Tíminn - 22.04.1993, Side 2

Tíminn - 22.04.1993, Side 2
2 Tíminn Fimmtudagur 22. apríl 1993 Er Alþýðuflokkurinn að bjóða Alþýðubandalaginu upp í dans á rauðu Ijósi? Kratar farnir að gæla við Alþýðubandalagið Þessa daga gætir talsverðs óróa innan Alþýöuflokksins meö sam- starfið viö Sjálfstæöisflokkinn. Margir flokksmenn telja að Hrafns- málið hafi skaðað ríkisstjómina og þar meö Alþýðuflokkinn. í leið- ara Alþýðublaðsins í gær em forsætisráðherra og menntamálaráð- herra gagnrýndir fyrír hvemig þeir hafa haldið á málinu og í leiðara í fyrradag er gengið svo langt að lýsa því yfir að forsendur hafi skapast fyrír nánara samstarfi Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. í leiðaranum í fyrradag segir að Al- þýðubandalagið hafi á síðustu árum breytt afstöðu sinni til efnahagsmála í átt til svipaðra frjálslyndisviðhorfa og Alþýðuflokkurinn hefur fylgt um ára- tugaskeið. Síðan er vikið að viðhorfum sem Ól- afur Ragnar Grímsson, formaður Al- þýðubandalagsins, hefur lýst um framtfð Atlantshafsbandalagsins. „Hljóti hin nýju viðhorf Ólafs Ragn- ars hins vegar brautargengi í Alþýðu- bandalaginu er rutt burt síðustu leif- Sami maður stjómarfor- maður í Heklu, íslenska útvarpsfélaginu og FILM: Víða liggja valdafléttur Ingimundur Sigfússon í Heklu sem er stjómarformað- ur íslenska útvarpsfélagsins er einnig stjóraarformaður í FILM, fyrirtæki Hrafns Gunn- laugssonar, framkvæmda- stjóra Sjónvarps. „Þetta eru ósættanlegir hagsmunir,“ segir Ólafur Hannibalsson blaðamaður sem upplýsti í sjónvarpsþætti að fyrirtæki Hrafns hefði sama „telex- númer" og Hekla. Ólafur telur að þessi fyrirtæki eigi að vera í samkeppni. „Til- verugrundvöllur þeirra er sá að þau séu í samkeppni og tryggi okkur með því hlutlaus- ar og áreiðanlegar fréttir,“ bætir hann við. Þetta nýjasta innlegg í svo- kallað Hrafnsmál hefur vakið mikla athygli og hefur verið vísað til tengsla Heklumanna og forystu Sjálfstæðisflokksins með forsætisráðherra f broddi fylkingar. í því sambandi má nefría að kosningaskrifstofa Davíðs Oddsonar í formannskjörinu árið 1991 var í húsakynnum fyrirtækisins. Þar var og kosn- ingaskrifstofa Bjöms Bjama- sonar alþingismanns í próf- kjöri flokksins í Reykjavík fyrir síðustu alþingiskosningar. Þegar núverandi ríkisstjóm var mynduð var það eitt fyrsta verk þeirra Friðriks Sophus- sonar fjármálaráðherra og Davíðs Óddssonar að kaupa dýrar bifreiðar af fyrirtækinu til ráðuneyta sinna. Þá var gagnrýnt að innkaupastofnun ríkisins skyldi ekki vera falið að standa fyrir útboði á þeim kaupum eins og oftast tíðkað- isL Ólafi finnst þetta bera vott um hagsmunatengsl sem ekki séu hafin yfir tortyggni. „Ég held að það þurfi að semja ein- hverjar siðareglur varðandi hagsmunaárekstra þannig að menn geti ekki setið í mörgum hlutverkum við sama borð og samið við sjálfa sig og úthlutað sjálfum sér eða vinum sínum fjármagni úr opinberum sjóð- um,“ segir Ólafur. -HÞ um djúpstæðs hugmyndafræðilegs ágreinings á milli flokkanna tveggja. Breyttar aðstæður á vettvangi al- þjóðamála hafa þannig skapað jarðveg fyrir nýjar samræður milli jafnaðar- manna og sósíalista á íslandi, sem um síðir gætu leitt til breytinga á flokka- skipan íslands," segir í leiðaranum. „Ég held að samstarf Alþýðuflokks- ins við Sjálfstæðisflokkinn og það sem Alþýðuflokkurinn hefur staðið fyrir í þessari ríkisstjóm hafi breikkað vemlega bilið á milli þessara tveggja flokka," sagði Ragnar Amalds, for- maður þingflokks Alþýðubandalagins, um viðhorf leiðarhöfundar Alþýðu- blaðsins. Hann sagðist ekki sjá neinn gmndvöll fyrir viðræðum milli flokk- anna um samstarf. Ragnar sagðist ekki fá séð að spum- ingin um Atlantshafsbandalagið og framtíð þess breyti einu né neinu í samskiptum flokkanna. Það sé flest annað sem skilji þessa flokka að. Ragnar sagðist telja að málgagn Al- þýðuflokksins sé með þessum tveim leiðumm að reyna að friða sína flokksmenn sem séu flestir afar óánægðir með þetta svokallaða Hrafnsmál og einnig hvemig formað- ur flokksins hefur lagt sig fram um að verja framgöngu forystumanna Sjálf- stæðisflokksins í því beint og óbeint. -EÓ Fjórða gróðursetningarár Landgræðsluskóga að hetjast: Markmiðið 10 milljón ný tré fyrir aldamót Sumardagurinn fyrsti hefur veríð valinn „skógræktardagur" und- anfarín ár og sérstök athygli vakin á þeim verkefnum sem tengjast Landgræðsluskógum. En gróöursetning Landgræösluskóqa er nú að hefjast fjórða áríð í röð á vegum Skógræktarfélags Tslands, Skógræktar ríkisins, Landgræðslu ríkisins og landbúnaöarráðu- neytisins. Gert er ráð fyrir að sjálfboðaliðar gróðursetji um 1,2 milljónir plantna á vegum verkefnisins í ár. Fram- kvæmdanefríd Landgræðsluskóga vonar að þátttaka í þessu þjóðþrifa- starfi megi enn eflast á komandi ár- um. Markmiðið hefur verið sett á að búið verði að gróðursetja um 20 millj- ón plöntur í 10 þúsund hektara lands um aldamótin. Um það bil 3,5 millj- ónir plantna hafa verið gróðursettar síðustu þijú ár í 80 afgirt svæði víðs vegar um land á vegum Landgræðslu- skóga. Skógræktaríélagar segja árang- ur gróðursetningarstarfsins hafa verið framar öllum vonum þessi síðustu ár. Mörg svæði sem tekin hafi verið til gróðursetningar Landgræðsluskóga séu erfið til ræktunar, jarðvegur rýr og gróður í tötrum. Af þeim sökum hafi sérstök áhersla verið Iögð á vönduð vinnubrögð og jafiiframt á það að velja harðgerar og nægjusamar trjátegund- ir. íslenska birkið sé uppistaðan í gróðursetningunni. Þolsvið þess sé mjög mikið og því megi planta næst- um hvar sem er innan girðingar ef frá séu taldir vindasamir staðir við sjávar- síðuna. Á slíkum stöðum hafi verið plantað harðgerum víðitegundum og elri, enda reynslan sýnt að það vaxi prýðilega við erfiðustu skilyrði. - HEI Halldór Blöndal samgönguráðherra og Ólafur Tómasson póst- og sfmamálastjóri. Tfmamynd Ami Bjama Skiptar skoðanir meðal starfsfólks Pósts & síma um þá ætlan stjórnvalda að einkavæða stofnunina: Hlutafélag í eigu ríksins í niðurstöðum svokallaðrar réttarstöðunefndar sem sam- gönguráðherra skipaði í ágúst 1991 er lagt til að stofnuninni verði breytt í hlutafélag sem taki til starfa á miðju næsta ári. Gert er ráð fyrir að hlutafélagið verði í eigu ríksins og eftir þrjú ár, eða eigi síðar en 1997, taki Alþingi ákvörðun um það hvort og þá hvenær hlutabréf félagsins verði seld. Ekki liggur enn fyrir hver verð- mæti hlutabréfa hins nýja hlutafé- lags muni verða en eigið fé Pósts & síma er um 11 miljarðar króna. Skiptar skoðanir eru um ágæti þessara ætlana meðal starfsfólks Pósts & síma en drög að frumvarpi þar um hafa verið kynnt starfsfólk- inu. Þegar liggur fyrir andstaða gegn þessum áformum meðal for- ystu Félags íslenskra símamanna en stjóm félags háskólamennaðra starfsmanna stofnunarinnar er hlynnt þessari breytingu. Fastráðnum starfsmönnum stofnunarinnar sem þar vinna þegar breytingin mun eiga sér stað verður boðið að gegna áfram sömu eða hliðstæðum störfum hjá félaginu og þeir gerðu áður og greiða í Lífeyrissjóð starfsmanna ríksins. Að mati nefndarinnar, ráðherra og helstu ráðamanna stofnunar- innar er þessi breyting á réttar- stöðu hennar í samræmi við það sem gerst hefur í sambærilegum stofnunum víðast hvar í helstu ná- grannalöndum. Halldór Blöndal samgönguráð- herra sagði á blaðamannafúndi í gær að hann væri eindreginn tals- maður þess að breyta fyrirtækjum og stofnunum í eigu ríksins í hlutafélög. Hann sagði þessa breytingu vera nauðsynlega fyrir Póst & síma svo stoftiunin gæti brugðist við breyttum aðstæðum sem kynnu að koma upp á hverj- um tíma á markaðnum, fjárfest á markaðsforsendum og síðast en ekki síst lagað sig að breyttum tímum. „Þjóðfélagið er orðið allt of flókið fyrir stjómmálamenn til að hafa puttana ofan í öllum málum," sagði ráðherra. Frumvarpsdrögin hafa þegar ver- ið kynnt í ríkisstjóminni en þar hefur ekki verið tekin efnisleg af- staða til málsins. Aðspurður sagð- ist ráðherra ekki ætla að andstaða væri við þessum áformum innan stjómar né innan þingflokka stjómarflokkanna en frumvarps- drögin verða væntanlega lögð fyrir þingflokkana á næstunni. Ekki liggur enn fyrir hvenær frumvarp- ið verður síðan Iagt fyrir Alþingi. -grh Góð rækjuveiði en afkoman slæm sökum verðlækkana og óhag- stæðrar gengisþróunar. Útlit fyrir að náist að veiða upp kvótann, eða Aðeins þorskurinn verðmætari en steftiumörkun í umhverf- ismálum þar sem grund- vallaratríð er: Þaö sem af er yfirstandandi fiskiveiöiári hafa rækjuveiðar gengið mjög vel en þrátt fyrír það er afkoma greinarínnar talin vera mjög slök. Það helgast m.a. af verðlækkun og óhagstæöri gengisþróun enska pundsins sem hefur fallið um 8,6% frá á tímabilinu septem- ber 1992 til mars 1993 þrátt fyrír 6% gengisfellingu krónunnar í nóvember síðastliðnum. Að sama skapi er ekki heldur bjart yf- ir afkomu hörpudiskframleiðenda. Verð hefúr lækkað og birgðir hafa safnast upp. Á síðasta ári var heildarverðmæti rækjuafurða 10,8% af heildarverð- mæti íslenskra sjávarafurða á móti 9,3% árið 1991. Athygli vekur að af nytjastofnum við ísland er það aðeins þorskurinn sem gefur af sér meiri verðmæti en rækja. Samkvæmt Þjóð- hagsstofnun var verðmæti þorskaf- urða 29,5 miljarðar króna, rækju 7,7 miljarðar og karfa 7,5 miljarðar á síð- asta ári. { upphafi kvótaársins var ákveðið að leyfa veiðar á 40 þúsund tonnum af út- hafsrækju og 7.200 tonnum af inn- fjarðarrækju. Hinsvegar hafa aflaheimildir inn- fjarðarrækju tekið smávægilegum breytingum eftir athuganir Hafrann- sóknastofnunar á hverju svæði fyrir sig auk þess sem aflaheimildir frá fyrra fiskveiðiári, 6.400 tonn, hafa verið fluttar yfir á þetta ár frá fyrra kvótaári. Aflaheimildir kvótaársins eru því um 53 þúsund tonn. Pétur Bjamason hjá Félagi rækju- og hörpudiskframleiðenda telur góð lík- indi fyrir því að það takist að veiða þann kvóta í ár. Hann segir að fiski- fræðingar virðist vera sammála um að ástand rækjustofna við ísland sé al- mennt gott. Pétur segir að svo virðist sem samhengi sé á milli góðrar rækju- veiði og lélegrar þorskveiði enda rækj- an eitt mesta lostæti á matseðli þorsksins. Samkvæmt bráðabirgðayfirliti Fiski- félags íslands höfðu veiðst alls tæp 23 þúsund tonn af rækju fyrstu sjö mán- uði yfirstandandi fiskveiðiárs á móti 15.497 tonnum á sama tíma 1991- 1992 og 11.974 tonum fyrstu sjö mán- uðina á kvótaárinu 1990-1991. -grii „Við allt skipulag fcröamála og rekstur feröaþjónustu verði litið á það sem grundvallaratriði að íslensk náttúra og umhverfi bíði ekld tjón af.“ Þetta er aðal mark- mlðlð í stefnumörirun á sviði umhverflsmála sem Ferðamála- ráð fslands hefur nýlega sam- þykkt á fundi sínum. Annað heista markmiðið er að leggja óherslu á fegrun umbverfis, við- bald menningarverðmæta og góða umgengni á viðkomu- og dvalarsíöðum ferðamanna í byggðum sem óbyggðum. Til að ná þessum marfaniðum telur Feröamálaráð að huga verði að þremur efnisfiokkum. I fyrsta lagi stefnumörkun í ferðaþjónustu. f öðru lagi mark- aðssetningu. Og í þriðja lagi að sltípulagi að mannvirkjagerð á ferðamannastöðum. f stefnu- mörkuninni er einnig fjallaö um framtíðarsýn og fjárþörf tíl framkvæmda.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.