Tíminn - 22.04.1993, Síða 6
6Tíminn
Fimmtudagur 22. apríl 1993
Dómsmálaráðherra fyr
írhugar að breyta
áfengisreglugerð:
horsteinn Pálsson dóms-
málaráðherra hefur í undir-
búnlngi að breyta áfengis-
reglugerð í þá veru að leyfa
vínveitingar frá hádegi og til
klukkan sex síðdegis. Áfeng-
isvamarráð hefur harðlega
móhnælt þessari breytingu.
Ráðherra sagði á Aiþingi f
svari við fyrirspum frá önnu
Ólafsdóttur Björasson
(KvL) að til stæði að breyta
áfengisreglugerð í þá veru að
iengja þann tíma sem vín-
veltingahúsum væri heimilt
að veita vín yfir daginn.
Anna sagði nauðsynlegt að
ítarieg umræða færi fram
um þessa breytingu á áfeng-
isreglugerðinni eins og aðrar
veigamiklar breytingar sem á
hennl hefðu verið gerðar.
Anna sagðist tefja að dóms-
málaráðherra hefði ætlað sér
að koma þessari breytingu f
framkvæmd án umræðu f
þjóðfélaginu og það væri
gagnrýnisvert. EÓ
Yfirlit yfir atvinnuleysið á landinu:
Atvinnuleysi eykst
enn í Reykjavík
Atvinnuleysi hélt áfram að vaxa á höfuðborgarsvæðinu í síðasta
mánuði á meðan atvinnuástand skánaði dálítið víðast hvar annars
staöar. Tölumar sýna að á höfuðborgarsvæðinu virðist vera að
festast í sessi nokkur þúsund manna hópur sem hefur enga vinnu.
Atvinnuleysið á landsbyggðinni er enn mikið en þar virðist þó
gæta árstíðabundinna sveifina í mun meira mæli en á höfuöborgar-
svæðinu.
Um 2.100 karlar á Reykjavíkursvæð-
inu (5%) voru án vinnu í marsmán-
uði enda atvinnuleysi karla víðast
hvar minna en þar nema á Norður-
landi eystra og Austurlandi. Atvinnu-
lausar konur voru 1.700 á höfuð-
borgarsvæðinu (5,4%) en samtals
1.360 á landsbyggðinni (6,7%).
„Atvinnuleysið heldur enn áfrarn að
aukast á öllu höfuðborgarsvæðinu,"
segir í yfirliti Vinnumálaskrifstof-
unnar. Um 38% allra atvinnulausra á
landinu eru í Reykjavík sjálfri en 57%
á svæðinu öllu. í Hafnarfirði og
Kópavogi fjölgaði atvinnulausum um
fjórðung milli febrúar og mars.
Má því nokkuð merkilegt telja að í
sama mánuði batnaði atvinnuástand
hvergi meira en á Suðumesjum. At-
vinnulausum fækkaði þar um 21%
milli mánaða og atvinnuleysishlut-
fallið lækkaði úr 8,6% í febrúar niður
í 6,8% í mars. En það var þó hæsta
atvinnuleysishlutfall á landinu.
Á Vesturlandi hækkaði atvinnuleys-
ishlutfallið hins vegar úr 4,2% í 5%
milli mánaða. Um 60% atvinnu-
lausra á svæðinu em á Akranesi, 25%
í Borgamesi og 11% í Stykkishólmi
þar sem aukningin var mest milli
mánaða.
Af alls 187 atvinnulausum á Vest-
fjörðum voru 132 (rúmlega 70%) í
Bolungarvík einni en fremur fáir á
öllum öðmm stöðum. Ennþá er at-
vinnuástand samt langbest á Vest-
fjörðum.
Á Norðurlandi vestra fækkaði at-
vinnulausum um 13% frá mánuðin-
um á undan niður í 4,7% í mars.
Þetta er eina svæðið á landinu þar
sem færri em nú án vinnu heldur en
í mars í fyrra. Atvinnulausir eru flest-
ir á Blönduósi, sem jafnframt er eini
staðurinn þar sem þeim fjölgaði
nokkuð milli mánaða.
Norðlendingar eystri eiga ekki sama
láni að fagna. Þar fjölgaði atvinnu-
AÐALFUNDUR
Aöalfundur Kaupfélags Eyfiröinga verður
haldinn I Alþýðuhúsinu á Akureyri mánudag-
inn 26. apríl nk. og hefst kl. 10.00.
Dagskrá
1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna
fundarins.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Skýrsla kaupfélagsstjóra.
Reikningar félagsins.
Umsögn endurskoöenda.
Tillögur félagsstjórnar um ráðstöfun eftirstöðva
o.fl.
4. Afgreiðsla reikninga og tiliagna félagsstjórnar.
5. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs KEA.
6. Erindi deilda.
7. Þöknun stjórnar og endurskoðenda.
8. Kosningar.
9. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv.
félagssamþykktum.
Stjórn Kaupfélags Eyfiröinga
lausum enn um 7% milli febrúar og
mars. Hlutfall atvinnulausra var
6,6% í mars (7,5% meðal kvenna)
eða litlu skárra en á Suðumesjum.
Hlutur Akureyrar lætur nærri að
vera 70% (um 540 manns) eða álíka
og hlutur Bolungarvíkur er á Vest-
fjörðum.
Atvinnuleysi meðal karla er nú mest
á Austurlandi, 6,3%, og þetta er jafn-
framt eini landsfjórðungurinn þar
sem atvinnuleysi er nokkm meira
meðal karla en kvenna. Þrátt fyrir
nokkra fækkun atvinnulausra milli
mánaða er hlutfallið ennþá hátt
(6,1%). Breytingar em hins vegar
mjög miklar milli staða. Þannig
fækkaði atvinnulausum um meira en
helming á Höfn, um þriðjung í Borg-
arfjarðarhreppi og um fjórðung á
Eskifirði og Vopnafirði. Þeim fjölgaði
aftur á móti um 62% á Seyðisfirði,
um þriðjung í Neskaupstað og fjórð-
ung á Fáskrúðsfirði.
Á Suðurlandi er atvinnuleysishlut-
fallið í mars það sama og á höfuð-
borgarsvæðinu (5,2%) og mun lægra
meðal karla. Atvinnulausum fækkaði
þar um 7% frá því í mánuðinum á
undan en mjög mismikið milli staða.
f Þorlákshöfn fækkaði atvinnulaus-
um um meira en helming og kring-
um fimmtung á Eyrarbakka og í Eyj-
um. Um fjórðungur atvinnulausra
Sunnlendinga er á Selfossi. Að 42
skuli vera án vinnu á Stokkseyri hlýt-
ur hins vegar að vera mjög hátt hlut-
fall miðað við íbúafjölda, td. borið
saman við 47 atvinnulausa í Vest-
mannaeyjum þar sem íbúar eru þó
níu sinnum fleiri.
-HEI
Samband launafólks á Suðurnesjum stofnað með
þátttöku átta stéttarfélaga:
Nýjung í félags-
málum launafólks
í fyrradag var stofnað í Keflavík Sam-
band launafólks á Suðuraesjum með
þátttöku itta stéttarfélaga sem hafa
innan raða sinna um 80 af hundraði
launafólks á svæðinu. Hér er um nýj-
ung að ræða í félagsmálum launa-
fólks hérlendis og athygli vekur að
innan raða hins nýstofnaða sambands
eru ekki aðeins stéttarfélög innan
raða ASÍ heldur einnig opinberra
starfsmanna.
Hlutverk hins nýja sambands er að
vera samstarfs- og samráðsvettvangur
stéttarfélaga á Suðumesjum, beita sér
fyrir samstarfi þeirra á sem flestum
sviðum í þeim tilgangi að efla áhrif
þeirra og að kynna félögin, störf þeirra
og mikilvægi í samfélaginu.
Á stofnfundinum var kosin bráða-
birgðastjóm og er formaður hennar
Jóhann Geirdal, formaður Verslunar-
mannafélags Suðumesja. Fljótlega í
næsta mánuði er ætlunin að boða til
fyrsta eiginlega þings sambandsins.
„Við emm öll launafólk án tillits til
þess í hvaða stéttarfélögum við emm
og Samband launafólks á Suðumesj-
um er einskonar regnhlífasamtök
launafólks á svæðinu. Hinsvegar mun
sambandið ekki vera samningsaðili
fyrir stéttarfélögin né heldur heimilt
að gera samninga eða aðrar skuld-
bindingar fyrir einstök félög sem eiga
aðild að sambandinu," segir Jóhann
Geirdal. Hann segir að fjölmörg mál
séu til umræðu af og til sem félögin
eigi að blanda sér inní eins og til dæm-
is samgöngumál:
„Það er engin strætó á Suðumesjum
og dæmi em um að fólk geti ekki tek-
ið vinnu sem í boði er vegna þess að
það komist ekki á milli staða. Eðlilega
eigum við þá að reyna að hafa áhrif á
sveitarfélögin um að þau efli almenn-
ingssamgöngur svo að fólk geti stund-
að vinnu á svæðinu." -grh
Sinubruni viö
sjúkrahúsið
Sjúkrahúsið á Selfossi fýlltist af
reyk vegna sinubruna skömmu eft-
ir hádegið í gær. Maður sem var á
gangi við sjúkrahúsið henti frá sér
logandi vindlingi með þeim afleið-
ingum að stórt svæði varð skíðlog-
andi.
Slökkviliði og sjálfboðaliðum gekk
greiðlega að slökkva eldinn. Vindur
var af vestri og stóð beint á sjúkra-
húsið sem bókstaflega hvarf í reykj-
armekki þegar verst lét. Vistarvemr
sjúkrahússins fylltust af reyk en sem
betur fór mun engum hafa orðið
meint af. —SBS, Selfossi.
Óskum öllum
eas sumars
Sigfús Kristinsson
byggingameistari ■ Selfossi
Óskum starfsmönnum okkar og viðskiptavinum
gCeðiíegs sutnars
SAMTAKfR
huseiningarLJ
GAGNHEIÐ11—800 SELFOSSI
— SlMI 98-22333