Tíminn - 11.06.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 11. júní 1993
Guðmundur Gylfi Guðmundsson, fulltrúi ASÍ í Sjömannanefnd, vísar á
bug fullyrðingum Guðna Ágústssonar um að Stofnlánadeild verði gjald-
þrota á 10 árum, komi tillögur Sjömannanefndar til framkvæmda:
Vextir verði endur-
metnir árið 1998
Guðmundur Gylfi Guðmundsson. fulltrúi ASÍ í Sjömannanefnd,
segir aö sú staöhæfing Guöna Ágústssonar, formanns stjómar
Stofnlánadeildar landbúnaöarins, aö Stofnlánadeíld verði gjald-
þrota á 10 árum ef tillögur Sjömannanefndar komi til framkvæmda,
sé gjörsamlega út í hött því aö hugmyndir nefndarinnar gangl út á
að vaxtaákvarðanir verði endurmetnar áríö 1998 sem þýddi að
vextir myndu breytast sem næmi afnámi jöfnunargjaldanna. Guö-
mundur Gylfi vísar því algjöríega á bug að nefndin hafi ekki gert
sér grein fyrir áhrífum tillagnanna á deildina. Nefndin hafi gert ítar-
lega útreikninga á áhrífum tillagnanna.
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra hverfur úr stólnum
án þess að tilvísunarkerfið hafi tekið gildi:
Tilvísaðá
Guðmund Árna
Guðni Agústsson gagnrýndi tillög-
ur Sjömannanefndar harðlega í
Tímanum í gær og sagði að þær
hefðu í för með sér gjaldþrot deild-
arinnar á 10 árum. Guðmundur
Gylfi sagði að nefndin hefði lagt af
stað í þessa vinnu með það að meg-
inmarkmiði að rýra ekki eigið fé
deildarinnar.
Guðmundur Gylfi sagði það alrangt
hjá Guðna að Sjömannanefnd hefði
ekki gert sér grein fyrir áhrifum til-
lagna sinna á Stofnlánadeild. Nefnd-
in hafi látið gera marga útreikninga
á áhrifum tillagnanna út frá mis-
munandi forsendum. Hann sagðist
telja að Guðni hafi ekki áttað sig á
þeirri megintillögu nefndarinnar að
frá og með 1. janúar 1998 verði út-
lánsvextir deildarinnar endurmetn-
ir. „Nefndin gerir ráð fyrir að deildin
skoði sfna stöðu að fjórum árum
liðnum og í því felst að hún endur-
meti útlánsvexti," sagði Guðmund-
ur Gylfi.
Guðmundur Gylfi sagði það rangt
hjá Guðna að breytingin kæmi til
með að leiða til hærra vöruverðs.
Breytingin mun ekki hafa áhrif á
vöruverð til skamms tíma Jjví að
hækkun vaxta og niðurfelling sjóða-
gjalda jafni hvort annað úL Guð-
mundur Gylfi benti á að með niður-
fellingu jöfnunargjalda muni
greiðslur til bænda hækka sem
næmi gjöldunum. Til lengri tíma
mun vöruverð lækka því fjárfesting-
ar verði hagkvæmari.
Guðmundur Gylfi sagði það rétt hjá
Guðna að ef tillögur nefndarinnar
kæmu til framkvæmda þá væri verið
að afnema hinn félagslega þátt í
starfsemi Stofnlánadeildar. Hann
sagði hins vegar að allar aðrar at-
vinnugreinar búi við það að þeir sem
komi nýir inn í greinina þurfi sjálfir
að fjármagna kaup á eignum auk
annarra fjárfestinga. „Okkur finnst
að þeir sem reka sín bú á þann hátt
að þeir þurfa ekki að taka mikil lán
eigi að fá að njóta þess en séu ekki að
greiða niður lán fyrir aðra,“ sagði
Guðmundur Gylfi.
f Tímanum í gær velti Guðni fyrir
sér því siðferði að hækka vexti af
þegar teknum lánum. „Þetta er
nokkuð sem bankarnir eru að gera
alla daga. Þeir eru alltaf að hækka
vexti af teknum lánum. Munurinn á
því sem bankamir gera og því sem
við leggjum til er að á móti vaxta-
hækkun leggjum við til að jöfnunar-
gjöldin verði afnumin í áföngum og
bændur fái greiðslurnar til sín.
Gagnvart bændastéttinni sem heild
kemur þetta því slétt út,“ sagði Guð-
mundur Gylfi.
Guðmundur Gylfi sagði að þrátt
fyrir að Stofnlánadeildin taki upp
markaðsvexti, verði áfram þörf fyrir
deildina. Bankakerfið hafi hingað til
ekki verið tilbúið til að veita bænd-
um fjárfestingalán.
Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda og nefndarmaður í Sjö-
mannanefnd, sagði að það kunni að
vera rétt hjá Guðna að efnahagur
Stofnlánadeildar komi til með að
versna árið 1998 þegar sjóðagjöldin
falla alveg niður, ef ekkert er gert til
að varna því að svo fari. Nefndin geri
hins vegar ráð fyrir því að brugðist
sé við því. Hákon sagðist gera ráð
fyrir að fulltrúar bænda muni í
næstu búvörusamningum gera þá
kröfu til ríkisins að það komi með
fjármagn inn í deildina, eins og rík-
inu ber raunar að gera lögum sam-
kvæmt. Eftir þeim lögum hefur ekki
verið farið. -EÓ
Þeir sem leita til sérfræðinga án til-
vísunar heimilislæknis þurfa að
greiða sama gjald og áður. Þeir sem
hafa tilvísun þurfa að greiða veru-
lega mikið minna þegar tilvísunar-
kerfíð tekur gildi, að sögn Sighvats
Björgvinssonar heilbrigðisráðherra
sem vill ekki greina nánar frá upp-
hæðum þar sem ekki sé búið að
kynna málið fyrir læknafélaginu.
Það kemur því í hlut Guðmundar
Árna Stefánssonar að fylgja tilvís-
unarkerfínu úr hlaði.
Þeir sem leita til sérfræðinga þurfa
að greiða fyrstu 1.200 krónumar að
fullu og 40% af því sem umfram er.
Að meðaltali hefur þessi kostnaður
verið allt að 2.200 kr. Með tilkomu
tivfsunarkerfis munu þeir sem leita
fyrst til heimilislæknis og fá þar til-
vísun á sérfræðing, þurfa að greiða
miklu lægra gjald.
Sighvatur hefur áður sagt að fyrir-
hugað sé að koma tilvísunarkerfinu
á í júní eða byrjun júlí en þar sem
hann hverfur brátt úr stól heilbrigð-
isráðherra mun eftirmaður hans
ákveða gildistöku tilvísunarkerfis-
ins. Sighvatur segir að þegar sé búið
að semja reglur um framkvæmd til-
vísunarkerfisins. „Það er búið að
gera ráð fyrir því hvað sjúklinga-
gjöldin geta lækkað mikið, fari fólk
til sérfræðinga eftir tilvísun heimil-
Trúnaðarmenn SVR hafa sent frá
sér tilkynningu þar sem lýst er yf-
ir óánægju með fyrirhugaðar
breytingu á rekstrarformi SVR í
hlutafélag.
Telja þeir þetta fyrirkomulag ekki
islæknis," segir Sighvatur en vill
ekki greina nánar frá upphæðum
þar sem ekki sé búið að kynna regl-
umar fyrir Læknafélaginu.
Að sögn Sighvats skipaði hann sér-
staka nefnd til að undirbúa tilvísun-
arkerfið með aðild sérfræðinga sem
hafi náð fullu samkomulagi um
framkvæmd tilvísunarkerfisins.
Sérfræðingar hafa gagnrýnt tilvís-
unarkerfið og m.a. bent á að það
brjóti í bága við stefhu Alþjóða heil-
brigðismálastofnunarinnar og EES-
samninginn. „Við höfúm fengið svar
frá Alþjóða heilbrigðismálastofnun-
inni og utanríkisráðuneytinu um að
þessar fullyrðingar séu hreint rugl,“
segir Sighvatur. -HÞ
Alvarlegt bflslys
í Hvalfirði
Alvarlegt bílslys varð í Hvalfirði um
miðjan dag í gær. Slysið varð við
Brunná í botni Hvalfjarðar. Tveir bfl-
ar sem komu úr gagnstæðri átt rák-
ust harkalega saman. Þrír menn
slösuðust Einn þeirra var fluttur
með þyrlu Landhelgisgæslunnar á
Borgarspítalann með alvarleg inn-
vortis meiðsl. -EÓ
vera til nokkurra bóta og segir í
tilkynningunni að starfsmenn ætli
að halda áfram að reyna að fá borg-
aryfirvöld til að falla frá þessari fyr-
irætlan.
-GKG.
Trúnaðarmenn SVR senda frá sér ályktun:
Yfirvöld á aðra skoöun
Úttekt á stöðuveitingum Alþýðuflokksráðherra á kj^rtímabilinu:
Allir fá embætti
Embættlsveitingar Alþýöuflokksmanna í tengslum viö breytingar
þeírra á ráöherraskipan sinni hafa vakiö talsveröa athygli og um-
tal. I kjölfar þessara ákvaröana hafa vaknað spumingar, td. meö
hvaða rétti Alþýöuflokksmenn telji sig geta ráöstafað stórum emb-
ættum í stjómkerfinu og einnlg hvernig embættisveitingum Al-
þýðuflokksmanna hafl yflríeitt veríð háttað á þessu kjörtímabili.
Þau ráðuneyti sem Alþýðuflokk-
urinn hefúr á sinni könnu eru ekki
síst mikilvæg í pólitísku tilliti vegna
yfirráða yfir stöðuveitingum í stór
og valdamikil embætti og einnig
fiölmörg smærri. Tíminn fékk í lið
með sér nokkra minnuga menn til
þess að rifja upp stöðuveitingar
krataráðherra á kjörtímabilinu.
„Gengdarlaus spilling," voru orð
sem einn viðmælandi Tímans not-
aði í þessu sambandi, „siðlaust",
sagði annar.
Þingmenn
fá embætti
Eins og kunnugt er hafa þrír þing-
menn AJþýðuflokks ákveðið að
hætta afskiptum af sjómmálum,
þeir Eiður Guðnason, Jón Sigurðs-
son og Karl Steinar Guðnason. Það
hefur vakið mikla athygli að við
þessar ákvarðanir var gengið út frá
því sem vísu að þingmennimir
gætu óhindraðir tyllt sér í aðra
stóla, jafnvel þótt enn sem komið er
sitji aðrir menn í þeim.
Menn hafa bent á það að núverandi
forstjóri TVyggingastofnunar ríkis-
ins hafi ekki gefið út formlega yfir-
lýsingu um það að hann sé að
hætta. Samt sem áður er það liður í
uppstokkun Alþýðuflokksmanna að
Karl Steinar taki við því embætti
fljótlega. Reyndar hafa Alþýðu-
flokksmenn svo að segja „átt“
TYyggingastofnun frá því hún var
stofnuð. Þar hafa kratar ávallL með
einni undantekningu, setið í for-
stjórastóli.
Umsóknarfrestur í embætti Seðla-
bankastjóra er ekki mnninn út og
telja því margir ákaflega óeðlilegt að
þegar sé búið að ákveða að Sighvat-
ur ráði Jón Sigurðsson í stöðuna.
Þá em litlar líkur taldar á því að
Eiður Guðnason mæli götumar eft-
ir að hann hættir f pólitík. Helst er
rætt um að Eiður verði sendiherra í
Osló.
Eftir þessar breytingar hafa allir
þeir 10 einstaklingar sem tóku sæti
á þingi fyrir Alþýðuflokk eftir síð-
ustu kosningar hlotið embætti, inn-
an þings eða utan. Þrír halda áfram
að vera ráðherrar, Össur hlýtur ráð-
herraembætti, Rannveig verður
þingflokksformaður, Sigbjöm for-
maður fjárveitinganefndar, Gunn-
laugur varaforseti Alþingis, Karl
Steinar forstjóri, Eiður sendiherra
og Jón seðlabankastjóri. Og við
þessar hrókeringar eykst einnig
vegur varaþingmannanna. Guð-
mundur Ami Stefánsson tekur sæti
á þingi og verður ráðherra, Gísli
Einarsson verður þingmaður og
Petrína Baldursdóttir einnig.
Magnús Jónsson, fyrsti varaþing-
maður Alþýðuflokksins í Reykjavík,
hefur einnig notið stjómarsetu
flokksins. Aðrir umsækjendur um
stöðu veðurstofústjóra sögðust súpa
seyðið af því að vera ekki í réttum
flokki á réttum tíma þegar umhverf-
isráðherra skipaði Magnús f stöð-
una.
Aðstoðarmenn
fá embættí
Ráðherrar skipa sér iðulega að-
stoðarmenn úr sínum flokki og það
virðist vera að það starf sé prýðilegt
stökkbretti í hærri stöður.
Bjöm Friðfinnsson lögfræðingur
var aðstoðarmaður Jóns Sigurðs-
sonar 1987-89, eða þar til Jón skip-
aði hann ráðuneytisstjóra í við-
skiptaráðuneytinu. Auk þess var
hann skipaður ráðuneytisstjóri í
iðnaðarráðuneytinu frá 1990. Og
frami Bjöms er skjótur, - á næst-
unni mun hann líklega hreppa há-
launastöðu innan EES.
Stefán Friðfinnson, bróðir Bjöms,
var aðstoðarmaður Jóns Baldvins í
síðustu ríkisstjóm. Hann var síðan
skipaður af Jóni í stöðu fram-
kvæmdastjóra íslenskra aðalverk-
taka.
Birgir Árnason hagfræðingur og
fyrrum formaður Sambands ungra
jafiiaðarmanna, var aðstoðarmaður
Jóns Sigurðssonar. Árið 1990 var
hann ráðinn til starfa hjá EFTA og
starfaði þar þangað til í fyrra að
hann hlaut stöðu hagfræðings hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Wash-
ington.
Guðmundur Einarsson var fram-
bjóðandi Alþýðuflokks á Austur-
landi í kosningunum 1987. Hann
náði ekki kjöri en var ráðinn að-
stoðarmaður Jóns Sigurðssonar.
Hann starfar nú á skrifstofum EFTA
í Genf.
Aðrir fá líka
Fleiri Alþýðuflokksmenn hafa hlot-
ið starf í Genf í utanríkisráðherratíð
Jóns Baldvins. Kjartan Jóhannsson,
fyrrv. formaður Alþýðuflokksins,
var skipaður sendiherra íslands hjá
EFTA árið 1989 og verður líklega
ráðinn framkvæmdastjóri EFTA á
næstunni. Bráðlega mun því sendi-
herrastaðan í Genf verða laus,
ásamt öðmm sendiherrastöðum
sem em að losna. Bíða sjálfsagt
margir spenntir eftir því að sjá
hverja Jón skipar í stöðurnar.
Einn viðmælenda Tfmans fullyrti
að Jón Baldvin hefði ráðið til sín
hirð Alþýðuflokksmanna í utanrík-
isráðuneytið. Arni Páll Ámason
mun vera einn þeirra sem gekk til
liðs við Alþýðuflokkinn ásamt öss-
uri Skarphéðinssyni á sínum tíma.
Hann sinnir nú sérverkefnum í ut-
anríkisráðuneytinu. Einnig hafa
þeir Þorbjöm Jónsson, iðnrekstrar-
fræðingur og sonur Jóns Sigurðs-
sonar, og Finnbogi Rútur Amarson,
sem er frændi Jóns Baldvins, verið
ráðnir í utanríkisráðuneytið.
Varðandi stöðuveitingar utanríkis-
ráðherra má að lokum geta ráðn-
ingar Jakobs Magnússonar í nýja
stöðu menningarfulltrúa í London.
Jakob vann mikið starf fyrir Alþýðu-
flokkinn í síðustu kosningum.
TMAYOUT\EMBATTI.BKI
Alþýðuflokksmenn hafa einnig ver-
ið ráðnir í heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytið. Jón Sæmundur Sigur-
jónsson, þingmaður Alþýðuflokks
1987-91, varð formaður TVygginga-
ráðs árið 1991 og var einnig ráðinn
sérfræðingur í ráðuneytinu það
sama ár. Hann er nú titlaður deild-
arstjóri.
Arni Gunnarsson féll út af þingi f
seinustu kosningum og fékk þá
stöðu hjá Náttúmlækningafélaginu.
Létu sumir viðmælendur Tímans að
því liggja að Sighvatur hafi haft eitt-
hvað með þá ráðningu að gera, en
ekkert skal fúllyrt um það hér.
Hins vegar er fullvíst að þegar nýr
bflstjóri var ráðinn í heilbrigðis-
ráðuneytið í upphafi kjörtímabilsins
þá stóð ráðherra þar að baki. Ráð-
herra fannst engum öðmm betur
treystandi til að keyra bflinn en
trúnaðarmanni Alþýðuflokksins á
Patreksfirði. GS.