Tíminn - 20.05.1993, Blaðsíða 5

Tíminn - 20.05.1993, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 20. maí 1993 Tíminn 5 Þrjú sækjast eftir aö veröa kanslaraefni þýska Sósíaldemókrataflokksins. Fremst í flokki er Gerhard Schröder, þá Heidemarie Wieczorek-Zeut og lengst t.h. er Renate Schmidt. land-Pfalz, kemur rétt á hæla Schröders sem líklegur foringi. Hann er skjólstæðingur Willys Brandt, en er álitinn vanta þann óskilgreinanlega þokka, reynslu og pólitíska vilja sem þarf til að bera sigur úr býtum. Tvær konur hafa blandað sér í bar- áttuna, þær Heidemarie Wieczo- rek- Zeul, 51 árs þingmaður með viðurnefnið „Rauða-Heidi“ bæði vegna eindreginna vinstri skoðana og eldrauðs hárs, og Renate Schmidt, 49 ára varaforseti þýska þingsins og foringi SPD í Bayem. Þýsku götublöðin vitna stundum til hennar sem „kynþokkafullu Ren- ate“ eða „amazónunnar" vegna ljósa, liðaða hársins og þröngu pils- anna sem hún klæðist. Merki um örvæntingu flokksins f leit að nýjum leiðtoga sáust best, þegar tilraunir voru gerðar til að fá Helmut Schmidt til að setjast aftur við stjórnvölinn hjá SPD. Schmidt, sem nú er 74 ára og vinsæll á við- ræðuþáttum í sjónvarpi á síðkvöld- um og útgefandi dagblaðs, sólaði sig um stund í heiðrinum að vera hylltur sem bjargvættur áður en hann vísaði tillögunni á bug af heilsufarsástæðum. Djúpstæð andúð milli stjómmálamanna og almennings Þeir, sem fylgjast með stjómmál- um. álíta afsögn Engholms, sem var vinsæll meðal yngri kjósend- anna, fái sífellt fleiri þýska kjósend- ur, sem þykjast blekktir, til að snið- ganga kjörklefana. Hins vegar kunni fylkingar iðnverkamanna í hópi stuðningsmanna sósíaldemó- krata að færa sig í áttina að smærri flokkum lengst til hægri eða vinstri. Nýnasistaflokkurinn Repúblikana- flokkurinn gerir sér nú vonir um að tryggja sér sæti á þingi í fyrsta sinn. „Pólitískt andrúmsloft í Þýska- landi einkennist nú af djúpstæðari andúð milli atvinnustjómmála- manna og almennings. Stjómmála- mönnum finnst þeir ekki njóta við- urkenningar og almenningi finnst hann hunsaður," segir Erwin Scheuch, forstjóri félagsvísinda- stofnunar Kölnarháskóla. „Þessi gagnkvæmi ímugustur gæti orðið mjög hættulegur þegar kosn- ingar em í nánd. Niðurstöðumar gætu orðið algerlega ófyrirsjáan- legar. Astandið í Þýskalandi var of þægi- legt of lengi. Þess vegna þurftu stjómmálamenn aldrei að sýna hvers þeir væm megnugir. Nú verðum við að horfast í augu við allar ögranimar sem endursam- einingin hefur í för með sér, og allt í einu finnum við að við emm um- kringdir af heilmörgum miðlungs- stjómmálamönnum." Aðrir skýra skortinn á sterkum stjómmálamönnum í Þýskalandi með óttanum við að aftur verði horfið að lýðskmmi. „Vandamálið er að þýskir stjórnmálamenn geta ekki skírskotað til þjóðardraums, eins og t.d. Ameríkanar," segir Nor- bert Gansel, þingmaður sósíal- demókrata. „Það er enginn þýskur draumur til. Það er bara þýsk martröð." Hver vill stjóma Þýskalandi? Nýnasistar marséra í Dresden. Þjóö f vanda: verkfallsveröir hindruöu inngöngu I verksmiöjur Volkswagen I Zwickau I upþhafi fyrsta verkfalls verkamanna I stáliönaöi I austurhtuta Þýskalands 160 ár. Þetta ætti að vera þægilegasta starfið í Þýskalandi. Völd í auðug- asta landi Evrópu eru því sem næst tryggð innan 18 tnánaða. En á sama tíma og þeir, sem sækjast eftir að verða leiðtogi stjórnarand- stöðunnar í Þýskalandi, sýna bvað þeir hafa upp á að bjóða má þegar heyra vanþóknunarbaulið. HneyksU, afsagnir, fálmandi rik- isstjóm og verkfÖU, aUt hefur þetta hrint trausti Þjóðveija á stjóm- málamennina í svo djúpa lægð að svo er að sjá sem þeir einu sem geti hagnast séu öfgasinnaðir hægrimenn nýnasista. Afsögn Engholms hrinti af staö þung- lyndislægðinni Það, sem hrinti þessari hraðferð niður í pólitískt þunglyndi af stað, var afsögn Bjöms Engholm, hins stimamjúka formanns stjómarand- stöðuflokks sósíaldemókrata (SPD) með skömm í maíbyrjun, eftir að hann hafði viðurkennt að hafa sagt ósatt um pólitískt hneyksli, sem leiddi til þess að keppinautur hans stytti sér aldur fyrir sex árum. Um það leyti sem Engholm sagði af sér hófust verkföll í austurhluta Þýskalands, vegna svikinna loforða vinnuveitenda um að færa laun á fyrrum svæðum kommúnista upp að sömu mörkum og í vesturhluta Þýskalands. Verkföllin breiddust út til 70 stálsmiðja og vélsmiðja og ógnuðu efnahagsbata á svæðinu. Stjómspekingar spáðu því að efna- hagssamdrátturinn myndi standa lengur en áður var álitið og at- vinnuleysi fór upp í 3,3 milljónir. Þá var Gíinther Krause sam- gönguráðherra látinn víkja, fyrir að hafa gengið í almannasjóði til að greiða fyrir flutning á heimili hans í Berlín í glæsilegt einbýlishús á strönd Eystrasalts. Krause, hæst- settur Austur-Þjóðverja í ríkis- stjóm Helmuts Kohl kanslara, hafði líka notið ríkisstyrkja til að ráða vinnustúlku. Hann var sjötti ráðherrann sem hefur orðið að yfir- gefa stólinn á undanfömum 12 mánuðum vegna hneykslismála, misbeitingar pólitískra áhrifa, mis- notkunar á almannasjóðum, ósanninda og yfirhylmingar. „Er ekki hægt aö hafa stjóm á Þýska- landi lengur?“ Fjölmiðlar vom harðskeyttir. „Það er ógerlegt að tala um að stjómmálamenn gefi fordæmi í Þýskalandi nú án þess að virðast kaldhæðinn," ritaði Volker Jacobs í Die Welt. Og fjöldaútgáfublaðið Bild spurði: „Er ekki hægt að hafa stjórn á Þýskalandi lengur?" Það var aðeins Markus Wolf — hinn dularfúlli fyrrnrn njósnafor- ingi Austur-Þýskalands, sem varð að svara til saka vegna ákæra um landráð fyrir dómstóli í vesturhlut- anum í þessari sömu viku, fyrstu viku maí — sem gat fylgst með jafnaðargeði með því þegar sigur- vegaramir í kaldastríði Þjóðverja urðu að ganga f gegnum slíkar þjáningar í beiskju sigursins. Almennar kosningar, sem fara eiga AÐUTAN ffam innan 18 mánaða, ættu að verða flothringur til að komast út úr þessari óreiðu. Aðeins nokkrum klukkustundum eftir afsögn Eng- holms sýndi skoðanakönnunar- stofnunin Forsa að jafnvel lítt þekktur forystumaður SPD myndi fá stuðning 40% á móti 25% stuðn- ingi við Kohl. En fréttaskýrendur segja að skoðanakönnunin endur- spegli meira óvinsældir ríkisstjóm- arinnar en styrk SPD. í stað þess að hafa ávinning af vonbrigðum al- mennings vegna meðferðar ríkis- stjórnarinnar á alvarlegum félags- legum og efnahagslegum erfiðleik- um vegna sameiningarinnar, eru sósfaldemókratar á bólakafi í innri deilum og geta ekki gert upp hug sinn. Margir álíta sósíaldemókratana, sem í eina tíð voru agaðir foringjar hins vinnandi manns, hafa tapað áttum þegar Þýskaland er orðið auðugasta landið í Evrópu. „Þetta er ekki lengur flokkur friðar. Það er ekki lengur litið á hann sem flokk félagslegrar samvisku. Flokknum tókst aldrei að verða athvarf um- hverfissinna," stundi Frankfúrter Rundschau, sem er hlynnt SPD. Eftir að hafa haft í forystu sterku leiðtogana Willy Brandt og Helmut Schmidt lét flokkurinn undan yngri og „þægilegri" kynslóð, sem í háði voru kallaðir „Toscana-deild- in“ í þýsku pressunni, vegna glæsi- legra og óhófssamra lífshátta. Fáir trúðu því að Engholm — áberandi meðlimur deildarinnar, sem á eigin vínekrur — hafi nokk- urn tíma haft til að bera eldmóðinn sem hefði getað skilað honum upp í kanslaraembættið. Sumir fögnuðu afsögn hans sem leið til að víkja fyr- ir sterkari frambjóðanda. En þegar litið er á aðra þrjá meðlimi deildar- innar, sem hafa auga á leiðtoga- hlutverkinu, verða margir í pólit- ískum hópum lítt hrifnir. Keppinautamir um formannsembættið Einn þeirra þriggja, Oskar Laf- ontaine, hefur að miklu leyti verið afskrifaður vegna þess orðs sem á honum hvflir fyrir spjátrungshátt og slysalegu kosningaherferðarinn- ar, sem hann fór í gegn Kohl 1990. Fremstur í keppninni í fyrstu viku maí var Gerhard Schröder, forsæt- isráðherra Neðra-Saxlands, sem tekur sig vel út á skjánum. Vest- rænir diplómatar segja Schröder, 49 ára, vera lýðskrumara og hættu- legan, vegna þess að þeim finnst hann andsnúinn NATÓ. Hann er sá frambjóðandi sem Kohl er sagður óttast mest, vegna þess hversu óhemju metnaðarfullur hann sé. Rudolf Scharping, 45 ára forsætis- ráðherra í heimafylki Kohls, Rhein-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.