Tíminn - 22.04.1993, Síða 14

Tíminn - 22.04.1993, Síða 14
14 Tíminn Fimmtudagur 22. apríl 1993 70 ára: Haraldur Hermannsson fyrrum hreppstjóri, Ysta-Mói, Fljótum Haraldur er fæddur að Ysta-Mói í Fljótum 22. dag aprílmánaðar 1923. Hann er sonur hjónanna Hermanns Jónssonar og Elínar Lárusdóttir. Haraldur ólst upp þar, sjöundi í röð níu bama þeirra Elínar og Hermanns. Hann var snemma tápmikill, léttur á fæti, óragur að keppa í hlaupum og ýmsum leikjum við sér eldri ung- linga. Hann var einnig opinskár í orðaskiptum á unglingsárum. Ég minnist þess, að er við vomm litl- ir, Haraldur þá 6 ára, var okkur boðið ásamt foreldrum okkar á næsta bæ. Ábúendur jarðarinnar voru að flytja búferlum í annað sveitarfélag. Dóttir þeirra hjóna var jafnaldra Haraldi. Það var búið að strfða honum á stelpunni og koma því inn hjá honum, að hún væri konuefnið hans. Við strák- amir, ég, Haraldur og Georg, vor- um í leik við krakkana á bænum í hlaðvarpanum í góðu vorveðri. Er við komum heim, var Haraldur spurður hvernig honum litist á heimasætuna og hvort hún hafi ekki verið hrifin af honum. „Nei, hún var ekkert hrifin af mér, en hún var bálskotin í Gogga. En við Sæmi pössuðum hann og sögð- um: „Þú færð aldrei Gogga“.“ Fólkið heima hafði gaman af þessu, og vom tilsvör hans lengi höfð í minnum. Haraldur hændist mjög að afa sínum, Lámsi Ólafssyni, en hann var með herbergi á Ysta-Mói og eldaði hann mat handa sér og Haraldi. Hann var því í nokkurs- konar fóstri hjá afa sínum. Er Haraldur náði aldri, var hann mikið fyrir íþróttir. Skíðagöngu og fótbolta stundaði hann af kappi með nokkmm árangri, enda lipur á fæti. Haraldur var í skóla í Reykholti. Er hann var þar brá hann sér, ásamt þrem öðmm skólasveinum, í gönguferð frá skólanum upp á jökulinn Ok. Ég trúi, að það hafi verið erfitt og jafnvel glæfrafyrir- tæki. Hann var nokkur ár í Síldarverk- smiðju ríkisins á Siglufirði, þá unglingur, en var talinn jafnoki þeirra eldri, sem þar unnu. Hann hóf búskap á Ysta-Mói árið 1947 á móti foreldmm sínum og keypti síðar hálfa jörðina. Hann bjó með kýr og kindur og jukust afúrðir búsins með aukinni rækt- un, nýju fjósi og rúmgóðri hlöðu- samstæðu; einnig fjölgaði hann kúnum. Haraldur var á þeim tíma atorkumaður mikill, enda þótt hann ætti við bæklun á fæti að stríða, með gervilið í mjöðm. Þeg- ar börnin efldust og stækkuðu voru þau kappsöm og dugleg að hjálpa foreldmm sínum. Árið 1972 varð Haraldur kaupfé- lagsstjóri í Haganesvfk um skeið, og þá tók elsti sonur hans við bú- inu á Mói. Þegar þjóðvegurinn var færður frá Haganesvík, sem var slæm breyting fyrir sveitarfélagið, var verslunin færð á Ketilás í snjó- þyngslin þar. Haraldur vann þar við verslunina frá 1977 til 1979, er r HEILLA j hann fluttist á Sauðárkrók, og varð hann þar aðstoðardeildar- stjóri í Byggingarvöruverslun Kaupfélags Skagfirðinga. Hann var í ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Haganeshrepp. Hreppstjóri var hann þar um skeið, hann sat mörg ár í hrepps- nefnd og Sýslunefnd Skagafjarðar- sýslu. Öll sín störf hefur Haraldur leyst prýðisvel af hendi. Árið 1946 kvæntist Haraldur Guðmundu Hermannsdóttur frá Hamri í Fljótum. Foreldrar henn- ar vom hjónin Hermann Jónsson og Petra Stefánsdóttir, er þar bjuggu. Haraldur og Guðmunda eignuð- ust 9 böm: Hermann Björn, stýrimaður á Akureyri. Kvæntur Sigurhönnu Ólafsdóttur. Eiga þau tvo syni og eitt bamabam. Jóhanna Petra, sjúkraliði á Sauð- árkróki, gift Jónasi Svavarssyni. Eiga þau þrjár dætur og tvö bamaböm. Linda Nína, skrifstofumaður, Sauðárkróki. Gift Jóni E. Friðriks- syni. Eiga þau þrjú börn. Linda á eina dóttur fyrir hjónaband. Lára Gréta, bankastarfsmaður í Reykjavík. Gift Magnúsi Sigfús- syni. Eiga þau þrjú böm. Ellen Hrönn, starfsstúlka á Sjúkrahúsi Skagfirðinga. Gift Gunnari Birni Ásgeirssyni. Eiga þau eina dóttur. Stefán Logi, skrifstofustjóri, Sauðárkróki. Kvæntur Ingu Sess- elju Baldursdóttur. Eiga þau þrjú böm. Róbert Steinn, línumaður í Steinullarverksmiðju Sauðár- króks. Sambýliskona Erla Val- garðsdóttir. Eiga þau tvær dætur. Haraldur Smári, kjötiðnaðar- nemi, Sauðárkróki. Sambýliskona Eydís Eysteinsdóttir. Eiga þau einn son. Smári á tvær dætur fyr- ir. Við Ása og fjölskylda okkar ósk- um Haraldi, Guðmundu konu hans og fjölskyldu þeirra innilega til hamingju með þennan áfanga í lífi þeirra. Sauðárkróki, 22. apríl 1993 Sæmundur Árni Hermannsson V E L L G E I R I ffVEtl (}E/Rf$NýRD(}HR/$ríRHÖFUÐ(IUÐS/NS, MRT7/..... rn ■ r» . ' wi ’ K U B B U R 6742. Lárétt 1) Kynjaskepna. 6) Hás. 8) Pantur. 9) Sjá. 10) Fugl. 11) Afsvar. 12) Fita. 13) KomisL 15) Frekju. Lóðrétt 2) Tófuhvolp. 3) Bókstafur. 4) Sú sem samið var um. 5) Kækur. 7) Spil. 14) Afi. Ráðning á gátu no. 6741 Lárétt 1) Gjóla. 6) ÖIi. 8) Bók. 9) Tóm. 10) Unn. 11) 111. 12) Inn. 13) Són. 15) Sálga. Lóðrétt 2) Jökulsá. 3) Ól. 4) Litning. 5) Óbeit 7) Smána. 14) Ól. Kvöld-, nælur- og helgidagavarala apóteka I Reykjavlk frá 16. til 22. april er I Hraunbergs apótekl og Ingólfs apóteki og frá 23. til 29. aprfl I Árbæjar apóteki og Laugames apóteki. Það apó- tek sem fyrr er nefnt annast eltt vóraluna frá kl. 22.00 að kvöldi til kl. 9.00 aö morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og iyfjaþjónustu eru gefnar I sima 18888. NeyðarvaktTannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátióum. Símsvari 681041. Hafnarfjöröun Hafnartjaróar apótek og Norðutbæjar apó- tek etu opin á virkum dðgum frá Id. 9.00-18.30 og ti skiptis annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag Id. 10.00-12.00. Uppiýsingar í símsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartima búða. Apótekin skiptast á slna vikurta hvort að sinna kvöid-, nætur- og helgidagavötsiu. Á kvöfdin er opið i þvi apóteki sem sér um þessa vörsiu, ti Id. 19.00. A heigidögum er opið frá W. 11.00-1200 og 20.00- 21.00. Á öðrum timum er lyfjafræðingur á bakvakt Uppiýs- ingar eru gefnar i sima 22445. Apótek Keflavíkun Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard.. helgidaga og almenna fridaga Id. 10.00-1200. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00- 18.00. Lokað í hádeginu mili Id. 1230-14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laug- ardögum og sunnudögum ki. 10.00-1200. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga ti Id. 18.30. A laugard. Id. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00. Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga Id. 9.00-18.30, en laugardaga Id. 11.00-14.00. 21. april 1993 kl. 9.15 Kaup Sala Bandaríkjadollar ..63,120 63,260 Steriingspund ..97,536 97,753 Kanadadollar ..50,257 50,368 Dönsk króna 10,2927 10,3155 ...9,3187 9,3393 Sænsk króna ...8^5530 8^5719 Finnskt mark .11,4348 11,4601 Franskur franki .11,6840 11,7099 Belgískur franki ...1,9177 1,9219 Svissneskur f ranki... .43,3502 43,4463 Hollenskt gyllini .35,1184 35,1963 Þýskt mark .39,4660 39,5536 .0,04124 0,04133 Austurriskur sch ...5,6082 5,6206 Portúg. escudo ...0,4269 0,4279 Spánskur peseti ...0,5456 0,5468 Japanskt yen .0,56939 0,57066 ...96,208 96,421 SérsL dráttarr .89,3565 89,5547 ECU-Evrópumynt.... .76,9717 77,1424 HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. aprí) 1993. Mánaðargreiöslur HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. april 1993. Mánaðargreiðslúr Elli/örorkulifeyrir (grunnlrfeyrir)........ 12.329 1/2 hjónalífeyrir...........................11.096 Full tekjutrygging ellilifeyrisþega.........22.684 Full tekjutrygging örorkulifeyrisþega.......23.320 Heimilisuppbót..............................7.711 Sérstök heimilisuppbót.......................5.304 Bamallfeyrir v/1 bams.......................10.300 Meðiagv/1 bams .............................10.300 Mæðralaun/feöralaunv/lbams...................1.000 Mæðralaun/feðralaun v/2ja bama...............5.000 Mæðralaun/feðralaun v/3ja bama eða fleiri...10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða.............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða____________11.583 Fullur ekkjullfeyrir........................12.329 Dánarbætur 18 ár (v/slysa)..................15.448 Fæðingarstyrkur.............................25.090 Vasapeningar vistmanna.................... 10.170 Vasapeningar v/sjúkratrygginga..............10.170 Daggreiðslur Fullir fæðinganiagpeningar..................1.052 Sjúkradagpeningar einstaklings...............52620 Sjúkradagpeningar fyrir hverl bam á framfæri ...142.80 Slysadagpeningar einstaklings...............665.70 Slysadagpeningarfyrir hvert bam á framfæri ....142.80

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.