Tíminn - 30.06.1993, Síða 2
2 Tfminn
Miðvikudagur 30. júní 1993
Háskólarektor telur tíma til kominn að huga að skynsamari skipan skóla á háskólastigi:
Um 80% hvers árgangs verða
stúdentar og sækja í háskóla
Sveinbjöm BJömsson
hiskólarektor.
„Margir erlendir gestir furða sig á
þeim stórhug okkar að reka hér há-
skóla, og er þá ekki minnst á aðra 12
skóla okkar á háskólastigi," sagði há-
skólarektor, Sveinbjöm Bjömsson,
við brautskráningu kandídata frá H.í.
s.l. laugardag. Hann segir allt benda
til að innan skamms muni 8 af hverj-
um 10 í árgangi stunda nám í fram-
haldsskólum til tvítugs og Ijúka stúd-
entsprófi af einhverri gerð. Stór hluti
þeirra muni síðan leita eftir háskóla-
námi til starfsmenntunar. Þessar
breytingar ættu „að verða okkur til-
efni til að huga að skynsamri skipan
skóla á háskólastigi, áður en bylgja
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
í 1.FLB. 1986
Hinn 10. júlí 1993 erfimmtándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl.B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr.15 verður frá og með 10. júlí n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000,-kr. skírteini = kr. 4.812,30
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. janúar 1993 til 10. júlí 1993 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986
til 3282 hinn 1. júlí 1993.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr.15 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 12. júlí 1993.
Reykjavík, 30. júní 1993.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
í 1.FL.B.1985
Hinn 10. júlí 1993 er sautjándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í l.fl.B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 17 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000,- kr. skírteini = kr. 538,30
" " 10.000,-kr. " = kr. 1.076,60
" " 100.000,-kr. " = kr.10.766,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. janúar 1993 til 10. júlí 1993 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006
hinn 1. janúar 1985 til 3282 hinn 1. júlí 1993.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiöa breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr.17 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 12. júlí 1993.
Reykjavík, 30. júní 1993.
SEÐIABANKI ÍSLANDS
stúdenta brotnar á skólunum." Rektor
sýnist meðmæltur því að skemmri
námsbrautir og starfsmenntun sem
byggi meira á verkfæmi og þjálfum en
fræðilegri undirstöðu, verði látin fag-
skólum eftir.
Sveinbjöm sagði ágæta umræðu um
mótun menntastefnu og málefni skóla
hafa farið fram á þessu árí. Mest hafi
þó verið rætt um gmnnskóla og fram-
haldsskóla. Gn minna hafi veríð fjallað
um háskólastigið og hvemig H.í. og
aðrír háskólar landsins eigi að þjóna
vaxandi fjölda stúdenta. Þar sem ald-
ursárgangar hafi nú náð hámarki í
fjölda, muni breyting á aðsókn að há-
skólum landsins fara eftir því hve stór
hluti hvers árgangs ljúki stúdents-
prófi og leiti síðan efÚr námi á há-
skólastigi. Þar sem aðrír skólar á há-
skólastigi en H.í. taki aðeins við mjög
takmörkuðum fjölda (nemendur nú
samtals um 2.000) verði flestir (þeirra
80% hvers árgangs sem ljúka munu
stúdentsprófi) að sækja til Háskóla ís-
lands (þar sem nemendur em um
5.000) ætli þeir að stunda háskólanám
hér á landi.
,d>ess munu engin dæmi með öðmm
þjóðum að svo stór hluti árgangs
stundi hefðbundið fræðilegt háskóla-
nám.“ Ætti H.í. að sinna öllum þess-
um fiölda, yrði hann að taka upp
margvíslegar námsbrautir, sem veittu
ítarlega starfsþjálfun en bæm með sér
mun minni fræðilegar kröfur en þær
brautir sem nú tíðkast
.Æskilegra væri að slíkar starfs-
menntabrautir væm starfræktar við
framhaldsskóla eða fagháskóla, sem
tækju við stómm hluta þeirra, sem
brautskráðir em úr framhaldsskóla.
Margar þjóðir hafa komið á fót slíkum
fagháskólum við hlið hefðbundinna
háskóla til að mæta þessum þörfum.
Sumir þeir skólar sem nú starfe hér á
háskólastigi geta talist vfsir að faghá-
skólum, en þeir em enn of smáir og
veikburða til að valda sambærílegu
hlutverki og slíkir skólar gegna með
öðmm þjóðum,“ sagði Sveinbjöm.
Hann segir eitt fyrsta verkeftiið sem
sinna þyrfti við mótun og endurskipu-
lagningu háskólastigsins, að skil-
greina með löggjöf þær kröfur sem
gerðar em til skóla til þess að hann
teldist gildur sem háskóli og greina
milli tegunda háskóla eftir eðli starfs
þeirra, t.d. milli almennra háskóla og
fegháskóla.
„Mé virðist sú stefna eiga töluvert
fylgi innan Háskóla íslands, að hann
ætti að leggja áherslu á 3—4 ára
gmnnnám með traustum fræðilegum
gmnni, en láta fegháskólunum eftir
skemmrí námsbrautir og starfs-
menntun," sagði rektor. Ofen á traust
fræðilegt gmnnnám ætti H.í. að
leggja áherslu á rannsóknartengt
framhaldsnám til meistaraprófs og
starfstengt sérfræðinám. í nokkrum
tilvikum gæti orðið kennt til doktors-
prófs.
Þótt Háskólinn hafi orðið að draga
vemlega úr kennslu vegna takmark-
aðra fjárveitinga og þyrfti í raun að
fækka verkefnum, sagði rektor ástæðu
til að geta nokkurra nýmæla sem upp
verða tekin eða em framarlega í for-
gangsröð.
Guðfræðideild muni hefja nám fyrir
djákna á næsta kennsluári. Ætlunin sé
að skipuleggja þetta nám að mestu
leyti samkvæmt gildandi reglum um
90 eininga BA nám í guðfræði. Auk
þess er gert ráð fyrir að fólk - sem lok-
ið hefúr öðm háskólaprófi, Ld. hjúkr-
unarfræðingum eða kennumm - geti
tekið 30 einingar f guðfræði til þess að
fá viðbótarréttindi sem djáknar.
Rektor sagði viðræður hafe ferið
fram milli Samskiptamiðstöðvar
heymarlausra og heymarskertra,
menntamálaráðuneytis og Háskólans
um kennslu í táknmálstúlkun.
Heimspekideild hafi mikinn áhuga á
að koma á námi fyrir þýðendur og
bjóða námskeið í erlendum tungu-
málum fyrir nemendur í lögum og
viðskiptagreinum. Með nánari Evr-
ópusamskiptum vaxi kröfur til þekk-
ingar starfsmanna. Þá sé stefnt að því
innan verkfræði- og raunvísindadeild-
ar að efla kennslu í framleiðslu- og
matvælaiðnaði til að þróa vinnsluað-
ferðir, sjálfvirkar vélar og vinnslulínur
til að nota í íslenskum matvælaiðnaði
og til útflutnings.
Og enn nefndi rektor, að komið hafi
til umræðu hvemig Háskólinn gæti
stuðlað að háskólanámi í kvikmynda-
fræði. - HEI
Athugasemd frá borgarbókaverði:
Ritsafnið aldrei
komið í bókasafnið
Blaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Þórdísi Þorvalds-
dóttur borgarbókaveröi, dagsett 25. júní, vegna fréttar í blaöinu af
því aö Borgarbókasafniö hafi ekki keypt eintök af nýútkomnu rit-
safni Indriöa G. Þorsteinssonar:
„Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur
aldrei pantað 4 eintök af ofannefndu
ritsafni frá bókaforlaginu Reykholti
svo sem fúllyrt er í blaðinu, þar af
leiðandi hefur bókasafnið aldrei
hafnað þeim. Enginn sölumaður frá
þessu bókaforlagi hefur boðið bóka-
safninu þessi 4 eintök og enginn
sölumaður hefur þar af leiðandi ver-
ið „endursendur með þau þegar
hann hugðist fá ritsafnið greitt“,
eins og haldið er fram í blaðinu 22.
júní. Þessu umtöluðu 4 eintök af rit-
safninu hafa sem sé aldrei í safnið
komið. Það er því fullkomin Ijar-
stæða sem blaðið slær upp í fyrir-
sögn laugardaginn 19. júní að staðið
hafi til „að henda Indriða G. út“.
Hér er rétt að komi fram að Borg-
arbókasafhið hefur keypt verk Indr-
iða G. Þorsteinssonar jafnóðum og
þau hafa komið út. Því eru verkin
sem ritsafnið geymir - að undan-
teknu myndbandi - þegar til í bóka-
safninu í eintakafjölda frá 10 upp í
80 og hefur ekki orðið vart að fleiri
eintaka sé þörf eins og er. Breytist
það mun safnið að sjálfsögðu ráða
bót á því. Borgarbókasafn Reykjavík-
ur hefur ávallt kostað kapps um það
að þar sé jafnan að finna ritverk ís-
lenskra rithöfunda, Indriða G. Þor-
steinssonar jafnt sem annarra."
Athugasemd fréttastj.
Ekki verður komist hjá því vegna
þessara ummæla að geta þess að frá-
sögn borgarbókavarðar stangast á
við frásögn sölumannsins sem tók
að sér að selja fyrir Reykholt og er
þar orð gegn orði. Samkvæmt upp-
lýsingum Tímans hefur borgarbóka-
safnið keypt ritsöfn annarra ís-
lenskra höfúnda óháð því hvort
safnið eigi einhver eintök af bókum
sama höfundar fyrir, og í frétt Tfm-
ans var ekki dregið í efa að safnið
ætti fyrir bækur eftir Indriða G.