Tíminn - 20.05.1993, Qupperneq 2

Tíminn - 20.05.1993, Qupperneq 2
2 Tíminn Fimmtudagur 20. maí 1993 íslensk fjallagrös vekja áhuga eriendis, meðal annars hjá eiganda hinna alþjóðlegu Body Shop verslana: Hreinni en sambærileg grös í Evrópu „Aðalmáliö er að við lítum á þetta sem auðlind vegna þess að ís- lensku fjallagrösin eru hreinni en sambæríleg grös í Evrópu," seg- ir Baldvin Jónsson hjá íslenska heilsufélaginu. Fyrir skömmu var stofnað á Blönduósi hlutafélag um fyrirtæki sem ætlað er að vinna heilsuvörur úr fjallagrösum. Helstu hluthafar eru íslenska heilsufélagið, Iðn- tæknistofnun og Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra en alls eru hlut- hafar um ellefu talsins. Á næstunni er svo ætlunin að leggja drög að öfl- un fjallagrasa tii vinnslu og þróun á afúrðum úr þeim til framleiðslu og þá einkum sem bætiefni. Baldvin Jónsson segir að íslensku flallagrösin hafi vakið athygli er- lendis og eigandi hinna alþjóðlegu Body Shop verslana, sem selja vörur sem unnar eru úr náttúrulegum efnum, hafi lýst yfir áhuga á ís- lensku grösunum og meðal annars boðið fram aðstoð og stuðning sinna lífefnafræðinga og annarra tækni- og fagmanna við þá þróunarvinnu sem framundan er. Stefnt er að því að fullvinna heilsu- vörur úr fjallagrösum hér innan- Leiðrétting við helgarviðtal í helgarviðtali Tímans við Hain Rebas, vamarmálaráðherra Eistlands, féll niður málsgrein í fimmtu línu annars dálks á blaðsíðu 7 þannig að það sem þar stóð varð illskiljanlegt. Þar átti að standæ „...hér enn hópur úr GRU, leyniþjónustu rússneska hersins, og noklóir gamlir starfsmenn KGB.“ Skammt utan við Tállinn á leiðinni til Tártu er enn í notkun háþróuð hlerun- arstöð í eigu GRU og KGB.“ Beðist er velvirðingar á þessu. lands en líkur eru á því að grösin styrki slímhúð öndunarfæra og maga og hafi ennfremur græðandi áhrifáhúðina. „Við erum á frumstigi með fram- leiðsluna en á meðan er unnið af krafti við vöru- og markaðsþróun." Að sögn Baldvins eru fjallagrös um allt land en þau séu illræktanleg. Við tínslu þeirra verði að fara varlega og gæta þess að grisja grösin í stað þess að taka þau öll á sama svæði. -grh ÚRSLIT í SAMKEPPNI sem Landsnefnd um alnæmisvamir efndi til um rítun einþáttungs fýrir leiksvið vom kynnt nú í vikunni. Aðalverðlaunin, 150.000 kr., hlaut Hlín Agnarsdóttir fýrír verkið „Al- heimsferðir, Ema“. Þá hlutu þeir Hreinn S. Hákonarson (t.v.) og Valgeir Skagfjörð 50.000 kr. verðlaun hvor fyrír einþáttunga sfna. Tímamynd Aml Bjama Siðanefnd Læknafélags íslands telur að Lára Halla hafi ekki brotið af sér: Landlæknir dragi áminningu til baka Lára Halla Maack réttargeðlæknir hefur óskað eftir því við stjóm Læknafélags íslands aö hún farí fram á þaö við Ólaf Ólafsson land- lækni að hann dragi til baka áminningu sem hann gaf Lám Höllu í fyrrahaust. Lára Halla setur fram þessa ósk á gmndvelli úrskurðar slðanefndar Læknafélags íslands. Málsatvik em þau að í fyrrahaust fór Lára Halla í viðtal á Stöð tvö þar sem hún ræddi um réttargeð- deildina á Sogni. í kjölfar viðtals- ins gaf landlæknir Lám Höllu al- varlega áminningu. Hún kærði þá landlækni til siðanefndarinnar á gmndvelli 29. greinar siðareglna lækna, en þar er kveðið á um að lækni sé skylt að auðsýna öðmm læknum drengskap og háttvísi. Siðanefndin telur að ummæli Lám Höllu á Stöð tvö hafi verið innan þeirra marka sem nefndin telur siðareglur setja umræðu af þessu tagi enda telur nefndin að mikilvægir almennir hagsmunir séu tengdir því að opinská og gagnrýnin umfjöllun verði um málefni sem þetta, eins og segir í niðurstöðu nefndarinnar. Nefndin telur hins vegar að framkvæmd eftirlits landlæknis og beiting úr- ræða sem hann telur nauðsynleg í því sambandi heyri ekki undir lög- sögu nefndarinnar. Á gmndvelli niðurstöðu nefndar- innar telur Lára Halla að land- læknir eigi að draga áminningu sína til baka. -EÓ Safnaðarheimili Dómkirkjunnar: Matargjafir til atvinnulausra Frá kirígulegu sjónarmiði hlýtur það að vera mikill munur að geta svarað fólld í sárri þörf með svo verídegum hætti sem að afhenda því mat tfl viöurværis um sinn,“ segir í fréttatflkynningu frá Safnað- arfélagi Dómkirkjunnar um fyrir- hugaða þrigga mánaða tilraun með svokallað matarbúr fyrir fólk sem á í erfiðleikum sökum atvinnuleysis. „Þessi hjálp er bein aðstoð safnað- ar við fólk sitt og nauðsynleg upp- Sæmundardagur í Háskóla íslands á laugardag á vegum Oddafélagsins: Lærdómsandi séra Sæmundar fróöa Sæmundardagur í tilefni af ártíð Sæmundar firóða Sigfússonar prests í Odda á Rangárvöllum verð- ur haldinn á vegum Oddafélagsins í húsakynnum Háskóla íslands á laugardag. Oddafélagið, sem er samtök áhuga- manna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum, mun kynna starf sitt og markmið á Sæ- mundardegi og hefst dagskráin við styttuna af Sæmundi fróða fyrir framan aðalbyggingu Háskólans kl. 14 þar sem Sveinbjöm Bjömsson háskólarektor ávarpar viðstadda. Þá verður gengið í Odda, hús Fé- lagsvísindastofnunar, þar sem dr Þór Jakobsson, formaður Oddafé- lagsins, flytur stutt erindi. Aðrir sem erindi flytja em Freysteinn Sigurðs- son jarðfræðingur, Jónas Kristjáns- son forstöðumaður Ámastofnunar, Gestur Ólafsson arkitekt og Páll Imsland jarðfræðingur. —sá bygging trúverðugleika kirkjunnar í samtfðinni." Að sögn Sr. Jakobs Hjálmarssonar dómkirkjuprest verður byrjað að af- henda matarpakka í safnaðarheimili Dómkirkjunnar í upphafi næstu viku. Þessi þrigga mánaða tilraun er í samráði við Hjálparstofnun kirkj- unnar og Miðstöð fólks í atvinnuleit. Ætlunin er að kanna hver þörfm er fyrir slíka matargjöf og einnig hversu mjög innflytjendur og kaup- menn eru reiðubúnir til þess að gefa mat í slíka aðstoð. „Það er Ijóst að það eru kaupmenn hér í borginni og innflytjendur sem eru reiðubúnir til þess að standa að þessari tilraun með okkur," segir Jakob. Tekist hefur að útvega tiltekna vöruflokka sem nægja munu í 100 matarpakkningar. Fiskkaup hf. hef- ur boðist til að taka á móti og varð- veita vöruna og hópur fólks mun pakka henni í dreifingarpakkningar. Jafhan verða nokkrar pakkningar tiltækar í safnaðarheimilinu. Bændur í Vestur-Húnavatnssýslu hafa ákveðið að leggja hönd á plóg. í gær var keyrt suður með um 100 kg. af lambakjöti sem er þeirra framlag í Matarbúrið. Að sögn Gunnars Þór- arinssonar, ráðunauts hjá Búnaðar- sambandi V-Húnavatnssýslu, er um að ræða ágætis kjöt sem að öðrum kosti hefði farið á markað. „Þó svo að það hafi verið þrengt verulega að bændum þá höfum við efni á þessu," segir Gunnar. GS. Austri kynntur í Kolaportinu „Við ætlum meðal annars að sýna fólki gömul blöð en fyrsta tölublaðið kom út 1956. Nýjustu blöðin verða einnig kynnt og þau fyrirtæki sem hafa verið að auglýsa hjá okkur. Svo fá auðvitað allir penna og barm- merki og við munum bjóða upp á kaffi. Við verðum með stóran bás þannig að fólk getur komið inn og spjallað við okkur,“ sagði Sigrún Lárusdóttir hjá héraðsfréttablaðinu Austra í samtali við Tímann um fyr- irhugaða kynningu á blaðinu í Kola- portinu um næstu helgi. Ekki er vit- að til þess að héraðsfréttablöð hafi áður staðið fyrir slíkri kynningu í Reykjavík. — Hver er tilgangurinn? „Við viljum ná til Austfirðinga sem hafa flust í burtu og auðvitað líka til fyrirtækja sem vilja koma sinni vöru á framfæri. Austri er að verða mjög sterkur auglýsingamiðill," svarar Sigrún. „Við ætlum líka að sýna þeim blaðið sem ekki hafa kynnst þvíennþá." GS. Fyrrverandi formaður deildar um ræktun hins íslenska fjárhunds: Valdarán á aðalfundi „Ég harma það mjög að aðrir en eigendur og ræktendur íslenska fjárhundsins hafi valið stjóm yf- ir deildina. í raun og vem fór fram valdarán á þessum fundi," segir Jóhanna Harðardóttir, fyrrverandi formaður deildar um ræktun íslenska fjárhunds- ins. Hún segir að núverandi meirihluti hafi smalað á fúnd- inn fólki sem ekkert hafi fengist við ræktun íslenska fjárhunds- ins. Þá segir hún að ýmis um- mæli núverandi formanns, Guð- rúnar R. Guðjónssen, séu bein- línis röng eins og t.d að fúndir hafi ekki verið haldnir. Jóhanna hefúr ýmislegt að at- huga við úrslit aðalfundar á dög- unum um deild hins íslenska fiárhunds og telur að í raun þýði það að starfsemi deildarinnar lamist. Þar vísar hún til þess að for- maður Hundaræktarfélagsins hafi smalað til hans um 20 hundaeigendum sem eigi ekki íslenska fiárhunda. „Þama vom tekin ráðin af fólkinu sem á hundana og er að rækta þá. Það mun ekki sætta sig við þetta," bætir Jóhanna við. Hún segir að formaður Hunda- ræktarfélags íslands, Guðrún R Guðjónssen, hafi farið með rangt mál í viðtali í síðustu viku. Þar vitnar hún til þess þegar for- maðurinn segir að ágreiningur í deild um ræktun hins íslenska fiárhunds birtist í rangtúlkun- um fyrrverandi meirihluta á reglum og störfum Hundarækt- arfélags lslands sem hafi farið fram í þröngum hóp án þess að stjóm félagsins hafi verið boðið að veita andsvar. „Þetta er bara rangt því um- ræður hafa aðeins farið fram á opinbemm fundum," segir Jó- hanna. Þá telur Jóhanna að Guðrún fari einnig með rangt mál þegar hún segi að mikil óánægja hafi verið með að ekki hafi verið haldinn fundur í deildinni sunn- anlands í tvö ár. „Þetta er eins og hvert annað bull. Seinasti fund- ur var haldinn á Selfossi 22. mars. „segir Jóhanna og bætir við að það hafi aldrei verið haft eins gott samband við lands- byggðarfólk eins og síðustu tvö árin sem hún hafi gengt for- mannsstarfi. „Um það gefa allir vitnað," segir hún að lokum. -HÞ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.