Tíminn - 22.04.1993, Síða 7
Fimmtudagur 22. apríl 1993
Tíminn 7
Útflutningsráð telur ekkert því til fyrirstöðu að markaðssetja ísland
sem fjarvinnsluland:
Laun sérfræðinga og leiga
símalína ódýr ájtrá Islandi
QíeðiCegt sumar!
ÁRBÆJARBAKARÍ,
Rofabæ 9
Verður Qarvinnsla á (slandl ný útflutnlngsgrein? Frá vinstri Ingi G. Ingason
og Ingjaldur Hannibalsson frá Útflutningsráðl og Ólafur Tómasson, póst-
og símamálastjóri. Tfmamynd Aml Bjama
Neð nýrri varajarðstöð á Höfn í
Hornafirði og ljósleiðaratengingu
við landið 1994 er ísland komið í
öruggt samband við umheiminn og
tæknilega því ekkert til fyrirstöðu
að markaðssetja ísland sem raun-
hæfan kost sem fjarvinnsluland, að
mati Útflutningsráðs sem hefur lát-
ið vinna skýrslu um möguleika ís-
lendinga á verkefnum á sviði fjar-
vinnslu.
Meðal starfa, sem heppileg eru tal-
in til fjarvinnslu, eru: tölvuinnslátt-
ur, ritvinnsla, grafísk hönnun,
hönnun ýmiss konar, gagnabankar,
þýðingar, símasvörun, bókanir pant-
ana, símasala, forritun, sérfræði-
teikning, ritun handbóka, viðhald,
bókhald, ráðgjöf, kennsla, stjómun,
verkfræðistörf, lögfræðistörf og
áætlanagerð ýmiss konar. Fjárhags-
legir kostir fjarvinnslu þurfi hins
vegar að vera miklir til þess að fyrir-
tæki láti bjóða sér slíkt vinnufyrir-
komulag.
í skýrslunni er m.a. lagt mat á
tæknilega möguleika íslands, verð-
lagningu gagnaflutnings til og frá
Iandinu og almenna reynslu og
þekkingu íslenskra aðila á sölu á
tækni og þjónustu. Útflutningsráð
telur markaðsmálin lykilatriðið í
framtíðarþróun þessa máls og megi
líta á skýrsluna sem eitt af fyrstu
skrefunum í viðleitni til markaðs-
sóknar. Enda gæti þessi atvinnu-
grein boðið upp á mikla möguleika í
gjaldeyrisöflun, auk þess sem starf-
semin geti hæglega farið fram utan
höfuðborgarsvæðisins.
Fjarvinnslumarkaðurinn sé enn
sem komið er ungur, vanþróaður og
enn í mótun. Því séu fyrir hendi góð
tækifæri fyrir nýja aðila sem vilji
láta að sér kveða. Að mati Útflutn-
ingsráðs hljóta að teljast töluverðir
möguleikar fyrir íslendinga að starfa
á fjarvinnslumarkaðinum. Tækni og
kunnátta ætti ekki að standa í vegi.
Launakostnaður sérfræðinga í flest-
um greinum sé allt að helmingi
lægri heldur en starfssystkina þeirra
í nágrannalöndunum. Kostnaður
við gagnaflutning í fjarskiptaneti
Pósts og síma er talinn samkeppnis-
hæfur. Svo dæmi sé tekið, reyndist
verð á leigulínum til Bandaríkjanna
lægra frá íslandi heldur en Þýska-
landi, Svíþjóð og Japan. íslendingar
þykja sömuleiðis standa framarlega í
forritun tæknilega séð. Þeir séu
fljótir að tileinka sér helstu nýjung-
ar, þannig að íslensk forrit séu flest
unnin með nýjustu tækni.
Útflutningsráð telur að stofna þurfi
fyrirtæki eða samstarfshópa fyrir-
tækja, sem vinna að markaðssetn-
ingu og sölu á þjónustu íslenskra
fyrirtækja sem geta unnið í fjar-
vinnslu. Ekki ætti að þurfa að ráðast
í umfangsmiklar og dýrar fjárfest-
ingar, þannig að verð á þjónustu
ætti að geta verið samkeppnisfært
við önnur lönd.
Fyrri reynsla gæti þó bent til að
menn þurfi að taka nokkuð á þolin-
mæðinni. Fjarvinnsluverkefni, sem
Byggðastofnun setti á fót árið 1990,
varð ekki sá styrkur fyrir atvinnulíf í
sveitum sem til var ætlast. Stjóm-
endur fyrirtækja og stofnana, opin-
berra ekki síst, reyndust tregir til að
láta vinna fyrir sig verkefni í fjar-
vinnslu. Ýmsar fjarvinnslustofur,
sem Byggðastofnun ætlaði að að-
stoða með verkefni, hafa nú ýmist
orðið að loka eða snúa sér að öðrum
verkefnum.
- HEI
CjCeðiCegt sumar!
SMURSTÖÐIN
Stórahjalla 2, Kópavogi. S. 43430.
(jCeðiCegt sumar!
mm* I* R t N r S M I D | A N
Smiðjuvegi 3,
CjCeðiCegt sumar!
Olíufélagið hf
Oskum
öllum
landsmönnum
gleðilegs
sumars
Olísskálinn
Selfossi
óskar starfsfólki og viðskiptavinum
gCeðiCegs sumars!
HÓTEL GEYSIR
óskar starfsfólki og viðskiptavinum
gCeðiCegs sumars!
QCeðiíegt sumar!
Prentsmiðjan
Höfðabakka 7.
Sími 683366.