Tíminn - 20.05.1993, Page 1

Tíminn - 20.05.1993, Page 1
Fimmtudagur 20. maí 1993 93. tbl. 77. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 110.- Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins: Breyta verður búvörulögum Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir það sina skoðun að eftir að búið sé að gera EES-samninginn að lögum þá hljóti eldrí lög að vera bundin af honum. Því sé eðlilegt aö breyta búvörulögunum. Það eigi ekki að þurfa að vera umdeilt. EES-samningurínn segi hins vegar ekkert um hver eigi að stjóma hugsanlegum innflutningi og álagningu jöfnunargjalda. Steingrím- ur sagði það sína skoðun að það værí eölilegt að landbúnaðarráö- herra færí með forræði í þessum málum. „Mín skoðun er sú að það sé að um landbúnaðarmálum. Hann vísu rétt að eftir að búið er að gera benti þó á að enn væri verið að EES-samninginn að lögum þá séu önnur eldri lög af því bundin. Hins vegar segir EES-samningurinn ekkert um það hver skuli stjóma álagningu jöfnunargjalda og veita innflutningsleyfin, hvort það skuli vera utanríkisráðherra eða land- búnaðarráðherra," sagði Stein- grímur. Steingrímur sagði að landbúnað- arþáttur EES-samningsins (bókun 3) gæfi aðildarþjóðum hans heil- mikið svigrúm til að stjóma sín- semja um ýmis framkvæmdaatriði bókunar 3. Steingrímur sagðist treysta því að Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra héldi fast við þá afstöðu að hann færi með forræði í málinu. Það væri hin eðlilega skipan þess- ara mála. Steingrímur sagði að ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar ut- anríkisráðherra um þetta mál hefðu ekkert verið rædd í utanrík- ismálanefnd. -EÓ Formaður utanríkismálanefndar segir EES-samning- inn ekki landslögum æðri: Alþingi hefur síðasta orðið Bjöm Bjamason, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að það sé óumdeilt að Alþingi hafi síðasta orðið varðandi alia lagasetningu hér á landi. EES-samningurínn breyti þar engu um. Hann sé ekki rétthærri íslenskum lögum. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra sagði í síðustu viku að óþarft væri að breyta búvöru- lögunum því að lögin vikju fyrir ákvæðum EES-samningsins þar sem samningurinn og búvörulög- in stönguðust á. „Það hefur alla tíð legið fyrir í sambandi við spuminguna um landslög og EES-samninginn að Alþingi hefði síðasta orðið gagn- vart samningnum. Allir lögfræð- ingar sem um þetta hafa fjallað eru sammála um það að EES- samningurinn tekur engin völd af Alþingi," sagði Bjöm. Bjöm sagði að hugsanleg breyt- ing á búvömlögum snerist fyrst og fremst almennt um afstöðu manna til innflutnings á búvömm til íslands. Væntanlegt GATT-sam- komulag skipti þar mun meira máli en EES- samningurinn. Bjöm sagðist líta svo á að það hefði verið ákaflega gott samstarf milli utanríkismálanefndar og landbúnaðarnefndar og það væri sinn vilji að það góða samstarf héldi áfram. Bjöm sagðist ekki vera tilbúinn til að svara neinu um það hvort EES- samningurinn gæti tekið gildi ef búvömlögum hefði ekki verið breytt. Það mál þyrftu menn að athuga betur í sumar. Gro Harlem Brundttand, forsætisráðherra Noregs, ásamt Davfð Oddssynl. Tfmamynd Ami Bjama Gro Harlem kom- in til íslands Gro Harlem Bmndtland, forsætisráðherra Nor- egs, kom í opinbera heimsókn til íslands seinni partinn í gær. í gærkvöld snæddi hún kvöldverð á Þingvöllum í boði Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra og frú Ástríðar Thorarensen. Dagskrá heimsóknarinnar í dag hefst á viðræð- um í forsætisráðuneytinu. Síðan mun Bmndtland ræða við utanríkismálanefnd Alþingis, heimsækja Ráðhús Reykjavíkur og snæða hádegisverð í Höfða í boði borgarstjóra. Að honum loknum verður flogið að Reykholti. Um kvöldið bjóða Davíð Odds- son og frú til kvöldverðar í Viðey. Að morgni föstudags mun Gro Harlem Bmndt- land heimsækja Nesjavelli. Verður síðan haldið til Bessastaða þar sem forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, býður til hádegisverðar. Að hon- um loknum mun Bmndtland virða fyrir sér hand- rit í stofnun Árna Magnússonar en fara síðan á fund með Alþýðuflokknum í Komhlöðunni við Bankastræti. Móttaka forsætisráðherra Noregs verður í Perl- unni á föstudaginn kl.17-19. Að morgni laugardags heldur Gro Harlem Bmndtland heim á leið. Nýtt tyrirtæki, Spor hf., yfirtekur rekstur hljómplötuútgáfunnar Steinar hf. og Steinar Músik og myndir hf.: Fyrirtækin voru komin „Það er alveg Ijóst að ég hefði kannski viljað stofna til þessa samstarfs standandi sterkarí fótum en raun ber vitni. En ég held að þetta sé heilbrígt og eðlilegt samstarf engu að síöur,“ segir Steinar Berg (sleifsson og neitar því aðspuröur að Jón Ólafsson í Skífunni sé að gleypa þennan fyrrverandi keppinaut sinn með húð og hárí með stofnun Spors hf. „Hér er um persónulega gagnkvæmt traust að ræða.“ Stofnað hefur verið nýtt fyrir- tæki, Spor hf., sem yfirtekur rekst- ur hljómplötuútgáfunnar Steinar hf. og Steinar Músík og myndir hf. Formaður hins nýja félags er Jón Ólafsson eigandi Skífunnar en aðr- ir í stjóm em Guðlaugur Berg- mann, löngum kenndur við Kama- bæ, og Steinar Berg sem verður framkvæmdastjóri Spors hf. öllu starfsfólki Steinars hf. verður sagt upp störfum en reynt verður að endurráða sem flesta. Steinar Berg segir að stofnun Spors hf. hafi átt sér stuttan að- draganda en fyrirtæki hans var að þrotum komið þar sem illa gekk að útvega fiármagn til rekstursins. Skuldir þess em um 100 milljónir króna á móti eignum. Fjármagns- kostnaðar nam um 20 milljónum króna af um 400 milljón króna ársveltu. En frá árslokum 1989 hafði fyrirtæki Steinars Berg vaxið úr því að vera með fiórar verslanir og 18 starfsmenn auk heildsölu- dreifingar í allt að 10 verslanir með 45 starfsmenn og ennþá meiri um- svif í heildsölu. ,Á þessum tíma höfúm við þurft að glíma við verðlækkun, aukna samkeppni, tæplega tvöföldun raunvaxta og nú sfðast margföld- unaráhrif þess efnahagssamdráttar sem landsmenn eiga við að glíma. Þegar svo er komið er ekki um ann- að að ræða en horfast í augu við staðreyndir og reyna að horfa til framtíðar." Steinar Berg segir að eftir sem áð- ur verði áfram samkeppni á milli Spors hf. og Skífunnar. Hann segir að þessi tenging muni innan skamms leiða til stofnunar nýs fyr- í þrot irtækis sem muni reka dreifingar- miðstöð fyrir bæði fyrirtækin. „Við það mun skapast veruleg hagræðing en hefur ekkert með samkeppni að gera. En sala, mark- aðssetning og innkaup verður eftir sem áður á höndum hvors fyrir- tækis fyrir sig.“ Steinar Berg segir að jafnframt sé ætlunin að sameina innkaup að utan og reyna þannig að ná hagstæðari kjörum til hags- bóta fyrir neytendur og einnig að nýta þessa samvinnu til sóknar til að koma íslenskri tónlist á fram- færi erlendis. -grh

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.