Tíminn - 24.03.1993, Qupperneq 2

Tíminn - 24.03.1993, Qupperneq 2
2 Tíminn Miðvikudagur 24. mars 1993 Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaður og bóndi, segir að landbúnaðurinn eigi að nýta sér þekkingu fiskútflytjenda til að selja matvæli: Fara fiskútflytjendur að flytja út búvörur? Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaður og bóndi, sagði á ráðstefnu sem EB hélt hér á landi um framtíð landbúnaðar í nýrri Evrópu, að íslend- ingar hljóti að fikra sig áfram með útflutning á hágæðabúvörum í samvinnu við íslensk fyrirtæki sem í dag selja fisk til útlanda. Hann sagði að við ætt- um að nýta okkur markaðsþekkingu fiskútflytjenda við að koma afurðum okkar á markað, afurðum sem framieiddar eru í hreinu og ómenguðu landi. „Það sem við kunnum best í mark- aðssetningu er að selja matvæli. Við hljótum því að fikra okkur áfram á þeirri braut og meðal annars með því að fara út í markaðssetningu á gæða- framleiðslu úr búvörum. Það er að vísu ekkert áhlaupaverk. Samkeppnin er hörð, meðal annars við alþjóðlega hringa í matvælaiðnaði. Mér finnst líklegt að á næstu árum verði leitað eftir frekari samvinnu við útflytjendur á fiski varðandi önnur matvæli. Þá er einnig líklegt að með meiri fullvinnslu getum við farið að selja vöru unna úr blönduðu hráefni, þ.e. bæði úr sjávarfangi og búvöru. Mér er reyndar kunnugt um að ein- staka fyrirtæki eru farin að þreifa fyrir sér með slíkt,“ sagði Jóhannes Geir. Jóhannes Geir ræddi einnig í erindi sínu um hvemig þeir alþjóðlegu samningar sem unnið er að um aukið frelsi í viðskiptum með búvörur, komi sér fyrir sjónir. „Samningamenn þjóð- ríkja og ríkjasamstæðna vinna að því á vettvangi umræðnanna að ná fram samningum um aukin viðskipti og niðurfellingu styrkja og hafa til þess ákveðið umboð að heiman. Síðan er fjöldi manns, bæði á vettvangi um- ræðnanna og heima fyrir, sem eru í fullri vinnu við að finna út hvemig viðkomandi þjóð geti vikið sér undan þeim ákvæðum sem verið er að semja um.“ Jóhannes Geir sagði þetta eiga sér eðlilegar orsakir. Landbúnaður gegni í flestum löndum mjög fjölbreyttu hlutverki í þjóðlífinu. Hann sagðist telja nauðsynlegt að í tengslum við þá samninga sem nú er unnið að, verði gerður samningur um þær skyldur sem búvöruframleiðslan hefur gagn- vart umhverfi sínu. Með öðrum orð- um að sjálfbær þróun í búvömfram- leiðslu fái markaðslegt gildi í þessum samningum. Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra sagði það skekkja samkeppnis- stöðu innlendrar búvöruframleiðslu að erlendar búvörur, sem verða hugs- anlega fluttar inn til Iandsins, skuli njóta framleiðslustyrkja. Þar á Halldór við að sterkustu þjóðimar í GATT hafa ekki fallist á að afnema útflutnings- bætur eins og íslendingar hafa gert. „Á meðan við erum að fóta okkur af þeirri braut yfir í frjálsara markaðskerfi hér innanlands, getum við ekki stillt land- búnaði okkar upp frammi fyrir óheftri samkeppni frá brengluðum heims- markaði," sagði Halldór. -EÓ Frá ráðstefnu EB um landbúnaöarmál sem nú stendur yfir í Reykjavík. Fremstir sitja Haukur Halldórsson, formaður Stéttar- sambands bænda og Jóhannes Geir Sigurgeirsson alþingismað- ur. Tfmamynd Ámi Bjama Ríkisendurskoðun segir að 560 milljónir hafa sparast í rekstri sjúkrahúsanna í Reykjavík án þess að þjónusta hafi verið skert verulega: Aöhaldsaðgerðir höluðu inn 560 milljónir króna Ríkisendurskoðun telur að aðhaldsaðgerðir á Ríkisspítölum, Borgarspítala og Landakotsspítala hafi skilað liðlega 560 mil|jóna kr. rekstrarspamaði á árinu 1992 miðað við árið 1991 án jiess að séð verði að þjónusta við sjúk- linga hafi minnkað verulega. Heilbrigðisráðherra telur ennfremur að tekist hafi að spara tæplega 200 milljónir í rekstri sjúkrahúsa utan Reykjavíkur og 50 milljónir í rekstri heUsugæslustöðva. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra var að vonum ánægður þegar hann greindi fréttamönnum frá niðurstöðu Ríkisendurskoðunar. Hann lagði áherslu á að þessi sparnaður hafi ekki leitt til skerðingar þjón- ustu, en viðurkenndi þó að að- Samkvæmt skýrslu Ríkisendur- skoðunar spöruðust 300 milljón- ir á Ríkisspítölunum, 25 milljón- ir á Borgarspítala og 250 millj- ónir á Landakoti. Þess ber að geta að bráðavöktum á Landa- koti var hætt á síðasta ári og tók Borgarspítali við þeim. Það er Samkvæmt skýrslu Ríkisendur- skoðunar fækkaði legudögum á spítölunum um 1,5% á síðasta ári, fyrst og fremst á Landakoti og á Fæðingarheimilinu. Inn- lögnum fjölgaði hins vegar um 6,8%. Þá kemur fram í skýrslunni að biðlistar hafa ekki lengst heldur styst. Af þessu dregur Ríkisendur- skoðun þá ályktun að þessi sparnaður hafi náðst án þess að verulega hafi dregið úr þjónustu við sjúklinga. Heilbrigðisráðherra sagðist ekki gera ráð fyrir að hægt verði að ganga lengra í sparnaði á sjúkrahúsunum og því sé ekki gert ráð fyrir að kostnaður við rekstur sjúkrahúsanna minnki á árinu 1993 frá árinu 1992. Heilbrigðisráðherfa sagðist gera sér vel grein fyrir því að með fjölgun aðgerða og fækkun starfsfólks hafi álag á starfsfólk sjúkrahúsanna aukist. -EÓ Stjórn Herjólfs mun ekki segja af sér þótt bundinn hafi verið endir á verk- fall stýrimanna með lögum: Stéttar- félög and- víg laga- setningu Farmanna- og fiskimannasam- bandið er í grundvallaratriðum andvígt lögum sem skerða samninga og verkfallsrétt. Grímur Gíslason, stjómarfor- maður Heijólfs, segist ekki líta á lagasetningu sem vantraust á stjómina. Magnús Jónsson, framkvæmdastjóri Heijólfs, segir tap útgerðarinnar í 7 vikna verkfalli vera umtalsvert en hefur ekki handbærar tölur þar um. Guðjón Hjörleifsson, bæjar- stjóri í Eyjum, segir að Herjólfs- deilan sanni svo ekki sé um villst nauðsyn heildarsamninga og telur að sérstakir ferjusamn- ingar þurfi að gilda á Herjólfi. „Við höfum ekki haft tóm til að kalla saman fund til að taka af- stöðu til setningu laga til að binda endi á verkfall stýrimanna á Herjólfi. En í grundvallarat- riðum getum við aldrei tekið undir lög sem sett eru til að skerða samninga og verkfalls- rétt,“ sagði Benedikt Valsson, framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambandsins í gær áður en Alþingi samþykkti Herjólfslögin. Grímur Gíslason, stjórnarfor- maður Herjólfs, sagði í gær- morgun að það hafi ekki komið til umræðu innan stjómarinnar að segja af sér og hann sér held- ur ekki neina ástæðu til þess þó svo að AJþingi samþykki lög sem binda enda á verkfall stýri- manna á Herjólfi. „Ég lít alls ekki á lagasetningu sem eitthvert vantraust á okkur. Við höfum fyrst og fremst verið að gæta hagsmuna fyrirtækisins og reyna að halda í útgjöld ríkis- sjóðs. Lokatilboð stýrimanna til okkar hljóðaði upp á 45 þúsund króna hækkun á mánuði fyrir hvern stýrimann, þannig að það sér hver maður að það er ekki hægt að semja um slíkt.“ -grh búnaður fæðandi kvenna í mat Ríkisendurskoðunar að 40 Reykjavík hefði versnað á síðasta milljónir hafi sparast með lokun ári. Fæðingarheimilisins. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra með aðstoðar- mönnum slnum. Þorkell Helgason er tll vinstri og Guðjón MagnÚSSOn skrifstofustjóri til hægri. Tlmamynd Aml BJama Unnið hörðum höndum við að fullklára íslenska Evrópulagið fyrir írlandsför: Söngvakeppni í smábæ „Lagið mun ekki taka miklum breytingum. Ég ætla að bæta strengjahljóðfærum inn í það. Þá stendur til að bæta við einni bak- rödd,“ segir Jón Kjell, höfundur íslenska Evrópuvinningslagsins; „Þá veistu svarið.“ Hann á von á að 6 manna hópur komi fram á sviðinu í litla þorpinu Millstream á Suður írlandi þann 15 maí n.k. Hann telur að líklegast muni hann sjá um að stjóma stór-hljóm- sveit sem venjan er að leiki undir lögum keppninnar. Nú er unnið hörðum höndum við að fullvinna lagið og á Jón von á að þeirri vinnu ljúki fyrir páska. Þar á hann við hljóðblöndun, útsetn- ingu, upptöku o.fl. Þá segir hann að unnið sé að kynningarmynd- bandi um lagið sem eigi að verða tilbúið um líkt leyti. Hann fékk 500 þúsund kr. til að fullvinna lag- ið, láta hanna búninga o.s.frv. og er ekki viss um að það fé dugi til þess ama. Jón bætir við að tíminn sem liðinn er frá því úrslit lágu fyr- ir hér á landi, hafi að mestu farið í að semja við útgefendur og kynn- ingaraðila. Lög keppninnar kveða á um að aðeins megi leika lögin opinber- lega fjómm vikum fyrir úrslita- kvöldið. Þess vegna má landinn eiga von á að heyra lagið 4. apríl n.k. Jafnframt er fyrirhugað að gefa lagið út á safnskífu með öðmm lögum keppninnar en einnig eitt og sér. Jón er ekkert farinn að velta fyrir sér möguleikum lagsins í keppn- inni og telur að það sé ómögulegt fyrr en öll lögin hafa verið leikin. Tvisvar áður hefur söngvakeppn- in verið haldin á írlandi. Það vekur athygli að í þetta skipti er vett- vangurinn lítið 2.000 manna þorp sem heitir Millstream á Suður ír- landi. Jón hefur reynt að afla sér upplýsinga um keppnisaðstæður en hefur ekki haft erindi sem erf- iði. Hann treystir samt vel ímm til að halda keppnina þar sem þeir búa yfir reynslu á því sviði. „Þeir gætu gert þetta með bundið fyrir augun,“ segir Jón að lokum. -HÞ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.