Tíminn - 01.04.1993, Blaðsíða 9
Tíminn 9
DAGBÓKÍ
Fimmtudagur 1. apríl 1993
Leikhópurinn samankominn ásamt leiksijóra og aðstoðarieikstfóra.
Þjóðleikhúsið:
Kjaftagangur eftir Neil Simon
f Þjóðleikhúsinu eru nú hafnar æfingar á gamanleikritinu Kjaftagangi eftir hinn af-
kastamikla leikritahöfund Neil Simon. Þýðandi er Þórarinn Eldjám og hefur hann
staðfært leikritið frá New York til Seltjamamess. Leikritið gerist á glæsilegu heimili
ungs athafnamanns og fjallar um hvemig hvemig fólk getur flækst í eigin lygavef, svo
öll sund virðast lokuð.
Leikendur eru Lilja Guðrún Þorvaidsdóttir, öm Ámason, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Pálmi Gestsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Ingvar E. Sigurðs-
son, Halldóra Bjömsdóttir, Randver Þorláksson og Þórey Sigþórsdóttir. Leikmynd og
búningar em eftir Hlín Gunnarsdóttur, en leikstjóri er Finninn Asko Sarkola, sem fs-
lendingum er að góðu kunnur af listahátíðum.
Leikritið verður fmmsýnt á Stóra sviðinu í þessum mánuði.
Félag eldri borgara
Vorönn ‘93: Námskeið í Ld. páska-
skrauti, trjáklippingum, fjölgun trjá-
plantna og fleim. Upplýsingar í sfma
28812 og 677222.
Blindrabókasafn íslands 10 ára
Um áramótin hóf Blindrabókasafn ís-
lands 10. starfsár sitt. Þess verður
minnst með ýmsum hætti á næstu mán-
uðum. Fyrsti afmælisviðburður er útgáfa
hljóðbókar, sem verður til sölu fyrir al-
menning. Hljóðbækur em bækur á
hljóðsnældum.
Dr. Sigurbjöm Einarsson hefur góðfús-
lega gefið Blindrabókasaftii heimild til að
gefa út síðustu bók sfna, Haustdreifar, og
hafa til sölu í safninu. Sigurður Skúlason
les bókina. f þessari hljóðbók fer saman
athyglisvert efni, ritað á fögm máli, og
góður upplestur. Hljóðbókin kostar 2800
krónur og er til sölu í Blindrabókasafni
íslands, Hamrahlfð 17,2. hæð.
Nýtt fyrirtæki, Rafsjá:
Býður uppá hreinsun
á rafmagnstækjum
Tekið er til starfa fyrirtækið Rafsjá, sem
sérhæfir sig í hreinsun á sjónvarpstækj-
um, myndlyklum, myndbandstækjum
og öðmm rafmagnstækjum á heimilum
og fyrirtækjum sem stöðugt em í sam-
bandi við straum. Undanfarin misseri
hafa fyrirsagnir frétta um eldsvoða fjall-
að um að upptök þeirra hafi mátt rekja
til raftækja á heimilum. Ryk og ryk-
myndun, sem er einn af fýlgikvillum
náttúmnnar, er staðreynd á hverju
heimili. Ryk sest allstaðar og smýgur inn
í þessi tæki og með tímanum skapast
vemleg eldhætta, en ef tækin em hreins-
uð reglulega er eldhættan mun minni,
auk þess sem tækin endast mun lengur. í
nágrannalöndum okkar hefur þessi
þjónusta verið í boði í nokkur ár og þyk-
ir sjálfsagt að hreinsa tækin á tveggja ára
fresti. í könnun, sem var gerð á vegum
Neytendasamtakanna, kom í ljós að hér á
íslandi verða sautján eldsvoðar á móti
fjómm í Danmörku. Menn hafa velt því
fyrir sér að mikil teppanotkun, veðrátta
og hátt hitastig í híbýlum hér á íslandi sé
stærsti orsakavaldurinn.
Rafsjá sérhæfir sig f að fyrirbyggja slík
tjón með því að koma heim til viðskipta-
vinanna og hreinsa tækin. Þannig þurfa
húsráðendur ekki að burðast með tækin
út í bæ og missa þau ekki á verkstæði um
óákveðinn tíma. Nægir aðeins að hringja
í síma 615858 og panta tíma. Rafsjá er til
húsa í Sigtúni 3, Reykjavík.
Emil og Anna Sigga á
Sólon íslandus
Sönghópurinn Emil og Anna Sigga
heldur tónleika föstudaginn 2. apríl kl.
20.30 á veitingahúsinu Sólon íslandus.
Meðal höfunda laga á efhisskránni verða
Bmce Springsteen, Janis Joplin, Lenn-
on/McCartney og Thelonius Monk. Auk
Emils mun gestasönghópur koma fram.
Gospel-tónleikar í Hafnarfiröi
Kór Flensbcrgarskóla stendur fyrir
tvennum gospel- tónleikum í Hafnarfirði
í þessari viku. Fyrri tónleikamir verða í
Víðistaðakirkju í kvöld, fimmtudag, en
þeir síðari f menningarmiðstöðinni
Hafnarborg aimað kvöld, föstudag. Tón-
leikamir hefjast kl. 20.
Auk kórsins koma fram sex hljóðfæra-
leikarar og dansarar frá Kramhúsinu í
Reykjavík. Að sögn kórstjórans Margrét-
ar Pálmadóttur em þetta afar einstakir
tónleikar þar sem sungið er og dansað
við tónlist með Afró-ívafi. Undanfamar
vikur hefur kórinn æft af kappi undir
stjóm danskennarans Orwells PennanL
en hann er ættaður frá eyjunum í Kar-
íbahafinu og alinn upp við gospel-söngva
og dans.
Fræóslufundir Gigtarfélagsins
Gigtarfélag fslands hefur skipulagt
nokkra fræðslufundi á vormisserinu fyr-
ir fólk með ákveðna gigtsjúkdóma.
Fundimir verða haldnir á fimmtudags-
kvöldum kl. 20.30 á Hótel Sögu. Gengið
er inn að norðanverðu og farið upp á
aðra hæð. Mögulegt verður að kaupa
heita drykki. Fyrsti fundurinn verður í
kvöld, 1. apríl í B-sal Hótel Sögu og verð-_
ur þá fjallað um rauða úlfa.
A.m.k. einn læknir verður fenginn til að
segja frá einkennum sjúkdómsins og
meðferð og fulltrúi eins eftirtalinna fag-
aðila, eftir því sem við á, verður til staðar
til að fjalla um og/eða svara fyrirspum-
um um frekari meðferð viðkomandi
sjúkdóms, þ.e. sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi
og hjúkrunarfræðingur. Fýrirspumir og
umræður verða leyfðar á eftir hverju er-
indi.
Efrii og tímasetning einstakra fræðslu-
funda og frummælendur verða sem hér
segir: Rauðir úlfar: 1. apríl, B-sal Hótel
Sögu. Læknir: Kristján Steinsson.
Hjúkmnarfræðingur: Þóra Ámadóttir;
Vefjagigt: 15. apríl, A-sal Hótel Sögu.
Læknin Ámi Geirsson. Sjúkraþjálfari:
Sigrún Baldursdóttir. BamaliðagigL 29.
apríl, B-sal Hótel Sögu. Læknar: Helgi
Jónsson og Jón Kristinsson; Beinþynn-
ing: 6. maí, A-sal Hótel Sögu. Læknan
Gunnar Sigurðsson og Kári Sigurbergs-
son. Psoriasisliðagigt: 13. maí, A-sal Hót-
el Sögu. Læknar: Helgi Valdimarsson og
Kristján Steinsson.
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIDÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Cliff Richard einn heima f stofu sinni, þar sem honum líður best.
Á sextugsaldri og nýtur lífsins sem aldrei fyrr:
Hinn síungi Cliff
meö skífu og bók
Cliff Richard er ennþá talinn
einn frægasti poppsöngvari á
Bretlandi og hefur átt lög á vin-
sældalistum nær samfellt frá ár-
inu 1958 þegar lagið Move It
komst á Topp tíu listann í heima-
landinu. Á fimmtugasta og öðru
aldursári lætur hann ekki deigan
síga, heldur hyggst gefa út sína
fyrstu smáskífu á árinu 1993 auk
þess sem ævisaga hans er vænt-
anleg í verslanir alveg á næstu
dögum.
Að sögn er söngvarinn reynsl-
unni ríkari eftir upprifjun ævinn-
ar og endurminningarnar komu
róti á tilfinningar hans. Faðir
hans hafði verið harla strangur
og ósveigjanlegur og leyfði ekki
Cliff litla að komast upp með
múður. Þá hefur Cliff mátt þola
glósur um kynlíf sitt og löngum
hefur þótt sannað að hann væri
hommi. Þessu neitar Cliff og seg-
ir ástæðuna fyrir einlífi sínu þá
að hann hafi látið framann og
tónlistina ganga fyrir öllu öðru;
hann hafi átt margar kærustur
og er þeirra getið í ævisögunni.
Næst komst hann hjónabandinu
í sambandi sínu við Jackie
nokkra Irving, en að ráði Peters
Gormley, vinar síns, hætti hann
við vegna þess að Peter spáði
söngvaranum tíu prósenta vin-
sældahruni ef hann kvæntist. Það
virðist hafa gengið eftir, því Cliff
er sívinsæll.
Nú er söngvarinn afar sáttur við
líf sitt, gefur tíu prósent af tekj-
um sínum til kristilegra góð-
gerðasamtaka og heldur 12 „go-
spel“-tónleika á ári. Ágóðann af
þeim lætur hann einnig renna til
samtakanna. Hann leikur tennis
á hverjum degi og segist njóta
einverunnar betur og betur eftir
því sem hann eldist.
■ .._ia
I SpBgJll
Timans
Janice Berry, æskuvinkona
Cliffs. Strax á skólaárunum ein-
setti Ciiffsér að leyfa enga
truflun á leið sinni til vegs og
frama.