verði
sem tilkynnt var einhliða af hálfu
útgerðarinnar f lok vertíðar og
ástæðan var að í millitíðinni hafði
orðið verðlækkun á afurðum."
Hólmgeir segir að svona fram-
koma sé óþolandi og þetta sé ekki
frjálst fiskverð í reynd.
grh
Ragnar Aðalsteinsson hri. afhendir Þorsteini Pálssyni dómsmálaráðherra eintak af Alþjóðlegum
mannréttindasáttmálum, fyrir hönd Málflutningsskrifstofunnar. Skrifstofan réðst í að gefa út alla
helstu alþjóölegu mannréttindasáttmálana þar sem þeir hafa veríð óaðgengilegir og fræðsla um
þá af skomum skammti. Ætlunin er að gefa 700 eintök til skóla og 300 til stofnana.
Þota, sem vopnaður maður
rændi í gær í Austurríki, flaug
inn á íslenskt flugumferðar-
svæði í gær og var næst landinu
um 160 mflur suðvestur af
KeykjanesL
Þotan er f eigu þýska flugfé-
lagsins Lufthansa og flutti 94
farþega. Henni var rænt í Aust-
urríki af fluvélaræningja vopn-
uðum skammbyssu sem hann
miðaði á höfuð flugsfjórans.
Þotan kom héðan frá Hannover
í Þýskalandi og var förínní heit-
ið til New Yoríc og var áætlað að
lenda þar um kl. 21;00 í gær-
kvöldi. -HÞ
Guðrún Zoéga, formaður
Kjaranefndar:
Fullskipað
í Kjaradóm
Fjármálaráðherra skipaði ný-
lega í Kjaradóm til næstu fjög-
urra ára. Jafnframt skipaði sá
hinn sami Guðrúnu Zoega verk-
fræðing sem formann þríggja
manna kjaranefndar. Hina tvo
tilnefnir Kjaradómur.
Aðalmenn í Kjaradómi eru þau
Þorsteinn Júlíusson hrl. og Hólm-
fríður Árnadóttir, tilnefnd af Hæsta-
rétti, Magnús Oskarssson borgar-
lögmaður og Jón Sveinsson hdl.,
kostnir af Alþingi og Guðrún Zoéga
verkfræðingur, tilnefnd af fjármála-
ráðherra.
Varamenn í Kjaradómi eru þau
Garðar Garðarsson hdl., Hulda
Kristinsdóttir viðskiptafræðingur,
Óttar Yngvason hrl., Þuríður Jóns-
dóttir hdl. og Othar Örn Petersen
hrl.. -grh
...ERLENDAR FRÉTTIR...
BELGRAD
Ákvörðun Bandaríkja-
manna fagnað
Striöandi aöilar i fyrrum Júgóslaviu
fögnuöu yfideitt i gær ákvöröun Banda-
rlkjamanna um aö taka þátt i tilraunum
til aö koma á fríöi i Bosniu eftir pólitisk-
um leiöum. En skothriöinni linnti ekki á
vigstöövunum. I BRUSSEL sagöi hinn
nýi sérstaki sendimaöur Bandarfkjanna
varöandi Bosnfu, Reginald Barthol-
omew, aö hann myndi leita aöstoöar
Rússa viö aö reyna aö koma á fríöi f
fymjm Júgóslavfu. Hann sagöi líka aö
NATO heföi hlutverki aö gegna viö aö
framfylgja sérhveni þeirri lausn sem
kynni aó finnast. I SARAJEVO særöust
fjórir franskir hemnenn þegar sprengi-
kúla lenti beint á brynvöröum dreka
þeirra viö flugvöllinn.
MOSKVA
Jeltsín í valdabaráttu
Bóris Jeltsin Rússlandsforseti sagöi i
gær aö valdabarátta milli forsetaemb-
ættisins og þingsins gæti sundraö
Rússiandi. Þegar hann bjó sig undir
lokauppgjör viö aöalkeppinaut sinn á
stjómmálasviöinu, Ruslan Khasbulatov
þingforseta, sagöi Jeltsin aö þaö yröi aö
skera úr um hvar völdin lægju, annaö
hvort meö þjóöaratkvæöagreiöslu eöa
samkomulagi.
HANOVER, Þýskalandi
Lufthansa-flugvél rænt
Þýsk áætlunarflugvél, sem vopnaður
ræningi, aö þvi er virtist einn aö verki,
haföi á valdi sinu, fiaug i gær frá Hano-
ver til New York, aö þvi haft var eftir
embættismönnum. Flugvéiin, frá Luft-
hansa, er meö 94 farþega og 10 manna
áhöfn um borö. Hún var neydd til aö
taka eldsneyti I Hanover en kom frá
Frankfurt i áætlunarflugi til Addis Ababa
um Kairó.
KABÚL
Stjórnarher í sókn
Hermenn afgönsku stjómarinnar
hrundu i gær af staö sókn gegn skæru-
liöauppreisnarmönnum meö bækistööv-
ar I vesturhluta Kabúl og margir tugir
óbreyttra borgara særöust I áköfum
skotbardaga meö eldflaugum og fall-
byssum.
DETROIT
GM tapar mestu stór-
fyrirtækja
Talsmenn General Motors tilkynntu i
gær aö fyrirtækiö heföi tapaö alls 23,5
milljöröum dollara á árinu 1992, en þaö
er mesta tap stórfyrirtækis fyrr og síöar.
PHNOM PENH
Mitterrand hvetur til
friðar
Francois Mitterrand Frakklandsforseti
hvatti fylkingar f Kambódíu til aö glata
ekki tækifærinu til aö ná friöi og aö viröa
skilmála samningsins sem fulltrúar
þeirra undirrituöu f Frakklandi fyrir meira
en ári.
TEHERAN
Byltingarafmæli
Iranir minntust fjórtán ára afmælis bylt-
ingarinnar I gær. Þeir lýstu þvl yfir aö is-
lamska lýöveldiö væri komiö til aö vera
og hvöttu þjóöir heims til aö breyta
tjandsamlegri afstööu sinni til þess.
NÝJA DELHI
Hindúar virða ekki
fundarbann
Hinn þjóöemissinnaöi flokkur Hindúa i
Indlandi, Bharatiya Janata Party (BJP),
lýsti yfir i gær aö hann myndi virða aö
vettugi bann viö fjöldasamkomum i höf-
uöborginni. Rikisstjómin óttast aö yflr-
lýsingin geti hrundiö af staö nýjum trúar-
bragöaátökum.
KÚALALÚMPUR
Soldánar samþykkja
réttindaskeröingu
Soldánamir nlu sem hafa æðstu völd I
Malasiu skv. erföarétti féllust I gær á til-
lögur ríkisstjómarinnar um aö skeröa
réttindi þeirra. Þar meö var endi bund-
inn á deilu sem virtist geta hrínt af staö
stjómskipulagskreppu.
DENNI DÆMALAUSI
© NAS/Distr. BUUS
„Þú ert besti vinur minn, Wilsona. Og Margrét er versti
vinurminn.“