Tíminn - 02.03.1993, Qupperneq 4
r
10 Tíminn
Þriðjudagur 2. mars 1993
England
Úrvalsdeildin
Aston Villa-Wirabledon.........1-0
Crystal Palace-Coventry........0-0
Everton-OIdham.................2-2
Leeds-Ipswich..................1-0
Manchester Utd-Middlesbro......3-0
Nottingham Forest-Man. City....0-2
Sheffield Wed.-Liverpool.......1-1
Southampton-Sheffield Utd......3-2
Tottenham-QPR..................3-2
Norwich-Blackbum...............0-0
Staöan í úrvalsdeild
Aston Villa...31 17 8 6 48-31 59
Man. Utd......3016 9 547-23 57
Norwich.......2916 6 7 42-42 52
Sheff. Wed....291210 740-33 46
Blackbum______2912 9 8 42-30 45
QPR............30 12 810 41-36 44
Ipswich .......30 10 44 6 37-33 44
Tottenham.....3012 810 39-4144
Man. City.....3012 71143-34 43
Coventry......3011 10 9 44-40 43
Arsenal.......2811 61126-25 39
Southampton... 31 10 9 12 38-39 39
Leeds.........31 10 912 41-45 39
Chelsea.......30 9101132-3837
Liverpool.....29 9 91139-40 36
Wimbledon.....39 9 912 35-3736
Cr.Palace.....30 81012 36-46 34
Everton.......30 9 615 33-4133
Nott. Forest..29 8 714 29-38 31
Sheff.Utd.....30 8 715 31-4131
Middlesbro....30 7 914 37-52 30
Oldham........30 7 716 40-55 28
Markahæstu menn
Alan Shearer (Blackbum)....22 mörk
lan Wright (Arsenal)......22 mörk
Teddy Sheringh. (Tott.ham) .22 mörk
Mick Quinn (Coventry).......19 mörk
Craig Hignett (Middlesb)..18 mörk
Dean Saunders (Aston V.)..17 mörk
David White (Man. City).......17 mörk
Lee Chapman (Leeds)...........16 mörk
Chris Kiwomaya (Ipswich) ...15 mörk
Mark Bright (Sheff. Wed.) ....15 mörk
Brian Deane (Sheff. Utd) .15 mörk
1. deild
Brentford-Peterborough........0-1
Bristol Rovers-Watford........0-3
Cambridge-Millwall............1-1
Charlton-Bristol City.........2-1
Grimsby-Notts County..........3-3
Luton-Bamsley.................2-2
Oxford-Derby..................0-1
Sunderland-West Ham...........0-0
Swindon-Portsmouth............1-0
Wolverhampton-Southend........1-1
Leicester-Birmingham..........2-1
TVanmere-Newcastle............0-2
Staðan í 1. deild
Newcastle ..32 20 7 5 54-26 67
West Ham ...32 17 9 6 56-29 60
Millwall ...321411 753-35 53
Swindon ...31 15 8 8 52-4153
Portsmouth ... ...32 14 9 9 54-38 51
Tranmere .. 30 14 610 50-40 48
Grimsby ...3114 6 11 47-41 48
Leicester ..31 13 71142-40 46
Derby ...31 13 5 13 50-41 44
Wolverht ...3211 11 10 43-39 44
Charlton ..32 11 11 10 37-32 44
Watford ...32 11 9 12 49-55 42
Peterborough ...30 11 81140-44 41
Bamsley ...3111 7 13 40-37 40
Oxford ...31 9 12 10 41-38 39
Sunderland .... ...30 10 8 12 31-39 38
Brentford ...32 10 7 15 39-46 37
Cambridge ...31 811 12 35-49 35
Luton ...31 714 10 33-47 35
Bristol City .... ...31 8 914 35-55 33
Notts County.. ...31 711 13 38-52 32
South ...31 7 10 14 34-39 31
Bristol Rovers ...32 8 6 18 38-63 30
Birmingham .. ...31 7 8 16 28-53 29
Markahæstu menn
Guy Wittinham (Portsm.) ....35 mörk
John Altridge (Tranmere).24 mörk
Gary Blissett (Brentford)...23 mark
Paul Kitson (Derby)....20 mörk
Paul Furlong (Watford)......20 mörk
Craig Maskell (Swindon)..19 mörk
Skotland
Úrvalsdeildin
Dundee Utd.-Dundee.........1-0
Falkirk-Celtic ............0-3
Hibemian-Airdrie...........3-1
Motherwell-St Johnstone....1-1
Clasgow Rangers-Hearts.....2-1
Staðan
Rangers.......31 24 6 1 70-24 54
Aberdeen......30 18 7 5 64-22 43
Celtic........321511 6 49-3141
Hearts........32 1311 8 35-29 37
Dundee Utd....32 13 81134-33 34
Hibemian......32 9 11 12 40-45 29
St Johnstone ....32 8 11 13 37-51 27
Dundee ........32 9 815 39-50 26
Partick.......31 8 9 14 35-53 25
Motherwell ...32 71015 34-50 24
Airdrie.......32 4 1216 23-50 20
Falkirk.......32 8 4 20 44-72 20
ítalska knattspyrnan:
„Gazza“ rekinn útaf
Það hefur gengið á ýmsu hjá Paul
Gascoigne á fyrsta keppnistímabili
hans hjá ítalska félaginu Lazio, og
ekki batnaði ástandið á sunnudag
þegar Lazio heimsótti Genúa heim.
Gascoigne var rekinn af leikvelli,
þegar um 20 mínútur voru til leiks-
loka, fyrir meinta árás á Mario
Bortolazzi, leikmann Genúa.
Eftir ieikinn sagði Dino Zoff, þjálf-
ari Lazio, að Gascoigne hefði ekki
gert neitt illt „Hann sparkaði ekki í
leikmanninn. Þeir ýttu hvor í annan
og Gascoigne sneri hann niður.
Þetta var ekkert óvenjulegt," sagði
Dino Zoff. Þetta atvik og afleiðingar
þess breyttu því þó ekki að Lazio
vann góðan sigur, 3-2, á Genúa. Ge-
núa komst yfir á 23. mínútu með
marki Michele Padovano og mínútu
síðar gerði Tomas Skuhravy annað
mark Genúa. Tveimur mínútum
síðar minnkaði Þjóðverjinn Karl-
Heinz Riedle muninn fyrir Lazio.
Markakóngurinn á Ítalíu, Giuseppe
Signori, jafnaði metin á 69. mínútu,
en Karl-Heinz Riedle gerði sigur-
markið, þegar fimm mínútur voru
til leiksloka, og sáu 23 þúsund
manns heimaliðið tapa gegn Lazio.
AC Milan-liðið átti stórleik um
helgina frammi fyrir 75 þúsund
manns á San Siro-leikvanginum í
Mflanó. Jean-Pierre Papin átti enn
einn stórleikinn fyrir Mflanó-liðið,
þegar Sampdoria var lagt að velli 4-
0. Milan hefur ekki tapað í 56 leikj-
um í röð og slær nú met í hverjum
leik. Þeir Papin og dýrasti leikmaður
heims, Gianluigi Lentini, skiptu
mörkunum á milli sín. Lentini skor-
aði eftir aðeins sjö mínútur og Pap-
in bætti öðru marki við 20 mínútum
síðar. Lentini gerði þriðja mark
leiksins á 70. mínútu og Papin full-
komnaði daginn hjá Milan með
marki á síðustu mínútu leiksins.
Á meðan AC Milan var að rúlla upp
Sampdoria, hikstaði Inter Milan-
liðið enn einu sinni. Þeir mættu Fi-
orentina, en gengi þess liðs hefur
verið afleitt upp á síðkastið, sem
breytti þó ekki því að Inter tapaði
mikilvægu stigi og skilja orðið tíu
stig Milanó-liðin tvö að á toppnum.
Leikmenn Fiorentina gerðu reyndar
ekki nema annað marka sinna, því
þegar þrjár mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma skor-
aði Antonio Paganini hjá Inter
sjálfsmark og þar með glataðist ann-
að tveggja stiga, sem í boði voru.
Gabriel Omar Batistuta kom Fior-
entina yfir á 7. mínútu, en Ruben
Sosa svaraði tvívegis fyrir Inter, sem
dugði þó ekki til sigurs, eins og áður
sagði. 36 þúsund manns sáu Ieik lið-
anna.
Það voru hins vegar 40 þúsund
manns sem sáu leiðinlegan leik í
Napólí, þar sem heimamenn tóku á
móti Áncona í hálfgerðum botnslag
í deildinni, en leikurinn endaði með
stóru núlli.
Nú brá svo við að Roma hrökk f
gang, þegar þeir tóku á móti Juvent-
us á Olympíuleikvanginum í Róm.
Það voru þó gestimir sem byrjuðu
betur og skoraði Roberto
Baggio á 28. mínútu. Gius-
eppe Gannini jafnaði metin •
á 56. mínútu og Þjóðverjinn
Thomas Hassler tryggði
urinn á 71. mínútu
við mikil fagnaðar-
læti 62
þúsund
áhorfenda. Það voru aðeins 8 þús-
und manns sem mættu á heimavöll
Brescia, en liðið tók á móti Parma.
Það var leikmaður Parma, Lorenzo
Minotti, sem gerði eina mark leiks-
ins í sigri liðs síns.
Atalanta lá á útivelli gegn Cagliari.
Það var Massimiliano Cappioli, sem
gerði fyrra mark heimamanna á 34.
mínútu, og Barroso Oliveira gerði
annað markið á 69. mínútu, en
Carlo Perrone náði að minnka mun-
inn sjö mínútum fyrir leikslok.
Torino vann sigur á Pescara, 3-1.
Nova Auilera kom Torino yfír á
fimmtu mínútu leiksins og Gi-
anluca Sordo gerði annað markið á
19. mínútu. Salvator Nobile
minnkaði muninn þremur mínút-
um síðar, en Walter Casagrande
innsiglaði sigurinn í upphafi
síðari hálfleiks.
Udinese lagði Foggia að velli
og skoraði Stefano Desideri,
Ieikmaður Udinese, tvö mörk,
annað fyrir lið sitt og eitt
sjálfsmark. Það var Abel Balbo
sem gerði einnig tvö mörk, en bæði
í mark Foggia, en Igor Koy-
vanov gerði annað mark Fogg-
ia.
29 mörk litu dagsins ljós í
leikjum dagsins og lögðu um
297 þúsund manns leið sína á
völlinn á Ítalíu á sunnudag. Það
þýðir að að meðaltali
sáu um 33 þúsund
manns hvem leik
í ítölsku 1.
deildinni.
Enska knattspyrnan:
Dwight Yorke var hetja Aston Villa
Tvö efstu liðin í ensku Úrvalsdeild-
inni unnu bæði um helgina. Manc-
hester United vann stórsigur á Midd-
lesbro, sem er í næst neðsta sæti
deildarinnar, en Aston Villa átti í
megnustu vandræðum með Wim-
bledon. Þessi tvö Iið gera sig líkleg til
að stinga af á toppi deildarinnar og
virðist einvígi vera í uppsiglingu.
Það var Dwight Yorke sem tryggði
Aston Villa sigurinn á Wimbledon,
þegar skammt var til leiksloka, og
hefndu þeir þar með ófaranna í bikar-
keppninni, þegar Wimbledon Iagði
Villa. Það var leikið á snævi þöktum
Villa Park-vellinum og varð að fresta
leiknum um fimmtán mínútur vegna
þess hve 34 þúsund áhorfendum gekk
illa að komast á völlinn. Það var eins
og áður sagði Dwight Yorke sem
gerði sigurmarkið eftir að gamla
kempan Cyrille Regis hafði skallað
knöttinn til hans og kom markið á 79.
mínútu.
Leikmenn Manchester United fóru á
kostum á heimavelli sínum, er þeir
fengu Middlesbro í heimsókn. Leik-
menn United fengu urmul tækifæra
og það var aðeins fyrir frábæra mark-
vörslu Stephens Pears, sem áður var í
herbúðum Manchesterliðsins, að sig-
urinn var ekki stærri en 3-0. Það var
velski landsliðsmaðurinn Ryan Giggs,
sem fór á kostum í leiknum, sem
gerði fyrsta mark leiksins með ótrú-
legu skoti á 20. mínútu. Dennis Irwin
gerði annað markið beint úr auka-
spymu á 79. mínútu og Eric Cantona
innsiglaði sigurinn á 85. mínútu með
frábæru marki. Rúmlega 36 þúsund
manns sáu góðan leik United.
Englandsmeistarar Leeds unnu góð-
an sigur á Ipswich, sem hefur leikið
vel undanfarið, og sáu 29 þúsund
manns enska landsliðsbakvörðinn
Tony Dorigo gera sigurmarkið úr
vítaspymu. Teddy Sheringham virðist
vera óstöðvandi þessa dagana, Ieik-
maðurinn sem Þorvaldur Örlygsson
lýsti sem ómögulegum knattspymu-
manni á meðan Sheringham var hjá
ForesL gerði tvö mörk gegn Queens
Park Rangers á White Hart Lane í
Lundúnum í hörkuleik og er þetta
sjötti sigur Tottenham í röð. Shering-
ham hafði reyndar áður brennt af víti.
Sheringham gerði fyrsta markið á 8.
mínútu og bætti öðm við á 31. mín.
Darren Anderton bætti því þriðja við
á 59. mínútu, en þeir Darren Peacock,
á 86. mínútu, og Devon White, á 89.
mínútu, náðu að minnka muninn
fyrir QPR.
Það vakti athygli, þegar Liverpool
heimsótti Sheffield Wednesday, að
Ian Rush var ekki í leikmannahópn-
um. Graeme Souness neitaði að svara
spumingum um hvers vegna hann
hefði ákveðið að nota Rush ekki. Li-
verpool náði yfirhöndinni gegn Sheff.
Wednesday á 20. mínútu með marki
Hutchisons, eftir að hann hafði kom-
ist inn í sendingu ffá Nigel Worthing-
ton, sem var ætluð markverði Wed-
nesday. Ólukka Wednesday virtist
engan enda ætla að taka, þvf á 53.
mínútu varð fyrirliði liðsins, Peter
Shirtliff, að fara af leikvelli, hand-
leggsbrotinn. Það var hinn 36 ára
gamli „skápur", Viv Anderson, sem
náði hins vegar að jafha leikinn fyrir
Wednesday á 82. mínútu, 34 þúsund
áhorfendum í Sheffield til mikillar
ánægju. „Þetta er leikur sem við átt-
um að vinna. Við fengum fleiri færi í
dag en við höfum fengið í síðustu
Cómm leikjum samanlagt. Undir
þessum kringumstæðum er jafntefli
slæm úrslit,“ sagði Graeme Souness,
framkvæmdastjóri Liverpool.
Það gengur ekkert hjá Þorvaldi ör-
lygssyni og félögum í Nottingham
Forest og á laugardag lágu þeir gegn
Manchester City á heimavelli sínum.
Það voru þeir David Whyte á 19. mín-
útu og Flitcroft á 87. mínútu sem
gerðu mörk City, ffammi fyrir26 þús-
und áhorfendum í Nottingham.
Southampton vann góðan sigur á
Sheffield United á heimavelli sínum,
3-2. Það voru þeir Moore á 2. mfnútu,
Kenna á 5. mínútu og Iain Dowie á
40. mínútu, sem gerðu mörk Sout-
hampton. Þeir Gayle og Bryston
minnkuðu muninn fyrir Sheffield.
Crystal Palace og Coventiy gerðu
markalaust jafntefli f Iélegum leik á
Shelhurst Park og sáu aðeins um 12
þúsund manns leikinn. Coventry
virðist ekki ætla að halda út veturinn
frekar en fyrri keppnistímabil, en lið-
ið hefur oft byrjað vel og dalað síðan
þegar líða fer á tímabilið og það sama
virðist vera upp á teningnum nú.
Gamla kempan Peter Beardsley kom
Everton yfir úr víti á 20. mínútu gegn
botnliði Oldham og Stuart Barlow
gerði annað mark á 61. mínútu. Leik-
menn Oldham voru hins vegar ekki á
þeim buxunum að gefast upp og náði
Neil Adams að jafna leikinn með
tveimur mörkum með mínútu milli-
bili, þegar þrjár mínútur voru til
leiksloka, og tryggði Oldham eitt dýr-
mætt stig í fallbaráttunni.
Blackbum og Norwich gerðu
markalaust jafntefli á sunnudag að
viðstöddum 15 þúsund manns.