Tíminn - 29.06.1993, Blaðsíða 3

Tíminn - 29.06.1993, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 29. júní 1993 Tíminn 9 sson á laugardaginn. Grindavík-ÍR 0-2 (1-2) ÍR-ingar komnst upp fyrir Grindvíkinga þegar þeir sigruðu þá á föstudagskvöldið í miklum baráttuleik. ÍR-ingar eru nú við topp 2. deildar og haía þeir vel mannskap og getu til að halda sér þar. ÍR hafði undirtökin í leiknum til að byrja með og náði liðið forystunni strax á 4. mínútunni. Bragi Bjömsson sá þá um að koma knettinum í net Grindvíkinga. ÍR- ingar héldu síðan áfram að sækja og bættu öðm marki sínu við um miðbik fyrri hálfleiksins. Tómas Bjöms- son gerði það eftir aukaspymu ÍR. í síðari hálfleik snérist dæmið við og Grindvíkingar sáu nú um að sækja og sóttu þeir fast. Eina mark þeirra kom á 70. mínútu þegar Páll Bjömsson skoraði. Grindvíkingar áttu síðan skot í markstöng ÍR-inga, en allt kom fyrir ekki og ÍR vann því annan sigur sinn í röð og eru vafalaust ánægðir með að hafa náð í sex stig í síðustu leikjum sínum við KA og Grindavík. Grind- víkingar em ekki nógu sannfærandi þessa dagana og hafa td. tapað tveimur af fjómm heimaleikjum sínum í sumar, en á því hefur lið ekki efni sem ætlar sér að vera í toppbaráttu. KA-Þróttur Nes. 2-3 (1-1) Það er ekki hægt að segja annað en að KA-liðið, sem féll úr fyrstu deild í fyrra, komi á óvart, því árangur þeirra í 2. deild er vægast sagt mjög slakur. Þeir em með ágætis mannskap, en virðast ekki ná saman. Nú sfðast töpuðu þeir fyrir Þrótti Neskaupstað og em enn- þi í fallsæti. Þróttarar náðu hins vegar að sýna hvað þeir geta og unnu sinn fyrsta sigur eftir þrjá tapleiki í röð. KA virtist ætla að taka gestina í karphúsið, því Birgir Amarson náði forystunni fyrir Akureyringa strax á 13. mfnútu. Þróttarar náðu þó að jafna á loka- mfnútu fyrri hálfleiks þegar Þráinn Haraldsson skoraði gott mark. Þráinn var aftur á ferðinni á 48. mínútu og Kári Jónsson kom Þrótturum í 1-3 eftir 50 mínútna leik. KA sótti stíft undir lokin, en uppskar aðeins eitt mark sem Ormarr Örlygsson gerði. Fjórði tapleikur KA var því orðin staðreynd. Getraundeildin: Forusta Akraness eykst - eiga nú 4 stig á næsta lið Leikur Fylkis og ÍA á rennblaut- um Fylkisvellinum síðastliðinn fostudag var fjömgur og skemmtilegur aUt frá fyrstu mín- útu. Luka Kostic fékk fyrsta færi leiks- ins á annarri mínútu en skalli hans fór hátt yfir markið. Fjórum mín- útum síðar fengu Fylkismenn besta færi hálfleiksins er Baldur Bjamason, besti maður liðsins, átti fast skot í stöng. Boltinn hrökk þaðan út til Aðalsteins Víglunds- sonar sem skaut rétt yfir markið. Eftir þetta reyndu bæði lið að spila sóknarleik enda „teknískir" og létt- leikandi menn í báðum liðum. Skagamenn voru öllu meira með boltann en færi Fylkismanna voru þó engu verri. Seinni hálfleikur fór rólegar af stað en sá fyrri en það reyndist vera lognið á undan storminum. Skagamenn voru sem fyrr meira með knöttinn og á tíundu mínútu hálfleiksins var Alexander Högna- son ekki langt frá því að bæta við fimmta marki sfnu f deildinni en Fylkismenn náðu að komast fyrir skot hans á síðustu stundu. Fylkis- menn áttu líka sín færi og stuttu eftir færi Alexanders átti Finnur Kolbeinsson þrumuskot rétt fram- hjá marki ÍA. Á sextugustu mínútu átti Ólafur Þórðarson mjög gott færi er hann komst einn inn fyrir vöm Fylkis en Páll Guðmundsson varði glæsi- lega. Fyrrum Skagamaðurinn, Aðal- steinn Víglundsson, átti skalla að marki sinna gömlu félaga nokkr- um mfnútum síðar en hann fór beint á Kristján í markinu. Aðal- steinn fékk nokkur ágætis færi í leiknum og var óheppinn að skora ekki. Liðin skiptust svo á að sækja án þess að koma tuðrunni í netið þangað til Haraldur Ingólfsson braut ísinn á 66. mínútu. Hann fékk sendingu frá Þórði Guðjóns- syni og þrumaði knettinum frá vítateigshomi í markhomið fjær. Stórglæsilegt mark og Páll í mark- inu átti enga möguleika á að verja. Þremur mínútum síðar bætti Þórður svo við öðru marki Akur- nesinga. Hann skaut föstu skoti rétt fyrir utan vítateig og boltinn skaust með jörðinni undir Pál og hafnaði í netinu. Árbæingum hætti að lítast á blikuna og staðráðnir f að lenda ekki f sömu málum og Víkingar í síðustu umferð, lögðu þeir allt kapp á að svara fyrir sig-. Aðeins tveimur mínútum eftir mark Þórðar tókst þeim það. Send- ing kom í átt að markinu og Salih Porca lét boltann renna framhjá sér til Aðalsteins sem sendi á Krist- in Tómasson sem skilaði knettin- um fallega í þaknetið. Eftir þessar líflegu mfnútur skipt- ust liðin á að sækja. Fylkismenn fengu gott tækifæri til að jafna þegar Salih Porca var felldur á vítateigslínu en Finnur Kolbeinsson skaut knettinum beint í varnarvegg Skagamanna. Rétt fyrir leikslok skoraði Mihajlo Bibercic síðasta mark leiksins eftir góðan undirbúning Ólafs Þórðar- sonar. Þrátt fyrir að sigur ÍA verði að teljast sanngjam léku Fylkismenn oft á tíðum mjög vel og með smá heppni hefðu þeir getað náð í stig í leiknum. Bestir í annars jöfnu liði Akumesinga vom Sigursteinn Gíslason og Sigurður Jónsson en hjá Fylki var Baldur bestur. Greini- legt var að Fylkismenn söknuðu Þórhalls Dan Jóhannssonar sem var í leikbanni. Bæði lið eiga hrós skilið fyrir leik- inn, sem var niðurrigndum áhorf- endum ágætis skemmtun, en eins og áður segir var völlurinn mjög blautur eftir gríðarlega rigningu í höfuðborginni. Guðjón Svansson Polla-Shellmótið í Eyjum: Einkunnagjöf Tímans: 1=mjög lélegur 2=slakur 3=í meðallagi 4=góður 5=mjög góður 6=frábær Fylkir-ÍA 1-3 (0-0) Einkunn leiksíns: 5 Uð Fylkis: Páll Guðmundsson 4, Helgi Bjamason 4, Baldur Bjamason 5, Salih Porca 4, Har- aldur Úlfarsson 2, Zoran Micovic 2 (Ólafur Stígsson lék of stutt), Aðalsteinn Víglundsson 3, Finn- ur Kolbeinsson 4, Gunnar Þór Pétursson 4, Kristinn Tómasson Llð ÍA: Kristján Finnbogason 4, Luka Kostic 4, Sturlaugur Har- aldsson 4, Sigurður Jónsson 5, Óiafur Adolfsson 4, Þórður Guð- jónsson 4, Alexander Högnason 4, Sigursteinn Gíslason 5, Mi- hajlo Bibercic 4, Ólafur Þórðar- son 4, Haraldur Ingólfsson 4. Dómjufi: Ólafur Ragnarsson 5. Gul spjöld: Bergþór Ólafsson Fylki og Sturlaugur Haraldsson Rúmlega 900 mörk skoruð Tíunda Pollamótinu lauk með pompi og pragt á sunnudaginn þeg- ar leiknir voru úrslitaleikir utan- húss. Innanhússmótinu lauk á fostudag, þar sigruðu Þróttur R. og Fylkir, en ekki var keppt innanhúss í keppni C- liða. Nýtt met var sett í markaskorun, því 922 mörk voru skoruð. Hjá A- liðum voru skoruð 352 mörk, 321 hjá B-liðum og 249 hjá C-liðum. f keppni A-liða utanhúss sigraði Fylkir lið Þróttara frá Reykjavík 2- 0. Þetta var því annað árið í röð sem Fylkir sigrar í þessum flokki. Ólafur Ingi Skúlason og Þórir Bjöm Sig- urðsson skoruðu sigurmörkin. Þróttumm gekk betur í B- liða- keppninni, en þar sigmðu þeir FH 3- 2. Sigurgestur J. Rúnarsson gerði tvö mörk fyrir Þrótt og Þorvaldur D. Kristjánsson eitt mark. Hilmar Þór Guðmundsson gerði bæði mörk FH- inga. Leiknir úr Reykjavík sigraði Fylki í úrslitaleik C-liða 2-1. Gústaf S. Bjömsson og Magnús M. Þor- valdsson skomðu mörkin fyrir Leikni, en Bogi Hauksson fýrir Fylki. Sætisröðun varð eftirfarandi: A-lið B-lið C-Uð 1. Fylkir Þróttur R. Leiknir 2. Þróttur R. FH Fylkir 3. FH ÞórV. Fjölnir 4. ÍBK UMFA FH 5. Fjölnir KA KA 6. Valur Fylkir ÞórV. 7. Haukar Valur ÍBK Knattspyrna — 1. deild kvenna: mm ■ ■ ■■■■■■ jt Meistaratitill i Frostaskjólið? Ætlar það að takast hjá KR-ingum að vinna loksins meistaratitil í knatt- spymu í meistaraflokki eftir margra ára bið? Það lítur allt út fyrir það því KR-stúlkumar í meistaraflokki em nú langefetar þegar langt er liðið á mótið en aðeins verða spilaðar tólf umferðir þar sem ÍBV hefur sagt sig úr keppni. KR hefur átta stiga forskot á næstu lið og hefur liðið ekki tap- að stigi það sem af er sumri. Um helgina sigraði KR Stjömuna 5-3 eftir að hafa verið undir í hálfleik, 2-3. Leikurinn var mjög fjörugur og bauð upp á góða skemmtun fyrir áhorf- endur. KR komst tveimur mörkum yfir í upphafi leiks með mörkum Hrafnhildar Gunnlaugsdóttur og Guðrúnar Jónu Kristjánsdóttur. Stjaman svaraði með þremur mörkum áður en fyrri hálfleik lauk. Heiða Sígurbergsdóttir og Elfeabet Sveinsdóttir gerðu þau. En KR- stúlkur sýndu meistaratakta í seinni hálfleík og skomðu þá þrjú mörk í kjölfar brottrekstrar einnar Stjömustúlkunnar. Hrafnhildur bætti við öðru marki sínu níu mínötum fyrir leikslok og mínútu síðar kom hún KR yf- ir og gulltryggði þrennu sína. Ásdfe Þorgilsdóttir bætti fimmta marki KR undirblálokin. Skagastúlkum gengur ekki sem skildi í 1. deildinni og eru þær í þriðja neðsta sæti. Erfitt er að gera sér grein fyrir slöku gengi þeirra en á laug- ardaginn gerðu þærjafntefli við Þrótt Nes. á heimavelli sínum þrátt fyr- ir að eiga fjölmörg dauðafæri í sfðari hálfleik. Inga Bima Hákonardóttir náði foryshinni fyrir gestina en Júlía Sigursteinsdóttir jafnaði fyrir ÍA. Valsstúlkur sigruðu UBK 3-2íbaráttuleik. Krist^örg higadóttir gerði Óttarsdóttir gerðu mörk UBK. 8.KR Fjölnir Valur 9. Þór V. Týr KR 10. UMFA Þór A. UMFG 11. KA UMFG Týr 12. Týr KR Víkingur 13. Fram Grótta ÞórA. 14. Víkingur UBK ÍR 15. Leiknir R. ÍBK Þróttur 16. Grótta Fram Fram 17. HK ÍR UMFA 18. Þór A. Haukar Haukar 19. UMFG Selfoss Selfoss 20. Stjaman ÍA Stjaman 21.UBK Leiknir R. 22. ÍA Stjaman 23. Selfoss Víkingur 24. ÍR HK Markakóngar Pollamótsins urðu þessin A-Iið, Ólafur Skúlason og Viktor B. Amarson Víkingi, 12 mörk. B-lið, Haraldur I. Sóshan Tý, 17 mörk, og Davíð Örn Hlöðversson Val 12. í C-liðum varð Þórarinn Þrándarson Fylki efstur með 11 mörk og Eyjólfur Kári Friðjónsson Fram 9 mörk. Besti leikmaður mótsins var kjörinn Sigmundur Kristjánsson úr Þrótti Reykjavík. Besti vamarmaðurinn var ElvarÆg- isson FH og besti markmaðurinn Helgi Már Helgason UMFG og hlutu þeir allir verðlaun frá sportvöm- versluninni Spörtu. Einnig vom kjörin prúðustu liðin og urðu Grótta og KA fyrir valinu. Háttvísustu liðin vom UMFG, Leiknir R. og Selfoss. Það var ekki einungis keppt í knatt- spymu, heldur ýmsum öðmm óhefðbundnum keppnisgreinum og er óhætt að segja það að þar hafi fjörið ekki verið minna. Það var td. keppt í kappáti, körfuhittni, húla- hoppi, pflukasti, boðhlaupi, hvað lið var sterkast og einnig var limbó- keppni. í tilefni 10 ára afmælis mótsins var boðið uppá risastóra af- mælistertu handa öllum og þurfti m.a. 400 egg í þessa stóm tertu! Þar með lauk þessu móti og án efa minnast drengimir mótsins lengi, enda fjörið mikið. 9 Stórmót Gogga galvaska: Urslit í liðakeppninni - FH yfirburðasigurvegari í síðustu viku birtum við úrslit í ein- stökum greinum á stórmóti Gogga galvaska í frjálsum íþróttum hjá báðum kynjum. Allir keppendur vom að sjálfsögðu fulltrúar einhverra íþróttafélaga og hér á eftir fara úrslitin f liðakeppn- inni. Eins og sést á töflunum þá em FH-ingar mjög sterkir í öllum flokk- um. Efstu fimm liðin í hverjum flokki urðu eftirfarandi: Heildarstigakeppni Liðakeppni hnokka og hnáta (lOáraogyngri) 1. FH..............138 2. UMFA............109 3. ÍR...............88 4. UMFÓ.............72 5. UMSS.............39 Uðakeppni stelpna og stráka (11-12 ára) 1. FH..............141 2. UMFA............107 3. UBK ............103 4. UMSS.............79 5. ÍR...............56 Lið 1. FH Stig 449 (13-14 ára) l.FH 170 2. UMFA 255 2 USVH 77 3. ÍR 187 3 HSK 66 4. UMSS 184 4 UMSS 66 5. UBK 138 5. Ármann 65

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.