Tíminn - 22.04.1993, Qupperneq 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 22. apríl 1993
Vomámskeið
(slenska fýrir útiendinga — byrjendanámskeið. Kennt er
tvisvar í viku. Námskeiðið stendur í 5 vikur og hefst 26.
april nk.
Umhverfisteikning — 5 vikna námskeið sem hefst 26. apr-
íl nk. Kennt er tvo daga í viku auk þriggja laugardaga,
m.a. unnið utandyra.
Trimm — hefst fimmtud. 3. maí og stendur til 30. júlí,
kennt tvisvar í viku.
Innritun — í Miðbæjarskóla í símum 12992 og 14106.
QCeðiCegt sumar!
MSMsn «. eo.
SKÚTUVOGI 10A, SÍMI 686700
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
simanumer
Frá og með 17. apríl er nýtt símanúmer Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri
96-30100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
■ Barnaheill
Meðferðarheimili
Bamaheill auglýsir í samráði við félagsmálaráðuneytið eftir
starfsfólki til að taka að sér rekstur meðferðarheimilis fyrir
vegalaus böm (6-12 ára).
í undirbúningi er uppbygging eins til tveggja meðferðarheim-
ila er taka til starfa í sumar. Verður annað staðsett í sveit á
Suðurlandi, en ekki hefur verið afráðið endanlega hvar hitt
heimilið verður staðsett, en líklega á Norðurlandi.
Viðkomandi starfsmenn þurfa að hafa menntun á einu eða
fleiri eftirtalinna sviða: Uppeldis- og kennslufræði, sálar-
fræði, félagsráðgjöf eða aðra sambærilega menntun.
Viðkomandi þurfa að hafa reynslu af vinnu með bömum.
Þar sem hér er um nýja starfsemi að ræða, munu starfs-
menn taka þátt i uppbyggingunni og móta starfsemina
ásamt stjóm heimilisins.
Laun og önnur kjör samkvæmt samkomulagi.
Umsóknum ber að skila til skrifstofu Bamaheilla, Sigtúni 7,
Reykjavík, fýrir 30. apríl nk.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Bamaheilla, sími
91-680545.
Bamaheill,
Félagsmálaráðuneytið.
GARÐSLÁTTUR
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Upplýsingar í síma 41224, eftir kl. 18.00.
\ÍaXv
ir /íf nsbfaj.
b{. ifrw ! Vtijr |
Ár dUuHT I
jL dud fUu, kttiis |
: K+bíi t ‘v-i M-i/} A1
Formáll hermannslns sem bjargaðl elntaklnu á sfnum tíma frá eyöllegglngu.
Frá Árna Gunnarssyni, fréttaritara Tímans í Þýskalandi:
Mein Kampf á 20 þúsund kr.
Mein Kampf, hin kunna bók
nasistaforíngjans Adolfs Hitl-
er, er orðin verðmætur safn-
grípur í Þýskalandi.
Hitler ritaði Mein Kampf (sem út-
leggst í íslenskri þýðingu „Barátta
mín“) á meðan hann sat í fangelsi
vegna öfgastefnu nokkrum árum
fyrir valdarán nasista í Þýskalandi
árið 1933. í kjölfar óeirða og upp-
þota nýnasista í Þýskalandi og vax-
andi umræðu um kynþáttahatur
sem vandamál verða upprunaleg
eintök af Mein Kampf sífellt verð-
mætari.
Bókin var prentuð nokkrum
sinnum á valdatíma nasistanna.
Það eintak, sem sést á meðfylgj-
andi mynd, var keypt á fombóka-
sölu í Hannover fýrir þrettán ár-
um, fyrir lítið verð. Þessa útgáfu
frá árinu 1943 var hægt að fá í
misdýrum útgáfum, eða frá 5
mörkum og 70 pfennigum fyrir
venjulega Múllera og Meiera, og
upp í viðhafnarútgáfu sem kostaði
24 mörk.
í dag selst þessi bók hiklaust fyrir
500 mörk, eða 20 þúsund íslensk-
ar krónur, þrátt fynr að hún sé
bæði illa farin og ekki úr fyrsta
upplaginu.
Það, sem spennir verð bókarinn-
ar svona upp, er eftirspurn nýnas-
istanna í Þýskalandi eftir henni, en
hún er mest í fyrrverandi Austur-
Þýskalandi.
Nasistamir líta á Mein Kampf
sem nokkurs konar biblíu. Banda-
rískur hermaður, sem við fall
Þýskalands bjargaði þessu eintaki
frá eyðileggingu, skrifaði á titil-
blaðið að hann bjargi bókinni til
þess að sýna umheiminum hugar-
óra þess brjálæðings sem skrifaði
hana.
íslenskir menningardagar í Ríga þóttu takast
eindæma vel:
Sigrún Hjálmtýs kveikti
eld í hjörtum Letta
„Þessi íslenska innrás vakti mikla
athygli á íslenskri menningu og
íslandi yfirleitt og þótti takast
með eindæmum vel,“ segir í til-
kynningu menntamálaráðuneytis-
ins um íslenska menningardaga,
sem efnt var til í Ríga í Lettlandi
dagana 1. til 10. aprfl, að frum-
kvæði íslandsvinafélagsins í Lett-
landi.
íslenska listafólkið var meðal
annars kynnt í sérstökum lesbók-
arkálfi sem fylgdi stærsta blaði
Lettlands.
Þar voru einnig birtar ýmsar
greinar um íslensk málefni, ásamt
kveðjum forseta íslands og sendi-
herra íslands í Lettlandi.
Sigrún Hjálmtýsdóttir óperu-
söngvari og Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir píanóleikari héldu þrjá
hljómleika og hlutu mjög góðar
viðtökur.
Sigrún varð að syngja fjölda auka-
laga og fékk að launum gríðarleg
fagnaðarlæti og bravóhróp. Leik-
Slgrún Hjálmtýsdóttlr.
brúðuland sýndi „Bannað að
hlæja" fjórum sinnum fyrir fullu
húsi. Og sýningar á málverkum
Helga Þorgils Friðjónssonar og
ljósmyndum Páls Stefánssonar
prýddu veggi í sögufrægu menn-
ingarhúsi þessa menningardaga.
VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKAN
IÓTOI
cARARBRODDI
■' FJÖRTÍU
ÁR!
VEM verksmiðjurnar framleiða allar
helstu stærðir og gerðir raf- og
gírmótora fyrir iðnað, skip, land-
búnað og ýmsar sérþarfir.
Höfum fyrirliggjandi allar algengustu
stærðir og gerðir og útvegum
alla fáanlega mótora með
skömmum fyrirvara.
Veitum tæknilega ráðgjöf
við val á mótorum.
VEM - þýsk gæðavara á góðu verði!
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SfMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84
VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VELADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS