Tíminn - 22.04.1993, Síða 3
Fimmtudagur 22. apríl 1993
Tíminn 3
Stjómvöld ræða tillögur um að bjóða út rekstur Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli:
Verður rekstrarformi
Fríhafnarinnar breytt?
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir koma til greina
að breyta núverandi rekstrarformi Fríhafnarínnar á Keflavíkurflug-
velli úr ríkisstofnun í hlutafélag í eigu ríkisins. Hann sagði einnig
koma til greina að Fríhöfnin taki yfir rekstur íslensks markaðar.
Ráðherra segir ekki til umræðu að Flugleiðir taki yfir rekstur Frí-
hafnarínnar.
Utanríkisráðherra sagði þetta í
svari við fyrirspurn frá Finni Ing-
ólfssyni (Frfl.), en Finnur spurði
hvort íslensk stjómvöld stefndu að
því að bjóða út rekstur Fríhafnar-
innar.
Fríhöfnin hefur skilað mjög góðum
hagnaði undanfarin ár. Hagnaður-
inn í fyrra var yfir 500 milljónir
króna og fyrirtækið skilaði um 60
milljónum meira í ríkissjóð en fjár-
lög gerðu ráð fyrir. Finnur sagði
þetta sýna að rekstur Fríhafnarinnar
væri til fyrirmyndar og starfsfólk
ætti þakkir skildar. Fleiri þingmenn
tóku undir þessi orð.
Finnur gagnrýndi hugmyndir um
að bjóða út rekstur Fríhaftiarinnar.
Hann sagði ljóst að því fylgdi kostn-
aður fyrir ríkissjóð að breyta rekstr-
arformi Fríhafnarinnar og ekkert
bendi til að nýr rekstraraðili geti
náð betri árangri í rekstrinum.
Jón Baldvin sagði að íjárhagsvandi
flugstöðvarinnar á Keflavíkurflug-
velli væri mikill og finna yrði leiðir
Málefni Jámblendifélagsins voru
rædd á ríkisstjómarfundi í fyrradag.
Engin ákvörðun var tekin í málinu,
en það verður rætt frekar á næsta
fúndi.
Tillaga stjómenda Járnblendifé-
lagsins er að hlutaféð verði aukið
um 560 milljónir. Ekkert liggur fyrir
um hver hlutur einstakra hluthafa
verður í þessu dæmi eða hver endan-
leg upphæð verður. Japanska fyrir-
tækið Sumitomo, sem á 15% hlut,
hefur ekki tekið afstöðu til tillögu
um þátttöku í hlutafjáraukningu.
Vonast er eftir að afstaða Elkem ýti
við Sumitomo.
Jón sagði að það hafi orðið geysileg
umskipti í rekstri Jámblendifélags-
ins á síðustu mánuðum, sem sjáist
best í því að reksturinn skilaði ekki
tapi á fyrstu þrem mánuðum ársins.
Utflutningur almenns iðnvarnings minnkaði um
15% í fyrra:
Iðnaöarútflutri'
ingur minnk-
aö 3 ár í röð
Heildarútflutningur iðnvarnings
dróst enn saman að magni til á síð-
asta ári, þriðja árið í röð, og samtals
um 10% á þessum þrem árum. Út-
flutningur stóriðju óx þrátt fyrir
allt nokkuð (6%) að magni til á síð-
asta ári.
En útflutningur almenns iðnvam-
ings dróst saman um nærri 15% á
þessu eina ári. Mestur varð sam-
drátturinn í ullarvörum (40%), en
einnig mikill í kísilgúr, niðursuðu-
vörum, skinnum og vömm úr loð-
skinnum. Hins vegar varð nokkur
aukning í útflutningi á vatni og lít-
til að bregðast við honum. Þessi
vandi gæti aukist á næstu árum, ef
íslendingar yrðu að taka að sér
stærri hlut í rekstri flugvallarins.
Nefnd manna úr utanríkis- og fjár-
málaráðuneyti hefur sett fram til-
lögur um hvemig eigi að bregðast
við þessu. Ráðherra sagði að rekstr-
arform Fríhafnarinnar sé til skoðun-
ar í þessu samhengi og sagði: „Það
kemur til álita samkvæmt þessum
tillögum að breyta núverandi rekstr-
arformi í hlutafélag í eigu ríkisins."
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra tók þátt í umræðunum og
vakti athygli á því að samgöngu-
ráðuneytið hefði ekki átt aðild að
nefndinni og að nefndarálitið hefði
ekki verið rætt í ríkisstjóm. Hann
sagði það sína skoðun að það væri
ekki rétt leið til að leysa fjárhags-
vanda flugstöðvarinnar að auka
skatta á þau fyrirtæki sem þar starfa,
eins og t.d. Flugleiðir.
Skuldir flugstöðvarinnar við Ríkis-
ábyrgðarsjóð voru í árslok 1991 3,1
milljarðar og vanskil jukust um 130
milljónir á því ári. Það er álit Ríkis-
endurskoðunar að ríkissjóður verði
að yfirtaka 1,7 milljarða af skuldum
flugstöðvarinnar og hækka gjöld af
umferð um flugvöllinn. -EÓ
hefur lækkað 0,6%
Vísitala byggingarkostnaðar
lækkaðl um 0,6% miUi mars og
apríl, vegoa nlöurfelllngar vðra-
gjalds á steypu, scmenti, gleri og
fleiri byggingarvörum. Bygging-
arvísitala sem gildir í maí er
189,8 stig, eða hin sama og í
febrúarmánuöi.
Launavísitala hækkaði hins veg-
ar um 0,2% milli mars og aprfl og
áðttr var komið fram að fram-
fersluvísitalan hækkaði um
0,3% á sama tímabUi.
Af þessum iuekkunum og mót-
svarandi lækkun leiðir, að láns-
kjaravísitalan fyrir maí veröur sú
sama og i apríl, 3278, þannig að
verðbólga er nú á núlU á m*B-
kvarða lánskjaravísitölu.
Síðustu tólf mánuði hafs þessar
helstu verðlagsvísitölur hækkað
sem hér segin
Framfærsluvísitala------3,3%
Byggingarvísitala-------13%
Launavísitala
Lánskgaravísitala
«•••■••«••23%
Elkem er tilbúið til að auka hlutafé sitt í íslenska jám-
blendifélaginu:
Járnblendifélagið
er rekið án taps
Norska fyrírtækið Elkem, sem á 30% hlut í íslenska jámblendifélag-
inu, hefur lýst sig tilbúið til að auka hlutafé sitt í félaginu. Hlutafjár-
aukningin er háð því skilyrði að íslenska ríkið, sem á 55% í Jám-
blendifélaginu, auki einnig hlutafé sitt. Jón Sigurðsson, fram-
kvæmdastjórí Jámblendifélagsins, segir að tap á rekstrinum á síð-
asta árí sé á bilinu 560-600 milljónir. Rekstur á fyrstu þrem
mánuðum þessa árs sýni hins vegar ekki tap.
Hann sagðist vonast eftir að það
sama verði upp á teningnum næstu
þrjá mánuði. Jón sagði að þetta hafi
tekist með niðurskurði á kostnaði og
uppsögnum. Tekist hafi að ná hag-
stæðum samningum við viðskipta-
aðila fyrirtækisins um lægra verð
fyrir aðkeypta þjónustu. Hann sagð-
ist ekki sjá að framundan sé nein
breyting á verði á kísiljámi, en það
hefur verið mjög lágt undanfarin ár.
Jón sagði að þó að reksturinn sé í
jámum dugi það ekki til. Fyrirtækið
geti ekki staðið í skilum með afborg-
anir á lánum. Þess vegna verði að
koma til aukið hlutafé.
Viðræður hafa staðið við Lands-
virkjun um hagstæðari kjör á raf-
orku. Þeim viðræðum er ekki endan-
lega Iokið.
-EÓ
ilsháttar á rafeindavogum og veiðar-
fæmm.
í krónum talið minnkaði útflutn-
ingur almenns iðnvamings um 11%
milli áranna 1991 og 1992. Þessar
vömr voru seldar fyrir rúma 5,4
milljarða í fyrra, sem var þá 6,2% af
heildarútflutningi landsmanna.
Að framleiðsluvörum stóriðju með-
töldum nam iðnaðarvöruútflutning-
ur um 15,1 milljarði króna, sem var
5% minna en árið áður. Iðnaðar-
vöruútflutningur var því aðeins um
17% af heildarútflutningi lands-
manna í fyrra. - HEI
IBarnaheill
AÞJÁN BARNA
Málþing Bamaheilla um ýmiss konar ofbeldi og áþján sem börn
verða fyrir í samfélagi okkar. Er brugðist við því með skipuleg-
um hætti eða er tómlæti og afskiptaleysi ríkjandi í málefnum
barna á íslandi?
Staðurog stund: Háskólabíó, iaugardaginn 24. apríl 1993.
Kl. 10:00 Setning.
Kl. 10:15 Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur.
Það læra bömin sem fyrirþeim erhaft.
Kl. 10:30 Gestur Pálsson barnalæknir.
Hlutveri(og reynsla barnalæknis.
Kl. 10:45 Ólöf Helga Þór, forstöðumaður Rauðakrosshússins.
Reynsla gesta Rauðakrosshússins.
Kl. 11:00 Hjördís Hjartardóttir félagsráðgjafi.
Ofbeldi og vanræksla samfélagsins.
Kl. 11:15 Guðrún Jónsdóttir arkitekt.
Skipuleggjum við umhverfi okkarmeð böm I huga?
Kl. 11:30 Dr. Helgi Gunnlaugsson lektor.
Borgariífog ofbeldi.
Kl. 11:45 Vanda Sigurgeirsdóttir, starfsmaður Ársels.
Forvamarstarf í félagsmiðstöð.
Kl. 12:00 Hádegishlé.
Kl. 13:00 Guðrún Ágústsdóttir, starfsmaður Kvennaathvarfs.
Við uppskerum eins og við sáum.
Kl. 13:15 Þórey Guðmundsdóttir móðir.
Hvert er foreldrahlutverkið, eða erþví ofaukið?
Kl. 13:30 Brynjólfur Brynjólfsson skólasálfræðingur.
Einelti og viðbrögð við því.
Kl. 13.45 Ragnar Gíslason skólastjóri.
Jákvæður skólaandi gegn ofbeldi.
Kl. 14:00 Anna Harðardóttir leikskólastjóri.
Hvemig er brugðist við reiði bama?
Kl. 14:15-15:00 Umræður.
Fundarstjóri: Jóhann Hauksson fréttamaður.
Allir sem áhuga hafa á þessum málefnum eru velkomnir, jafnt félagar í Barnaheill sem
aðrir, gegn 500 króna gjaldi.