Tíminn - 22.04.1993, Page 10

Tíminn - 22.04.1993, Page 10
10 Tíminn Fimmtudagur 22. apríl 1993 QCeðiCegt sumar! ora Niðursuðuverksmiðja ■ Vesturvör 12 CjCeðiCegt sumar! Búnaðarfélag íslands Bændahöllinni Hin áríega haffísala sfeátanna veröur í félagsheimili Kópavogs frahL3-5. Hlaðborb með gimilegum höhum. Styrfcið ofehur í starfi! KVENNADEILDIN URTUR & SKÁTAFÉLAGIÐ KÓPAR Þroskaþjálfar Aðalfundur Félags þroskaþjálfa verður haldinn í Munaö- arnesi laugardaginn 8. maí 1993 kl. 14.15. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. A. Tillögur að breytingu á siðareglum þroskaþjálfa. B. Stofnun stéttarfélags? SQómin. -------------------------------------------------------\ 'í Minningarathöfn um vin minn, fööur okkar, tengdaföður og afa Barða Eriing Guðmundsson verður I Akraneskirkju föstudaginn 23. aprll kl. 15:00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjálparsveit skáta og Björgunar- sveitina Hjálpina, Akranesi. ElmýVals Katrín Inglbjörg Barðadóttlr Jónas Friðriksson Hilmar Þór Barðason Sæunn Valdís Guðmundsdóttlr Barði Erilng Barðason Sandra Kristfn JónasdótUr v " ............................................... j Sæunn Tómasdóttir Miðvikudaginn 14. apríl lést á Sól- vangi móðursystir mín, Sæunn Tóm- asdóttir, á 82. aldursári. Hún var fædd í Hólum í Biskups- tungum árið 1911, dóttir hjónanna Tómasar Bjamasonar og Óskar Tóm- asdóttur, önnur í röðinni af 7 systkin- um sem upp komust, en tvo syni misstu þau bamunga. Ung fluttist Sæ- unn með foreldrum sínum að Hellu- dal í Biskupstungum og átti hún þar heima þar til hún hóf eigin búskap. Hún giftist árið 1942 Bimi Bjama- syni, sem fæddur er 1907 í Hítardal, Hraunhreppi í Mýrasýslu, en ólst upp að Haukatungu, Hraunhreppi á Snæ- fellsnesi. Byrjuðu þau Bjöm og Sæ- unn búskap sinn í Haftiarfirði það sama ár. Þau eignuðust hús á Reykja- víkurvegi 12, þar sem þau bjuggu um tíma, en kringum 1950 var húsið flutt vestast í bæinn, að mörkum Hafnar- fjarðar og Garðahrepps. Nefndu þau staðinn Sæból og áttu þar heima síð- an. Þau voru samhent hjónin. Þau stækkuðu húsið og ræktuðu garðinn sinn í bókstaflegri merkingu, því bletturinn í kringum húsið varð að fögrum gróðurreit í gráu hrauninu. Þau keyrðu mold í hraunið til að mynda jarðveg, gerðu matjurtagarð og ræktuðu blóm og tré. Er ótrúlegt að sjá gróskuna í garðinum á Sæbóli. Sæunn helgaði sig að mestu húsmóð- urstörfum, en einnig var hún verka- kona og vann aðallega við fiskverkun. Þau Bjöm eiga tvo syni, Eðvarð Rafn, f. 1947, og Óskar Tómas, f. 1949. Skyldfólkið hennar Sæunnar naut í ríkum mæli gestrisni þeirra hjóna, því þar átti það víst húsaskjól þegar kom- ið var í bæinn. Hún lét sér líka annt um æskustöðvamar og ófá handtökin átti hún á heimili móður sinnar og bræðra eftir að hún flutti suður og stofnaði sitt eigið heimili. Móður sína tók Sæunn til sín og annaðist hana al- veg síðustu mánuðina sem hún lifði, og mörgum fleirum veitti hún aðstoð þegar á þurfti að halda, bæði skyld- fólki og nágrönnum. Byggðin í hrauninu fyrir vestan Hafnarfjarðarbæ var dálítið sérstök. Þar voru mörg lítil hús í hraunhvöm- munum, sem nú eru flest horfin. Margt af fólkinu sem þar bjó varð góð- ir kunningjar þeirra Bjöms og Sæ- unnar. Hafa þau sagt mér að oft hafi verið glatt á hjalla á Sæbóli á gamlárs- kvöld, því þá kom fólkið úr hrauninu þar saman og svo var spilað langt fram á nótt. Sæunn var alla tíð létt í lund og létt á fæti og vílaði ekki fyrir sér að fara langar leiðir gangandi. En á síðustu árunum fóm kraftar hennar þverr- andi, svo hún var að síðustu bundin við hjólastól, að heita mátti alveg máttlaus. Vegna þessa dvaldi hún á Sólvangi. Ekki lét hún þó veikindi sín aftra sér frá að heimsækja æskustöðv- amar, síðast komst hún austur síðast- Iiðið sumar með aðstoð beggja sona sinna. Hún átti orðið erfitt með að tjá sig vegna lömunarinnar, en andlega var hún við fulla heilsu fram til hins síðasta og fylgdist af áhuga með öllu sem var að gerast, bæði hjá vinum og ættingjum og í þjóðlífinu yfirleitt. Og aldrei heyrði maður hana barma sér yfir hlutskipti sínu. Ég er ein af þeim sem áttu vísa gist- ingu á Sæbóli hvenær sem var meðan ég átti heima austur í Tungum. Böm- in okkar Guðna nutu líka góðs af hjálpsemi Sæunnar. Meðan þau voru lítil var gott að eiga vísa vist fyrir þau þegar með þurfti. Það gerðist jafnvel að hún tók sig upp og fór austur til að passa þau öll um tíma hjá ömmu þeirra og systur sinni. FVrir þetta allt viljum við nú þakka. Eg og fjölskylda mín vottum Bimi, sonunum tveim, tengdadótturinni Jó- hönnu Óskarsdóttur og sonardætmn- um Bimu, Sæunni og Bryndísi okkar dýpstu samúð. Inga Krístjánsdóttir Barði Erling Guðmundsson „Það syrtir að, er sumir kveðja." Þessi hending úr kvæði skáldsins frá Fagra- skógi flaug mér f hug, þegar ég frétti að mágs míns væri saknað, eftir að ofsaveð- ur skall óvænt á stuttu fyrir hádegi þann 17. mars s.l. Akranestrillumar höfðu róið í góðu veðri um morguninn og veðurspáin lof- aði góðu. En „skjótt skipast veður í lofti" og f einu vetfangi var komið ofsarok og blindhríð. í vestanáttinni verður um- hverfi hafnarinnar eins og suðupottur, og þetta voðaveður kostaði þrjú manns- líf. Þrír vaskir sjómenn, hetjur hafsins, eins og þeir heita á hátíðastundum, mættu sínu skapadægri. Barði hafði aðeins átt trilluna sína í fá- eina mánuði, en hann hafði stundað sjó alla ævi og vildi helst ekki annars staðar vera, enda átti hann erfitt um ýmis verk vegna fötlunar á hendi, er var afleiðing slyss, er hann lenti í fyrir mörgum ár- um. Oft furðaði maður sig á hvað hann var harður af sér og duglegur, þrátt fyrir fötlunina. Barði Erling var fæddur 28. nóvember 1944 á Akranesi, en þar bjuggu foreldrar hans, Guðmundur Jónsson skipstjóri ffá Gamla-Hrauni við Eyrarbakka og Hólm- fríður Ásgrímsdóttir frá Efra-Ási í Hjaltadal, Skagafirði, en þau eru bæði látin. Guðmundur var einn 17 bama Jóns Guðmundssonar bónda og for- manns á Gamla-Hrauni, af Bergsætt, og k.h. Ingibjargar Jónsdóttur, af Reykja- kotsætt Hólmfríður var dóttir Ásgríms Stefánssonar bónda í Efra-Ási og k.h. Sigmundu Skúladóttur, þau voru ættuð úr Fljótum í Skagafirði, af Stóm- Brekku- og Brúnastaðaættum. Það stóðu því að Barða sterkir stofnar af Suður- og Norðurlandi og margt góðra sjómanna. Hann ólst upp á Akranesi, næst yngstur sex alsystkina, sem öll eru á Iffi. Einn bróður samfeðra átti hann, og dóttur átti Hólmfríður af fyrra hjónabandi, en hún lést ung frá sex bömum. Á yngri árum var hann ýmist á bátum héðan af Skaganum eða frá Þorlákshöfn, en þar voru tvö systkina hans þá búsett Þann 29. mars 1975 steig Barði það gæfuspor að ganga að eiga Eimýju Sús- önnu Valsdóttur, sem þá var aðeins 18 ára gömul. Eimý er frá Hveragerði, dótt- ir Vals Einarssonar og k.h. Olgu Mörk. Valur er látinn, en Olga lifir tengdason sinn, búsett í Hirtshals á Jótlandi. Barði og Eimý, eða Baddi og Enna eins og fjölskyldan kaJlaði þau, stofnuðu heimili í Þorlákshöfn, og þar bjuggu þau næstu árin. Hann var á sjónum, en hún starfaði að verslunar- og skrifstofustörf- um. Árið 1982 fæðist þeim sonur, sem hlaut nafn föður síns Barði Erling. Áður hafði Barði eignast tvö böm með Vigdísi Jóhannsdóttur: Katrínu Ingibjörgu fóstru, f. 1966, búsetta á Akranesi og á hún dótturina Söndru Kristínu, fimm ára; og Hilmar Þór trésmið, f. 1968, kvæntan Sæunni Valdísi Guðmunds- dóttur, búsettan í Reykjavík. Árið 1983 flytja þau til ísafjarðar og fyr- ir vestan eru þau í tvö ár. Þar starfaði Barði á netaverkstæði, og mun það lengsti tíminn, sem hann var í land- vinnu. En haustið 1985 komu þau hing- að til Akraness. Eimý hóf nám við Sam- vinnuskólann í Bifröst, en Barði sótti sjóinn. Þeir höfðu alltaf haft gott samband bræðumir, Sævar og Barði, þrátt fyrir nærri 13 ára aldursmun og ekki aldir upp saman. En eftir að þeir fluttu hingað þróaðist samband þeirra í nána vináttu. Þeir áttu svo margt sameiginlegt, áhugi þeirra á allskonar veiðiskap, hvort sem það var fugl eða fiskur, var þeim óþrjót- andi umræðuefhi. Við höfðum því við þau mikil samskipti og áttum með þeim margar ánægjustundir. Barði var hlé- drægur, stundum nærri um of, og alveg laus við að trana sér á nokkum hátt. Er það ættarfylgja. Frá þvf hann kom hingað til Akraness aftur hafði hann róið fyrir eða með þeim Símoni Símonarsyni og Kristni Finns- syni, en á sfðasta ári var kvóti þeirra orð- inn svo lítill að ekki dugði þremur. Þvf var það að á liðnu hausti lét hann þann draum rætast, að eignast sjálfur bát. Hann keypti fimm tonna trillu austan af Borgarfirði, skírði hana Akurey, og hóf róðra með línu í nóvember s.l. Hann hafði svo fyrir ekki löngu skipt yfir á net- in, er hann fór sína síðustu ferð. Kvöldið áður hringdi hann í Sævar bróður sinn og spurði hvort hann mundi ekki fella fyrir sig nokkur net, því hann ætlaði að bæta við sig fleiri netum. Það var að sjálfsögðu auðsótt mál. Þeir höfðu uppi ýmsar áætlanir um skemmtiferðir á bátnum, er sumraði, að ná í fugl og fisk. En „mennimir áætla, Guð ræður"; í einu vetfangi er öllu breytt, og Baddi kemur ekki framar í bfiskúrinn eða eld- húskrókinn á Garðabrautinni að heilsa upp á bróður sinn og ræða um veiðiskap. Barði var einstakur heimilismaður og bar hag sinnar fjölskyldu mjög fyrir brjósti; hann var einnig jafnvígur á öll störf í eldhúsinu, hvort sem það var mat- reiðsla eða bakstur. Á meðan Eimý stundaði nám sitt í Bifröst, en þaðan lauk hún prófi í rekstrarfræði vorið 1990, sá hann um sig og son þeirra að miklu leyti, enda afar kært með þeim feðgum. En öllum fríum eyddi fjölskyld- an saman, að svo miklu leyti sem hægt var. Björgunarsveitin Hjálpin, hjálparsveit skáta á Akranesi, svo og sjómenn hér hafa leitað afar mikið, bæði á sjó og landi, einnig þyrla fyrstu dagana eftir slysið, en án árangurs; aðeins brak úr stýrishúsi, björgunarbátur og fleira smá- legt hefur fundisL Barða virðist því búin hin vota gröf, sem svo fjölmargir ís- lenskir sjómenn hafa gist Ég veit að ég mæli fyrir munn allrar fjölskyldunnar þegar ég færi öllum þessum mönnum bestu þakkir og bið þeim allrar blessun- ar í þeirra fómfúsa starfi. Ég kveð Barða mág minn með virðingu og þökk fyrir öll liðnu árin. Elsku Enna, Guð styrki þig, bömin hans, dótturdótt- ur og aðra aðstandendur í sorg þeirra, en sérstaklega soninn unga, sem svo mikið hefur missL Hið hvíta skip, með heflað segl við rána, af hafi kom í gær ogferí dag. — íhógværð hljóðrar stundar það hverfur fjær og fjœr. En daufu bliki bylgjur sínar þekur hirm breiði sær. (Guöm. Böövanton) Gréta Gunnarsdóttir

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.